Þjóðviljinn - 23.04.1967, Page 1

Þjóðviljinn - 23.04.1967, Page 1
Aukablað — I EINAR RRAGI MANSONGUR STEFÁN FRÁ HVÍTADAL: ÞÉR KONUR Þér konur, með víðfaðma vœngi °g vonir, er djarfar blossa. Þér springið út og ilmið við ástir, faðmlög og kossa. Að lokum fölnar og fellur hver fjóla og anganreyr, en kynslóð af kynslóð fœðist og kyssir, starfar og deyr. Þér konur, mig óskiptan eigið í ævinnar slysum og láni. Og yður hyllir mitt hjarta, þótt hár mitt fölni og gráni. Ég breiði fagnandi út faðminn, sjá, fríður guðs heimur erl Og ennþá er ilmur úr grasi og æska í hjarta mér Þér konur, sem ungir vér unnum, í Edens sólríka lundi, þá urðum vér konungar allir, en almúgagerfið hrundi Vér rísum með yður allir, sem elskum og verðum til, þv{ listinni gefið þér lífið og lífinu sól og yl. Þér konur, sem hetjurnar hófuð mót hækkandi sól og degi. Ég þakka yður feðranna framsókn og framann úr Austurvegi. Nú Ijómar sá orustuaðall við aldanna sjónarrönd. Þeir konungar elskuðu allir, sem unnu borgir og lönd. Þér konur, sem hallirnar hækkið og hefjið mannanna sonu, hve Eysteins Lilja er innfjálg af ást hans til jarðneskrar konu. Þér hœkkið vort andlega heiði. unz himnarnir opnir sjást. Hver dáð. sem maðurinn drýgir, er draumur um konu ást. PÁLL ÓLAFSSON: Ég vildi feginn verða að ljósum degi Ég vildi feginn verða að Ijósum degi, en vera stundum myrk og þögul nótt. Þá vœri ég leiðarljós á þínum vegi, þig lyki ég taðmi, þá þú svœfir rótt. Svo undur dauðtrúr ég þér skyldi reynast, að oní gröf éa með bér færi seinast. Og þá menn lœstu líkkistunni aftur, ég læddist eins og skuggi í faðminn þinn, — þvi mannlegur ei meinað getur kraftur, að myrkrið komi i grafarhúmið inn, — Ég vefðist um þig, væri í faðmi binum, unz vékti ég þig með Ijósgeislunum mínum. Eg elska konuna nakta með nœturgala í augum nývaknaða angandi lilju laugaða hvítri morgunsól konuna unga ólétta með knapprauð blóm á bleikum þúfum (þreyjulaus af þrá eftir þyrstum hunangsfiðrildum) bláskugga í laut og læki lifandi vatns úr brjóstum konuna stolta sigurglaða sýnandi allri veröldinni sinn vorsána frjóa akur þar sem undrið vex i myrkri moldinni gljúpu: vex. JÓNAS HALLGRÍMSSON: SÖKNUÐUR Man ég þig, mey, er hin mæra sól hátt í heiði blikar. Man ég þig, er máni að mararskauti sígur silfurblár. Heyri ég himinblæ heiti þitt anda ástarrómi. Fjallbuna þylur hið fagra nafn glöð í grænum rinda. Lít ég það margt, er þér líkjast vill guðs í góðum heimi: brosi dagroða, blástjörnur augum, liljur Ijósri hendi. Hví hafa örlög okkar beggja skeiði- þannig .skipt? Hyí var mér ei leyft Ufí mínu öllu með þér una? Löngum - mun ég, fyrr hin Ijósa mynd mér úr minni líði, á þá götu, er þú ganga hlýtur, sorgaraugum sjá. Sólbjartar meyjar, er ég síðar leit, allar á þig minrva. Því geng ég einn og óstuddur að þeim dimmu dyrum. Styð ég mig að steirtí Stirðnar tunga. Blaktir önd í brjósti. Hnigið er heims Ijós. Himinstjörnur tindra. Eina þreyi ég þig. GUÐMUNDUR BÖÐVARSSON: KYSSTI MIG SÓL Kyssti mig sól og sagði: Sérðu ekki, hvað ég skín? Gleymdu nú vetrargaddinum .sára, gleymdu honum, ástin mín. Nú er ég átján ára. Þá dunaði haustsins harpa í hug mínum þungan slátt. Því spurði ég: Geturðu gleymt þessum rómi, sem glymur hér dag og nátt og býr yfir dauðadómi? Því blaðmjúkra birkiskóga bíður lauffall. og sorg, og vorhuga þíns bíða vökunætur í yetrarins hljóðu borg. Við gluggana frosna þú grœtur. Þá hló hún inn í mitt hjarta, hár mitt strauk hún og kvað: Horfðu í augu mín, ef þú getur, ástin mín, gerðu það — og segðu svo: Það er vetur. Þá sviku mig rökin og siðan syngur í huga mér hinn hjúfrandi blær og hin hrynjam bára hvar sem, hvar sem ég fer: Nú er hún átján ára. Sunnudagur 23. apríl 1967

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.