Þjóðviljinn - 20.06.1967, Page 5
íslandsmotið í knattspyrnu:
Þriðjudagur 20. júní 1967 — ÞJÓÐVTLJINN — SÍÐA g
■ Akureyringar hafa verið heldur óheppnir það sem af
er þessu íslandsmóti, þar til sl. sunnudag. Þá loksins
tókst þeim að sigra og það svo um munaði; þeir gjörsigr-
uðu KR-inga með þremur mörkum gegn einu. KR liðið,
sem ég var að spá miklum frama eftir leik þeirra við
Skagamenn á dögunum, var nær óþekkjanlegt frá þeim
leik. Þvílíkum getumismun á jafnskömmum tíma man
ég vart eftir hjá einu liði. Því held ég að ég verði að
endurskoða þessa spá mína.
Leifcurinn mun hafa staðið i
um það bil 9 mínútur er Skúli
Ágústsson, innherji ÍBA, fékk
knöttinn á vitateigsiínu KR-inga
Hann lagði boltann fyrir sig ó-
sköp rólega og skau* ''"umu-
skoti á blláhomið 1:0 # 71 var
mjög laglega gert hja okúla.
A 14. min. varði Guðm. Pét-
ursson markvörður KR-lnga
fast skot frá Kára Ámasyni af
stuttu færi á nær ótrúlegan hátt.
Akureyringar sóttu mun meir í
fyrri háflfleik og áttu mörg
nokkuð góð taskifæri sem þeim
tókst ekki að nýta.
Svo er það á 28. mín. að upp-
hefst einhver lengsta mistaka-
keðja hjá KR-vörninni, sem ég
man eftir. Boltinn hrökk á ein-
hvem ótrúlegan hátt milli KR-
inga þar til hann loksinshafn-
aði hjá Skúla Ágústssyni, sem
var ekki seinn að afgreiða böit-
ann í netið 2:0. Rótt á eftir
varð Steingrimur miðherji Ak-
ureyringa að yfirgefa völlinn,
en hann var einn baráttug'að-
asti og virkasti framlinuspilari
iBA framan af. Eftir það lin-
aðist heldur sókn ÍBA. KR-ing-
ar náðu þá meiri tökumáleikn-
um og á 44. mín. fær Baldvin
boltann á miðflínu og eftir nokkr-
ar tilfæringar bninar hann á
stað í átt að ÍBA-markinu og
sendir góðan bolta til Gunnars
Felixsonar, sem afgreiddi hann
í netið með góðu skoti 2:1.
Fleiri urðu mörkin ekki í
Afleitt veður spillti 17. júnímótinu:
Guðmundur H. vunn
forsetubikur fyrir
17,17 m i káluvurpi
■ Afleitt veður spillti mjög þjóðhátíðarmóti frjálsíþrótta-
manna hér í Reykjavfk. Var þátttaka lítil í mðrgum
keppnisgreinum og árangur misjafn.
Bezta afrek mótsins vann
Guðmundur Hermannsson KR
í kúluvarpi, hann varpaði kúl-
unni 17,17 metra og hlýtur að
öllum líkindum forsetabikarinn
að launum.
Þá náði Þorsteinn Þorsteins-
son KR góðum árangri í 400
m hlaupi fyrri keppnisdaginn,
hljóp vegalengdina á 49,7 sek.
þrátt fyrir slæmar aðstæður.
í sleggjukasti sigraði Jón H.
Magnússon ÍR, kastaði ðl,20
metra sem er góður árangur.
Sundkeppni 17. juní
Sundkeppni var háð í nýju
sundlauginni í Laugardalnum
17. júní. Þar sigraði Guðmund-
ur Gíslason í 100 m skriðsundi
á 1.09,7 mín Matthildur' Guð-
mundsdóttir vann 100 metrá"
bringusund kvenna á 1.28.7
min, Guðmundur Gíslason vann
200 m bringusund karla í
2.48,4 mín. og Hrafnhildur
Kristjánsdóttir sigraði í 100
m skriðsundi kvenna á 1.08.8
mín.
fyrri hálfleik.
Strax i seinni hálfleik hófú
Akureyringar mikla sókn, sem
endaði með marki á 5. mín.
Kári Ámason fékk boltann á
miðjum vallarhelmingi KR-inga
og brunaði upp völlinn. Hann
lék á tvo varnarleikmenn KR
og síðan á Guðmund markvörð
og sendi bofltann í mannlaust
markið, 3:1. Eftir þetta drógu
Akureyringar sig í vörn og KR-
ingar sóttu nær látlaust það
sem eftir var, en sókn þeirra
var aldrei beitt og næsta auð-
velt fyrir Aikureyringa að verj-
ast. ÍBA átti fá upphlaup í
þessum hálfleik. Eitt skot átti
Kári þó af.stuttu færi, en Guð-
mundur Pétursson varði mjög
naumlega.
Manni virtist sem KR-ingar
fylltust algjöru vonleysi er á
leið seinni hálfleik og er það
heldur sjaldgæft hjá þeim. Til
að mynda áttu þeir einar átta
hornspymur á innan við 15
minútum og fimm þeirra lentu
fyrir aftan markið. En hvað um
það fleiri urðu mörkin ekki og
sigur ÍBA var fullkomlega verð-
skuidaður.
Liðin:
í heild lék iBA-liðið ekkert
betur í þessum leik, heldur en
í undangengnum leikjum sin-
um. Munurinn er aðeins sá að
nú vom þeir heppnari í mark-
skotum. Það kom alloft fyrir f
leikjum þeirrá við Val og ÍBK
á dögunum að þeir fóru illa
með opin marktækifæri. Bezti
maður ÍBA í þessum leik var
Skúli Ágústsson, ég er hræddur
um að landsliðsnefnd hafi ver-
ið einum of fljót á sér að velja
hann ekki í fjórtón manna hóp-
inn, sem fer til Spánar nú-í
vikunni. Jón Stefánsson, Guðni
Jónsson og Kári áttu allir góð-
an leik. Steingrimur var einnig
mjög duglegur meðan hans
naut við.
1 KR-liðinu báru Eyleifur og
Guðm. Pétursson af. Hörður
Markan og Einar Isfeld áttu
báðir góðan leik. Aðrir voru
langt frá sínu bezta. — S.dór.
Staðan í 1. deild
Staðan í Islandsmótinu er nú
þessi: L U J T M St.
Valur 4 3 1 0 8:4 6:4 7
Fram 3 2 1 0 5
KR 3 2 0 1 5:4 4
IBK 4 2 0 2 3:3 4
ÍBA 4 1 0 3 6:7 2
ÍA 4 0 0 4 3:7 0
Unglingameistara-
mótið á Akureyri
Un glinganieista ramót íslands,
sem halda átti dagana 8. og 9.
júlí á Akureyri, mun verða hald-
ið 1. og 2. júM á sama stað.
Einnig mun Drengjameistara-
mót Islands, sem halda átti 1.
og 2. júlí flytjast til og verða
haldið dagana 8. og 9. júM á
Iþróttaleikvanginum í Laugar-
dal. — (Frá FRl).
Guðmundur Hermanusson -KR varpar kúlunni.
Keflvíkingar sóttu en Vals-
mennírnir sigruðu með 2-0
jMvá
Það er ef tiil vili ekki rétt
að segja, að Valsmenn hafi ver-
ið heppnir að skora þessi tvö
mörk. Hins vegar væri það ó-
sanngjamt að hallda því fram
að IBK hefði eikiki átt að skora
fjögur til fimm mörk í stað-
inn. En þrennt varð þess aðai-
lega va'ldandi að þeim tókst
ekki að skora: — Valsvörnin sr
sterk, Keflvikingar voru ó-
heppnir í skotum og svo alveg
frábær markvarzla Gunnlaugs
Hjálmarssonar. Valsmenn verða
áreiðanlega ekki í markmanns
vandræðum í sumar, þvíaðekki
minni maður en Sigurður Dags-
son sat á varamannabekk í
bessum leik.
sóknarlotum sínum. Á 20. mín.
átti Hermann Gunnarsson skot
í stöng af 30 m færi; boltinn
hrökk til Gunnsteins Skúllason-
ar, sem stóð óvaldaður á mark-
teigshorni en skaiut beint á
Kjartan markvörð, sem var
kominn úr jafnvægi. Þegar eft-
ir voru aðeins 14 mín. af leik
hófu Valsmenn eina af sínura
fáu sóknarlotum í þessum hálf-
leik. Hermann Gunnarsson'
komst einn upp undir enda-
mörk, alveg út við hornfána og
hugðist senda boltann fyrir
markið. 1 staðinn fyrir að senda
boltann út í teiginn, þá sendi
Hermann hann alveg upp að
markinu. Boltinn sveif með-
fram þvers-lánni c/g skrúfaðist
inn í markið efst í blá hornið,
en Kjartan gerði enga tilraun
til að verja, 2:0. Við þetta mark
var eins og allur kratftur fæ’.'i
úr Keflvíkingum. / Vaílsmenn
sóttu þær fáu mín. sem eftir voru
án þess að skapa sér nein veru-
leg tækifæri.
Liftin
Bezti maður ÍBK og um leið
bezti maðux vallarins var hinn
kornungi innherji Einar Magn-
ússon. Hann var sívinnandi all-
an leikinn og byggði vel upp
fyrir félaga sína. Að mínum
dómi er Einar einhver efnileg-
asti knattspymumaður sem hér
hefur komið fram um árabil.
Karl Hermannsson var einnig
mjög góður, svo og Jón Ölaf-
ur, einkum í síðari háJfleik.
Guðni Kjartansson ba'kvörður
er vaxandi leikmaður.
Hjá Val var vörnin betri hlutii
liðsins eins og svo oft áður,
með Gunnlaug og Þorstein
sem beztu menn. Halldór Ein-
arsson ætlar ekki að láta af
þessari leiðinda leikaðferðsinni
að hafa meiri áhuga fyrir
manninum en boltanum. Ámi
Njálsson hefur oftast veriðbetri
en í þessum leik. I framlinunni
voru Hermann og Ingvar bezt-
ir. Reynir fær ekkert út úr leik
sínum meðan hann er innilok-
aður i þessari einleiksvitleysu
sinni. Hann verður að gera -ér
grein fyrir því að það eru 10
menn í liðinu með honum. Mér
finnst það vera bjarnargreiði
við Ounnstein Skúlason að láta
- leika með liðinu meðan
n "tur ekki meira en hann
: sýnt í vor. Þetta er kom-
ungur piltur sem efllaust á eft-
ir að verða góður með tíman-
um, en hanns tíma er bara
ekki kominn.
★
Dómari var Steinn Guðmunds-
son og dæmdi vel. Steinn er að
verða einn okkar bezti dómari.
Það hefur hann sýnt í leikjun-
um ‘ sem hann hefur dæmt í
sumar. — S.dór.
Fyrri hálflei'kur var mun
jafnari en sá síðari. Þó áttu
Keflvfkingar heldur meira í
honum og þeirra tækifæri voru
öllu opnari. Leikurinn i heilld
var mjög skemmtilegur og mik-
ill baráttuleikur. Framan af
sköpuðust ekki mörg mark-
tækifæri. Það var eiginlega ekki
• fyrr en á 20. mín. að veruleg
hætta skapaðist. Hermann komst
út að endamörkurri og gaf það-
an fyrir til Ingvars,^sem skaut
viðstöðulaust, en Högni Gunn-
laugsson bjargaði á línu. Tíu
mín. síðar var Einar Magnússon
hægri innherji ÍBK, í dauða-
færi og skaut, en Gunnlaugur
Hjálmarsson varði hreint stór-
kostlega. Þetta var fast skot af
markteig út við stöng en á ein-
hvem óskiljanlegan hátt tókst
Gunnlaugi að handsama bolt-
ann.
Svo er það á 40. mínútu að
fyrra mark Valls köm. Gunn-
steinn Skúlason tók homspymu
frá hægri, Keflvíkingar iikalla
frá, boltinn hrökk til Jóns Ól-
afssonar, h. útherja Keflvikinga,
sem hugðist hreinsa frá, en hitti
boltann illa og sfeaut að eigin
Gunnlaugur: liðtækur í knatt-
spyrnu ekki síður en í hand-
knattleik.
•
marki. Reynir Jónsson kom að-
vífandi og skallaði i netið 1:0.
Þétta var hálfgert sjálfsmarií,
því að Reynir þurfti naumast
nema rétt að korna við boltann.
Þannig endaði fyrri hálfleikur.
1 síðari hálflleik var næstum
einstefna að Valsmarkinu. Hvað
eftir annað tókst Valsmönnum
að hreinsa frá á síðustu stundu
eða Gunnlaugur varði og í
þriðja lagi voru Keflvíkingar
ekiki á skotskónum þennan dag.
Á 15. mín. áttu Keflvíkingar
skot í stöng áf stuttu færi. Á
17. mín. var Einar Magnússon
frír á maiikteig, en sikautfram-
hjá, og rétt á eftir var Jón
Jóhannesson einn á vítapunkti,
en Gunnlaugur varði. Valsmenn
áttu okkrar sóknarlotur, sem
voru töluvert hættulegar fyrir
það hvað Keflavíkurvömin Jék
framarlega í þessum miklu
Skrúðgarðabókin
i er komin í bókabúðir. Þessir eru 8 aðalkaflar bók-
arinnar: Heimilisgarðurinn — Grasfletir —-Jarð-
vegur og áburður — Tré og runnar — Fjölærar
• plöntur — Steinhæðar plöntur — Laukjurtir og
sumarblóm. Bókin 'er skrifuð af 8 af okkar hæf-
ustu mönnum á þessu sviði. Bókin er 320 blaðsíð-
ur í stóru broti með 240 myndum og teikningum.
Einnig eru 29 litmyndir allar úr íslenzkum görð-
um. Skrúðgarðabókin verður bezta hjálpin í garð-
inum ykkar. Tryggið ykkur eintak í tíma. Pöntun-
um veitt móttaka í póstbólfi 209 eða síma 13829.
Garðyrkjufélag íslands.
Loksins komust Akureyringar í gang
og sigruBu KR me& 3 mörkum gegn 1
t
1