Þjóðviljinn - 28.06.1967, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 28.06.1967, Blaðsíða 3
 r Miðvikudagur 78. júní 1967 — ÞJÓÐVILJINN — slÐA J Hússein konungur ræðir við Johnson í dag ísraelar undirbúa innlimun eystri hluta Jerúsalems Ný átök við Súezskurð? Höfnum og flugvöllum lok- að vegna vopnaflutninga TEL AVIV WASHINGTON 27/6 — ísraelsstjóm hefur bor- ið fram lagafrumvarp sem miðar að því að innlima gamla borgarhlutann í Jerúsalem í Ísraelsríki, en því er jafnframt lofað að frjáls aðgangur verði að helgistöðum í borginni. Páll páfi hefur hvatt til þess að Jerúsalem verði sett undir alþjóðlega stjóm. KAIRO, BELGRAD 27/6 — Flugvellinum í Kaíró var lok- að í gær og höfninni í Alexandríu var lokað um nokkurra tíma skeið fyrir skipaumferð í morgun. Er þetta sett í samband við mikla sovézka hergagnaflutninga til landsins. Þegar í gær v-pru ísraelskar stúlkur sendar um götur gamla borgarhlutans sem Jórdaníu- menn misstu í stríðinu til að gera þar manntal. Útgöngubann var á meðan á manntali stóð og þeim hótað refsingu sem brytu það. % ÍBA - ÍA 4:1 ÍBK - FRAM 1:1 Tveir leikir fóru fram í 1. deild í Islandsmótinu í knattsypmu í gærkvölld, milli IBK og Fram á Laugardalsvellinum í Rvík og á milli Akureyringa og Akurnes- inga á Akureyri. Leik IBK og Fram lauk með jafntefli 1:1 eftir sömu stöðu < hólfleik, en Akureyringar sigr- uðu lið Akurnesinga 4:1; staðan f hálfleik var 1:1. Nána* verður sagt frá leikjun- um á íþróttasíðu blaðsins á morgun. Kosygin á Kúbu Framhald af 1. síðu. árásum á N-Vietnam og verða á brott með her sinn úr suðurhlut- anum ef frið ætti að tryggja. Helzt er búizt við því að fund- ur þeirra hafi borið raunhæfan árangur að því er varðar sam- komulag um bann við útbreiðslu kj amavopna. Hópferðir á vegum L&L MIÐ- EVRÓPUFERÐ 25. júlí-—16. ágúst '23ja daga ferð fyrir aðeins kr. 17:950,00. Meðal frægra viðkomu- staða: Róm, Cannes, Monte Carlo, París, Amsterdam. Fararstjóri: Þorsteinn Magnússon, kennari. I dag var svo ofangreint laga- frumvarp borið' fram á þingi og miðar það að innlimun borgar- hlutans. f viðaukafrumvarpi sem heitir „Verndun helgistaða“ segir m.a.: Helgistaðir skulu verndaðir fyrir saurgun og fyrir öllu sem getur hindrað frjálsan aðgang aHra trúarfélaga að stöð- um sem þeim em heilagir. Páll páfi sagði í ræðu í gær að hinn heilagi hluti Jerúsalem ætti að vera guðs borg, frjáls vin fyrir frið og bænahald og ætti að setja þennan þorgarhluta undir alþjóðlegt eftirlit. Ræðu sína flutti Páll páfi í tilefni út- nefningar 27 nýrra kardínála. Tilkynnt var í Washington í dag, að Hússein Jórdaníukon- ungur myndi ræða við Johnson forseta í Hvíta húsinu á morg- un. Hússein hélt ræðu á auka- fundi allsherjarþingsins í gær. Hann veittist mjög að ísraels- OSLÓ, REYKJAVÍK — Utanrík- isráðherra Vestur-Þýzkalands, Willy Brandt, kom í heimsókn til íslands á föstudag og átti hér um helgina viðræður m.a. við forsætis- og utanríkisráð- herra. Héðan hélt hann á sunnu- dag til Oslóar. Á’ blaðamanna- fundi bæði hér og i Osló kom fram, að ráðherrann telur aðild íslands að Efnahagsbandalaginu vart koma til greina. Ummæli Brandts um þessi efni voru nokkru afdráttarlaus- ari í Osló en hér. f Osló sagði RollÍRgarnir í eiturlyf jum? CHICHESTER, Englandi — 27/6. Popsöngvarinn Mike'Jagger, einn af „Rolling Stones“ hefur verið handtekinn. ákærður um að hafa eiturlyf í fórum sínum. Annar „rollingur". gítarleikarinn Keitb Richartí, verður leiddur fyrir rétt á miðvikudag ^yrir sama afbrot. RANGOON 27/6 Trylltur múgur fór um götur höfuðborgar Burma í dag, réðst á kínverzkar mönnum fyrir notkun benzín- hlaups gegn óbreyttum borgur- um í stríðinu og fyrir ómannúð- lega meðferg á óbreyttum borg- urum, sem hefði magnað flótta- mannastrauminn austur yfir Jórdan og gert flóttamanna- vandamálið erfiðara en nokkru sinni fyrr. Hann sagði að Jer- úsalem. væri nú í óvinahöndum í fyrsta sinn í 1300 ár en sagð- ist vilja minna ísraelsmenn á það, að ríki þeirra Davíðs og Salómons hefði staðið aðeins í 70 ár og ríki krossfara í 100 ár. Hann sagði og, að Jórdaníumenn hefðu umsvifalaust hlýtt boðum Sameinuðu þjóðanna um vopna- hlé, en ef SÞ leyfðu að árásar- menn héldu einhverju af hinum hernumdu svæðum mættu bser ekki búast við að beim yrði hlýtt í neinu upp frá því. Meðal þeirra sem í dag tóku til máls á allsherjarþinginu var fulltrúi Finna, Jakobson. Hann lagði áherzlu á hlutleysi Finna, •en sagði þá reiðubúna til að senda hermenn í gæzlulið SÞ í Austurlöndum nær ef þurfa þætti. Hann var fýlgjandi því að ísraelsmenn drægju her sinn til fyrri landámæra. hann á þá leið, að ef ísland gerðist fullgildur aðili að FBE myndi landið missa sérkenni sín, ef ákvæði bandalagsins um frjálsa hreyfingu fjérmagns og frjálsan vinnumarkað væru lát- in gilda um svo lítið ríki. Hér sagðist Brandt ekki vilja teggja íslenzkri ríkisstjórn ráð, en hann skildi vel að íslending- ar vildu fara að öllu með gát að því er varðar ofangreind atriði. Hann hélt þvi fram um leið. að ríkisstjórn sín vildi af vinsemd vinna að einhverju því fyrir- komulagi sem gæti auðveldað íslendingum samstarf við Efna- hagsbandalagsríkin. Willy Brandt sagði að stjórn sín vildi leggja á það meira kapp en aðrar vesturþýzkar stjórnir að bæta sambúð við Austur-Evrópulönd. Hún teldi ekki lengur að sameining Þýzka- lands værj forsenda fyrir bættri sambúð. Stjómin vildi að vísu ekki sættast við óbreytt ástand í Þýzkalandi., en vildi koma á sambúð og samstarfi við Austur- Þjóðverja um ýmis mál — verzl- un, viðskipti, menningarmál. verzlánir, kveikti í bifreiðum og grýtti heimili Kínverja í borg- inni. í gær bárust fréttir um að flugvellinum í Kaíró hafi verið lokað „í bili“ og ekki hafa bor- izt fréttir um að hann hafi aft- ur verið opnaður. Þá var er- lendum flugvélum bannað að fljúga yfir egypzkt land. í ^ær tilkynnti fréttaritari júgóslavneska blaðsins Borba frá Kaíró, að Sovétmenn hefðu komið á loftbrú til Égyptalands til að flytja þangað hergögn í stað þeirra sem glötuðust á Sinaiskaga i stríðinu við ísra- elsmenn. Taki sovézkir sérfræð- ingar við hergögnum þessum og SAIGON 27/6 Tveir bandarískir flugmenn, sem urðu að stökkva út úr flugvél sinni er hún var Kosygin hitt- ir dé Gauiie PARÍS 27/6 De Gaulle mun eiga viðræður við Kosygin forsætis- ráðherra Sovétríkjanna er hann kemur til Frakklands á laugar- dagsmorgun, að því er tilkynnt var á skrifstofu forsetans í dag. Þeir Kosygin og de Gaulle hitt- ust i París áður en Kosygin flaug vestur um haf á dögunum. Á morgun mun de Gaulle ræða við forsætisráðherra Rúm- eníu, Ion Gheorghe Maurer, sem ræddi við Johnson forseta í Washington í gær. sjái um að finna þeim stað í varnarkerfi Egypta. Þá segir hann og að Egyptar hafi fengið nýjar sveitir af sovézkum or- ustuþotum og þyrlum sem séu á ferli yfir borginni dag og nótt. Frá Tel Aviv berast þær frétt- ir að brynvögnum hafi fjölgað og stórskotalið hafi verið eflt á vesturbakka Súezskurðar, sem Egyptar halda. Hafi Israelsmenn séð í sjónaukum unnið af kappi að því að efla varnir Egypta meðfram skurðinum. Eríendir fréttamenn í Kaíró hafa sumir hverjir talið, að Egyptar óttuð- skotin niður af kínverskum or- ustuflugvélum yfir Suður-Kína- hafi, komu til Danang í dag. Hafði bandarísk þyrla bjargað þeim úr sjónum skammt frá Hainan. Flugvélin var á leið frá Filippseyjum til Danang í Suð- ur-Vietnam, þegar hún „fyrir mistök“ flaug yfir kínverskt yfirráðasvæði við eyna Hainan, að þvi er talsmaður Bandaríkja- hers upplýsir. ★ Fréttastofan Nýja Kína setur þénhan atburð í samband við viðræður þeirra Kosygins og Johnsons um helgina, en kín- verfk blöð hafa mjög hamazt á því að þeír hafi verið að brugga launráð gegn Vietnammönnum og Arabaríkjum. Og hafi bessi bandaríska bota sem skotin var niður, verið send sérstaklega til að ögra Kínverjum. segir frétta- • stofan ennfremur. ust að ísraelsmenn myndu reyna aðsækja fram vestur yfir skurð- inn, þar eð þeir teldu ekki full- an sigur unninn fyrr en þeir hefðu hrakið núverandi stjórn Egypta frá völdum. Baðmullarupp- skera í hættu KAIRO 27/6 — Mörg hundruð þúsund Egyptar, þeirra á meðal skólabörn, hafa verið kallaðir út til að bjarga baðmuharuppskeru Egypta, sem nú er í hættu fyrir sakir blaðormsfaraldurs. Baðmull er heflzta gtialdeyris- tekjulind Egyp'ta fyrir utan Súez- skurðinn, sem nú er lókaður. ----r——————————, Slys í slippuum í Keflavík Það slys varð í Keflavík um þrjúleytið á mánudag, að 12 ára drengur sem var að leika sérum borð í bát sem þar er í slipp, datt út úr bátnum og slasaðiat talsvert, fékk heilahristing og sprakk í honum maginn. Drengurinn sem heitir Björg- vin Garðarsson, til heimilis á Birkiteig 15 í Keflavúk, varstrax fluttur í sjúkrahúsið og skorinn þar upp um kvöldið og var líðan hans talin eftir atvikum : í gær. Drengur féll ú vlnnupalli Níu ára drengur, Júlíus Heiðar Sigurðsson, féll í gærmorgun af vinnupalli við húsið Grenimel 43. Fékk Júlíus slæmt högg, var fluttur á slysavarðstofuna og þaðan á Landakotsspítala þar sem hann liggur nú. BYGGÐARSAFN VESTMANNAEYJA • >> Byggðarsafnið verður framvegis opið almenningi á sunnudögum kl. 4—6 síðdegis. Sjóminjadeild Byggðarsafnsins hefur nú fengið sérstakt húsnæði ásamt náttúru- fræðideild þess. Þar gefur að líta um 100 tegundir uppsettra fiska og megin hluta íslenzkra skelja og kuðunga m.m. \ Fólk utan af landi, sem gistir Eyjar og óskar eftir að sjá Byggðarsafn Vest- mannaeyja, hafi samband við safnvörðinn, Þorstein Þ. Víglundsson, sparisjóðs- stjóra, ef það óskar eftir að sjá safnið á öðrum tíma en hér er tilnefndur. Vestmannaeyjum, 26. júní 1967. 1 Byggðarsafnsnefnd Vestmannaeyja /AxÉk\ FERÐASKRIFSTOFA RlKISIIHS Brandt telur aðild Islands að EBE hæpna og óiikiega -----------------------j---- Ráðist á heimili Kínverja og sendiráð i Rangoon Kinverjar skutu niður f/ug- vél fyrir Bandaríkfamönnum Pantið far sem fyrst. ÁkveSið ferð yðar snemma. Skipuleggjum einstaklingsferðir, jafnt sem hópferðir. Leitið frekari- uppiýsinga í skrifstofu okkar. OpiS f hádegfnu. LÖND&LEIÐIR ^Aðalstræti 8,sími 2431^ Reyna að kljúfa Suður-Vietnam? SAIGON 27/6 Búizt er við hörð- um bardögum innan skamms á hásléttunum í miðhluta Suður- Vietnam, en Bandaríkjamenn segja skæruliða reyna að sækja þar fram og kljúfa landið í tvennt. Hafa þeir sent herstyrk tii Dak To þar sem Banda- ríkjamenn hafa gert flugvöll, en skammt frá honum féllu 80 Bandaríkjamenn í fyrri viku. Húsgögnum úr kínverskum heimilum var safnað saman og brennt á götunum, og aðvífandi slökkviliðsmenn hraktir á flótta. Þá var ráðizt á kínverska sendi- ráðið í Rangoon. Sex Kínverjar voru flultir á sjúkrahús. * ' Oeirðirnar hófust í gær við kínverskan skóla í borginni er Burmamenn söfnuðust saman við skólann og kröfðust þess að nemendur tækju áf sér merki með mynd af Maó Tse-tung, en yfirvöldin höfðu áður bannað slík merki. Kom þar til átaka sem síðan breiddust fljótt út um borgina. NÝR BÆKLINGUR. NÝJAR FERÐIR. NÝ VERÐ. Vinsamlega lítið inn og takið eintak með yður eða hringið eða skrifið og við mun- um senda yður eintak. LÆKJARGÖTU 3, REÝKJAVÍK, SIMI 11540

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.