Þjóðviljinn - 28.06.1967, Qupperneq 4
4 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN — Miðvifcudagur 28. júm' 1967.
Otgefanai: Saimeiningarflokicur alþýöu — Sósíalistaflokk -
urinn.
Ritstjórar: Ivar H- Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V Friðþjófsson-
Auglýsingastj.: Sigurður T. Sigurðsson.
Framkvstj.: Eiður Bergmann.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar. prentsmiðja SkólaVörðust 19.
Sími 17500 (5 línur) — Askriftarverð kr. 105.00 ó mánuði. —
Lausasöluverð kr. 7.00- *
Velkomnir gestir
JJér eru um þessar mundir staddir þrír fulltrúar
frá Þjóðfrelsishreyfingunni í Suður-Víetnam,
einkar velkomnir gestir. Vonandi stuiðlar koma
þeirra hingað að því að auka mönnum skiliting á
styrjöldinni í Víetnam, þar sem öflugasta herveldi
heims hefur árum saman beitt sívaxandi mannafla
og morðtækni gegn fátækri smáþjóð án þess að ná
nokkrum árangri öðrum en þeirn sem felst í dauða
og tortímingu landsfólksins.'Þjóðfrelsishreyfingin
ræður enn yfir fjórum fimmtu hlutum landsins.
Því aðeins er unnt að heyja þvílíka baráttu gegn
tæknibúnum atvinnuhersveitum, að einhuga þjóð
beiti öllu afli sínu gegn innrásarherjunum; reynsl-
an sjálf hefur margfaldlega hrakið þá kenningu að
Þjóðfrelsishreyfingin sé einhverjir annarlegir inn-
fluttir erindrekar. Skilningur á þessari staðreynd
hefur farið vaxandi um heim allan að undanförnu,
einnig hérlendisv og hann þarf að birtast í síharðn-
andi andstöðu við árásarstyrjöld stórveldisins.
Kaupmannahöfn
þjóðviljinn gefur í dag út aukablað sem er helg-
að 800 ára afmæli Kaupmannahafnar. Ekki er
það að ástæðulausu að íslendihgár taka þátt í há-
tíðahöldum Dana af því tilefni, svo lengi sem Kaup-
anannáhöfn var einnig höfuðborg íslands; þar voru
teknar ákvarðanir um málefni íslendinga öld eftir
öld. Kaupmannahöfn er tengd niðurlægingartíma-
bili í sögu okkar; þegar við sjáum .þar fomar hallir
minnumst við þess allslausa íslands sem reisti sig
að lokum undan erlendu fargi; Kaupinhafn er
borgin sem „danskir hafa þegið af íslenzkum“, seg-
ir Jón Marteinsson í íslandsklukkunni: „Þessi borg
var ekki aðeins reist fyrir íslenzka penínga held-
ur er hún lýst með íslenskum grút“. En við skulum
minnast þess að hörð örlög íslenzkrar alþýðu á
þeim öldum vom engu lakari en þau kjör sem
dönsk alþýða mátti búa við.
Jgn Kaupmannahöfn er einnig tengd öðrum minn-
ingum. Þar var um langt skeið miðstöð ís-
lenzkrar sjálfstæðisbaráttu; þar var aðsetur Jóns
Sigurðssonar og Fjölnismanna; þar hafa orðið 'til
sum þau ljóð sem fegurst hafa verið ort á íslenzka
tungu; þar var það tungutak, sem íslenzk sveita-
alþýða varðveitti, gert að lifandi bókmenntamáli
á nýjan leik; þar hefur fornum menningararfi ís-
lenzkuim Verið sýnd mest rækt til skamms tíma.
Kaupmannahöfn var tengiliður íslánds við um-
heiminn, þaðan bárust okkur straumar og stefnur,
m.a. fyrstu vísar verklýðsbaráttu og sósíalisma. Og
raunar er svo ástatt enn í dag að tengsl okkar við
umheiminn eru að verulegu leyti um Kaupmanna-
höfn, þar hefur stærstur hópur íslenzkra náms-
manna erlendis aðsetur, og flestir íslendingar sem
til útlanda fara eiga einhverja viðdvöl í borginni
við sundið, þar sem kunnugir geta hvarvetna geng-
ið að íslenzkum sögustöðum.
því er 800 ára afmæli Kaupmannahafnar einnig
íslenzkt afimæli; við getum borið fram við sjálfa
okkur hluta af þeim ámaðaróskum sem við send-
um frændum okkar dönskum. — nu
Tvö íslandsmet í Dyflinni:
Guðmundur H. 17,78 í kúlu,
Þorsteinn 1:50,2 á 800 m
□ Landslið fslands í frjálsum íþróttum stóð sig fram-
ar vonum í undankeppni Evrópubikarkeppninnar í
Dyflinni á írlandi um helgina, en glæsilegust voru af-
rek Guðmundar Hérmannssonar og Þorsteins Þorsteins-
sonar, sem báðir settu afbragðsgóð íslandsmet.
Guðmundur Hermannsson
sigraði með miklum yfirburð-
um í kúluvarpi, varpaði kúl-
unni 1,74 metra lengra en næsti
maður og bætti enn Islandsmet
sitt i 17,78 metra.
Þorsteinn Þorsteinsson bætti
met Svavars Markússonar í 800
metra hlaupi um 3/10 úr sek-
úndu, hljóp vegalengdina á
1.50,2 mín. en varð þó að láta
sér nægja þriðja sætið í keppn-
inni. Þorsteinn náði líka prýði-
legum árangri í 400 m hlaupi,
hljóp á 48,6 sek. sem er nýtt ís-
Ienzkt unglingamet.
Belgir sigruðu
Sem fyrr var sagt, var hér
um að ræða undankeppni HJvr-
ópuibikarkeppninnar í frjálsum
íþróttum og tóku þrjár þjóðir
þátt í keppni þessa riðils:
Belgíumenn, írar og íslending-
ar. Lúxemborgarar hættu við
keppni,
f hverri grein keppti einn
maður frá hverri þjóð, en sú
þjóð sigraði sem hflaiut flest
stig.
Eins og búizt var við báru
Belgir Sigur úr býtum, þeir
hlutu 115 stig. írar voru í öðru
sæti með 98,5 stig og íslending-
ar ráku lestina-með 86,5.
Tveir sigurvegarar
Auk Guðmundar Hermanns-
nar, sem sigraði í kúluvarp-
inu, áttu fslendingar sigurveg-
arann í hástökki, Jón Þ. Ólafs-
son sem stökk 1,96 metra.
Af öðrum árangri íslendinga
er þessa helzt að geta:
Ólafur Guðmundsson varð
annar í langstökki, stökk 6,96 —
aðeins 1 cm skemur en sigur-
vegarinn. í 100 m hlaupinu varð
Ólafur þriðji á 11,6 sek.
íslandsmótiS, 1. deild:
KR-ingar léku sér að Vals-
mönnum og sigruðu |>á 5:1
□ Eftir mjög*góÖan leik gegn Í.A. en séi'staklega lé-
legan ieik gegh Í.B.A. biðu menn í ofvæni eftir því
hvað' KR-lrigar’ myndu gera gegn Val s.l. mánudags-
:kyöld. Dg. KR-ingar brugðust ekki sínum aðdáendum
þetta kvöld. Þeir komu mjög ákveðnir til leiks og sýndu
einhvern jákvæðasta sóknarleik sem sézt hefur um
langt skeið hjá íslenzku liði. Enda varð uppskeran eft-
ir því: 5 mörk gegn 1. Valsmenn voru aftur á móti í
daufasta lagi, sérstaklega vömin sem hingað til hefur
verið betri helmingur liðsins. Framlínan var eins og
oft áður ekki nógu beitt.
Þáttur Eyleifs Hafsteinssonar
í þessum leilc er svo stór að
lengi mun í minnum haft, þvi
það má segja að hann, ásamt
ungum nýíliða, hafi unnið leilc-
inn fyrir K.R. Þessi ungi mað-
ur, sem aðstoðaði Eyleif svona
vel, heitir Jóhann Reynisson og
fék í stöðu h. útherja í stað
Harðar Markan. Eyleifur skor-
aði þrjú mörkin sjálfur en átti
auk þess allan undirbúning
hinna tveggja. Jóhann aftur á
móti átti tvær, sendingar fyrir
markið sem Eyleifur skoraði úr
og eina sem Baldvin skoraði úr
eftir að Eyleifur hafði sent til
hans boltann út að endamörk-
um.
Annars voru það Valsmenn
sem byrjuðu að skora. Á 5. mín.
var dæmd aukaspyma á KR d
miðlínu. Árni Njálsson spymti
föstum bolta að K.R. markinu,
þar sem Ingvar skallaði í net-
ið efst í homið 1-0. Það er svo
ekki fyrr en á 16. mín. sem
stórsikotahríð Eyleifs og féllaga
hefst. Jóhann Reynisson fékk
góða sendingu frá Eyleifi út að
endamörkum og sendi fyrir
markið til Baldvins sem skall-
aði í netið eftir mistök Gunn-
laugs Hjálmarssonar í úthlaupi
1-1. Einni mínútu síðar gefur
Jóhann aftur fjrrir markið og
nú til Eyleifs sem skallaði bolt-
ann efst í homið allsendis ó-
verjandi 2-1. Og svo fjórum
mínútum síðar leika þeir Jó-
hann og Eyleifur sama leikinn
aftur, nema nú skaut Eylleifur
viðstöðuiaust hörkuskoti 3-1.
Eins og á þessu sést áttu
Valsmenn lítið í leiknum fram
til þessa. En við þriðja markið
var eins og þeir vöknuðu af,
dvala og hófu mikla sókn og
voru oft. nærri því að skora.
M.á. bjargaði Magnús Guð-
mundsson markv. K.R. sem lék
í stað Guðm. Péturssonar sem
var meiddur, tvisvar mjög
naumlega. Á 31, mín. bjargaði
Bjami Felixson á línu. Það var
eins og ekkert heppnaðist hjá
Val þetta kvöld.
Þegar fiipm minútur voru
eftir af fyrn hálfleik sendi Ey-
leifur góðan bolta til Gunnars
Felixsonar sem brunaði upp, en
HaMdór EiSarsson miðv. Vals
náði að stöðva Gunnar, endatt
þegar hann hugðist hreinsa frá
svo Gunnar náði boltanum aft-
ur og skoraði úr þröngri stöðu
4-1. Þarna var Gunnlaugur illa
staðsettur.
1 seinni hálfleik léku K.R.-
ingar undan vindinum og menn
fóru að tala um vallarmet í
mörkum. Svo fór þó ekki, því
aðeins eitt mark var skorað í
s.h. Á 7. mín. sendi Baldvin
bcltann til Eyleifs sem lék á
vamarmann. Vals og skoradi alls !
óverjandi fyrir Gunnlaug. 5-1.
Á 16, mín. er Hermanni
brugðið innan wbateigs K.R. er
hann hugðist skjóta en öHlum
til miki'Har furðu (eins og svo
oft áður í þessufri leik) dæmdi
Grétar Norðfjörð óbeina aufca-
spymu ???
Liðin:
Bezti maður vallarins var eins
og áður segir Eyleifur Hafsteins-
son. Ég held að allir séu sam-
mála um að hann hafi aldrei
verið betri exj nú í sumar. Hann
er án efa orðinn okkar bezti
knattspyrnumaður í dag. Ný-
liðinn, Jöhann Reynisson, kom
mikið á óvart og sýndi skínandi
leik. Ársæll Kjartansson átti
mjög góðan leik að þessu sinni.
Nýliðinn í markinu, Magnús
Guðmundsson, stóð vel fyrir
sínu. Bjami FeOixson leikur
alltaf eins og örgeðja unglingur,
þrátt fyrir nokkum árafjölda.
Ellert Schram er langt frá sínu
bezta. Þessi skapillska og allt að
því háslcaleikur hans er alveg
ný hlið á Bllert. En þétta vill
koma fyrir þegar menn fára að
tapa sér knattspyrnulega séð.
Hjá Val! voru Hermann og
Ingvar einna skérstir, annars
var liðið allt lángt frá sinu
bezta. Meira að segja Þorsteinn
og Ámi brugðust algjörlega,
sem er fremur sjaldgæft. Gunn-
laugur í markinu átti líka
slæman dag og má kenna hon-
um aliveg um tvö mörkin, það
fyrsta og fjórða.
Þáttur dómarans Grétars
Norðfjörð í þessum leik er
kapítuli út af fyrir sig. Ég held
að það séu ár og dagar síðan
ég hef séð önnur eins dómará-
störf í knattspymu. Það var
ekki nóg með að hann gerði
fjöldann allan af villum, heldur
er ósamræmið svo mikið að
Framhald á 9. síðu.
Erlendur Valdimarsson varð
annar í kringlukasti; kastáði
47,72 m sem er bezti árangur
Islendinga í þeirri grein í ár.
Jón H. Magnússon varð þriðji
í sleggjukasti — 51,34 m, Björg-
vin Hólhn þriðji í spjótkasti
(91,98 m), Páll Einarsson 2.-3. í
stangarstökki (3,60 m), Halldór
Guðbjömsson þriðji í 1500 m
hlaupi (3.59,6 mín.), Jón Þ.
Ólafsson þriðji í ' þrístökki
(13,58 m), Þórarinn Amórs-
son þriðji í 5000 metra hlaupi
(16.09,9 mín) og íslenzíka sveitin
þriðja í 4x400 m boðhlauní
(3.28,8 mín.).
Knattspyrna
Um helgina. fór fram á Isa-
firði leikur í 2. deild íslands-
mótsins i knattspyrnu , við I-
þróttabandalag Vestmannaeyja
Vann lið Isfirðinga með 2
mörkum gegn einu.
Handknattleskur
Islandsmót í handknattleik
utanhúss fer fram í Hafnarfirði
á tímabilinu frá 22. júlí n. k.
til 20. ágúst.
Mótið mun fara fram á mal-
bikuðu svæði við Lækjarskóla
og verður í umsjá Handknatt-
leiksdeildar F. H.
Tilkynningar um þátttöku
þarf að senda til Handknatt-
leiksdeildar F. H. £ P. O. Box
210, Hafnarfirði eigi síðar en
9- júlí n- k.
Keppt verður i meistaraflokki
karla og kvenna.
BÓKAMARKAÐURINN KLAPPARSTÍG 11
Mikið úrval góðra bóka með gamla verðinu. Notið þetta einstæða tækifæri og kaupið ódýra og
góða bók. Verð frá kr. 10.00 til kr. 100,00 bókin. — Koimið ogskoðið meðan úrvalið er sem mest.
BÓKAMARKAÐURINN, Klapparstíg 11.