Þjóðviljinn - 14.09.1967, Blaðsíða 2
/
2 SlÐA — ÞJOÐVILJINN — Fimmtudagur 14. september 1967.
Styrkveiting
úr Langveds-
sjoði akveom
Hjónin Selma, faedd Guðjohn-
sen, og Kaj Langvad verkfræð-
ingur í Kaupmannahöfn stofn-
uðu árið 1964 sjóð við Háskóla
Islands til eflingar menningar-
t'engslum íslands og Danmerkur.
Stjórn sjóðsins hefur nú út-
hlutað úr sjóðnum í briðja sinni.
Þessu sinni var úthlutað náms-
styrk til íslenzks kandídats.
Styrkinn, að fjárhæð 35.000,00
krónur, hlaut Sigfús Johnsen
eðiisfræðingur til framhaldsnáms
í eðlisfræði við Kaupmannahafn-
arháskóla.
(Frétt frá Háskóla ísHands).
Fyrirlestur um
danska utanrík-
isstefnu
Prófessor, dr. phil. Troels Fink,
aðalræðismaður Dana í Flens-
borg, flytur fyrirlestur í boði
Háskóla íslands n.k. þriðjudag
19. september kl. 5.30 e.h. í I.
kennslustofu Háskólans.
Fyrirlesturinn, sem' fluttur er
á dönsku. nefnist „Hovedlinier i
dansk udenrigspolitik 1790—
1949“.
Öllum er heimill aðgangur.
(Frétt frá Háskóla íslands).
Sjálfs-
Kirting
„Ástandið í skólamálum
okkar er að sumu leyti geig-
vænlegt. Talið er að um 12%
af hverjum árgangi íslenzks
æskufólks hefji nú menntá-
skólanám og að um 10% ljúki
stúdentsprófi. Verulegur hluti
þeirra, sem Ijúka stúdents-
prófi, heíja aldrei háskóla-
nám eða ljúka því ekki. Til
samanburðar má geta þess, að
35% af hverjum árgangi
sænsks æskufólks ljúka stúd-
entsprófi og skv. áætlunum
sem gerðar hafa verið mun-
um við ná því marki í skóla-
sókn unglinga á aldrinum
16-18 ára 1980, sem Svíar ná
1970. Þetta er stóralvarlegt
mál og sýnir að hættuleg veila
er í skólakerfi okkar. Á sama
tíma og aðrar þjóðir leggja
sig fram um að auka mennt-
un æskufólks, einfaldlega
vegna þess, að nútímaþjóðfé-
lag byggist fyrst og fremst á
menntuðu fólki, er augljóst
að við íslendingar beinlíriis
vinnum gegn því að íslenzkt
æskufólk leggi fyrir sig lang-
skólanám. Ef til vill vinnum
við ekki vísvitandi gegn því,
en greinilegt ér að kerfið er
slíkt %ð það er hemill á
skólagöngu æskufólks hér á
landi ... Sá grunur læðist
einnig að, að húsnæðisskort-
ur menntaskóla okkar hafi ef
til vill haft einhver áhrif í
þá átt að þyngja landsprófið.
Við verðum að gera okkur
grein fyrir því nú þegar, að
sú skammsýni, sem fram kem-
ur í vali þess takmarkaða
hóps æskufólks, sem nú á
kost á langskólanámi í okkar
landi á eítir að valda okkur
verulegum erfiðleikum á
næstu áratugum, einfaldlega
vegna þess að við munum
ekki eiga á að skipa nægilega
velmenntuðu fólki til þess að
halda uppi lífskjörum til
jafns við aðrar þjóðir, sem
nú leggja áherzlu á að mennta
sína æsku, meðan við setjum
Malhikunarframkvæmdir í Arbæ
Þar sem malbikunarfram-
kvæmdir standa nú yfir á Bæj-
arhálsi og Höfðabakka, eru
þessar götur lokaðar um óá-
kveðinn tíma. Á meðan er allri
umferð beint um Kofabæ. Sér-
stök ástæða er til að minna
ökumenn á að gæta fyllstu að-
gæzlu, þegar ekið er eftir
Rofabæ, þar sem mikill fjöldi
gangandi vegfarenda, sérstak-
Iega þó skólabarna, fer eftir
götunni. Áf öryggisástæðum
hcfur lögrcglustjórinn í Rvík
lækkað leyfðan hámarkshraða
á Rofabæ úr 45 km á klst. í 35
km. á klst, meðan malbikunar-
framkvæmdir standa yfír á
Höfðabakka og Bæjarhálsi.
hina ótrúlegustu hemla á
menntun okkar æsku. Hér
verður að koma til róttæk
breyting þegar í stað . . .
Við teljum okkur með bezt
menntuðu þjóðum í heimi.
Það er hættulegur misskiln-
ingur. Við erum að dragast
aftur \úr. Æskufólk annarra
landa er að mörgu leyti betur
menntað en okkar æska. Hér
duga engin vettlingatök. Burt
með hömlurnar á menntunar-
þörf íslenzku þjóðarinnar."
Þessar ívitnanir eru ekki
teknar úr Samvinnunni, þar
sem rætt er um skólamál í
nýútkomnu hefti af einurð og
hispursleysi. Þær eru ekki
heldur teknar úr neinni þeirra
fjölmörgu greina sem mennta-
menn hafa birt á undanförn-
um árum til þess að gagn-
rýna stöðnun og raunar hlut-
fallslega afturför í skólamál-
um Íslendínga. fvitnanirnar
eru sóttar í Morgunblaðið i
gær. Ekki er höfundurinn þó
neinn nafngreindur fslending-
ur sem notfærir sér hið al-
kunna frjálslyndi Morgun-
blaðsins 'til þess að koma á
framfæri hinni hörðustu gagn-
rýni á stefnu stjórnarvald-
anna í skólamálum. Þessi um-
mæli eru öll birt í -nafnlausri
ritstjómargrein, nánar tiltek-
ið í Staksteinum, þar sem
stefna ríkisstjórnarinnar hef-
ur jafnan verið túlkuð af
stakri nákvæmni. Hér er sem-
sé um að ræða sjálfshirtingu
á almannafæri, óvenjulega
miskunnarlausa. En þótt á-
stæða sé til þess að fagna
þessari afdráttarlausu játn-
ingu á geigvænlegu ástandi,
verður eicki hjá því komizt
að benda á hitt, að aðstaod-
endur Staksteina eru engir
óábyrgir gagnrýnendur í þióð-
félaginu. Þeir fara með völd-
in; það eru þeir sem bera á-
byrgð 1 á þeirri þróun sem
lýst er í tilvitnuninpi hér að
framan. Það er þeirra verk
að framkvæma þær róttæku
breytingar sem lýst er eít:r;
ekk.i með orðum heldur at- '
höfnum. — Austri.
Málaskéli H.Þ. hefur
starfað ífimmtán ár
□ Nú í haust eru 15 ár liðin síðan Málaskóli Hálldórs
Þorsteinssonar tók til starfa, og hefur frá upphafi verið
notuð við kennslu í skólanum sú aðferð sem kölluð er
„Direct Method“ á ensbu og þykir hún að flestra dómi
hafa ótvíræða kosti fram yfir eldri kennsluaðferðir.
Halldór Þorsteinsson skóla-
stjóri og aðálikennari skólans
kynnti blaðamönnum starfsemi
skólans i gær í tilefni af 15 ára
afmælinu. Við skólann eru
kennd eftirtalin tungumál;
Enska, þýzka, franska; ítalska,
spanska, danska og rússneska,
en þátttaka hefur ekki verið
næg til að halda uppi kennslu
í síðasttalda máliriu. Nemend-
ur hafa verið á aldrinum frá
12 ára til 65 ára, og er kennt
í mörgum flokkum eftir kunn-
áttu nemenda.
Það er mesti misskilningur,
sagði Halldór, að auðvelt sé
og fyrirhafnarlítið að ilæra er-
lend mál eftir nýrri aðferð.
Þótt megináherzla sé lögð á að
kenna nemendum talmál, þá er
það ekki gert bókarlaust.
Kennsluibækur sem notaðar eru
við skólann eru eingöngu eftir
viðurkennda erlenda höfunda.
í ensku er t.d. kennd Progres-
sive English, Altemative
Course eftir Hornby, í þýzku
Deutsche Sprachláre eftir
Sdhulz-Griesbadh.
Fámennir flokkar
Málaskóli Halldórs Þorsteins-
sonar hefur einlægt fyflgt þeirri
stefnu að hafa fáa nemendur
í hverjum flokki, enda ’gefur
það auga leið. að kennsþjtil-
högun þessi leyfir ekki annað.
1 10 manna flokki, svo ekki
sé minnzt á 5 manna, verður
sambandið á milli kennara og
nemenda ekki aðeins nánara
en í fjölmennari bekkjum held-
ur verða kennslustundimar yf-
irleitt skemmtilegri en ella.
Nemendur em ekki bara þiggj-
endur heldur taka þeir oft og
tiðum virkan þátt í því, sem
gerist í skólastofunni. Farið er
í ýmsa leiki, nemendur látnir
ímynda sér, að þeir séu stadd-
ir á veitingahúsi eða rakara-
stofu, í búð eða banka o.s.frv.
Með öðrum orðum þá fara þeir
með hlutverk rétt eins og þeir
væru á fleiksviði. ,
Málaskóli Halldórs Þorsteins-
sonar var stofnaður til að gefa
Reykvíkingum kost á að læra
talmál erlendra þjóða með
nýrri kennsluaðferð, sem hefði
gefið góða raun í erlendum
skólum. Málakennslu í flestum
framhaldsskólum hér í bæ er
hagað á þann veg, að nemend-
Framhald á 3. síðu.
Dani sýnir í Ásmundarsal
• Ungur Danl, Jþrgen Buch, kynntist við nám í Listaháskólanum
í Kaupmannahöfn, íslenzkum listamönnum og fékk áhuga á ís-
landi. Hann ferðaðist um Island 1965 og “66, og er nú kominn
þriðja sinn til að halda málverkasýningu. — Áður en Jprgen kom
tll lslands málaði hann fyrst og fremst andlitsmyndir, en hér
hreifst hann svo af Iandslaginu að síðan hefur hann nær ein-
göngu málað landslagsmyndir. Hann sýnir í Ásmundarsal 15 mál-
verk og 7 teikningar, allt myndir frá lslandi, mest frá Eyjum.
Verður sýningin opnuð í kvöld klukkan 20.30 og síðan opin dag-
Iega til 25- september klukkan 2—10. — Myndina hér að cfan
tók ljósmyndarl Þjóðviljans A. K. af Jþrgen í Asmundarsal I gær.
Frá Gagnfræðaskólum
Reykjavíkur
Hin árlega haustskráning némenda fer fram í skél-
unum föstudaginn 15. þ.m., kl. 3—6 síðdegis. Skal
þá gera grein fyrir öllum némendum 1.. 2., 3. og
4. bekkjar. Nemendur þurfa þó ekki nauðsynlega
að koma sjálfir í skólana til staðfestingar um-
sóknum sínum. heldur nægir, að aðrir mæti fyrir
þeirra hönd.
1. og 2. BEKKUR:
Skólahverfin óbreiytt. Némendur úr 1. bekk Álfta-
mýrarskóla flytjast í Gagnfræðaskóla Austur-
bæjar.
3. BEKKUR:
Umsækjendum hefur verið skipað í skóla sem
hér segir:
LANDSPRÓFSDEILDIR:
Þeir, sem luku unglingaprófi frá Gagnfræðaskóla
Austurbæjar, Hagaskóla, Vogaskóla og Réttarholts-
skóla, verða hver í sínum skóla. — Nemendur frá
Langholtsskóla verða í Vogaskóla og nemendur
frá Hlíðaskóla verða í Gagnfræðaskóla Austur-
bæjar. Aðrir, er sótt hafa um landsprófsdeild,
sækja Gagnfræðaskóla Vesturbæjar við Vonar-
stræti.
ALMENNAR DEILDIR og VERZLUNAR-
DEILDIR:
Nemendur verða hver í sínum skóla, með þessum
undantekningum: — Nemendur frá Hlíðaskóla
verða í Gagnfræðaskóla Austurbæjar. nemendur
frá Langholtsskóla í Vogaskóla, nemendur frá Mið-
bæjarskóla og Álftamýrarskóla verða í Gagn-
fræðaskóla Vesturbæjar við Vonarstræti og nem-
endur frá Laugalækjarskóla og Laugarnesskóla
verða í Lindargötuskóla.
FRAMHALDSDEILDIR:
Framhaldsdeildir munu væntanlega starfa við
Lindargötuskóla og Réttarholtsskóla.
YERKNÁMSDEILDIR:
HÚSSTJÓRNARDEILD starfar í Lindargötuskóla.
SAUMA- qg VEFNAÐARDEILD: f Lindargötu-
skóla verða nemendur úr framhaldsdeild þess skóla.
Einnig nemendur, er luku unglingaprófi frá Haga-
skóla og Miðbæjarskóla. Aðrir umsækjendur um
sauma- og vefnaðardeild sækja Gagnfræðáskóla
verknáms, Brautarholti 13.
TRÉSMÍÐADEILD og JÁRNSMÍÐA- og VÉL-
VIRKJADEILD starfa í Gagnfræðaskóla verknáms.
SJÓVINNUDEILD starfar í Lindargötuskóla.
4. BEKKUR:
Nemendur staðfesti umsóknir þar, sem þeir hafa
fengið skólavist.
Umsóknir um 3. og 4. bekk, sem ekki verða
staðfestar á ofangreindum tíma, falla úr
gildi. — Umsækjendur hafi með sér próf-
skírteini.
FRÆÐSLUSTJÓRINN í
REYKJAVÍK.
TILKYNNING
Athygli innflytjenda skal hér með vakin á
því að samkvæmt auglýsingu viðskipta-
ráðuneytisins dags. 11. janúar 1967, sem
birtist í 7. tölublaði Lögbirtingablaðsins
1967, fer þriðja úthlutun gjaldeyris- og/
eða innflutningsleyfa árið 1967 fyrir þeim
innflutningskvótum sem taldir eru í aug-
lýsingunni, fram í október 1967.
Umsóknir um þá úthlutun skulu hafa bor-
izt Landsbanka íslands eða Útvegsbanka
íslands fyrir 10. október næstkomandi.
LANDSBANKI ÍSLANDS.
ÚTVEGSBANKI ÍSLANDS.
4