Þjóðviljinn - 24.09.1967, Side 4
4 St»A — ÞJÓÐVILJXNN —
24. september 1967.
Otgefandi: Sameiningarflokktxr alþýöu — Sósíaiistaflokk-
urinn.
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson, (áb.), Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastj.: Sigurður T. Sigurðsson.
Framkvstj.: Eiður Bergmann.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar. prentsmiðja Skólavörðustfg 19.
Sími 17500 (5 línur) — Áskriftarverð kr- 105.00 á mánuði. —
Lausasöluverð krónur 7.00.
Atvinnuöryggi
m
^ síðasta borgarstjómarfundi í Reykjavík flut'tu
fulltrúar Alþýðubandalagsins tillögu þess efn-
is að kosin yrði sjö manna atvinnumálanefnd, og
voru verkefni hennar skilgreind þannig: „1. Að
kynna sér svo nákvæmlega sem unnt er hverjar
horfur eru um atvinnu í hinum ýmsu starfsgrein-
um og hjá helztu atvinnufyrirtækjum í borginni
á komandi vetri. Skal um þessa athugun höfð sem
nánust samvinna við verklýðsfélögin og atvinnu-
rekendur. 2. Að gera, ef þurfa þykir, tillögur um
ráðstafanir af hálfu borgar og ríkis eða með sam-
vinnu þessara aðila og einstaklinga eða félaga, er
orðið gætu til eflingar atvinnulifsins og hindrað
að til atvinnuleysis dragi.“ í framsöguræðu fyrir
tillögunni benti Guðmundur Vigfússon á að menn
hefðu á þessu hausti miklar og vaxandi áhyggj-
ur af atvinnuöryggi í höfuðborginni. Stórfelldur
samdráttur hefur orðið í ýrnsum atvinnugreinum
[t.d. iðnaði, en í tíð viðreisnarinnar hefur fólki sem
starfar að iðnaði í Reykjavík og nágrenni fækk-
að um 'tvo fimmtu. Þetta á einnig við um undir-
stöðuiðngrein eins og málmiðnaðinn, en þar hef-
ur ástandið verið mjög alvarlegt um eins árs skeið
eins og kunnugt er af fréttum, þrjár deildir Héð-
ins eru t.d. lokaðar með öllu og fyrirtæki eins og
vélsmiðjan Bjarg og Stálsmiðjan hafa hætt reks'tri.
í almennri verkamannavinnu hefur einnig orðið
verulegur samdráttur; eitt sf^ersta frystihús borg-
arinnar hefur gefizt upp og hin eru koimin að
þrotum. Mikil óvissa er í byggingariðnaði vegna
fjárskorts, m.a. hjá Húsnæðismálastofnun ríkisins.
það var viðurkennt af öllum sem tóku þátt í um-
ræðunum á borgarstjómarfundinum að ástand-
ið í atvinnumálum væri ískyggilegt. Fullfrúar
Framsóknarflokksins og Alþýðuflokksins lögðu til
að tillaga Alþýðubandalagsins yrði samþykkt, en
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðust gegn því að
kosin yrði sérstök atvinnumálanefnd. Létu þeir
lið sitt ákveða að fela þetta verkefni borgarhag-
fræðingi og ráðningarskrifstofu. í þeirri afgreiðslu
er auðvitað fólgin sú stefna borgarstjórnaríhalds-
ins að ekki skuli gera neinar nýjar ráðstafanir
umfram venjuleg störf embættismanna.
rr\
^stæðulaust er að una þessum ímálalokum í borg-
arstjórn. Verklýðshreyfingin 1 höfuðborginni
hlýtur að láta þessi mál til sín taka á næstunni
og gera kröfur til þess að ráðamenn borgarinnar
sinni því mikilvæga verkefni að tryggja atvinnu-
öryggi borgarbúa. Eigi að koma í veg fyrir alv-
arlegt ástand hér í vetur veitir sannarlega ekki af
að taka til hendinni nú þegar. — m.
X. minningarmét dr.
Dagana 16. júlí til 2. ágúst
fór fram í Salgótarjan í Ung-
verjalandi minningarmót um
dr. Asztalos hið tíunda í röð-
inni, en mót þessi eru haldin
árlega. í fyrsta skipti í sögunni
tók nú íslenzkur skákmaður
þátt í móti þessu, Ingi R. Jó-
hannsson alþjóðlegur skák-
meistari; segir sagan að Ung-
verjar hafi talið sig standa í
þakkarskuld við Inga fyrir að
sjá þeim fyrir 3ja sæti á Ól-
ympíumótinu í Havana, og vilj-
að laima honum að einhverju.
Segir mér svo hugur um að
ekki séu Ungverjar jafn þakk-
látir Inga nú en auk þess að
sigra hina gömlu kempu þeirra
Gideon Barcza og koma þar
með í veg fyrir að þrír Ung-
verjar yrðu í efsta sæti, gerði
hann jafntefli við þá Bilek og
Baiczay og kom þar með einn-
ig í veg fyrir að Ungverjar
hlytu einstaklingssigur í þessu
móti. Úrslit mótsins urðu ann-
ars sem hér segir:
1.—3. Barczay (Ungv.) Bilek
(Ungv.) og Schamkowitsch
(Sovétr.) 10 v., 4.—5. Damja-
novic (Júgósl.) og Simagin
(Sovétr.) 9% v., Barcza (Ungv.)
9 v., 7. Szabo (Ungv. 8%, 8.
Haag (Ungv. 8 v., 9. Csom
(Ungv.) 7% v. 10.-11. Ingi R og
Flesch (Ungv.) 6% v„ 12. Ko-
vács (Ungv.) 6 v„ 13. Paoli
(Ítalía) 6 v„ 14. Cobo (Kúba)
5 v„ 15.—16. Kávalek (Tékkó-
slóvakía) og Pietzsch (A-Þýzka-
land) 4 vinninga.
Um frammistöðu Inga er það
að segja að hún er mjög heið-
arleg, ef til vill ofurlítið lak-
ari en hinir bjartsýnustu höfðu
vonað en sé tekið tillit til
þess að Ingi er æfingarlítill og
andstæðingar hans flestir at-
vinnumenn er raunverulega
ekkert út á þessa frammi-
stöðu að setja. Þá er það einn-
ig athyglisvert að Ingi fær
betra á móti hinum sterkari
hluta mótsins, t.d. SVz v. út úr
8 skákum gegn stórmeisturun-
um.
Við skúlum nú líta á eina
af beztu skákum Inga úr mót-
inu en hún er við stórmeist-
arann Barcza, og réði sem fyTr
segir úrslitum mótsins.
Hvítt: Ingi R. Jóhannsson
Svart: Gideon Barcza
Kóngsindverskt tafl.
1. c4 g6
2. d4 Bg7
3. Rc3 dfi
4. e4 Rd7
5. Be2 e5
6. Rf3 Re7
7. Be3 exd4
(Svartur á ofurlítið úr vöndu
að ráða, f5 gengur ekki vegna
Rg5. Mjög til álita kom þó
að hróka og reyna að halda<$>
spennunni).
8. Rxd4 Rc5
9. 0—0 0—0
10. Dd2 Re6
11. Hadl Rc6
12.' Rc2
(Allir aðrir leikir myndu
hjálpa svörtum við að ná völd-
um á d4).
12. — a6
13. f4 Rc5
14. Bf3 Be6
15. b3 Rd7?
(Svarta staðan er erfið, en
þessi leikur býður hættunni
heim. Betra virðist að reyna
mót-spil á drottningarvæng
með t.d. Hb8 og síðan b5).
16. f5!
(Skemmtileg peðsfóm, sem
opnar línumar hvítum í hag.
Svarta kóngsstaðan verður nú
mjög erfið).
16. — gxf5
17. extS Bxf5
18. Bxc6 Bxc2
19. Dxc2 hxc6
20. Re4 Dh4?
(Betra virðist Re5 og c5 og
síðan t.d. Rg6)
21. Rg3 Rf6
22. Hf5! h6
(Hvítur hótaði Bg5).
23. Bd4 Hae8
Asztabs
24. Db2 He6
25. Hdfi Re8
26. H5f4 Dg5
(Ef t.d. Dd8 þá Rf5 t.d. Be5,
28. Hg4t — Kh8, 29. Bxe5 —
dxe5, 30. Hh4 — Kh7, 31. Dc2
og hvítur vinnur , eða 28. —
Kh7 frá BxB og síðan Dc2).
'27. Re4 Bxd4f
28. Dxd4 29. Da7 Dg4
(Hvítur vinnur nú peðið aft- ur og þarfnast lokin vart skýr-
inga).
29. — c5
30. Rg3 Dg6
31. Dxa6 Rgr7
32. Dc6 He7
38. Hf6 Dg5
34. Df3 De3t
35. Dxe3 Hxe3
36. Hxh6 Hc3?
37. Re4 Rf5
(36. leikur svarts stafaði af
tímahraki þessi síðasti leik-
ur er örvænting).
38. Hxf5 Hclt
39. Kf2 Kg7
40. Hfh5 Hc2t
41. Kf3 Hxa2
42. Hh7t Kg6
43. g4
•— og svartur gafst upp, enda
verður mót ekki varið.
★
FRÉTTIR:
Svo sem fram hefur komið
var hið nýja skákheimili T.R.
og S.í. formlega tekið í notk-
un sl. sunnudag með keppni
milli Austur- og Vesturbæjar.
Sigruðu Vesturbæingar með 8
vinningum gegn 7.
★
í einvígi um rétt til þátttöku
í millisvæðamótinu sem hefst
í Túnis um miðjan næsta mán-
uð sigraði Matulovic Uhlmann
með 2V2 — 1/2.
Jón Þ. Þór.
Innritun hefst á morgun (mánudag) í
Miðbæ j arskólanum.
Innritað verður kl. 5—7 og 8—9 síðdegis.
Enskuskóíi fyrir börn
Kennslan í enskuskóla barnanna hefst mánudag-
inn 2. október. Kennslan fer þannig fram, að ensk-
ir kennarar kenna bömunum og TALA ÁVALLT
ENSKU. Bömin þurfa ekki að stunda heima-
nám, en þjálfast í notkun málsins í kennslu-
stundunum.
DANSKA er kennd á svipaðan hátt og enskan.
Taltímar í ensku fyrir unglinga í gagn-
fslandsmótið
I. DEILD
Úrslit í íslandsmótinu
Á sunnudag kl. 2 leika á Laugardalsvelli:
Fram - Valur
Dómari: Magnús Pétursson.
Línuverðir: Karl Jóhannsson og Hreiðar Ár-
sælsson.
Aðgangseyrir: Stúka kr. 100,00 — Stæði
kr. 60,00 — Böm kr. 25,00.
MÓTANEFND.
fræðaskólum.
Málaskólinn MÍMIR
Hafnarstræti 15 og Brautarholti 4,
sími 2 16 55 og 1000 4 (kl. 1—7).
KOMMÓ^
— teak og eík
SÖLUBÖRN!
SÖLUBÖRN!
Seljið blað og merki Sjálfsbjargar í dag.
Komið í bamaskólana í Reykjavík, Ár-
bæjarhverfi, Kópavogi, Garðahreppi og
Hafnarfirði. — Opið frá kl. 10 f.h.
Húsgagitaverzlun Axels Eyjólfssonar
Skipholti 7 — Sími 10117.
Einungrunurgler
Húseigendur — Byggingameistarar.
Útvegum tvöfalt einangrunargler með mjög stutt-
um fyrirvara.
Sjáum um isetningu og allskonaT breytingar ð
gluggum. Útvegum tvöfalt gler í lausaföí? og sjá-
um um máltöku.
Gerum við sprungur 1 steyptum veggjum með
baulreyndu gúmmíefni
Sjálfsbjörg.
Gerið svo vel og leitið tilboða.
SÍMI 5 11 39.