Þjóðviljinn - 10.10.1967, Side 6
0 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN — ÞriðjtidagOT 10. októlber 1063.
4-
Baráttan gegn grísku
herforíngjastjóminni
Rastt við grískan stúdent sem stundar nám í Moskvu
Moskvubréf
Síðan í apríl s.1., þegar hers-
höfðingj aklíka framdi valda-
rán í Grikklandi, eins og
mönnum er enn í fersku minni,
hefur ekkert lát orðið á úti-
fundum, mótmælagöngum og
blaðaskrifum grískra föður-
landsvina, sem dveljast á er-
lendri grund. Einkum hafa
stúdentar haft sig í frarhmi í
þessari baráttu. Þeir krefjast
lýðræðis til handa grísku þjóð-
inni, deila harðlega á kóng og
her og hvetja þjóðir heimsins
til stuðnings við málstað sinn.
Ég átti fyrir skömmu tal við
Fotos Bastunopolus, ritara
samtaka grískra stúdenta í
Sovétrikjunum, og bað hann
að skýra mér frá starfi þessara
samtaka.
Samtökin eru aðili að al-
þjóðahreyfingu grískra stúd-
enta, sem stofnuð var strax eft-
ir valdaránið í París. Var þá
kjörin 7 manna stjórn, sem
situr í London og hefur aðal-
umsjón með baráttu grískra
stúdenta erlendis. Á ráðstefn-
unni í París var ennfremur
sáinþykkt ályktun, þar sem
skýrt koma fram skoðanir
grískra stúdenta á einræðis-
stjórninni. Aðalatriði ályktun-
arinnar eru eftirfarandi:
1) Valdaránið var framið að
undirlagi bandarlskra heims-
valdasinna með stuðningi kon-
ungs og herstjóraklíkunnar.
2) Barátta grísku þjóðarinn-
ar, baeði heima fyyir og er-
lendis, er barátta gegn heims-
valdastefnu, fasisma og úreltu
konungsveldi.
3) Þessi barátta er og verður
háð með öllum tiltaekum með-
ulum, þar á meðal vopnum.
f ályktuninni er mörkuð sú
stefna að steypa einræðis-
stjórninni af stfcli og fá völd-
ín í hendur þjóðinni eftir lýð-
ræðisreglum.
f Sovétríkjunum eru nú um
700 grískir stúdentar við nám.
Yfirgnæfandi nleirihluti þeirra
eru börn útlaga, sem flúðu
hingað eftir ósigurinn í borg-
arastyrjöldinni 1949. Þetta fólk'
hefur hvergi ríkisborgararétt,
enginn úr hópnum hefur gerzt
sovézkur ríkisborgari.
— í hverju er barátta ykk-
ar aðallega fólgin hér í
Moskvu?
—• Baráttan er tvennskonar
í fyrsta lagi upplýsingastarf-
semi og mótmælaaðgerðir, í
öðru lagi fjárhagsleg aðstoð
við grísku neðanjarðarhreyf-
inguna. Við höíum haldið
marga útifundi, farið mót-
mælagöngur að gríska sendi-
ráðinu; nú í september var
t.d. 24 tíma mótmælastaða við
sendiráðið, það var til að mót-
mæla handtöku tónskáldsins
Þeodorakis. Þátttaka í þessum
aðgerðum okkar hefur alltaf
verið mjög góð. við höfum
notið samúðar og stuðnings
Moskvubúa. Við gefum út upp-
lýsingabækling um starf okk-
ar og ástandið i Grikklandi og
kemur hann út á grísku og
rússnesku. Þá höfum við sent
frá okkur áskoranir til fjöl-
margra aðila, m.a. æskulýðs-
samtaka í ýmsum iöndum,
sendiráöa, alþjóðasamtaka og
svo framvegis.
— Hvernig er háttað stuðn-
ingi ykkar við grísku neðan-
jarðarhreyfinguna?
— Við söfnum peningum með
ýmsu móti og njótum þar
góðrar aðstoðar sovézkra og,
erlendra studenta. Við höfum
stofnað hér alþjóðlega stúd-
entanefnd, sem í eru fulltrúar
allra samtaka stúdenta í Sov-
étríkjunum. Þessi nefnd skipu-
leggur vinnuferðir stúdenta. í
sumar voru margir i bygg-
inga- og landbúnaðarvinnu og
lögðu kaupið sitt í sjóð nefnd-
arinnar. í vetur eru líka skipu-
lagðar vinnuferðir um helgar.
Síðan laumum við peningun-
um innfyrir grí'sku landamær-
in eftir ýmsum leiðum.
Okkur er mjög mikilvægt að
folk öðlist skilning á gríska
vandamálinu; það er ekki aðeins
grískt, helöur er þetta vanda-
mál allrar Evrópu og jafnvel
alls heimsins. Til þess að
stöðva ýfirgang amerísks fas-
isma í Evrópu þarf annað og
meira en orðfagrar yfirlýsing-
ar. Við bendum þjóðum Evr-
ópu á eina leið: fjárhagslega,
stjórnmálalega og siðferðilega
einangrun fasistastjórnarinnar
í Grikklandi. Rekið Grikkland
úr öllum alþjóðasamtökum/
hættið öllum viðskiptum við
grísku einræðisstjórnina. Að-
eins með því móti getið þið
hjálpað grísku þjóðinni að öðl-
ast frelsi. Norðurlandaþjóðirn-
ar hafa sýnt góða viðleitni í
lx:ssa átt, nú síðast á fundi
Evrópuráðsins í Strasbourg
komu Danir, Sviar og Norð-
menn með tillögu um að reka
Grikkland úr Evrópuráðinu. Ég
sjcora á fslendinga að styðja
þessa tillögu,
Við skiljum mætavel, að
gríska vandamálið verður ekki
leyst nema í landinu sjálfu-
Þjóð okkar undirbýr nú langa
og stranga baráttu. En sam-
hugur og stuðningur annarra
þjóða er henni ekki aðeins til
hjálpar, heldur leiðir hana ör-
Ugglega fram til sigurs. Og sá
sigur getur stöðvað í eitt skipti
fyrir öll framgang fasisma í
Evrópu.
Moskva, 28. sept. 1967.
Ingibjörg Haraldsdóttir.
(APN).
Unnur Eiríksdóttir:
Kæru samborgarar
Vinir mínir ég ráðlegg ykkur:
Biðjið þess ekki að tjaldið verði dregið frá
á bak við það býr sannleikurinn um samtíð okkar
látið ykkur nægja að horfa á sjálft tjaldið
flúrað skrautlegum myndum úr öllum áttum
auglýsingum stóryrðum og skoplegum markleysum
ásamt litadýrð sem gerir regnbogann að hégóma
1
Nei biðjið þess ekki að tjaldið verði dregið frá
jafnvel þó ykkur langi að sjá sannleikann
Nei biðjið þess ekki að sjá blóðugan veruleikann J
fara eldsporum yfir leiksviðið
þar sem hraði leiksins yfirgnæfir með þungum gný og válegri birtu
óp hinna þrjózku sem neita að láta bugast.
Vinir mínir fáið ykkur glas af öli eða kaffibollá
og njótið litadýrðar tjaldsins í ró og næði
Þó voga ég ekki að fullyrða að þið verðið ekki seinna kvðdd
til leiksins bak við tjaldið
Mótmælaaðgerðir framan við gríska sendiráðið I Moskvu.
Lofsamlegir dómar
Á síðastliðnu vori, nánar til-
tekið fyrri hluta júnímánaðar,
ferðaðist Karlakór Akureyrar
um Norðurlöndin og hélt söng-
skemmtanir í Noregi, Svíþjóð
og Finnlandi. Að sögn kórfé-
laga var ferðalag þetta í alla
staði ánægjulegt og vel heppn-
að og undirtektir áheyrenda
þar sem kórinn kom fram, með
miklum ágætuip. Aðsókn var
hins vegar nokkuð misjöfn, en
það mun verulega mega rekja
til þess að komið var fram yf-
ir þann tíma, sem venjulegt er
að halda söngskemmtanir í
þessum löndum, og fólk reikn-
aði því síður með slíku sam-
komuhaldi.
Nýverið bárust úrklippur úr
nokkrum norskum blöðum frá
því að kórinn var á ferðalagi
sínu. Er kórinn þar undantekn-
ingarlítið mjög lofaður og
ekki sízt einsöngvarar og söng-
stjóri.
Hér á eftir birtast glefsur
úr nokkrum blaðadómum:
Fyrst hélt kórinn til vina-
bæjarins Aalesund, og þann
3. júní, var stór mynd í Sunn-
möre Arbeiteravis frá komu
kórsins, og í upphafi umsagn-
ar stóð á þessa leið:
„Á sviði söngsins standa ís-
lendingar framarlega meðal
Norðurlandaþjóðanna, og ein
sönnun þess fékkst við að
hlýða á samsöng Karlakórs Ak-
ureyrar í gærkvöld. Kórlnn
hefur á að skipa hressilegum
og þróttmiklum röddum, bæði
í tenór og bassa. Það var
reglulega hressandi að heyra
svo ekta hljómfall án allrar
þvingunar radda eða sam-
hljóma, en mestum áhrifum
náðu þeir í hröðu köflunum.
En hægu lögin fengu einnig
eðlilegan svip“.
Og Sunnmörsposten sama
dag sagði m.a.:
„Gestakórinn frá íslandi,
Karlakór Akureyrar, hélt kon-
sert í húsi verkalýðsfélaganna
í gærkvöld.
Margt fólk var viðstatt, en
húsið hefði átt að vera troð-
fullt. Kórinn er mjög fær. Það
sýndi samhljómur og söng-
tækni, sem ánægja var að
hlýða á.
Hús verkalýðsfélaganna er
mjög óheppilegur staður fyrir
kórsöng, en hér kom sér vel
hin sérstaka uppstilling kórs-
ins. En þrátt fyrir ryk á tepp-
um og þröngt svið, sem veldur
söngmönnum aukaerfiði, ríkti
hrein sönggleði allan tímann.
Stjðmandinn, Guðmundur Jó-
hannsson, hafði mjög gott vald
á kór sínum, stjórnaði örugg-
lega og þægilega. Einsöngvar-
arnir. Eiríkur Stefánsson og
Hreiðar Pálmason, urðu að
endurtaka öll sín lög. Hlý og
viðfeldin rödd Stefánssonar
mun seint gleymast þeim, er
viðstaddir voru. Undirleikar-
inn, Kristinn Gestsson, var ör-
uggur og mjög fær tónlistar-
maður...
Nær einvörðungu islenzkir
söngvar voru á söngskránni.
það væri of langt að telja upp
einstök atriði. Aðeins verður
það að segjast, að sjaldan hafa
ein og hálf klukkustund liðið'
svo fljótt á konsert, og það
var- greinilegt, að samkomu-
gestir fylgdust mjög vel með
og af mikilli hrifningu.
Kórinn, sem móttökur ann-
aðist, Aalesund Mandssangfor-
ening, heilsaði með íslenzka
þjóðsöngnum, sungnum á is-
lenzku, og formaðurinn, Kar-
sten P. Grytten, bauð fslend-
ingana velkomna og færði þeim
hamingjuóskir ásamt blóm-
vendi.
Olav Kvig yngri þakkaði
fyrir heimsóknina og konsert-
inn og óskaði kórnum góðrar
ferðar og hinn ungi einsöngv-
ari, Hreiðar Pálmason, söng
„Norge, mitt Norge“ af til-
finningu.
Karlakór Akureyrar söng að
iokum „Ja, vi elsker dette
landet“.
Johan Remme".
Blaðið Gudbrandsdölen segir
5. júnf undir fyrirsögninni: Finn
kórsöngur í Maihaugen:
„Sá ágæti íslenzki karlakór
„Akureiar“ heimsótti Lille-
hammer í gær. Söngferðalag
stendur yfir um öll Skandinav-
ísku löndin, og músikalskt er
kórinn sambærilegur við það
bezta, sem völ er á, á þessu
sviði .... Prógrammið var vel
valið og líktist hlýrri kveðju
til íslenzka ættlandsins í austri
(Noregs), einkum þegar „Nor-
ge, mitt Norge“ \ar sungið.
Einsöngvararnir, Eiríkur Stef-
ánsson og HreiAar Pálmason,
sýndu, að þeir skipa háan sess
sem listamenn, og stjórnand-
inn, Guðmundur Jóhannsson,
stý»ði kómum öruggum hönd-
um. — M. M. L.“
Þá er komið til Oslo, og 8.
júní er þessi smágrein í Aften-
postcn;
„Velsyngjandi íslendingar.
íslenzki 4i manns kórinn,
Karlakór Akureyrar, hefði
verðskuldað meiri aðsókn að
samsöngnum í Aulaen í gær,
— ekki sízt hefðu okkar eigin
karlakórsöngvarar getað orðið
fyrir gagnlegum áhrifum af að
hlusta á þessa óvenju velsyngj-
andi íslendinga. Kórinn á fagr-
ar og samæfðar raddir í vel-
skipulögðum einingum, og söng
undir stjóm Guðmundar Jó-
hannssonar með karlmannleg-
um samhljóm og góðum radd-
skiptlngum, sem að auki var
blásið nýju lífi í með hressi-
legum og hrífandi tilbrigðum,
sem sjaldgæf eru hjá karlakór-
um. Söngskráin, að mestu leyti
þjóðleg, rómantísk lög, var
túlkuð á þann veg, að hreif
húga manns, og endurtekin lög
og aukalög urðu mörg.
Dag Winding Sörensen'4.
Sama dag skrifar Reimar
Riefling í-Verdens Gang:
„f þriðja skipti á fáeinum
vikum hefur Aulaen fengið
heimsókn erlendra kóra, í gær
kom ísl. karlakórinn „Karla-
kór Akureyrar“ þar á sviðið,
40 félagar undir stjóm hins
æfða og færa Guðmundar Jó-
hannssonar. Kórinn er dugleg-
ur, hann hefur lært verkin
samvizkusamlega og er upp-
spretta hressandi og óspilltrar
sönggleði. Kórinn var stofnað-
ur fyrir nærri 40 árum síðan,
og það er sannarlega vel af
sér vikið hjá hinum 10 þúsund
ibúum norður-íslenzka baejar-
ins Akureyri að geta komið
fram með svo faeran kór“.
Og enn sama dag skrifar
Klaus Egge í Arbeiderbladet
meðal annars:
...Kórinn hafði ekki tekið
márga tóna áður en heyrðist,
að tenórarnir höfðu fínan,
bjartan hljóm, sem svaraði á-
gætlega hinum í dimmu, hljóm-
miklu bassaröddum, Það var
Framhald á 9. síðu.