Þjóðviljinn - 02.11.1967, Page 1
i
Fimmtudagur 2. nóvember 1967 — 32. árgangur — 247. tölublað.
Sfldaraffínn orðmn 303.152 lestir
Búið er að salta í 166.059
tn. á móti 383.617 í fyrra
—
! ! fW JBBF ÆMT ÆSTÆKF ÆKF ÆBT ÆKF ÆBKF ÆKF ÆUP ÆHTÆ9TÆU ÆtUT A
!
i
I
ViSrœSunefnd ASÍ og BSR5 lýsa yfir:
Grundvallaratriði að vísitölu-
greiðsla á laun haldist óskert
□ Á fundi viðræðunefndar Alþýðusambands
íslands og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja
og ríkisstjórnarinnar er hófst kl. 10 í gærmorg-
un lýsti viðræðunefndin yfir, að af hálfu laun-
þegasamtakanna væri það ófrávíkianlegt
grundvallaratriði, að vísitölugreiðsla á laun
héldist óskert.-
Þjóðviljinn sneri sér í
gær til Hannibals Valdi-
marssonar ' forseta Al-
þýðusambands íslands og
innti hann frétta af við-
ræðunum. Fórust honum
orð á þessa leið:
„Viðræðunefnd Alþýðu-
sambands íslands og
Bandalags • starfsmanna
ríkis og bæja átti við-
ræðufund við ríkisstjórn-
ina í morgun kl. 10 og
gerði þar grein fyrir af-
stöðu sinni til efnahags-
málaaðgerða ríkisstjórnar-
innar varðandi fjárhags-
afkomu ríkissjóðs á næsta
ári. Skiptust menn á skoð-
unum um vandamálin og
tel ég ekki rétt að skýra
opinberlega frá þeim í
einstökum atriðum.
Þó tel ég sjálfsagt að
skýra frá því grundvallar-
atriði í afstöðu viðræðu-
nefndar launþegasamtak-
anna, að ófrávíkjanlegt
vœri ,að vísitala á laun
héldist óslitið. Ríkisstjórn-
in hefur nú viðhorf okk-
ar og andsvör til athug-
unar“.
Þjóðviljanum var ekki
kunnugt um það ‘í gær-
■ kvöld að boðað hefði ver-
ið til nýs viðræðufundar
með viðræðunefndinni og
ríkisstjóminni.
I
Endurskipulagning á
strætísvagnakerfínu
AUsherjar breyting og endur-
skipulagning á strætisvagnakerf-
inu um Reykjavík er nú fyrir-
huguft og er þetta nauðsynlegt
bæði vegna stækkunar borgar-
innar og þá ekkí síður vegna
breytingarinnar yfir í hægri um-
ferð á næsta ári.
Að því er forstjóri Strætis-
vagna Reykjavíkur, Eiríkur Ás-
geirsson, sagði Þjóðviljanum í
gær er allt strætisvagnakerfið í
eiSdurskoðun og vinnur Einar B.
Pálsson ’ að endurskipulagning-
unni í samr^ði við forráðamenn
Strætisvagnanna-
Munu leiðir vagnanna breyt-
ast allmikið frá því sem nú er
og einnig pr hugsanlegt að enda-
r............
VzinslaHst í gær
í Vesturbæ og
í gamla bænum
Kona í Vesturbænum
hringdi á ritstjómarskrif-
stofur Þjóðviljans í gær-
morgun og kvartaði yfir
því að enginn hiti hefði
verið og ekkert vatn í hús-
inu allan morguninn. Hafði
hún hringt til Hitaveitunn-
ar til að fá uþplýsingar en
ýmist svaraði enginn eða
var á tali, þrátt fyrir marg-
ítrekaðar tilraunir til að ná
sambandi. Þótti konunni
þetta að vonum heldur lé-
leg þjónusta-
Er blaðið ræddi við verk-
fræðing Hitaveitunnar sagði
hann að bilað hefði aðal-
æð; gat hefði komið á rör
á Egilsgötu, og hefði því
verið vatnslaust í Vestur-
bænum og víðs vegar í
gamla bænum. En þetta
komst í lag um 3-leytið
eftir hádegi, sagði verk-
fræðingurinn. Þegar spurt
var hversvegna svo erfitt
væri að koma kvörtunum
til Hitaveitunnar í gegnum
síma, sagði verkfræðingur-
inn að þar væru aðeins 5
línur, sem væri of lítið.
stöðvar þeirra bréytist. Mikið
verður um breytingar á ein-
stefnuakstu'rsgötum í sambandi :
við breytinguna yfir í hægri um- !
ferð og munu leiðir strætisvagn- !
anna einnig breytast í samræmi
við það- Þá breytast allir við-
komustaðir nema á þeim stöðum
þar sem þeir eru hver andspæn-
is öðrurri.
Um kostnaðinn vegna þessara
breytinga sagði Eiríkur að hún
væri innifalin í kostnaðaráætlun
hægri nefndar um heildarfram-
kvæmdir fyrir H-daginn. Kostn-
aðurinn vegna færslu viðkomu-
staðanna yrði aldrei minni en
400—500 þúsund.
— Það verða gagngerar breyt-
ingar á leiðunum, 6agði hann
og bætti við að ekki mætti
minnka þjónustuna við fólkið,
væri fremur ástæða til að auka
hana.
Eldur í Aðalstræti 9
1 fyrrinótt brann húsið að Aðalstræti 9. Ein kona var inni í
húsinu er eidurinn kom upp, en hún bjargaðist á náttklæðum
út um glugga. Myndina tók ljósmyndari Þjóðviljans Ari Kárason af Aðalstræti 9 í gærmorgun.
Sjá nánari frásögn á baksíðu.
í síðustu viku bárust á
land 12.497 lestir síldar
norðanlands og austan og er
heildaraflinn frá 1. júní til
28. október þá orðinn 303.152
lestir en var á sama tíma í
fyrra 550.356 lestir. Búið er
nú að salta í 166.059 tunnur
en saltaðar höfðu verið
383.617 tunnur í fyrra.
1 skýrslu Fiskifélags íslands
um veiðámar segir svo:
Sl. viku var veiðisvæði síldar-
skipanha frá 63. gr., 40. mín. að
64. gr. 30. mín. nl.br. og milli
8. gr. og 9. gr. v.l. Veður var
yfiirleitt óhagstætfc þrálát hvass-
viðri og kviká. Þriðjudag og að-
faranótt miðvikudags var veðr-
ið samt gott, og á þeim tíma
veiddust um 9.000 lestir.
í vikunni bárust á land 12.497
lestir. Saltað var í 48.100 tunnur,
233 lestír frystar og 5.241 Jest-
fór í bræðslu.
Heildaraflinn ér því 303.152
lestir og hagnýting á þessaleið:
í salt 24.245 (166.059 upp-
salt. tn.) 1 frystingu 1.007. 1
bræðslu 271.260. Útflutt 6.640. Á
sama tirna í fyrra. var aflinn
þessi: 1 salt 5(5.008 (383.617 upps.
tn.). 1 frystingu 2.815. I bræðslu
491.533. Alis: 550.356.
Löndunarstaðir eru þessir:
Reykjavfk 28.183, Bolungavík
1.505. Siglufjörður 58.400. Ólafs-
fjörður 2.011. Dalvik 2.068. Hrís-
éy 330. Krossanes 7.153. Húsavik
3.321. Raufarhöfn 45.929. Þórs-
höfn 3.258. Vopnafjörður 15.678.
Borgarfj. eystri 257. Seyðisfjörð-
ur 67.161 (áuk þess eril. skip 60).
Mjóifjörður 294. Neskaupstaður
31.162. Eskifjörður 13.929 (auk
þess erl. skip 262). Reyðarfjörð-
ur 4.905. Fáskrúðsfjörður 6.099.
Stöðvarfjörður 2.730. Breiðdals-
•vik 828. Djúpivogur 1.301. Fær-
eyjar 2.675. Hjaltland 1.766.
Þýzkaland 2.199.
Aflinn er mældur í tonnum.
Síldveiðarnar sunnan lands.
Frá því 20. júní til 18; ágúst
voru lagðar á land 47.062 lestir
síldar og voru 255 lestir þess
magns frystar, én 46.807 lestir
fóru í bræðslu. Lágu veiðamar
niðri til 24. þm., þegar siild fannst
í Jökuldjúpi. Til vikuloka var
landað 226 lestum frá 3 þátum
og fór sá afli til frýstingar. Heild-
araflinn er nú 47.288 lestir, en
var á sama tíma í fyrra 45.150
lestrr.
Aðstaða fólkáins úti á landi til að njóta lista og menningar rædd á alþingi
Stórátaks er þörf í félags- og menningar-
málum landsbyggðarinnar
íslenzk alþýðumenning er þrúguð af ranglát-
um þjóðfélag^háttum og hún rís ekki í fulla hæð
á ný fyrr en þjóðfélagsháttunum verður breytt og
réttlætið sigrar, sagði Jónas Árnason á Alþingi í
gær. Hann hélt því fram að gera þyrfti stórátak
í félags- og menningarmálum landsbyggðarinnar
til að jafna það misrétti í menningarmálum sem
fólk víðast hvar utan Reykjavíkur byggi nú við.
Allmiklar umræður urðu á
fundi sameinaðs^ þings í gær um
þetta atriði, jafnrét.ti fólksins ut-
an Reykjavíkur vi 1 höfuðborg-
arbúa í menningarmálum og hóf-
ust þær með því að á dagskrá
kom þingsályktu narfi 'llega Ing-
vars Gíslasonar um listasöfn og
listsýningar utan Reykjavíkur.
Bæði Ingvar og Gylfi Þ, Gísla-
son lögðu áherzlu á nauðsynþnss
að fólk utan Reykjavíkur ætti
kost á listsýningum, en Gylfi
fcaldd að frumtovæðið epttí. að
vera hjá heimamönnum, sveita-
stjórnum og bæjarstjórnum, og
myndi þá mermtam,álaráðuneyt-
ið og Listasafn ríkisins fús til
samstarfs. Rómaði Gylfi leiklist-
ar- og tónlistaráhuga fólks útí
á landsbyggðinni.
□ Misrétti í mcnningarmálum.
Jónas Árnason tók eindregið
undir aðvörunarorð flutnings-
manna tillögunnar um hættuna
af menningarlegum ójöfnuði
rnilli stétta og landshluta og
fannst þeir varla vena nógu
kröfuharðir í þessum efnumfyrir
landsbyggðdna.
í því efni þyrfti að huga að
þvi að fólkið útí á landi nyti
hins bezta sem völ væri á af
leikilist, danslist og tónlist. Leik-
hstin hefði nokkra sérstöðu, en
það væri þó einungis að sumar-
lagi að leikflokkar úr Reykjavík
ferðuðust um landsbyggðina, en
slíks væri jafnvel enn meiri
þörf að vetrarlagi.
Minnti Jón á grein eftir
Magnús Kjartansson sem birzt
hefði í Þjóðviljanum í fyrravet-
ur, en þar væri reifuð hugmynd
um stofnun, sem hefði yfirum-
sjón með framkvæmd menning-
arsamskipti við landsbyggðina.
Stofnun þessi ætti að skipúleggja
feröir listamanna um landið,
jafnt einstaklinga og heilla
flokka, söncvara og annarra tón-
ilistarmanna, leikara, dansara og
myndlistarmanna. Og ekki ein-
ungis íslenzkra listamanna, held-
ur ætti stofnunin einnig að leit-
ast við að veita landstoyggðinni
sem mesta hlutdeild í þeim
ijien'ningarverðmætum sem er-
lendir listamenn sem hingað
koma hefðu að bjóða.
□ Félagsheimili í eyði.
Jónas ræddi þar næst ýtarlega
um félagsheimilin, sem ætlað
hefði verið að yrðu menningar-
miðstöðvar úti um landið. Því
miður hefðu enn ekki orðið þau
not að félagsheimiilunum yfirleitt,.
heldur hefðu þau mörg það verk-
efni helzt að gefa fólki kost á
balli' á laugardögum. Forvígis-
menn félagsheimilanna hefðu átt
í miklu baslí með fjárhag þeirra
og vonir brugðizt um myndar-
leg framlög ríkisins úr félags-
heimilasjóði, og hefðu því orðið
að fara út í að reyna að hafa
fljóttekinn gróða af dansleikjum
til að standa undir skuödum.
Þetta ástand mætti ekki við-
gangast lengur, að því er tek-
ur til menningarinnar mætti
segja að þnátt fyrir allan glæsi-
Framhald á 3. siðu.