Þjóðviljinn - 02.11.1967, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 02.11.1967, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 2. nóvember 1067 — ÞJÖÐVHJINN — SlÐA 0 A tvinnumálin é Norðurlandi Framhald af 7. síðu. araflötans í formi skuttogara og smíðuð verði ekki færri en 2 ný skip á ári næstu 4 til 5 árin til útgerðar frá Norður- landi. Nú þegar verði aflað ýt- arlegra upplýsinga um nýjustu gerðir togara, búnað þeirra og veiðarfæri, frá þeim þjóðum sem mesta reynslu hafa um ný- byggingu togara og útgerð þeirra. Verði sérstaklega teknar til athugunar tvær stærðir skipa og rekstraraðstaða þeirra á Norðurlandi. Annars vegar skip af líkri stærð og þeir togarar, sem nú eru gerðir út (630— 700 rúml.) búin sétstaklega fyr- ir sékn á miðin hvar sem er við Island og á nálægum slóð- um, og jafnframt ætluð til að fiska mestan hluta ársins fyrir frystihúsin á útgerðarstöðum skipanna. Hins vegar skip að stærð um 450—500 rúml., sem væru i meginatriðum með sama fyrir- komulagi Gg. búnaði sem hin fyrrnefndu og einnig sömu rekstrartilhögun. Skip af hinni minni gerð yrðu að sjálfsögðu háðari veiðisvæðunum út af Norðurlandi og í riámunda við þau, og einnig verulega háðari veðurfari við veiðamar- Gengið er útfrá, að skipin verði með yfirbyggt framþilfar, svo að öll vinna við aflann fari fram undir þilfari, einnig að fiskurinn, sem landa skal til vinnslu í frysthúsum, sé allur ísaður í kassa. Það fyrirkomu- lag ætti að gera fært, að skip- in geti verið a.m.k. tveim dög- um lengur í veðiferðum, og þar með aukið nýtingu þeirra, lækkað mikið uppskipunar- kostnað og gefið betri og verð- meiri fisk, er næmi að líkind- um 7—lO^/n. i Til endumýjunar togaranna verði -veitt lán til ekki skemmri tíma en 20 ára, með lágum vöxtum. Einnig verði í þessu sambandi tekið til vandlegrar athugunar, að veittur verði ó- afturkræfur styrkur til bygg- ingu nýrra togara, þeim, sem Ieggja upp um leið gömlum tog- urum, sem eru t.d. orðnir 20 -----------------------------t--<S> Báeiarfréttir • Kvenfélagið Eyigjan. Konur loftskeytamanna. Munið fund- inn fimmtudaginn 2. nóvem- ber kl- 8.30 að Bárugötu 11. Jón Oddgeir Jónsson sýnir tvær fræðslukvikmyndir. • Reykjavíkurdcild Rauða Kross Islands. kvennadeild- Fundur verður haldinn mið- vikudaginn 1. nóvember kl. 8.30 í Hótel Sögu. Átthagasal. Fundarefni: 1. Er ástæða til aukinnar heilsufræðikennslu í skólum? Jónas Biarnason læknir ræðir um vandamál ungra mæðra. 2. Kvikiriynd frá Alþjóða Rauða Krossin- um. 3. Ýrnis félagsmál. Félags- konur fjölmennið- Kaffi. — Stjórnin. i • Kvenfélag Háteigssóknar. Skemmtifundur í Sjómanna- skólanum, fimmtudaginn 2. nóv. klukkan 8.30. Spiluð félagsvist. Kaffiveitingar. Fé- lagskonur, — fjölmennið og takið með ykkur gesti. • Foreldra- og styrktarfélag heyrnardaufra. — Kaffisala og basar verður haldinn sunnu- daginn 5. nóvember kl- 2 að Hallveigarstöðum. Þeir sem vilja styrkja málefnið með gjöfum eða kökum eru beðnir að hringjæ í Guðrúnu Áma- dóttur, sími 36889 eða Unni Svavarsdóttur, sími 37903, og verður það þá sótt, eða koma því í Heyrnleysingjaskólann, Stai'kholti 3. Félagar úti á landi eru beðnir að senda munina til Hermanns Þor- steinssonar, Hvassaleiti 44- ,— Basamefndin er beðin að mæta til verðlagningur í kvöld kl. 8.30 i Heymleysingjaskól- anum. ára eða eldri og geta naumast talizt reksturshæfir lengur. Niðursuðuiðnaður- iijn o.fl. 4. Niðursuðuiðnaðurinn verði efldur með aðstoð þess opin- bera, fyrst og fremst til að afla markaða erlendis og tilaðkoma á fót sölustofnun fyrir fram- leiðslu þess iðnaðar, með hlut- deild og undir forystu ríkisins og nauðsynlegum fjárstyrk til markaðsleitar fyrstu árin. Þeim niðursuðuverksmiðjum, sem starfandi eru á Norður- landi, verði veitt nauðsynleg lári til að fullgera verksmiðj- urnar og endurbæta reksturinn. Ennfremur verði þeim aðilum öðrum, sem að því vinna að koma upp og reka niðursuðu- og niðurlagningarverksmiðjur á Norðurlandi veitt nauðsynleg fyrirgreiðsla og lán til þeirra framkvæmda. , 5. Haldið verði áfram frek- ari leit að rækjumiðum úti fyr- ir Norðurlandi og leitin fram- kvæmd á hverju ári ogáþeim tíma, sem helzt er von um góð- an árangur. Ef nægilega auð- ug rækjumið finnast, verði sér- staklega greitt fyrir aukinni bátttöku f rækiuveiðum með lánveitingum til veiðarfæra- kaupa og tækja til vinnslu rækjunnar. 6. skipasmíða- og- viðgerða- stöðvum fyrir skip og báta verði veitt nauðsynleg lán til uppbyggingar og reksturs, svo að stöðvarnar verði sem fyrst búnar vinnusparandi tækjum og aðstaðan að öðru leyti bætt, svo að starfsemi stöðvanna geti orði svo hagkvæm sem kostur er. Á útgerðarstöðum, þar sem allmikil útgerð er, og ekki er aðstaða til bátasmíða og báta- viðgerða, verú unnið að því, að slikum stöðvum verði komið upp. Til nýbygginga skipa ogbáta verði útveguQ fullnægjandi lán, svo að byggingastöðvamar geti boðið kaupendum nýrra skipá og báta jafngóð kjör og erlend- ar stöðvar bjóða bezt. 7. Frystihusunum verði veitt hagkvæm lán til hæfilegalangs tíma til að koma í framkvæmd umbótum á rekstri húsanna, m. a. verði lögð áherzla á umbæt- ur við geymslu og meðferðhrá- efnisins. 8. Auknar verði fjárveitingar til hafna á Norðunlandi, svoað hafnimar, sem eru enn að mestu opnar fyrir úthafssjó, verði sem fyrst öruggt lægi fyr- ir báta og skip viðkomandi staða og fyrir tafalitla af- greiðslu flutningaskipa. Við hafnir á helztu verzlun- arstöðunum verði byggð vöru- geymsluhús, svo hægt verði að leggja þar á land allmikið af vörum til dreifingar á nær- liggjandi staði. * ' Virkjunarmál og iðnaður 9. Hraðað verði fullnaðarund- irbúningi að fulilnaðarvirkjun Laxár í Þingeyjarsýslu samkv. þeirri tillögu um tilhögun virkj- unarfnamkvæmda þar, sem hagkvæmust er talin fyrirneyt- endur á Norðurlandi öllu. Keppt verði að þvi að ljúka undir- búningsvinnu fyrir virkjunina svo fljótt, að framkvæmdir geti Lafizt á næsta ári. Jafnframt aukinni virkjun Laxár verði byggð háspennu- lína frá stöðinni til kauptún- anna í Norður-Þingéyjarsýslu og rafveitumar á öllu Norður- landi tengdar saman,- Haldið verði stöðugt áfram lagningum dreifilína um landbúriaðarhér- uðin á Norðurlandi. 10. Greitt verði svo sem kost- ur er fyrir eflingu iðnaðarins á Norðurlandi með nauðsynleg- um lánum til umbóta á rekstr- inum, sem leitt gæti til þess að- bæta aðstöðu hans i hinni hörðu samkeppni. Tollar verði lækk- aðir á innfluttu hráefni og vél- um til iðnaðarins. Iðnaði, sem starfar að framleiðslu nauö- synjavarnings með hagkvæm- um hætti, verði veitt nauðsyn- 3eg vemd fyrir hömlulausum innflutningi sams konar iðnað- arvara. 11. Tunnuverksmiðjur ríkis- ins yerði starfræktar á. hverj- um vetri og eigi skemur en 5 til 6 mánuði af árinu. Véla- kostur þeirra verði' endurbætt- ur, svo að þáer verði jafnvel búnar að véhhn og tækjum til smíðanna og bezt gerist 1 þeim löndum, sem við . verðum að f- keppa við í tunnusmíði. Stefnt verði að því að tunnur undir alla saltsíldarframleiðslu verði smíðaðar innanlands. Byggt verði við verksmiði- una á Akureyri geymsluhús fyrir efnivömr og framleiðslu verksmiðjunnar og verði þar með hætt þeim óhæfilega dýra selflutningi á tunnuefninu og tunnunum, sem þar hafa verið smíðaðar. Landbúnaður o.fl. 12. Greitt verði fyrir áfram- haldandi framförum og aukinni fjölbreytni í vinnslu og verk- un landbúnaðarframleiðslunn- ar með nauðsyrilegum lánum til bygginga, véla- og tækjakaupa, sem þörf er. á til mjólkurstöðv- anna og einnig til sláturhúsa og fleiri vinnslustöðva landbúnað- arins á ýmsum stöðum á Norð- urlandi. 13. Stuðlað verði að því, að byggðar verði heymjöls- eða heykögglaverksmiðjnr, ein eða fleiri á Norðurlandi, eftir því, sem ,‘reynsla leiðir í ljós, að hagkvæmt sé, .og verði þessari starfsemi valinn staður eða staðir, þar sem skilyrði eru tal- in bezt fyrir þann verksmiðju- rekstur að dómi sérfróðra manna um það efni. 14. Unnið verði að því, að komið verði upp tollvöru- gejrmslu við Akureyrarhöfn til að greiða með því fjrrir verzl- unarstarfseminni á Norðurlandi, og á allan hátt verði stutt að því, að verzlunarfyrirtækin geti aukið milliliðalausan inn- flutning á .vörum og haft sam- bærilega aðstöðu við innflytj- endur í Reykjavík. 15. Gerðar verði ráðstafanir af því opinbera til að hæfilega stór olíustöð verði sett upp á Norðurlandi fyrir helztu teg- undir oh'u og benzíns, svo að hægt verði að flj'tja þessar vörur til Norðurlands beint er- lendis frá. 16. Greitt verði fyrir guknum framkvæmdum við hagnýtingu jarðhita á Norðurlandi með út- vegun lána til langs tíma. Hita- veituframkvæmdum til hitun- ar húsa verði hraðað í þeim bæjum og sjávarþorpum, þar sem skilyrði eru góð til rékst- urs hitaveitu. 17. Haldið verði stöðugt á- íram að auka og bæta vegakerf- ið í Norðlendingafjórðungi. Undirbúið verði á þessu ári, að gerð hraðbrautar i nágrenni AkurejTar, með varanlegu slit- lagi, geti hafizt á næsta ári. Jafnframt verði auknar veru- lega fjárveitingar til nýbygg- inga ýmissa þjóðvega á Norður- landi, svo sem nýs vegar um Melrakkasléttu tiil - Raufarhafn- ar og víðar. Samkvæmt ósk stjómar AN, var Atvinnumálanefnd Norður- lands falið á sl. vori að starfa áfram í sumar að sama verk- efni og áður- 1 sept- fór 5 manna nefnd frá AN á fund ríkisstjórnarinnar til að fylgja fram kröfum verkalýðssamtak- anna á Norðurlandi um opin- berar aðgerðir til að bægja frá fyrirsjáanlegu atvinnuleysi í vetur. Ríkisstjómin hefur nú falið Atvinnumálanefnd að gera skýrslu um nauðsynlegar að- gerðir af hálfu ríkisins í þessu efni. Þingið leggur ríka áherzlu á að Atvinnumálanefnd Norður- lands verði falið að starfa á- fram og henni fengin verulega aukin fjárráð, þar sem ella mundi hráefr'söflun til fisk- virmslusSöðva dragast stórlega saman, togbátaútgerð við Norð- urland og heimálöndim togara verða lítil eða engin í vetur og sókn bátaflotans minnka á heimaslóðum. Aukin fjárráð nefndarinnar yrðu notuð m.a. til úrlausnar á hráefnisskorti fiskvinnslu- stöðvanna á vestanverðu Norð- urlandi, og annars staðar, þar sem hráefnisskortur veldur erfiðleikum, svo sem 'með út- vegun togbáta, sem leggi þar upp afla, til að þrýsta á tog- araútgerðina til heimalandana og til frekari vikkunar á starfs- sviði nefndarinnar, sem að gagni geti komið til vamar gegn atvinnuleysi á Norðurlandi. I. DREIFING Blaðburðarfólk vantar í eftirtalin hverfi: Hjarðarhaga Reykjavíkurveg Blönduhlíð. Lönguhlíð Mávahlíð Laugarnes Kleppsveg Tjarnargötu Skipholt Múlahverfi ÞJÓÐVILJINN. Sími 17 500. ÖNNUMST ALLA HJÚLBARUAÞJÓNUSTU, FLJÚTT UG VEL, MEU NÝTÍZKU TJEKJUM HF* NÆG BÍLASTÆÐI QPID ALLA DAGA FRÁ kl. 7.30-24.00 HJOLBflRÐflVIÐGERÐ KOPflVOGS Kársnesbraut.1 - Sími 40093 SÆNGBR Endumýjuro gömiu sæng- umat, eigum dún- og fið- urheld vei og gæsadúns- sængur og kodda af vms- um stærðum Dún- og fiðurhreinsun Vatnsstíg 3. Siim 18740 (örfá skref frá Laugavegi) OSKATÆKI Fjölskyldunnar Sambyggt útvarp-sjónvarp GRAND FESTIVAL 23” eða 25” KRISTALTÆR MYND OG HLJÓMUR • MeS innbyggSÍi skúffu fyrir plötuspilara • Plötugeymsla • Ákaflega vandað verk, — byggt með langa notkun fyrir augum. • Stórt útvarpstæki með 5 bylgjum, þar á meðal FM og bátabylgju. • Allir stillar fyrir útvarp og sjónvarp í læstri veltihurð • ATHUGIÐ, með einu handtaki má kippa verkinu innan úr tækinu og senda á viðkomandi verkstæði — ekkert hnjask með kassann, lengri og betri ending. ÁRS ÁBYRGÐ Fást víða um land. Aðalumboð: EINAR FARESTVEIT & CO Vesturgötu 2. Allt til RAFLAGNA ■ Rafmagnsvorur. ■ Heimilistæki. ■ Gtvafps- og sjón- varpstæki Rafmagnsvoru- búðin s.f. Suðurlandsbraut 12. Siml 81670. NÆG BlLASTÆÐl. Kaupið Minningakort Slysavamafélags íslands. Smurt brauð Snittur brauö boe — vtð Oðinstorg — Simi 20-4-90. RAFLAGNIR ■ Nýlagnir. ■ Viðgerðir. ■ Sími 41871. ÞORVALDUR HAFBERG rafvirkjameistari. HÖGNI JÖNSSON Lögfræði- og fasteignastofa Bergstaðastræti 4. Simi 13036. Hteima • 17739. SIGURÐUR BALDURSSON hæstaréttarlögmaður LACGAVEGl 18, 3. hæð. Simar 21520 og 21620. BRIDGESTONE HJÓLBARÐAR Síaukin sala sannargæðin. B:RI DGESTONE veitir aukið öryggi í akstrl. BRIDGESTONE ávallt íyrirliggjandi. GÓÐ ÞJÓNUSTÁ Verzlun og viðgerðir Gúmmbarðinn h.f. Brautarholti 8 Sími 17-9-84 Laugavegi, 38 Skólavörðustíg 13 Mjög vandaðar og fallegar unglinga- og kvenbuxur. Efni: 55% terylene 45% ull. Stærðir: 10 — 12 — 14 — 38 — 40 — 42 og 44. . • Verð frá 675,00. Póstsendum um allt land. 6ez? immm A

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.