Þjóðviljinn - 19.11.1967, Síða 3

Þjóðviljinn - 19.11.1967, Síða 3
Sunnudagur 19. nóvember 1967 — ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA ^ kvikmyndBp Nú vantar ekkert nema f jármagn, skilning og metnai íslenzkir kvikmyndarar hafa sýnt aS þeir gœfu vakiS afhygli á islenzkri menningu viSar en FriSrik Ólafsson og Halldór Laxness fil samans 70 árum eftir að farið var að gera kvikmyndir úti í heimi eru frumsýningar á íslenzkum kvikmyndum enn þá fágætur viðburður. Aðstæður til kvikmyndagerð- ar eru að vísu erfiðar hér á landi og veldur þar mestu fá- mennið, þannig að markaður fyrir innlenda framleiðslu er tiltölulega mjög b'tilll — og get- ur engan veginn tryggt inn- lendri kvikmyndagerð vaxtar- möguleika, — meðan sjálfkrafa markaðslögmál eru látin ótoeizl- uð. Það hefur verið í fréttum, að á sunnudagskvöldið var sýndi Þorgeir Þorgeirsson fjór- ar stuttar heimildarkvikmynd- ir í Hlégarði sem hann hefur gert á undanförnum fimm ár- um og voru tvær þeirra frum- sýndar. Þrem dögum síðar frumsýndi Reynir Oddsson heimildarkvikmynd um her- námsárin í Háskólabfói eða öllu heldur fyrri hluta ítarlegr- ar kvikmyndar. I sýningarskrá hefur Þorgeir Þorgeirsson prentað nokkurs konar einkunarorð fyt-ir mynd- um sínum, ummæii Marcel Martins svohljóðandi: „FYrir byrjandi þjóðlega kvik- myndagerð er það allt í senn. fyrsta verkefnið, fyrsta siðferð- isskýldan og fyrsta listræna Atriði úr Kópavogsmynd Þorgcirs Þorgcirssonar. lausn á félagslegu vandamáli. Spursmálið um upphitun er tengd einfölldu vandamáli sem börn skilja: að villast og rata heim. Þessi mynd er frumraun höfundar að loknu námi og ber þess«nokkur merki. Hann hefur í þessari mynd eklki enn náð Kvikmyndin Grænlandsflug vax tekin á þriggja sólarhringa ferðalagi með skíðaflugvél Plug- félags Islands til Grænlands vorið 1964 en var fuUfrágengin síðla érs 1965. Þess sér hvergi stað í mynda- töfcuníni að höfundur hafi haft Og þá virðist af frásögnum fcvikmyndagerðarmanna að það sé beinlínis illmögulegt að sýná stuttar innlendar heimildar- kvikmyndir. þvi kvikmynda- húsaeigendur a.m.k. hér stærsta markaðssvæðinu í Rvík virðast því aðeins gæddir þjóð- legum metnaði í þjónustustörf- um sínum sínum að hægt sé að hagnast á því. En líklega er öldungis órétt- mætt að gera til þeirra nokkr- ar kröfur því höfuðástæðan fyr- ir lágu gengi þessarar list- greinar, innlendra heimildar- mynda — sem er einna fyrir- ferðamest í menningárlifi stórra og smárra þjóða nú — er ó- viðjafnanlegt skilningsleysi ráðamanna á gildi og nauðsyn innlendrar kvikmyndagerðar. En það er varla við því að búast, að við förum að sækja fram til nútímans í menningar- málum, meðan það er talið helgasta skyldan að standa í stað — á hinni hávaðasömu varðstöðu um menninguna með stórum staf. Við þessar aðstæður eru ís- lenzkar kvikmyndir sérstakt fagnaðarefni og merkir viðburð- ir i menningarsögu okkar — á- þreifanleg merki þess að verið er að brjóta kvikmyndalistinni braut — og því skyldi h'in ekki geta \ blómstrað hér eins og málaralistin hefur gert á seinni tímum? fullu valdi á því að kvikmynda börnin, þannig að þau lifi sínu lífi á tjaldinu og því verður kvikmyndin vandræðaleg á köfilum. En þarna er það áreið- anlega fjárskortur líka sem seg- ir til sín, þ.e.a.s. með fleiri tök- um á sumum atriðum hefði höf. áreiðanlega getað náð betri ár- angri. En í sambandi við þessa kvikmynd er ástæða til að vekja sérstaklega athygli' á h an d riti nu ,Ahu gmy nd i n n i. En hugmyndin sem er uppistaða myndarinnar er kannski sú sem skemmtilegast mótar efnið i þeim kvikmyndum sem Þorgeir nú. freistingin að uppgötva um- hverfð í landi sínu og lýsa því.“ Þetta viðhorf staðfestir. síðan Þorgeir áþreifanlega í myndum sínum. I sýningarskrá gerir hann nokkra grein fyrir myndunum og segir um þá elztu, Hitaveitu- ævintýri, að hún hafi verið gerð að tilhlutan Reykjavíkur- borgar og fullgerð sumarið 1963. Um myndina segir Þórgeir að hún sé hugsuð jöfnum höndum sem lýsing á upphitunarkerfi borgarinnar og kennslumynd jadfn knappan tíma til umráða eins og sagan sannar. Og eft- ir þriggja sólarhringa ferð lil Grænlands er út í bláinn að krefjast þess, að höfundur sýni okkur meira úr lífi Grænlend- inga en raun ber vitni, en þess gætir hann sjálfur eklki sem skyldi í texta þar sem t.d. er rætt um steinaldarmenningu sem á sér lítinn stað í þeim efnivið sem Þorgeiri tókst að festa á filmu. Textinn í þessu atriði er fulll metnaðarmikill á kostnað þess sem raunverulega sést á tjaldinu, þó í myndinni séu einnig dæmi þess að text- inn gefi atriði bókstaflega líf eins og þegar rætt er um veður- athugunarmennina. Leifur Þór- arinsson hefur samið góða tón- list við þessa mynd og Þor- Steinn ö. Stephensen flytur umræddan texta sem á ríkan þátt í því að hefja myndina yfir venjulegan fréttaflutning. ■fr Myndin Að byggja var tekin á síðastliðnu ári að tilhlutan Kópavogskaupstaðar, sem kost- aði myndina að nokkru leyti f tilefni lOára afmælis kaupstað- arins. Þessi mynd var frum- sýnd í Hlégarði. Eftir að höfundur hefur goldið keisaranum það sem keisarans er í knöppum inn- gangskafla sem sýnir atriði úr hátfðahöldunum er Kópavogur varð 10 ára í fréttaformi fer höfundur að sýna okkur hvern- ig bæði börn og fuílorðnir byggja í Kópavogi hver á sinn máta. Myndin er sérkennileg i formi — nokkurs konar órfmað ljóð, þar sem höfundur allt að því svallar í myndum og hreyf- ingu án þess að byggja upp heilsteypt atriði, hann leikur sér að kostum listgreinar sinn- ar, eins og í stílæfingu. Textinn verður stundum eins og dálít- ið afsakandi fer höfundur reyn- ir að halda atriðum saman f einingu hugmyndar sem er svo víðfeðm að hún gæti verið uppistaðan í mörgum ólfkum myndum. Nokkur atriði í mynd- inni eru hreinasta snilld og sér- staklega nokkur af bornum við smíðar — höfundur dvaldi með krökkunum á leikvefllinum meira og minna heilt sumar, eða þar til hann og mynda- vélin voru orðin hluti af eðli- legu umhverfi. Árangurinn er sá að höf. færir okkur börnin ljóslifandi og meira en það — því snjall kvikmyndahöfundur getur stækkað raunveruleikann og gfert hann áhrifameiri. i , ★ Um kvikmyndina Maður og verksmiðja segir höfundur að hún sé raunar fyrsta myndin sem hann geri án armars til- 'V' , ■ Hernámsdagurinn í Reykjavík 10. maí 1940. efnis en þeirrar frásagnar sem myndin felur i sér. Margveg- sömuð sumarvinna námsmanna, segir hann — er tekin ögn til athugunar ásamt þvi umhverfi sem ein síldarverksmiðja hef- ur upp á að bjóða. ☆ Þetta er nýjasta mynd Þor- geirs og var fullgerð aðeins fyr- ir mánuði. Maður og verk- smiðja er líklega bezt gerða mynd Þorgeirs bæði í kvik- myndatöku, klippingu og mark- vísi myndarinnar sem er sterk- lega mótuð sérkennilegu við- horfi höfundar. Hann grípur meira að segja til þess í sköp- un hins þyngslaflega og þrúg- andi andrúmsflofts að bera gamlan starfsmann í verk- smiðjunni saman yið ónýtan slitinn harmoníkubelg sem velk- ist í fjörunni. Þessi ydding rýf- ur þó ekki myndina en veldur því miklu heldur að áhorfend- um verður andrúmsloftið fram- andi og myndin virkar eins og grimmilegar ýkjur. ☆ Reynir Oddsson hefur í heilt ár verið að safna efni í heim- ildarkvikmynd um hernámsárin og frumsýndi fyrri hluta mynd- arinnar á þriðjudagskvöld. Hann hefur samið myndina og fram- leitt sjálfur en texta við hana hafa þeir samið með honum Thórólf Smith, Gunnar M. Magn- úss og Ævar Kvaran. Reynir hefur notað í myndina filmur sem Bretar, Bandaríkjamenn, ' Danir, Norðmenn og Þjóðverj- ar tóku á þessum árum. Fyrrí hluti myndarinnar spannar tím- ann frá sumrinu 1939 til 16. ágúst 1941 er Churchill kom hér. Kvikmynd Reynis Oddssonar sem heitir Hernámsárin 1940 til 1945 er fyrsta heimildarkvik- mynd sinnar tegundar sem gerð er á íslandi. En þessi mynda- gerð að tengja saman filmur sitt úr hverri áttinni, sem lúta þó að einum atburði og tengj- ast saman í frásögninni er jafn-na' vel talin sérstök grein innan heimildarkvikmyndagerðar er- lendis. Efniviðurinn sem Reyni hef- ur takizt að afla sér er yfirleitt vel tekinn og mjög forvitnileg- ur og í efninu og samsetningu þess kemur vel fram andstæðan milli aðstöðu okkar Islendinga og annarra þjóða sem höfðu nánari kynni af stríðinu. Mynd- in af friðsælu lífi á íslandi, lítt ógnvekjandi búnaði her- námsliðsins, texti sem skýrir frá þvi hvernig atvinnuleysi hvarf á einni nóttu og sfðast en ekki sízt gamanvísur frá þessum árum, sem sungnar eru í myndinni eru vissulega í tölu- verðri andstöðu við myndir af bardögum í öðrum löndum. ☆ En höfundur hneigist til að velja efni í frásagnir af er- lendum atburðum þannig að meira er skeytt um að byggja upp einstaka bardagkatriði en sýna andlit strfðsins eins og það sneri að almenningi á stríðsherjuðum svæðum Evrópu. Og mörg þessi atriði eru bein- línis hroðvirknisleg og sums staðar er ekkert hirt um að skýra skilmerkilega frá því hvað er að gerast — en erlend- ur texti látinn nægja til skýr- ingar. Sum þessi atriði virðast út i bláinn eð„ kannski sett þama f trausti þess að þau spilli ekki — og myndin eða öllu heldur þessi hiluti — verður aldrei leið- inlegur, þó heildarbygging myndarinnar setji ofan vegna þess arna. Yfirleitt tekst höfundi nokk- uð vel að byggja úr Ijósmynd- um atriði, sem hann telur nauðsynleg, þó þau hafi ekki verið fest á filmu á sfnum tíma. Hins vegar verður það ekki séð að sviðsetningin, á árásinni á Landssímahúsið t.d. efli frásögnina á nókkum hátt. Texti myndarinnar er yfir- FnamhaM á 8. isíðu.. \ 4

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.