Þjóðviljinn - 14.01.1968, Side 4

Þjóðviljinn - 14.01.1968, Side 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVTLJINN — Sunnudagur 14. janúar 1968. ' \ Áttræð Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósialistaflokkurinn. Ritstjórar: ívar H. Jónsson, (áb.), Magnús Kjartansson, Sigurður Guðipundsson. Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson. Auglýsingastj.: Sigurður T. SigurðSson, Framkvstj.: Eiður Bergmann. Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar prentsmiðja: Skólavörðustig 19. Sími 17500 (5 línur). — Áskriftarverð kr. 120.00 á mánuði. — Lausasöluverð krónur 7.00. Soffía Lilliendahl Atvinnuleysi í feium J^amkvæimt upplýsingum frá nokkrum verkalýðs- félögum í Reykjavík sem Þjóðviljinn hefur birt undanfarna daga má telja líklegt að ekki muni f jarri því að tala atvinnulausra sé farin að nálg- ast 800 - 900. Þórunn Valdimarsdóttir, varaformað- ur Verkakvennafélagsins Framsóknar vekur at- hygli verkakvenna á þVí, að allar félagskonur, giftar og ógiftar, sem-verið hafi í vinnu 1 frys'ti- húsum og öðrum vinnustöðum og ekki haft vinnu undanfarið eigi fullan rétt á bótum úr atvinnu- leysistryggingunum. Þórunn bendir á, að sáralítil vinna hafi verið í vetur í frystihúsum borgarinn- ar en þar hafi unnið að jafnaði 300-400 verkakon- ur. Aðeins fimm þeirra kvenna sem misst hafa vinnu í frystihúsunum og annarsstaðar hafa látið skrá sig atvinnulausar; allar hinar hafa látið hjá líða að nýta þær bætur sem þær eiga með réttu í atvinnuleysistryggingunum. Verkamannafélagið Dagsbrún telur að milli 200 og 300 verka;nenn í Reykjavík séu atvinnulausir, en ekki hafa nema 65 hirt um að láta skrá sig. í mörgum öðrum starfs- stéttum er meira og minna atvinnuleysi vegna samdráttar í atvinnulífinu og einungis fáir þeirra sem misst hafa atvirínu Jcomnir á skrá, á annað hundrað manns. JJvers vegna er atvinnuleysið í feíum í Reykja- vík? Hvers vegna,láta ,menn, sem missa at- vinnu sína, ekki skrá sig atvinnulausa og nýta þær tryggingar sem verkalýðshreyfingin knúði fram með verkföllunum miklu 1955? Eitthvað er sjálf- sagt enn eftir af tortryggni reykvískra verka- manna við Ráðningarstofu Reykjavíkur sem stofn- uð var á atvinnuleysisárum af íhaldinu í Reykja- vík til þess að verða eitt af höfuðvígjum þess í höfuðborginni. Verkamönnum var þá óljúft að fara inn á eina skrifstofu íhaldsins og gefa þar ótal upplýsingar um kjör sín. Svo kann enn a" vera. En eru það ekki verkalýðsfélögin sjálf ,sem eiga höfuðsökina á því að atvinnuleysið er í felum í Reykjavík? Hafa þau brýnt nægilega fyrir fé- lagsmönnum sínum að þeir'eiga einn stærsta sjóð íslendinga, Atvinnuleysistryggingasjóðinn? Hafa verið haldnir fundir í öllum verkalýðs'félögum í Reykjavík í vetur, m.a. til að ræða atvinnumálin og aðsteðjandi atvinnuleysi? Hefur verið sams’tillt barátta verkalýðshreyfingarinnar gegn atvinnu- leysinu? Það er meginatriðið að ekkert verka- lýðsfélag má drabbast svo niður, að starfsemi þess fari eingöngu fram á skrifstofum en jarðsamband stjórna og starfsmanna við vinnustaðina verði bláþræðir einir. Og í öllum verkalýðsfélögum eiga félagsmenn heimtingu á að almennir fundir séu haldnir oft á ári hverju og öll helztu vandamál fé- laganna, ekki sízt vandamál eins og aðsteðjandi atvinnuleysi, séu þar rædd og skýrð og ákvarðan- ir teknar um baráttuna. Hefði það verið gert und- anfarið hefði fleiri félagsmönnum í verkalýðsfé- lögunum í Reykjavík verið fullkunnugt um trygg- ingarrétt sinn í atvinnuleysi. Þá hefði atvinnu- leysið ekki verið í felum í Reykjavík. En það er forsenda baráttunnar gegn atvinnuleysinu að at- vinnuleysingjar' og félög þeirra viti hvernig stað- an er. t- s. Soffía Lilliendaihl er áttræð ó morgun, 15. janúar. Hún er fædd á Skálanesi, Vopnafirði. Hún giftist Birni Grímssyni. haustið 1917 og áttu þau hjón- in gullbrúðkaup fyrir mánuði. Allan þennan langa tíma haía þau hjón unnið af kappi fyrir sósíalismann og verkilýðshreyf- inguna, lengst af á Akureyri, sem heimili þeirra var löngum góður arinn okkar hreyfingar. En nú búa þau í Reykjavík, þar sem meginihluti myndarlega barnahópsins, sem þau hafa komið upp, á heima. Sagan af baráttu þeirra hjóna er ein gf mörgum hetjusögum íslenzkrar verklýðshreyfingar, ef hún yrði skráð, ekki síst af baráttunni á þriðja og f.iórða áratug aldgr- innar — Soffía verður að heim- an í dag. Þjóðviljinn árnar Sofxíu óg þeim hjónum allra heilla. Kosningabaráttan í Danmörku: Kraci boðar samvinnu vsð borpraflokkana Hann sagði að óhugsandi væri að einhverskonar samvinnusátt- máli yrði gerður með sósíaldemó- krötum, SF og Vinstrisósíalistum. Ég er þess fullviss að það er ekki hægt að treysta Vinstrisós- íalistum, sagði forsætisráðherr- ann. En fjármálaráðherrann Henry Gruenbaum sagði aftur á móti á fundi í Árásum að sósíaldemó- kratar gætu ekki gjörsamlega útilokað möguleika á einhverri samvinnu við Vinstrisósíalista. En við lítum mjög alvarlegum augum á athæfi-þeirra hinn 15. desember, bætti hann við. Gruenbaum taldi að Vinstri- sósíalistar myndu að líkindum fá nokkuð fylgi, en síðan myndi flokkurinn missa mikilvægi. Formaður sósíalíska alþýðu- flokksins Aksel Lars.en sagði í gærkvöld .að hann væri reiðu- búinn að ganga til samstarfs við sósíaldemókrata í ríkisstjórn, ef það skapaði meiri möguleika á því að koma fram stefnumálum sósfalíska alþýðuflokksins. Lar- sen bjóst ekki við því að Vinstri- sósíalistar' muni fá mann kjör- inn á þing. Formaður Vinstriflokksins Poul Hartling sagði á fundi í dag, að nityerandi forsætisráðherra þurfi ekki endilega að hefja samninga um nýja ríkisstjórn eftir kosn- ingar, ef hún hefur ekki fengið tilskiiinn þingmeirihluta, sagði hann. VAUXHALL BEDFORD UMBOÐIÐ ÁRMÚLA 3 SÍMI 38900 Aðstoðarmaður óskast til rannsóknarstarfa. Nokkur reynsla í járnsmíði eða rennismíði æskileg. Upplýsingar í síma 21340. Raunvísindastofnun Háskólans. Bréfaskó/i SÍS & ASÍ veitir sífellt hundruðum manna aðstoð við að auka víðsýni sína, hæfni og þekkingu á sviðum land- búnaðar, sjávarútvegs, verzlunar og viðskipta, er- lendrar málakunnáttu, margvíslegra félagsfræða. svo og almennra fræða, m.a. eðlisfræði, stærð- fræði og móðurmálsins, auk margs annars. Alls 35 námsgreinar og fleiri í undirbúningi. Tómstundir frá vinnu eru dýrmaétar, — enn dýr- mætari ef þér notið þær til heimanáms. Biðjið um kynningarbækling skólans. Innritist.— því fyrr — því betra. Innritun allt árið. Innritizt — því fyrr — því betra. Innritun allt árið. Skóli inn á hvert heimili. — Velkomin til náms. Bréfaskóli SÍS*& ASÍ, Sambandshúsinu, Reykjavík. KOMMÓÐUR — teak og eík Húsgagnaverzlun Axels Eyjólfssonar Skipholti 7 — Sími 10117. Verkfræðingar Tæknifræðingar ísafjarðarkaupstaður óskar eftir að ráða verkfræð- ing eða byggingatæknifræðing. Krafa um launakjör og upplýsingar um nám og störf fylgi umsókn. Umsóknarfrestúr er til 1. febrúar. Staðan veitist þá strax eða eftir samkomulagi. ísafirði, 10. janúar 1968. Bæjarstjórinn á ísafirði. Skattframteljendur í Kópavogi Skrifstofa mín í Félagsheimili Kópavogs, 2. hæð vérðúr í janúar 196ff- Öþin sem hér segir: 15.—20. janúar kl. 4—6 e.h., nema lattgardag ■ kl. 1-6 e.h. . - 4;' -s 22.—27. janúar kl. 4—10 e.h., nema laugardag kl. 1—6 e.h. 29., 30. og 31. janúar kl. 4 'e.h. til kl. 12 á miðnætti. Umboðsmaður Skattstjóra. Barðstrendingafélagið GRÍMUDANSLEIKUR í Tjamarbúð íaugardaginn 20. jan. kl. 20.30. i . Aðgöngumiðar afhentir í Tjarnarbúð fimmtudag- inn 18. jan kl. 5—7 og við innganginn. Kvennanefnd Barðstrendingafélagsins. ' i Aavill - gallabuxur Amerísk úrvalsvara. hjá' okkur. Fæst aðeins O. L. Laugavegi 71 Sími 20141. PARKET DLW PLASTINO KORK. Litaver sf. ’ Grensásyegi 22-24 — Símar 30280 og 32262 i

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.