Þjóðviljinn - 08.02.1968, Qupperneq 1
Fimmtudagur 8. febrúar 1968 — 33- árgangur — 32- tölublað.
Dátasjónvarpið til umrœðu á þingi í gœr:
t
Utanríkisráðherra afsakar
vanefndir hernámsliðsins!
Tillaga þingmanna Alþýðubandalagsins:
Tíu mikilvæg réttindamál
tryggð í stjórnarskránni
Reisn íslenzkra stjórnarvalda í dátasjónvarps-
málinu hefur aldrei verið mikil og ekki var risið
hátt á utanríkisráðherra á Alþingi í gær, er hann
reyndi að bera í bætifláka fyrir bandaríska her-
námsliðið og afsaka og verja vanefndir þess á ský-
lausum yfirlýsingum og loforðum um takmörkun
á sendingum Keflavíkursjónvarpsins.
irspyrjanda ög fyrmefndra ráð-
herra, þeir Jónas Ámason, Ragn-
ar Arnalds og Eysteinn Jónsson.
Tveir þingmenn Alþýdu-
bandalagsins, þeir Ragnar
Arnalds og Magnús Kjartans-
son, lögðu fram í neðri deild
Alþingis í gær frumvarp til
stjómskipunarlaga um breyt-
ing á stjórnarskrá lýðveldis-
ins íslands frá 17. júní 1944.
★
í greinargerð segja flutn-
ingsmenn, að frumvarpið feli
ekki í sér neina heildarendur-
skoðun stjómarskrárinnar af
hálfu Alþýðubandalagsins,
með því sé aðeins vakin at-
hygli á 10 mikilvægum rétt-
indamálum, sem sjólfsagt sé
að sett verði ákvæði um í
nýja vstjómarskrá.
Þessi atriði eru:
DRéttur Aílþingis í sam-
bandi við útgáfubráðá-
birgðalaga sé betur tryggður
en nú er með ákvæði um að
þriðjungur þingmanna geti
krafizt þess að þing Sé kvatt
saman til aukafundar í tilefni
útgáfu bráðabirgðalaga.
Kosningaaldur verði ekki
bundinn með stjórnar-
skrárákvæði, heldur fái Al-
þingi heimild til að lækka
aldurslágmarkið með lögum.
Jafnframt verði felld burt
skilyrðin um að kjósendur
skuli vera fjárráða og hafa
óflekkað mannorð.
Ákvæði sé sett í stjóm-
D/ arsftrá um að 20 þing-
menn eða 20% kjósenda geti
krafizt þjóðaratkvæðis um
sérhvert mál , sem samþykkt
er á Alþingi og ráði sú at-
kvæðagreiðsla úrslitum. Einn-
ig geti 25% kjósenda eða 15
þingmenn krafizt þjóðarat-
kvæðggreiðslu um tiltekið
málefni og séu úrslitin ráð-
gefandi en ekki bindandi.
i \ Tryggt verði að knappur
x/ meirihluti Alþingis geti
ekki selt ríkisvaldið og heim-
illdir þess að einhverju leyti í
hendur alþjóðlegum stofnun-
u-m eða ríkjabandalögum.
Aukinn meirihluti sé áskilinn,
hvort heldur slík samþykkt
er gerð á Alþingi eða iþjóð-
aratkvæðagreiðslu.
Tryggt sé að allar nátt-
J/ úruauðlindir hér á
landi haldist í eigu lands-
manna með ótvíræðu stjóm-
arskrárákvæði. Hið 'sama gildi
um fasteignir, en undanþágu-
heimildir veittar með lögum.
\ Tekin séu af öll tvímæli
U/ um það, að óbyggðimar
og sú orka og auðævi, sem
þar eru, séu ævinlega eignís-
lenzku þjóðarinnar, alþjóöar-
eign, sem einstaklingar geti
ekki sölsað undir sig með
neinum ráðum.
Við 69. grein stjórnar-
4 / arskrárinnar sem segir
að ekki megi leggja nein
bönd á atvinnufrelsi manna,
nema almenningsheill krefji,
enda komi lagaboð til, bætist
ákvæði um að öllum sétryggð
fulil atvinna og hverskonar
vinnuvernd.
0\ Ákvæði 70. gr. stjórn-
O/ arskrárinnar verði breytt
í það horf sem hæfir nútím-
anum: það er samrýmt nú-
gildandi tryggingalöggjöf og
þó gengið feti framar með
því að mæla fyrir um ókeyp-
is sjúkrahúsvist.
A\ 71. grein stjórnarskrár-
j) innar verði breytt til
samræmis við gildandi
fræðslulög, en jafnframt verði
löggjafanum lögð sú skylda á,
herðar að tryggja efnahags-
legt jafnrétti til menntunar,
þ.e. að allir skuli eiga rétt
til menntunar í samræmi við
áhuga si-nn og hæfileika og
sá réttur megi ekki verða
háður efnahag eða búsfetu.
75. grein stjórnarskrár-
innar orðist svo: „Is-
land er friðlýst land. Her-
skyldu má aldrei í lög leiða“.
Nánar verður skýrt frá
frumvarpinu hér í blaðinu
síðar. '
Þjóðfrelsisherinn beitir skriðdrekum í fyrsta sinn
Bandaríkjamenn eru að gefast upp
í Lang Vei skammt frá Khe Sanh
Til umræðu var svohljóðandi
fyrirspum frá Magnúsi Kjart-
anssyni: „Hvenær má vænta
ef-nda á því fyrirheiti, að send-
ingar bandaríska sjónvarpsins á
íslandi verði takmarkaðar við
Keflavíkurflugvöll og næsta ná-
grenni hans“.
Fyrirspyrjandi rakti nokkuð
sögu dátasjónvarpsins, einkum
eftir að Weymouth hemámsstjóri
bauð ríkisstjórninni að tak-marka
sendingar þess i septembermán-
uði 1966. Minnti Magnús jafn-
frarrit á að senn væm liðnir 5
mánuðir síðan sú takmörkun
sendinganna átti að koma til
framkvæmda og lagði áherzlu á
að hernámsliðið hefði vanefnt
skýlausar yfirlýsingar og loforð.
Emil Jónsson utanrikisráð-
herra svaraði fyrirspurninni með
því að lesa upp skýrslu for-
manns vamarmálanefndar um
málið, þar sem segir að her-
námsliðið hafi gert margskonar
ráðstafanir eftir 15. septembersl.
tii takmörkunar á sjónvarpsút-
sendingunum með þeim afleið-
ingum að sjónvarpsmyndin frá
Keflavík væri ónothæf á mikl-
um hluta Reykjavíkursvæðisins.
Hins vegar hafi ófyrirsjáanlegir
tæknilegir erfiðleikar valdið töf-
um á ,því að sjónvarpssendingar
yrðu takmarkaðar enn betúr, og
eins hafi óhagstætt veður kom-
ið í veg fyrir að upp væru sett
nauðsynleg tæki á sendingamast-
ur Keflavíkursjónvarpsins.
Jóhann Hafstein dómsmálaráð-
herra lagði orð í belg í þessum
umræðum á Alþingi í gær og
jók ekki við fyrri orðstír sinn
eða ríkisstjórnarinnar í málinu.
Aðrir ræðumenn voru, auk fyr-
SAIGON 7/2 — Henmenn Þjóðfrelsishersins réðust
í nótt á bandaríska virkið Lang Vei, sem er aðeins
8 km frá Khe Sanh. Beittu þeir skriðdrekum bún-
um eldvörpum og er það í fyrsta sinn að þeir nota
slík vopn 1 styrjöldinni. í morgun var virki þetta
talið fallið, en samkvæmt síðari fregnum vörðust
bandarískir hermenn, fjallabúar og hermenn frá
Laos þar enn í kvöld. Enn.er barizt í Saigon og Hue.
South
0 &
China
Sea
DEMIUtMUEU
■** ZOÍIE
LAOS
% ,,fvWhe samh’
’ «0utis .
’ '7'
SOUTH ' "4.
'JIWUBAI;
^IETfrAM
'msmáÆ.
Kort af nyrztu héruðum Suöur-Vietnam. Lang Vei er örskammt
frá Qandamærum Laos eins og sjá má. Lengst til hægri er hin
forna höfuð-borg Hue. en þar er enn barizt hús úr húsi.
Árásin hófst með stórskotahríð
og eldflaugna, sém komu frá La-
os, en Lang Vei er aðeins 2 km
frá landamærunum. Þá birtust
skriðdrekar af sovézkri gerð, hin-
ir fyrstu sem Bandaríkjamenn
mæta í stríðinu, og segjast þeir
hafa eyðilagt fimm þeirra.
Tilkynnt hafði verið bæði í Sai-
gon og Hanoi að virki þetta væri
fállið og setuliðinu eytt, en
seinna bárust fréttir frá Saigon
um að nokkrir bandarískir her-
menn héldu þar enn velli ásamt
með fjallabúum og herflokki frá
Laos sem flúði yfir landamærin
fyrir skömmu. Talsmaður Banda-
ríkjahers sagði að mennirnir
hefðu fengið skipun um að halda
virkinu hvað sem það kostaði.
Lang Vei skiptir miklu því
skæruliðar þurfa að ná því á sitt
vald áður en þeir ráðist á hina
miklu herstöð við Khe Sanh, sem
nú hefur verið umsetin um nokk-
um tíma.
Götuvígi í Saigon
Skæruliðar hafa haldið frá
ýmsum borgum landsins, en búizt
er við nýjum áhlaupum af þeirra
hálfu. Enn var barizt í dag í hinni
fornu höfuðborg Hue og blaktir
fáni Þ j óðf relsishreyf ingarinnar
tenn yfir borgarvirkinu. Þar er
barizt í návígi, hús úr húsi.
Skæruliðar sprengdu í loft upp
þrjár brýr í borginni í dag.
Skæruliðar réðust á lögreglu-
stöðvar í þrem borgarhlutum í
Saigon í nótt, en lítið hefur verið
barizt í höfuðborginni í dag.
Borginni er skipt í „örugg“ og
„óörugg“ hverfi, eða „blá“ og
„rauð“. í „rauðu“ hverfunum í
kínverska borgarhlutanum Chol-
on hafa skæruliðar að sögn reist
götuvígi úr yfirgefnum bílum og
olíutunnum. AFP-fréttastofan
segir að skæruliðar fari í ýmsum
hverfum óhindraðir um götur
höfuðborgarinnar, allt að fimm-
tíu saman í hóp.
Vietnamskur maður, sem flúið
hefur frá Cholon, sagði við frétta-
ritara AFP, að skæruliðar hefðu
komið í tíu manna hópum, og
Framhald á 3. síðu.
527 á atvinnu-
leysisskrá í gær
í Reykjavík
Þjóðviljinn átti í gær-
kvöld tal við Ragnar Lár-
usson hjá Ráðningarstofu
Reykjavíkurborgar og innti
hann eftir atvinnuteysis-
skráningunni hér í borg-
inni. Sagði Ragnar, að s.d.
í gær er skrifstofan lokaði
hefðu samtals 527 verið
skráðir atvinnulausir, þar
af 419 karlmenn og 108
konur.
Ragnar kvað alltaf hafa
bætzt við daglega fólk er
léti skrá sig atvinnulaust,
hins vegar væri síðustu daga
meiri hreyflng á en áður,
þannig að sumir kæmust í
vinnu aftur en nýir at-
' vinnuleysingjar væru skráð-
ir í þeirra stað, t.d. bætt-
Ust 7 nýir á skrána ígær-
dag, 6 karlar og 1 kona,
en 3 karlar er fengu vinnu
í gær hurfu af skránni.
Ekki hafði unnizt tími
til þess að skipta skráðum
atvinnuleysdngjum í hópa
eftir starfsgreinum, en þar
enu verkamenn og verka-
konur í miklum meirihluta
og síðan koma iðnaðar-
menn.
Leitin að Heiðrúnu
( •
enn árangurslaus
Leitinni að Heiðrúnu frá
Bolungavík var enn haldið
áfram í gær á landi, sjó og
úr lofti, en ekkert nýtt kom
i Ijós. Með Heiðrúnu voru
sex menn, eins og áður hef-
ur komið í Ijós í fréttum,
og er nú talið vonlítið að
þcir hafi komizt lífs af.
Við leitina í gær var sem
áður. siglt um Isafjarðai'djúp
og Björn Pálsson flaug yfir
svæðið á vél sinni, og gengið
var um' fjörur. Var aðalá-
herzlan lögð á leit. á Arn-
arnesi, í Alftafirði og Seyð-
isfirði og á Hvammsnesi,
þar sem helzt hefur fimdizt
brak.
Ekkert fannst úr Heið-
rúnu í gær, en leit verður
haldið áfram á landi í dag.
Eiginkona Eddons
stýrimanns komin
Eiginkona Harry Eddons, 1.
stýrimanns af Ross 'Cleveiand,
kom til landsins I gærkvöld,
með þotu Flugfélags Islands,
GuIIfaxa. 1 sömu vél var fjöldi
brezkra blaðamanna, svo og
fulltrúar tryggingafélaga. Brezka
blaðið The SUN hafði boðið
konunni hingað, ásamt nokkrum
ættingjum, móður hennar og
bræðrum. Konan sést hér á
myndinni sem tekin var á
Keflavíkurflugvelli skömmu eft-
ir að flugvélin lenti þar í gær-
kvöld. Með henni á myndinni er
einn af SUN-mönnnnum, s«n
gættu þess vandlega, að aðrir
blaðamenn næðu ekki tali af
konunni.