Þjóðviljinn - 08.02.1968, Qupperneq 12
Þingsálykfunarfillaga Alþýáubandalagsmanna:
Nauðsynleg aðstoð við síld-
á fjariægum miðum
□ Tveir af þingmönnum Alþýðubandalagsins, þeir
Karl G. Sigurbergsson og Lúðvík Jósepsson, flytja
í sameinuðu ,þingi tillögu til þingsályktunar um
aðstoð við síldveiðiskip á fjarlægum miðum.
Tillagan er svohljóðandi:
„Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjórninni að gera hið fyrsta
nauðsynlegar ráðstafanir til
stuðnings síldveiðiskipum, sem
veiðar stunda á fjarlægum fiski-
miðum, á komandi sumri og
hausti. í þeim efnum verði m.a.
lögð áherzla á eftirfarandi:
að gera síldarsöltun á miðunum
mögulega,
að auka flutninga á síld til
vinnslu í landi,
að hafa tiltækar á fiskimiðunum
allar helztu nauðsynjavörur
útgerðarrekstrarins,
að hafa á fiskimiðunum nauð-
synlega þjónustu fyrir skips-
hafnir, eins og t. d. læknis-
þjónustu,
að skipuleggja öryggisþjónustu
á miðunum, m. a. þannig, að
tryggt sé, að skipin geti haft
eðlilegt talstöðvasamband við
land.
Til þess að hafa á hendi undir-
búning og sjá um framkvæmdir
samkv. tillögu þessari skipi sjáv-
arútvegsmálaráðhcrra 5 manna
nefnd, og skulu í henni vera að
minnsta kosti tveir fulltrúar út-
vegsmanna og sjómanna.
Heimilt er ríkisstjórninni að
verja allt að 10 miljónum króna
til framkvæmda samkv. þessari
þingsályktun."
f greinargerð segja flutnings-
menn m.a.:
f>að má öllum Ijóst vera, hvílík
breyting hefur orðið á síldveiðum
okkar landsmanna hin síðari ár
og vaxandi erfiðleikar, sem skap.
azt hafa á þessum árum vegna si-
aukinnar fjarlsegðar síldarinnar
frá hinúm venjulegu miðum,
sem hún var sótt til.
Það kom þó enn berlegar í ljós
á seinustu síldarvertíð, þar sem
saman fór enn aukin fjarlægð á
miðin og því nær ógerlegt að
koma síldinni ag landi í því ásig-
komulagi, að teljast mætti gott
hráefni til mjölframleiðslu, hvað
þá til manneldis í salt og fryst-
ingu, og allir kostnaðarliðir stór-
hækkuðu jafnframt í verði.
Þótt veðurfar hafi verið með
eindæmum hagstætt á hinum
norðlægu slóðum síðasta sumar,
mun þó ágóðinn af þeim aflafeng,
sem sóttur var á þessi fjarlægu
mið, hafa verið í öfugu hlutfalli
við fyrirhöfnina. Því mætti ætla,
að bæði útgerðarmenn og sjó-
menn, er þessar veiðar stunduðu,
muni ekki treýsta á þær jafnt og
verið hefur að öllum aðstæðum
óbreyttum.
Ungir Keflvík-
ingar Suður-
nesjamenn
Fræðslufundur um her-
námsmáil verður haldinn
í kvöld, fimmtudag kl.
8,30 í Tjarnarlundi. Á
fundinum munu Jón Hann-
esson, Halldór Guðmunds-
son og Ragnar Stefánsson
ræða um stöðuna í her-
námsmálunum á íslandi og
starfsemi Æskulýðsfylking-
arinnar á þessu sviði og
svara fyrirspurnum.
Sýndar verða tvær stutt-
ar kvikimyndir, önnur frá
stríðinu í Vietnam, en hin
um Keflavíkurgönguna ’67.
öllum er heimill að-
gangur.
Æskulýðsfylkingin.
Þjóðhagslegt mál
Við flutningsmenn þessarar
þingsályktunartillögu gerum
okkur ljóst, að ef ekkert verður
gert til að undirbúa aðstoð við
síldveiðiflotann á næstu sumar-
og haustvertíð, verði um mikinn
samdrátt að ræða í síldarútgerð á
komandi sumri og þar af leiðandi
minnkandi aflaverðmæti, sem að
landí verður fært, því að allar
líkur benda til þess að veiðisvæð-
ið verði ekki nær íslandi en á
síðasta ári, ef dæma má eftir áliti
fiskdfræðinga þar um.
Við álítum, að lær sé um svo
þjóðhagslegt mál ao ræða, að op-
inberum aðilum og þá ekki sízt
ríkisvaldinu þeri skylda til þess
að hlutast til um, að einhverjar
viðhlítandi ráðstafanir verði
gerðar til að síldveiðar okkar
dragist ekki verulega saman.
Ófremdarástand á fjarlægum
miðum
Það ófremdarástand, sem ríkt
hefur á þessum fjarlægu miðum,
er vart viðunandi lengur. Veiði-
skipin okkar eru meiri hluta tím-
ans á fullri ferð um hafið ag og
Framháld á 3. síðu
Fimmtudagur 8. febrúar 1968 — 33. árgangur — 32. tölublað.
Skákþing Reykjavíkur:
Staða í meistara-
flokki að skýrast
+■ Lokið er nú 9 umferðum í
meistaraflokki á Skákþingi
Rcykjavíkur og er nú nokkuð
farið að skýrast hverjir muni
Gömul mynd á kirkjuvcgg. Frá vinstri, Jóhanna, Erlendur, E dda, Þórunn, Kjartan, Sigmundur, Daníel, Soffía og ArnhilduK
komast í úrslitakeppnina um
titilinn „skákmeistari Reykja-
víkur 1968“, en fjórir efstu
menn úr hvorum riðli meist-
araflokks komast í úrslita-
keppnina. 5 menn mega nú
teljast öruggir í úrslitakeppn-
ina: Guðmundur Sigurjóns-
son, Gunnar Gunnarsson,
Björn Þorsteinsson, Bragi
Kristján og Jón Kristins-
son. Þá mun Björgvin Víg-
lundsson nokkuð öruggur og
líklegt að Júlíus Friðjónsson
og Benóný Benediktsson
hreppi þau tvö sæti sem þá
eru eftir.
Á sunnudag var'tefld 8. um-
ferð í meistaraflokki á Skákþingi
Reykjavíkur. 1 A-riðli vannGuð-
mundur Sigurjónsson Gunnar
Gunnársson, Benóný Benedikts-
vann Stíg Herlufsen, Jón Þor-
váldsson vann Jón Pálsson, en
Bragi Halldórsson og Hermann
Ragnarsson gerðu jafntefli. Frest-
að var skák Andrésar Fjeldsted
og Sigurðar Herlufsen, en Björg-
vin Víglundsson sat hjá.
I B-riðli vann Jóhann Þórir
Gylfa Magnússon, en Bjami
Magnússon og Bragi Kristjáns-
son, Björn Þonsteinsson og Jón
Kristinsson gerðu jafntefli. Leif-
ur Jósteinsson vann Frank Her-
lufsen og Sigurður Kristjánsson
vann Hauk Kristjánsson. Júlíus
Friðjónsson sat hjá.
9. urnferð var tefld í fyrra-
Framhald á 3. síðu.
Nýr leikflokkur vrumsýnir
tvo leikþætti í Tjarnarbæ
■ Nýjar myndir og Gömul mynd d kirkjuvegg nefnast tveir
leikþættir sem flokkur ungs fólks frumsýnir 1 Tjamarbæ á
laugardaginn. Leikendurnir eru allir tiltölulega nýútskrif-
aðir úr leiklistarskóla Leikfélags Reykjavíkur.
■ Hafa þeir ákveðið að sýningar á leikþáttunum tveimur
verði örfáar en án efa leikur mörgum forvitni á að kynnast
tilraunum unga fólksins.
Leikendurnir, sem eru . 9 tals-
ins og kalla sig Litla Leikfélagið,
hafa unnið algjörlega upp á eig-
in spýtur að sýningunni; teikna
búninga og leikmyndir, stjórn/i
ljósum, selja aðgöngumiða, og
hafa auk þess átt mikinn þátt i
að skapa annan leikþáttinn,
Nýjar myndir. Unga fólkið hefur
notið aðstoðar Sveins Einarsson-
ar sem er leikstjóri og hefur
jafnframt þýtt leikinn Gömul
mynd á kirkjuvegg.
Síðamefnda verkið er eftir
Ingmar Bergman. Er það talið
mjög heppilegt verkefni fyrir
unga leikara og léku nemendur
Ingmars Bergmans það á Dram-
aten í Svíþjóð fyrir mörgum ár-
um. Uppúr þessu verki samdi
Bergman síðar kvikmynd sína
Sjöunda innsiglið sem nú er
sýnd í Hafnarfirði.
Nýjar myndir eru samtfning-
ur af söngvum, textum, frétta-
tilkynningum og alls kyns atrið-
um. Leikendur hafa samið
nokkra af söngvum í leiknum en
einnig verða sungin þekkt lög.
Textamir við lögin eru þýddir
af Jónasi Amasyni, Þorsteini
Valdimarssyni og Jóni Sigurðs-
syni og auk þess eru sungnir
textar eftir innlenda höfunda.
Nýjar myndir era að mestuleyti
soðnar saman á sviðinu, en í
leikritinu er að sjálfsögðu ákveð-
inn boðskapur.
Þess má geta að engin stjóm
er í Litla Leikfélaginu heldur er
starfið byggt upp á því að allir
séu jafnvirkir og hefur hverog
einn sitt starfsvið við undirbún-
ing sýningarinnar — og allir fá
tækifæri til að sýna hvað í
þeim býr.
Fyrir stuttu mættu nemend-
ur úr Handíða- og myndlista-
skólanum ásamt kennara sínum
Peter Behrens á æfingu hjá Litla
Leikfélaginu. Var verkefni þeirra
að teikna myndir-af leikurnum
og prentað var au gl jsingaplakat
eftir beztu myndinrii.
í fyrstu leikskrá Litla Leikfé-
lagsins segir m.a. eitthvað á
þessa leið: „Við emm ekki að
reka leikhús, en höfum unnið
saman í leiklistarskóla Leikfé-
lagsins og langar til að halda
samvinnunni áfram. Hópvinna
er eitt af lykilorðuim dagsins í
leikhúsinu og við höfum þá trú
að hún geti eitthvað gott af sér
leitt.
Við göngum ekki erinda á-
kveðinna stjómmálastefna. Sjáilf
höfum við ólíkar stjórnmála-
skoðanir, en við erum öll sam-
mála í afstöðu okkar gegnstríði;
því að láta vopn skera úr ídeil-
um manna. Nýjar myndir eru
ekki annað en það sem þrengir
sét að okkur sem erum ung.
Gnýrinn af krossferðum nútím-
ans héfur vakið spurn hjá okk-
ur og kannski einhverjum fleir-
um. Þessi sýning hefur þá á-
batavon eina að einhver kynni
að styrkjast í þeirri trú að leik-
húsið eigi erindi til okkar í dag“.
40 bindi norskra
bókmennta
OSLÓ 7/2 — Á föstudag kemur
út í Noregi mesta bókmennta-
safn sem þar hefur verið gefið
út. Ritið kemur út í 40 bindum
og heitir Norskar þjóðarbók-
menntir. 32 höfundar leggja und-
ir sig heilt bindi hver. Þrír höf-
undan-na eru enn á lífi — Cora
Sandel, T^rej Ves&s og Johan
Borgen.
Sinfóníutónleikar í kvöld:
Einleikari er fiðlu-
snillingurinn Ricci
Síðara starfsmisseri Sinfóníuhljómsveitar íslands 1967—
1968 hefst með tónleikum í kvöld í Háskólabíói. Stjórnandi
hljómsveitarinnar er Bohdon Wodiczko en einleikari' að
þessu sinni er bandaríski fiðlusnillingurinn Ruggiero Ricci.
um efnisskrá tónleikanna segir m.a. svo í fréttatilkynningu
frá Sinfóníuhljómsveitinni.
Jörvagleði
hin minni!
Næstkómandi sunnu-
dagskvöld heldur ÆFR
þá árlegu Jörvagleði
hina minni, að Tjarnar-
götu 20.
Lesið verður úr verkum
skálda og hugmynda-
fræðinga Fylkingarinn-
ar. Leikrit. Söngur. Nán-
ar auglýst síðar. ÆFR.
Tónleikarnir hefjast á kanad-
ískum Karnival eftir Benjamin
Britten. Verkið var samið skömmu
eftir að Britten ákvað að fylgja
í fótspor W. H. Audens og halda
ti£ Vesturiheims, flýja ófriðar-
blikuna í Evrópu 1939. Þetta er
létt og gáskafullt verk, í hljóð-
falli alþýðlegra dansa.
Næsta verk efnisskrárinnar er
líka samið undir áhrifum al-
þýðlegra dansa, en það er Sym-
phonie • espagnole — sinfónía
með spánskættuðum stefjum og
hljóðfalli þjóðlegra spánverja-
dansa eftir Lálo. Einleikin-n á
fiðluna í þessu verki leikur
bandaríski fiðlusnillinguriAn
Ruggiero Ricci.
Ricci kom
fyrst fram
opinberlega 8
ára gamallog
_____ ^ síðan hefur
líf hans ver-
■
frægðar-
ganga- Ruf?R-
■ ■ • l: • - < r
A einn hinna
núlifandi
fiðlusnillinga, sem í erlendum
blöðum kalílast ,,alþjóðlegur“.
Hann er fiðlari, sem allar þjóð-
ir vilja eigna sér.
Þá leikur hljómsveitin hið
glæsilega sinfóníska ljóð Rich.
Strauss, „Don Juan“. Strauss
var ungur, þegar ha-nn samdi
þessar endurminningar „gamals
manns, fyrrverandi „Don Juans“,
vegna samnefnds Ijóðs eftir
Lenau.
Tónleikunum lýkur með öðru
leiftra-ndi hljómsveitarverki, —
rúmenskri rapsódíu nr. 1 eftir
Georgiu Enesco. Enesco var ekki
aðeins frægt tónskáld, heldur
stjómaði hann og var í fremstu
röð fiðlusnilli-nga. Seinustu árin
einbeitti hann sér að kenn-slu og
meðal nemenda hans var Menu-
hin.
Alþýðabanda-
!ag;ð í Haffnarfirði
□ Alþýðubandalagið í Hafnar-
firði heldur fund í kvöld
fimmtudagskvöld í Góðtemplara-
húsinu uppi kl. 8,30.
□ Dagskrá: Fjárhagsáætlun Hafn-
arfjarðarkaupstaðar.
— Stjórnin.
/