Þjóðviljinn - 09.02.1968, Side 1
Eldur í báti
□ í fyrrinótt kom upp
eldur í vélbátnum Ver frá
Akranesi er hann var stadd-
ur um 7 sjómílur út af
Akranesi. Eldurinn var í
brúnni á bátnum og kom-
1 ust skipverjar ekki í tal-
I stöðina til þess að senda út
fré Akrauesi í fyrrinótt
neyðarkall. Skutu þeir upp
neyðarblysum og settu út
gúmbát til þess að hafa
hann tilbúinn ef á þyrfti
að halda.
□ Noikkrir bátar voru
þarna nærstaddir og kom
annar Akranesbátur, Keilir,
fyrstur á vettvang og dró
,hann Ver til hafnar. Hafði
skipverjum tekizt að byrgja
svo eldinn að hann náði
ekki að magnast og tókst
fljótt að slökkva hann er til
Akraness kom Talsverðar
skemmdir urðu á bátnum.
Rögnvaldur Sigurjónsson
Sigurjón Rögnvaldsson
Heiðrún talin af
- 6 menn fórust
□ Leitinni að Heiðrúnu H frá Bolungavík er nú
hætt og talið með öllu vonlaust, að mennimir sex,
sem um borð voru, hafi komizt lífs af. Leit um fjör-
ur var haldið áfram í gær, en ekkert nýtt kom 1
ljós.
Aðeins einn rnannanna
sem fórust með Heiðrúnuvar
skráður á skipið, Rögnvaldur
Sigurjónsson stýrimaður. Aðr-
ir skipverjar voru veðurteppt-
ir á Isafirði þennan dag, en
þeir sem með henni fóru þessa
síðustu ferð ætluðu að að-
stoða við að koma henni í
var á íéafirði, þar sem ekki
var talið óhætt að láta hana
liggja við brjótinn í Bolunga-
vík í óveðrinu.
Rögnvaldur Sigurjónsson var
52ja ára gamall og lætur eft-
ir sig konu og tvær dætur,
en tveir ungir,synir hans, Sig-
urjón Rögnvaldsson 17 ára og
Ragnar Rögnvaldsson 18 ára
fórust með honum á Heiðrúnu.
Hinir þrír sem > fórust með
Heiðrúnu voru Páll Isleifur
Vilhjálmsson, 31 érs,‘sem læt-
ur eftir sig konu og barn,
Sigurður Sigurðsson 18 ára og
Kjartan Halldór Kjartansson
23ja ára, er lætur eftir sig
konu og tvö börn, fæddist
yngra barnið óveðursnóttina,
sem Heiðiún hvarf.
Allir mennirnir voru frá
Bolungavík og er þessimann-
skaði hönmulegt áfall fyrir
þorpið.
Sigurður Sigurðsson
Páll Isleifur Vilhjálmsson
Ragnar Rögnvaldsson
Kjartan Halldór Kjartansson
Robert F. Kennedy fordæmir
VietnamstríðiB í þrumuræðu
Segir að tími sé kominn til þess að Bandaríkjamenn horfist í augu
við sannleikann um það — Ræðst af heift á leppstjórnina í Saigon
CHICAGO 8/2 — Robert Kennedy, öldungadeildarmaöur
frá New York, fordæmdi í þrumuræðu sem hann hélt
í Chicago í dag stríð Bandaríkjanna í Vietnam. Frétta-
ritari brezka útvarpsins í Washington sagði aö ræðan
hefði verkað eins og sprengjuárás á Hvíta húsið, enda
þótt Kennedy hefði aldrei n'efnt Johnson forseta á nafn.
Robert F. Kennedy öldungadeildarmaður og Johnson forsetL
— Það er kominn tími til þess
fyrir Bandaríkjamenn að horf-
ast í augu við sannleikann um
Vietnamstríðið. sagði Robert
Kennedy. Fjandmenn okkar hafa
í eitt skipti fyrir öll rifið sund-
ur blekkingavef stjórnarvalda
okkar. Fyrst af öllu yrðu Bánda-
ríkjamenn að gera sér Ijóst að
það væri blekking og tálvon ein
að halda að atburðir síðustu
daga í Vietnam hefðu falið í
sér einhvern sigur fyrir Banda-
ríkin. Það væri öðru nær.
Saunleikanum leynt
Kennedy gagnrýndi þá stöð-
ugu viðleitni Bandaríkjastjórnar
að halda sannleikanum um Viet-
namstríðið leyndum fyrir þjóð-
inni. — Það er ekki lengra síðan
JörfogleSi
hin minni
☆ N.k. sunnudagskvöld kl. 9
efnir ÆFR til Jörfagleði hinn-
ar minni í Tjarnargötu 20.
'☆ Lesið verður úr verkum
skálda og hugmyndafræðinga
Fylkingarinnar.
■jý Flutt verður leikrit; kyrjaðar
verða gamanvísur um ýmsa
Fylkingarfélaga. Flutt verður
kvæði Þorsteins, um Fylking-
arferðina til Færeyja og sýnd-
ar skuggamyndir úr þeirri
ferð. Sýnd verður kvikmynd
úr Reykjavíkurgöngunni.
■/r Félagar fjölmennið — Stjórn
’ ÆFR. _
en í desember að okkur var sagt
að 65 prósent íbúa Suður-Viet-
nam væru óhult fyrir óvinunum.
Nú hefur Vietcong sýnt og sarin-
að að enginn hluti og enginn
maður í Suður-Vietnam er óhult-
ur fyrir þeim. Herra McNamara
hefði sagt að í fyrra hefðu
kommúnistar misst 165.000
menn. en samtímis hefði hann
sagt að meginstyrkur þeirra
hefði ekki minnkað. Það liti því
út fyrir að hversu margir sem
haldið væn fram að hefðu fall-
ið væri herafli óvinanna alltaf
sá sami.
Áratuga stríð
— Sókn (þjóðfrelsishersins)
hefur sýnt að enginn einasti
bær í Suður-Vietnam er óhultur
,fyrir óvinum sem aðeins geta
teflt fram 250.000 manna liði,
enda þótt Bandaríkin hafi nú
hálfa miljón manna þar og viet-
namskir bandamenn okkar hafi
700.000 menn undir vopnum og
enda þótt við höfum alger yfir-
ráð í lofti og á sjó.
— Ef við höldum áfram sömu
stefnu bíður okkar ekki annað
á næstu árum og áratugum en
stöðugt stríð á meginlandi Asíu,
stríð sem getur leitt til harm-
leiks allrar þjóðarinnar. Eina
leiðin úr ógöngunum sagði
Kennedy að væri pólitísk mála-
miðlun.
Stríðinu sé hætt
— Stigmögnun stríðsins spillir
áliti Bandaríkjanna í öðrum
löndum heims, sagði Kennedy
á fundi með rithöfundum og
forleggjurum í Chicago. Við eig-
um engan kost betri til að
bjarga því sem okkur er dýr-
mætast í, Vietnam — lífi her-
manna okkar — en þann að
hætta mögnun stríðsins og bezta
leiðin til þess er að hætta stríð-
inu.
Hverjir berjast?
Kennedy fór hörðum orðum
um frásagnir bandarískra stjóm-
ar- og hervalda af stríðinu ®g
sýndi fram á hversu fáránlegar
og mótsagnakenndar þær væru.
Því hefði verið haldið fram að
Framhald á 7. síöu.
Sjósfysanna minnzt á þingi
■ í upphafi fundar sameinaðs Alþingis í gær minntist þingfor-
seti, Birgir Finnsson, þeirra sjómanna er farizt hafa með vb.
Heiðrúnu II. og brezku togurunum. Vottuðu þingmenn aðstand-
endum hinna látnu sjómanna samúð sína meffþví að rísa úr
sætum.
■ Á fundi sameinaðs þings var annars aðeins eitt mál á dagrskrá:
rannsókn kjörbréfs Ragnars Jónssonar skrifstofustjóra, sem
nú tekur sæti Sverris Júlíussonar, þingmanns Sjálfstæðisflokks-
ins, í veikindaforföllum hans.
Brezkum togurum skipai að fara frá
miðunum frá ísafirði til Langaness
40-50 togarar verða látnir halda burt af íslandsmiðum þangað til
skip úr brezka flotanum kemur á þau eftir viku þeim til aðstoðar
LONDON 8/2 — Skipstjórar á brezkum togurum fengu
í dag fyrirmæli um að forðast fyrst um sinn miðin
fyrir noröan ísland og fara ekki- til veiða þangað fyrr
en eitt af skipum brezka flctans er þangað komið til að
gæta þeirra, segir í tilkynningu sem gefin var út af
brezkum togaraeigendum í dag.
Brezki flotinn mun senda skip
á þessar slóðir einhvern næstu
daga og á það að vera komið
þangað um 16. febrúar eða
undir lok næstu viku. Skip þetta
verður búið út til veðurathug-
ana og eitt meginverkefni áhafn-
arinnar verður að vara brezka
togara við óveðrum. Skipstjórinn
á þessu skipi mun fá vald til
þess að skipa togurum að halda
burt af þessum slóðum þegar
hann telur hættu á ferðum.
Fyrirmælin til togaraskipstjór-
anna voru gefin út af togaraeig-
endum eftir fund með fulltrúum
brezkú stjórnarinnar og samtaka
sjómanna. Þeir höfðu komið
saman til þess að fjalla um
hvaða öryggisráðstafanir ætti 'að
gera til að koma í veg fyrir slys
af því tagi sem orðið hafa við
ísland að undanförnu.
Fyrirmælin um að fara af
miðunum — það er einkum um
að ræoa miðin undan sfröndinni
frá ísafirði til Langaness —
verða send skipstjórum á 40—50
togurum um útvarp. Þeir munu
verða að halda á mið við Nor-
egsströnd eða annars staðar
fyrst um sinn.
Á fundinum varð einnig sam-
komulag um að öll skip lengri
en 140 fet verði framvegis að
hafa loftskéytamenn um bprð.
Samkvæmt hinum nýju reglum
sem nú ganga í gildi eiga boð
að berast frá togurunum til
gæzluskipsins á 12 tíma fresti
en frá því til þeirra á 24 tíma
fresti.
Fréttir frá Gren-
oble - Sjá 2. síðu