Þjóðviljinn - 09.02.1968, Side 10
StóÖ undir skúr-
vegg alla stór-
hríðarnóttina
HÓLMAVÍK 8/2 _— í ofveðrinu
aðfaranótt sl. sunnudags sukku
tveir bátar hér í höfninni á
' Hólmavík og tveir aðrir voru
hætt komnir. Hlóðst svo mikill
ís á bátana að þeir sukku. Er
nú búið að ná þeim upp aftur.
Þá lá maður á' sjötugsaldri
héðan úr Hólmavík úti alla stór-
hríðarnóttina og hefur honum
ekki orðið meint af sem þykir
vel af sér vikið hjá svo öldruð-
um manni. Maður þessi heitir
Jóhann Nielsson og hefur hann
haft kindur í vetur á eyðibýlinu
Kálfanesi, sem er hér skammt
frá þorpinu. Jóhann fór til kind-
anna á laugardaginn eins og
venjulega en er hann sneri heim-
leiðis um kvöldið var komið
svo mikið afspyrnurok og hríð,
að hann réð sér ekki. Náði hann
girðingunni við flugvöilinn og
gat haldið sér í hana og fikrað
sig eftir henni að skúr sem þama
stendur. Komst hann ekki inn
í skúrinn en stóð ‘ í skjóli við
hann alla nóttina. Hefur honum
ekki orðið meint af þessu volki.
f Drangsnesi féll snjóflóð á
tvö fjárhús og drap um 50 kind-
ur. Ennfremur sökk bátur í
legufærum á höfnihni.
Yfirnefnd Verð-
lagsráðs ákvað
loðnuverð í gær
í gær barst Þjóðvilj anum eft-
irfarandi fréttatilkynning frá
verðlagsráði sjávarútvegsins:
Á fundi yfirnefndar Verðlags-
ráðs sjávarútvegsins í dag var
ákveðið, að lágmarksverð á
loðnu í bræðslu á loðnuvertíð
1968 skuli vera 42 aurar hvert
kg. auk 5 aura pr. kg. í flutn-
ingsgjald frá skipshlið í verk-
smiðjuþró.
Verðið er byggt á þeirri for-
sendu að fellt verði niður út-
flutningsgjald af loðnuafurðum
á komandi loðnuvertíð.
Verðákvörðun þessi var gerð
með atkvæðum oddamanns og
fulltr. kaupenda gegn atkvæðum
fulltr. seljenda í nefndinni.
f nefndinni áttu sæti Bjarni
Bragi Jónsson, sem er oddamað-
ur nefndarinnar, Guðmundur Kr.
Jónsson og Ólafur Jónsson til-
nefndur af fulltrúum kaupenda
í Verðlagsráði og Guðmundur
Jörundsson og Jón Sigurðsson,
tilnefndir af fulltrúum seljenda
í Verðlagsráði.
ÓÐINSMENN TIL HULL? Sam-
kvæmt óstaðfestum fregnum frá
Hull hefur borgarstjórnin þar í
huga að bjóða Skipshöfninni á
Óðni á skipinu til Hull í viður-
kenningarskyni fyrir aðild þeirra
að björgun brezkra sjómanna.
Við komu yfirmanna Notts County til Reykjavíkur í gær. Fulltrúi brezka sendiráðsins, Brian
Holt (til vinstri) og Geir Zoé’ga, umboðsmaður breskra togaraeigenda, styðja Stokes, 1. stýrimann
út úr flugvélinni, en hann getur ekki stigið í hægri fót vegna kalsárs. Á eftir honum gengur
Burkes skipstjóri. — (Ljósm. Þjóðv. A. K.).
Skipverjarnir á Óðni
voru
sögðu yfirmennimir af Notts
County við komuna til Rvíkur
sagði að yrði að taka af er til
Englands kæmi.
Þeir sögðust sjaldan eða aldr-
et hafa komizt í annað eins veð-
□ ..Skilið þakklæti okkar til skiþverjfinna á Óöni, til | áo”:
læknisins og hjúkrunarkvennanna á ísafirði fyrir alla andi frost auk roksins. — við
hjálpina og til ísfirðinga sjálfra fyrir gestrisnina“, sögðu | vissum að við vorum í ísafjarð-
skipstjóri og stýrimaður brezka togarans Notts County,' sSef’stýrimatur. v» víS
er þeir ræddu við blaðamenn við komuna til Reykjavíkur búnir að vera að berja ís af
í gær.
Eins og sagt hefur verið frá í fréttum fóru 16 skip-
□
brotsmannanna til Englands á miðvikudagsmorgim, en
skipstjórinn George Burkes og 1. stýrimaður Barry Dav-
id Stokes, sem verst urðu úti, uröu að liggja áfram á
sjúkrahúsinu á ísafirði.
Þeir Burkes skipstjóri og Stok-
es stýrimaður komu til Reykja-
víkur í gær með vél Flugfélags-
ins og halda áfram heimleiðis í
dag. Voru þeir þó ennmáttfarn-
ir í gær, stýrimaðurinn gekk við
hækju og gat ekki stigið í hægri
fótinn, en skipstjórinn var mjög
kalinn á hönduim og var komið
drep í fingurgómana, sem hann
skipinu allan daginn, en þegar
það strandaði hættum við því,
þá var betra að hafa þyngslin
til að halda því niðri.
Strandið sögðu þeir að hefði
ofðið um kl. 11 um kvöldið, en
þeir náðu sambandi við Óðinn
um kl. 6 um morguninn.
— Skipið brotnaði mikiðstrax,
kom stór rifa á það að neðan og
allt fór á flot í vélarrúminu, —
sennilega brotnaði þá sknífan
líka.
Framhald á 7. síðu.
Eiríkur Hreinn Finnbogason, borgarbókavörður, þakkar danska
sendihcrranum, Birger Kronmann fyrir bókargjöfina. (Ljósm. B.H.)
GJÖF TIL BORGARBÓKA-
SAFNS REYKJAVÍKUR
Sendiherra Dana hér á landi,
Birger Kronmann afhenti í gær
Borgarbókasafni Beykjavíkur
bókagjöf sem Eiríkur Ilrcinn
Finnbogason veitti móttöku. Gat
sendiherrann þess að bókasöfn á
Akureyri, Neskaupstað, Vest-
mannaeyjum, ísafirði og Siglu-
firði ættu von á dönskum bóka-
gjöfum innan tíðar. ,
Eiríkur Hreinn þakkaði gjöf-
!
I
Brezkir blaðamenn slógust á ísafirði
Stundum haifa heyrzt raddir
urrv það, að íslenzkir blaða-
menn væru allágengir í frétta-
öflun fyrir blöð sín. Nú hef-
ur það hins vegar áþreifan-
lega sannazt, að hvað harð-
fylgi og ágengni í starfi
snertir eru þeir hrein börn
hjá brezkum blaðamönnum
(og munu þeir þó ekki al-
verstir). Við komu frú Edd-
on til Keflavikurflugvallar i
fyrrakvöld lá við pústrum og
miklar hrindingar og stimp-
ingar urðu milli fréttamanna
umhverfis hana, er blaða-
menn The SUN, er bauð
frúnni hingað og greiddi
hermi drjúgan skilding fýrir
að sitja eitt að fréttum og
myndum af ferðinni, reyndu
allt hvað þeir gátu að varna
fréttamönnum annarra brezkra
blaða að ná tali eða mynd-
um af henni.
í gær kastaði þó fyrsttólf-
unum við komu frúarinnar til
Isafjarðar og kom til handa-
lögmáls milli brezku sjón-
varps- og blaðamannanna úti
fyrir sjúkrahúsinu og varð
sjúkrahúslæknirinn að kalla
á lögregluna á vettvang til
þess að skakka leikinn. Fer
hér á eftir frásögn frétta-
manns Þjóðviljans á isafirði,
Jóns A. Bjarnasonar ljós-
myndara, af þessum atburð-
um.
Jón kvaðst hafa farið út á
flugvöll fyrir hádegi i gær,
þefar flugvélin sem frú Edd-
on kom með til Isafjarðar
héðan úr Reykjavík lentiþar.
Var það áætiunarvél frá
Flugfélagi íslands. Á flugvell-
inum var fyrir um 30 manna
hópur brezkra sjónvarps- og
blaðamanna, ljósmyndara og
kvikmyndatökumanna. Þar
reyndu fylgdarmenn frúarinn-
ar frá The SUN eins og á
Reykjavíkurflugvelli að koma
í veg fyrir það með harð-
fylgi, að nokkur næði talief
konunni eða gæti tekið af
henni mynd. Var þó hart að
þeim sótt og brugðu þéirloks
á það ráð að aka ekki með
hana strax til sjúkrahússins,
heldur skutu þeir henni inn á
Mánakaffi og geymdu hana
þar í háHftíma á meðan þeir
ráðslöguðu um hvemig þeir
ættu að komast með hanainn
á sjúkrahúsið eini-r.
Þegar The SUN-mennkomu
til sjúkrahússins með frú
Eddon voru starfsbræður
þeirra þar fyrir og hugðust
báðir hópamir ryðjast inn i
húsið. Kom til slagsmála
milli brezku fréttamannanna
innbyrðis og einnig þjörm-
uðu þeir að umboðsmanni
brezkra togaraeigenda er
þama var með í förinni.
Sjúkrahúslæknirinn neitaði
að hleypa blaðamönnunum
inn og hringdi á lögregluna.
Tókst honum'eftir mikið þóf
að hleypa frú Eddon einni inn
um dymar án þess að frétta-
mennimir brezku kæmu í
kjölfarið. Einum blaðamanni
frá The SUN tókst þó að
brjótast inn um bakdyrnar
fram hjá yfirhjúkrunarkon-
I '
unni og húsverðinum er þar
voru tiíl vamar innrásbrezku
blaðamannanna. Kqmust fleiri
ekki inn að sinni, en brezku
fréttamennimir munu hafa
haldið áfrarn umsátri' um
sjúkrahúsið fram eftir degi.
Skv. síðari fréttum munu
blaðamenn frá The SUN hafa
ijósmyndað endurfundi beirra
Eddons hjóna eins og þá
lysti, en aðrir fóru bónleiðir
til búðar. Mjög mikið álag
hefur verið á þeirri einu vél,
sem getur símsent myndirfrá
Islandi — hafa sumir blaða-
menn freistað þess að fá fllug-
vél leigða til að flytja frétta-
myndir til Skotlands.
The SUN styður Verka
mantjaflokkinn að nafninu til
og er taprekstur á því.
ina og sagði að Reykvíkingum
þætti gott að fá þessar bækur en
betri vaepi sá vinarhugur sem að
baki lægi.
Eiríkur Hreinn sagði ennfrem-
ur að lagt hefði verið kapp á
það undanfarin ár að útvega
safninu úrval nýrra bóka frá
hinum Norðurlöndunum. T.d.
hefðu 700 bækur verið danskar
af þeim 17.000 bókum sem
keyptar voru til safnsins á sl.
ári. Góð samvinna hefði tekizt
við bókasafnamiðstöðina dönsku.
Væri nú svo komið að Borgar-
ibókhsafnið gæti fengið nýút-
komnar danskar bækur jafn-
fljótt og bókasöfn í Danmörku.
Bækurnar sem danski sendi-
herrann afhenti í gær voru þess-
ar: Biblens verden eftir Michael
Avi-Yonah og Emil G. Kraeling,
Dansk prosa, þrjú bindi. tekin
saman af Hans Lyngby Jepsen,
Danske diktere i det 20. árhundr-
ede. 3 bindi, tekin saman af
Frederik Nielsen og Ole Restrup,
Gamle viser i folkemunde í
samantekt Karen Stougaard
Hansen. Danmarks kulturgeo-
grafi eftir Viggo Hansen, Land-
borkvinden eftir Ole Höjrup,
Bodil Ipsen eftir Bodil Ipsen,
Jysk lune. E)ansk lune í saman-
tekt Johannes Evald Tang og
Niels Th. Mortensen, Kunstens
historie, 'tvö bindi eftir Aage
Marcus, Dansk billedkunst eftir
Niels Th. Mortensen, Nordens
historie eftir Poul Kirkegárd og
Kjeld Winding, tvö bindi, Mod-
emisme i dansk kunst, spesielt
efter 1940 eftir NJens Jörgen
Thorsen.
Föstudagur 9. febrúar 1968 — 33, árgangur — 33. tölublað.
Stjórnarfrumvarp í réttarfari:
Bnfáld dómsmál íái
hraíarí afgreiðslu
□ í gær var lagt fram á Alþingi stjómarfrumvarp til
laga um svonefnd áskorunarmál, til laga um viðauka
viö lögin um meðferð einkamála í héraði frá árinu 1936.
Er lagabreytingu þessari ætlað að stuðla að hraðari af-
greiðslu nokkurra einfaldra dómsmála.
Undir ákvæði frumvarpsins
falla fjárkröfur samkvæmt víxl-
um, tékkum, skuldabréfum og
öðrum einhliða óskilyrtum
skuldaviðurkenningum, svo og
mál til heimtu peningaskulda
sem stafa af lausafjárkaupum,
enda háfi þá stefnandi staðið við
skuldbindingar . af sinni hálfu.
Mál sem falla mundu undir á-
kvæði þessa lagafrumvarps eru
t.d. yfirgnæfandi meirihluti
þeirra mála, sem nú er stefnt
fyrir bæjarþing Reykjavíkur, en
fjórir fulltrúar yfirborgardóm-
ara eru nú nær eingöngu bundn-
ir við afgreiðslu þessara mála
Framhald á 7. síðu.
\