Þjóðviljinn - 28.02.1968, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN — Miðvdfcujiagur í 28. febrúar 1968.
Otgeíandi: oameinmgarflokkur aiþýðu — Sósialistaflokkurinn.;
Ritstjórar: tvar H. Jónsson. (áb.), Magnús Kjartansson.
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingaslj.: Sigurður T. Sigurðsson.
Framkvstj.: Eiður Bergmann.
Ritstjórn. afgreiðsla. auglýsingar prentsmiðja: Skólavörðustig 19.
Sími 175Ö0 (5 línur). — Áskriftarverð kr. 120.00 á mánuði. —
Lausasöluverð krónur 7.00.
Hverjir vilja kauplækikun?
£ skrifum sínum um verðtryggingarmálið þruglar
Morgunblaðið í síbylju þá fullyrðingiu að „fólkið
vilji ekki verkföll“. Þrátt fyrir þennan linnulausa
áróður fyrir Vinnuveitendasambandfið svonefnda
er það staðreynd, að hin víðtækustu verkföll hafa
verið boðuð í marz. Morgunblaðið hefiur undan-
fama daga reynt að gera sér mat úr því, að verka-
lýðsfélögin á Vestfjörðum og ýmsum öörum stöð-
um höfðu þá enn ekki boðað verkfall. Það virðist
ætla að verða skammgóður vermir fyrir andstæð-
inga verkalýðshreyfingarinnar. Eins er'með stærsta
verkakvennafélag landsins, Verkakvennafélagið
Framsókn í Reykjavík, sem nú hefur boðað'verk-
fall. Tilraunir Morgunblaðsins, Vísis og Vinnuveit-
endasambandsins að sýna verkalýðshreyfinguna
klofna og ósamþykka um kröfuna um verðtrygg-
ingu launa hefur mistekizt. Forystumenn verka-
lýðsfélaga úr öllum stjórnmálaflokkum standa að
verkfallsboðun í marz til að knýja frarmþetta mikla
hagsmuna- og réttlætismál íslenzkrar alþýðu. Sú
samstaða kom þegar fram á þingi Alþýðusam-
bandsins og Verkamannasambandsins, og þeir
verða áreiðanlega fáir forystumenn verkalýðsfé-
laganna sem rjúfa þá samstöðu og sitja hjá meðan
félagar þeirra í öðrum verkalýðsfélögum berjast
fyrir sameiginlegum hagsmunum, sameiginlegum
réttindum. Og Morgunblaðinu hefur ekki tekizt að
koma með einn einasta forystumann Sjálfstæðis-
flokksins í verkalýðsfélögum sem gefi þá yfirlýs-
ingu að hann og hans félög vilji ekki verðtryggingu
launa, vilji ekki að hann og hans félagsmenn njóti
þeirrar sjálfsögðu verndar sem verðtryggingin er.
j^Jorgunblaðið reynir eftir megni að hræða fólk frá
kröfunni um verðtryggingu með því að með
samþykkt hennar muni allt atvinnulíf á íslandi
fara á hausinn! Éngum hugsandi manni er sá áróð-
ur bjóðandi að t.d. 5% kauphækkun frá 1. marz ráði
slíkum úrslitum um rekstur atvinnufyrirtækja í
landinu. Það er ekki of hátt kaup sem valdið hefur
atvinnurekstri í landinu erfiðléikum, heldur röng
og hættulég stjórnarstefna Bjama Benediktssonar,
Gylfa Þ. Gíslasonar og kuimpána. Þeir hafa stefnt
í atvinnuleysi og vandræði með hinni fáránlegu
stjórnarstefnu sinni og vanrækslu gagnvart undir-
stöðuatvinnuvegum þjóðarinnar. Þeir hafa boðað
það sem fagnaðarerindi í atvinnumálum íslendinga
að ofurselja ætti auðlindir íslands erlendum auð-
hringum á sem flestum sviðum en látið mikilvæg-
ar greinar sjávarútvegsins drabbast niður. Þeir
hafa stefnt þjóðinni út í atvinnuleysi, enda þótt
stjómartími þeirra hafi lengst af einkennzt af upp-
gripaafla og æfintýralegum hækkunum á verði ís-
lenzkra útflutningsvara. Það er . stjórnarstefnan
„viðreisnin“ alræmda, sem veldur atvinnuleysi og
erfiðleikum atvinnuveganna, en ekki það að kaup
verkamanna og annarra launþega sé of hátt. Verði
nú verkfallsátök, er það vegna þess að Bjami
Benediktsson, Gylfi Þ. .Gíslason og*kumpánar
sviptu verkamenn verðtryggingunni nú í vetur.
Það er sú tilefnislausa og fólskulega árás sem
verkalýðshreyfingin svarar nú með afli samtaka
sinna. — s.
á viku
Tvær listkynningar
Gunnar Eydal formaður listkynningarnefndar
SFHÍ skýrir frá starfi nefndarinnar
Bókmennta- og li.stkynnin.g-
arnefnd Stúdentafélags Háskóla
Islamds hefur starfað af miklum
þrótti í vetur og nýlega máðum
við tali af formammi nefndar-
innar, Gunnari Eydal og femg-
um hann til að segja okkur
aðeins nánar af starfimu.
„Þetta er í ,fyrsta sirnm sem
starfið hefur verið reglubund-
ið, og við höfum leitazt við að
kynma það sem mú er að gerast
á sviði bókmennta og lista,
fremur en eldri verk og stefn-
ur. 1 allan vetur hafa verið
tvær Jistkynmingar á viku að
undanskilduim mánaðartíma,
þegar allt lá niðri vegna prófa.
Á hverjuim þriðjudegi er plötu-
kynming í Hátíðasalnum og
listkynning af ýmsu tagi á
föstudagskvöldum. Þá hefur
nefndim gengizt fyrir nokkrum
leikhúsferðum og sýningum á
kvikmyndum Þorgeirs Þorgeirs-
sonar, sem hefur sem kumnugt
erátt í erfiðleikumaðfámymdir
sínar sýmdar í Rvík. Fyrir sýn-
inguna ræddi Þorgeir all ítar-
lega um stofnum íslenzkrar
kvikmyndastofnunar, sem legði
áherzlu á að sýna úrvaismynd-
ir og stuðnimg við íslenzka kvik-
myndagerð. Þá sá mefndin um
síðdegisihóf himm 1. desemiber.
Þar voru frumflutt Guðsbama-
ljóð Jóhannesar úr Kötlum við
tónlist Atla Heirnis Sveinssom-
ar. Listkynnimgin 1. desember
var tekin upp í fyrra á vegum
B-listans, en æskilegra verður
að telja, að sitúdemtafélagið
hafi allan veg.og vanda af há-
tíðahölduim þonnan dag eins
og var í ár og verður vomamdi
fastur liður framvegis“.
Hvernig er plötukymmimgun-
um hagað?
„Þar er um að ræða sam-
stairf milli tónlistamefndar sem
skipuð er af Háskólaráði og
SFHl, og hefiur það gefiztmjög
vel. Þetta er kymmimg á plötu-
safni skólans, sem segja máað
hafi legið ónotað og rykEallið
upp á síðkastið, þar til í vetur.
Oftast nær ræðir eámhver úr
hópi stúdemta um verkim og höf-
undana".
Listkymmimgarmar á fösibudög-
um hafa verið vei umdirbúmar?
„Já, við lögðum fram starfsá-
ætlun i jan. sem spannar yfir allt
síðara misserið. Þassar kymm-
ingar eru á hverju föstudags-
kvöldi í Tjamarbúð. 1 bók-
Gunnar Eydal
menmtum má nefma kynmimgu
á Asturias, en þá flutti Thor
Vilhjálimssón gagnmerkt erindi
um síkáldið og verk hams, og
Framhald á 7. síðu.
■',:; :■/
' ’ ■"
m
■"***:,,:.w,
mm
wwm.
.
« *