Þjóðviljinn - 20.03.1968, Page 2
2 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN — Miðvdkudagiur 20. marz 1068.
TILKYNNING
um aðstöðugjald í Reykjayík
Ákveðið er að innheimta í Reykjavik aðstöðugjald
á árinu 1968 samkvæmt heimild í III. kafla laga
nr. 51/1964 um tekjustofna sveitarfélaga og reglu-
gerð nr. 81/1962 um aðstöðugjald.
Hefir borgarstjórn ákveðið eftirfarandi gjaldskrá:
0.5% Rekstur fiskiskipa og flugvéla. Matvöru-
verzlun í smásölu. Kaffi, sykur og komvara
til manneldis í heildsölu. Kjöt- og fiskiðn-
aður. Endurtryggingar.
1.0% Rekstur farþega- og farmskipa. Sérleyfisbif-
reiðir. Matsala. "Landbúnaður. Vátryggingar
ót.a, Útgáfustarfsemi. Útgáfa dagblaða er þó
undanþegin aðstöðugjaldi. Verzlun ót.a. Iðn-
aður ót.a.
1.5% Sælgætis- og efnagerðir, öl- og gosdrykkja-
gerðir, gull- og silfursmíði, hattasaumur, rak-
ara- og hárgreiðslustofur, leirkerasmíði, ljós-
myndun, myndskurður. Verzlun með gler-
augu, kvenhatta, sportvörur, hljóðfæri,
snyrti- og hreinlætísvörur. Lyfjaverzlun.
Kvikmyndahús. Fjölritun.
2.0% Skartgripa- og skrautmunaverzlun, sölu-
turnar, tóbaks- og sælgætisverzlun, blóma-
verzlun, umboðsverzlun, minjagripaverzlun..
Listmunagerð. Barar. Billjarðstofur. Persónu-
leg þjónusta. Ennfremur hvers konar önnur
gjaldskyld starfsemi ót.a.
Með skírskotun til framangreindra laga og reglu-
gerðar er ennfremur vakin athygli á eftirfarandi:
Þeir, sem ekki eru framtalsskyldir til tekju-
og eignaskatts, en eru aðstöðugjaldsskyldir,
þurfa að senda skattstjóra sérstakt framtal til
aðstöðugjalds, sbr. 14. gr. reglugerðarinnar.
Þeir sem framtalsskyldir eru í Reykjavík, en
hafa með höndum aðstöðugjaldsskylda starf-
semi í öðrum. sveitarfélögum, þurfa að senda
skattstjóranum í Reykjavík, sundurliðun, er
sýni. hvað af útgjöldum þeirra er bundið þeirri
starfsemi, sbr. ákvæði 8. gr. regluigerðarinnar.
Þeir, sem framtalsskyldir eru utan' Reykjavík-
ur, en hafa með höndum aðstöðugjaldsskylda
starfsemi í Reykjavík, þurfa að skila til skatt-
stjórans í því utndæmi, þar sem þeir eru heim-
ilisfastjr, yfirliti um útgjöld sín vegna starf-
seminnar í Reykjavík.
Þeir, sem margþætta atvinnu reka, þannig að
útgjöld þeirra teljast til fleiri en eins gjald-
flokks, samkvæmt ofangreindri gjaldskrá,
þurfa að senda fullnægjandi greinargerð um,
hvað af útgjöldunum tilheyri hverjum ein-
stökum gjaldflokki, sbr. 7. gr. reglugerðar-
innar.
Framangreind gögn ber að senda til skattstjóra
fyrir 2. apríl n.k., að öðrum kosti verður aðstöðu-
gjaldið, svo og skipting í gjaldflokka áætlað, eða
aðilum gert að greiða aðstöðugjald af öllum út-
gjöldum skv. þeim gjaldflokki, sem hæstur er.
Reykjavík, 20. marz 1968.
SKATTSTJÓRINN í REYKJAVÍK.
1.
2.
3.
4.
AÐALFUNDUR
Hjarta- og æðavemdarfélags Reykjavíkur
verður haldinn í Gyllta salnum, Hótel
Borg, fimmtudaginn 21. marz n.k. kl. 20.30.
DAGSKRÁ:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Að því loknu verður skýrt frá starfsemi
Rannsóknarstöðvar Hjartavemdar og
sýnd kvikmynd frá rannsókninni.
STUTT ERINDI FLYTJA:
Nikulás Sigfússon læknir, Ottó Bjömsson
tölfræðingur, Ólafur Ólafsson læknir og
prófessor Sigurður Samúelsson.
STJÓRNIN.
ÍSLENDINGAR
kyrrð
Áöur en verkföllin miklu hóf-
ust varð vart mikillar ókyrrð-
ar innan Alþýðuflokksdns.
Forustumenn flokksins í al-
þýðusamtökun.um stóðu sem
kunnuigt er með félögum sín-
um að kröfunmi um veirðtrygg-
ingu lauma og mæltu með því
að verklýðsfélögin beittu afli
samtaka sinna til þess að
tryggja þeirri kröfu sigur ef
sammimgair tækjust ekki átaka-
laust. Verklýðsmálanefnd Al-
þýðuflokksins gerði sérstaka
ályktun : um málið og var
þannig frá henni greint í Al-
þýðublaðinu: „Það er skoðun
þessa fólks að kröfur verka-
lýðssamtakanna um fulla at-
vinnu og áframhaldandi verð-
tryggingu launa séu í fullu
samræmi við þær samþykktir,
sem Alþýðuflokksfólk á þing-
um Alþýðusambandsdns og
Verkamannasambandsins stóð
að. Varkalýðsmálanefnd Al-
þýðuflokksins hefur hvatt allt
flokksfólk í verkalýðsfélögun-
um til þess að stuðla að þeirri
lausn deilunnair, sem bezt
tryggir atvinnuöryggi og
raungildi vimnutekna. Jafn-
framt hefur nefndin heitið á
ráðherra Aiþýðuflokksins að
vinna ötullega að lausn máls-
ins án þess að lil vinnustöðv-
unar komi“. Alþýðublaðið tók
sjálft undir þessa afstöðu
verklýðsmálanefndarinnair og
sagði í lok greinar sinnar:
„Bezt er fyrir alla aðila, fyr-
ir þjóðinia í heild, að leysa
málin áður en til verkfalls
kemur. Að því verður nú að
beina sameinuðu átaki og má
einskis láta ófreistað". Önnur
málgögn Alþýðuflokksins tóku
í sama streng. Skutull á ísa-
firði sagði hreinskilnislega að
átökin stöfuðu af því eiwu að
stjómarflokkamir hefðu fellt
úr gildi lögin um Verðtrygg-
ingu launa. Ekkert málgagn
Alþýðuflokksins var þó jafn
eimdregið og Alþýðumaðurinn
á Akureyri. í forsíðugrein
lsta marz hét hane „íslenzkri
alþýðu stuðningi sínum í von
um að þjóðargifta afstýri
því, að upp renni ný Sturl-
umgaöld, íslands óhaminigju að
vopni Alþýðuflokkurinm hef-
ur oft borið klæði á vopnin,
sem saga hans sammar — en
ef það reynist eigi unnt nú,
eiga ráðherrar flokksins að
víkja úr ríkisstjórn «— minn-
uglr þess að Alþýðuflokkur-
inn er fyrst og fremst flokkur
ALÞÝÐUNNAR". Allar voru
þessar yfirlýsingar þeim mun
mikilvægari sem þingmaður-
iran Benedikt Gröndal er rit-
stjóri Alþýðublaðsins, þing-
maðurinn Birgir Finnsson á-
byrgðarmaður Skutnils og
þingmaðurinn Bragi Sigur-
jónsson ednn helzti ráðamað-
ur Alþýðumannsins.
Stefna
Alþýðuflokksins®"
Þessi margítrekaða stefna
Alþýðuflokksins var ein meg-
inástæðan fyrir því að Al-
þýðubandalagið og Framsókn-
arflokkurimn flutt'u tillögu á
þingi þar sem ríkisstjóminni
vár falið „að beita sér þegar
í stað fyrir lausn verkfalla
með lagasétningu um verð-
tryggingu launa“. Orðalagið
var við það miðað að það
væri í sem fullkommustu sam-
ræmi við hina opimberu af-
stöðu verklýðsmálanefndiar
Alþýðuflokksins og þeirra
þriggja málgagna sem ' áðan
var vitnað til, og í samræmi
við þingsköp var borin fram
krafa um útvarpsumræðu án
tafiar, en að þeinri umræðu
lokinni hefði farið fram at-
kvæðagreiðsla í áheyrn al-
þjóðar.
Sál-
gæzla Bjarna
En nú tóku að gerast fróð-
leg tíðindi. Daginn sem tillag-
an var flutt tróð Bjami Bene-
diktsson forsætisráðherra sér
inn í hljóðvarp og sjónvarp og
gerði þar athugasemdir við
tillöguna án þess að nokkrir
fengju að vera til andsvara.
Því næst neitaði forsætisráð-
herra öllu' samkomulagi um
útvarpsumræður og skjóta af-
greiðslu á tillögunni. Sátta-
semjari lagði hins vegar í
samráði við ríkisstjómnina
fram hugmyndir sem voru
fyrsta raunverulega tílslöktm-
in í samningatilraununum, en
þær hugmyndir voru síðan
notaðar sem röksemd fyrir
því að alþingismenn mættu
ekkert um málið segja! í um-
ræðum um þessa einstæðu
málsmeðferð á þingi vakti
það sérstaka athygli að ráð-
herrar og þingmenn Alþýðu-
flokksins steinþögðu þótt aft-
ur og aftur væri á þá skorað
að lýsa afstöðu sinni til máls-
ins. Engum duldist að vald-
níðslan á þingi staf aði af því
að það var talið ofraun fyrir
þingmenn og ráðherra Al-
þýðuflokksins að þurfa 1 að
ræða kjaramálin í áheym al-
þjóðar og greiða síðan um
þau atkvæði — Bjami Bene-
diktssan þurftí semsé að bæta
sálgæzlu ofan á önnur verk-
efni sán.
Um-
hugsunarefní
t Morgunblaðinu í gær er
það staðhæft að tillagan hefðd
orðið ríkisstjóminni að falli
ef hún hefðí komið til um-
ræðu og atkvæðagreiðslu.
Stakstedniahöfimdur blaðsins
kallar tillöguna „tilræði" og
segir: „Enn einu sinni hafa
vonir Framsóknarmanna og
kommúnista um að nota átök
á vinnumarkaðnum til þesS
að tryggja sjálfum sér það,
sem þeir ekki náðu í lýðræð-
islegum kosningum, brostið.
Þeir Lúðvík Jósefsson og Ey-
steinn Jónsson sitja enn utan
ríkisstjó,m;arinnar“. ‘ Þessd
stjómmálasérfræðingur Morg-
unblaðsins telur semsé að rík-
isstjómin hefði farið frá ef
tillagan um vísitölubætur
hefði komið til atkvæða, og
vafalaust hefur hann fullgóð-
ar heimildir fyrir því mati.
En honum mætti þá ednnig
vera það nokkuirt umhugsun-
a,refni hversu len,gí sú ríkis-
stjóm getur setíð að völdum
sem á líf eitt undir því, að,
hlutí af stjómarliðinu þurfl
ekki að taka ákvarðanir um
þau vandamál sem hæst ber
í þjóðfélaginu. — Austri.
Kristján Róbcrts-
son kjörinn prest-
ur á Siglnfirði
Talning atkvæða í Siglufjarð-
arprestakalli fór fram í skrifstofu
bisfcups nú um hedgina, en
prestsfcosningar voru á Siglufirði
10. marz. Umsækjandii var ednn;
séra Kristján Róberfsson, prest-
ur í Kanada. Á kjörsfcrá voru
1363, atkvæði gredddd 761. Um-
sækjandi féfcfc 740 atkvæði. Auð-
ir seðlar voru 18, 1 ógildir 3.
Kosningin var lögmæt.
MERKI
SÝNINGARINNAR
Tillögur þaer um merki sýn-
ingarinnar, sem hafa ekki
verið sóttar enn, verða af-
hentar höfundum í skrif-
stofu sýriingarinnar í dag
og næstu daga. — Höfund-
ar tilgreini dulnefni, sem
þeir notuðu, er þeir sækja
tillögur sínar.
(gníiiieníal
SNJÓHJÓLBARÐAR
MEÐ NÖGLUM
■ ■ ■ ■&'^4*0*? •
-
i 'y' ?
, ,«■ ys.vf. ’"‘S.""bí'if. 11
" ’ >•• •'' . '>*•;, • >■. .'.'' ]
sem settir eru i, meS okkar full-
komnu sjálfviiku neglingarvél.
veita fyllsta öryggi i snjó og
hálku.
r. ! Hj '• -'*i
Nú er allra veðra von. — BíðiS
ekki eftir óhöppum, en setjið
CONTINENTAt hjólbarða, með
eða án nágla, undir bílmh nú
þegar.
Vinnustoía vor er opin alla daga
frá kl. 7,30 til kl. 22.
Kappkostum að veita góða þjón-
ustu með fullkomnustu vélum
sem völ er á.
GÚMMÍVINNUSTOFAN h.f.
Skipholti 35 — Sími 3-10-55.
Kaupi öll frimerki
íslenzk og erlend, ný'og nptuð á hæsta markaðs-
verði. \
RICHARDT RYEL Mánagötu 20. Sími 19354.
Lausar stöður
Stöðuir þriggja sórfræðinga við ricurðlæknisdedld Borgar-
spítalans í Fossvogi eru lausar tíl umsóknar. Upplýsingar
varðandi stöðumar veitir yfirlæknir deildarinnar dr. med.
Friðrik Einairsson.
Umsækjendur skulu vera sérfræðingar i skurðlækningum.
Laun samkvæmt samndngi1 Læknafélags Reykjavíkur við
Reykjiavíkurborg. Stöðumar veitast frá 1. ágnist n.k. eða
samkv. nánara samkomulagi.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf,
sendist Sjúkrahúsnefnd Reykjavifcuir, Borgiarspítalanum í
Fossvogi fyrir 21. apríl n.k.
Reykjavík, 18/3 1968
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur.
i