Þjóðviljinn - 20.03.1968, Blaðsíða 6
I
Tékkóslóvakíu
Novotný forseti og Dubcek aðalritari saman á fundi í Pragv
ÞriSjucLagur 5. marz
T ékkóslóvask a fréttastafan
Ceteka slkýrir frá því að Jiri
H«ndrych, sem „haft hefiur uan-
sjón með hugmytndafrœði'legu
starfi (flökksins)", ■ hafi verið
vikið úr því eonbætti. Hend-
ryoh hefur verið einn nánasti
samstarfsmaður Novotný for-
seta og hefur starf hans á und-
anfömum árum og þá alveg
sérstaklega á síðustu misserum
ed'nkum verið fóHgið í því að
bæla niður gagnrýni rithöfunda
og annarra menntaimanna. Eft-
ir að Novotný var vi'kið úr
embætti aðalritara kommún-
istaflokíksins í janúar var við
því búizt;að senn myndi röðin
koma að Hendrych. Honum er
nú gefið að sök að hafa ,kom-
ið á ritsköðun sem brjóti í bága
víð stjómarskrána. Einnig er
hann sagður hafa reynt að
halda leyndum samþykktum
sem gerðar höfðu verið á mið-
stjómarfundum og honum var
falið að Xcynna starfemöninum
og félögum fflókiksins.
Ota Sik sem haft iiefur for-
göngu um þær endurbætur sem
verið er að gera á efnahags-
kerfinu beinir í dag gagmrýni
til Novotný forseta, án þess þó
að nefna hann á nafn. Sik segir
í viðtali við blaðið „Prace“, að
„fáránlegir hlutir gerist nú“ í*
Tékkóslóvakíu. „Þeir sömu
merin sem urðu að víkja fyrir
gagnrýni ökkar ganga nú fyrir
dyr hvers verkamanns með það
á vörunum ,að ,hinir róbtæku'
ætli að knýja fram mýtt kerfi
til þess að þeim geti orðið að
þeirri ósk sánni að róðast á lífs-
kjör og hagsmund verklýðsstétt-
arinnar. MáXfflutningur þessara
manna er einbert lýðskrum-’,
segdr Ota Sik.
Miðvikudagur 6. marz
Bandaríska utanrikisráðu-
neytið skýrir frá því að tékkó-
slóvaiski hershöfðinginn, Jan
Sejna, 40 ára gaimaJX, sé kom-
inn til Bandaríkjanna og hafí
hann beðið um hæli sem pólit-
ískur flóttamaður. Sejna var í
fylgd með 18 ára görmlum syni
sírmm, Jan, og 22 ára gamailli
stúlku, Ewzenie Musilova, sem
Bandaríkjasitjóm segir unnustu
sonarins, en í Prag er sögð hjá-
kona Sejna. Eiginikona hans
varð eftir í Prag.
Sejna kom til Bandaríkjamna
28. febrúar, en fór frá Tókkó-
slóvakíu 25. febrúar, þegair þess
var minnzt að 20 ár voru liðin
frá vaildatöku kommúnista.
Hann fór um Ungverjaland, Jú-
gósilavíu og Ítalíu og þaðan
vesitur yfir haf. Fyrir nokkrum
dögum hafði verið sikýrt frá því
í Prag að Sejna væri horfinn.
Strax og það hafði komið á dag-
inn kom Jakubovskí hershöfð-
imgi, æðsti yfirmaður herja
Varsjárbandalagsins, í skyndi
til Prag og er tailið víst að
Sejna hafi tekið mieð sór mikffl-
væg skjöl varðandi bandaiagið,
en hann var Xcunnur öXJlum
hnútum þess, hafði um árabil
yerið fuJltrúi Kommúnistafflokks
TékktMóvaikíu í landvamarráðu-
neytiinu í Prag og átt sseti í
herfaringjarJðinu oglandvarna-
nefnd þingsíns.
Tallið er að Sejna hafii átt
skjótan frama sinn — hann var
aðeins 20 ára gamall þagar
hann fókik sæti í herforingja-
ráðinu — að þaikfca vinfengi
sínu við Novotný forseta eöa
öllu helduir son forsetans. Orð-
rómur hefur vierið uppi um það
í Prag að Sejna hafi æfflað að
beita hemum til þess að koma
í veg fyrir í janúar s.l. að No-
votný yrði feMdur úr emibæfti
aðalritara fflokksins. Frá því
hefur verið skýrt í Prag að
skriðdreikiaherdeild hafi þá ver-
ið kvödd til vopna í því skyni
að hindra fall Novotný.
Frá þessu var eagt í blaðinu
„MXada Fron-ta“ og það haft
eftir miðstjóimarmaninii að nafni
VacXav Prchlik. Gaf harnn það
ótvírætt í , skyn að Novotný
hefði staðið að baki herkvaðn-
ingunni, en kvað þettc. mál nú
vera til rannsóknar.
Framboð stúdenta
Formaður nýkjörins stúdenita-
ráðs við háskólann í Prag,
Vladimir Ditmar, hefur t>oðað
að stúdentar ætlli sér að bjóðá
fram við næstu þingkosningar
og miuni þeir „heyja kosminga-
baráttu með öiiXum tiltækum
raðum, af því tagi sem menn
hafi ekki kynnzt .síðustu tuitt-
uigu árin“. Ditmar segir stud-
enta muni „beita sér af aíleffli í
þeirri álmeninu hreyfíinigu sem
vinnur að saikaruppgjöf og
auknu lýðræði". Það þykir gefa
nokkra vísbendingu um þá þró-
un sem hefur orðið í þessa átt
í Tékkósilóvakíu að hin opinibera
fréttasitofa, Ceteka, lcom þess-
um boðsfcap Ditmars á firam-
færi.
Fimmtudagur 7. marz
Ríkisstjóm Ték'kóislóvakíu
hefur farið þess á ledt við
Bandarikjastjóm að hún- fram-
selji sér Jan Sejna hersihöfð-
inigja. Málaleiitund'n er gerð
samkvæmt samminigi ríkjanna
frá 1926 um gagnfcvœmt f.ram-
sai afbrataimnnna, en Sejma er
saikaður um að hafa brobið gegn
dlmennri refsilöggjöf í heima-
landi sínu með því m.a. að
draga sér mikið fé úr sóóðum
landvarnaráðuneybisins og mis-
nota cmbættisvald siii-
öit blöcin í Prag hirtu í dag
undir stóruim fyrirsögnum firá-
sögnina af brotthlaupi Sejna.
„Prace“ gaf enn í skyn að hann
hefði verið viðriðinn tilraun af
hálifu hersins til að koma í veg
fyrir að Novotný yrði svíptur
erobætti aðalritaira kommúnista-
flolíksins 5. janúar sil.
— Er það rétt að Sejna hafi
beitt sér gegn því að embætt-
um forseta og aðaílritara yrði
skipt miilíli tveggja manna? spyr
Jirj Hendrych
blaðið. Hvað er hæfit í því að
afráðið hafi verið að bedta
refsiaðgerðutm þá miðstjómar-
fulltrúa sem haift hafa for-
gönigu fyrir framfaraöflunum ?
Öll blöð höfuðborgariinnar
kröfðust þess að mál Sejina yrði
ferufið tiil mergjar og þá um
leið komizt fyrir um það Iwerj-
ir feynnu að haifa stuit hann
—. og í Prag er eniginn í vafa
urn að þar edga blöðin vdð No-
votný forseta. '
Föstudagiur 8. marz
1 opnu bréfii fré forimgjum í
her Tókkóslóvak íu, sem birt er
m.a. í dagblaðinu .„Prace“,
máiigagni verklýðsféXaganna, og
stíliað er til Duixwks, aðailritara
.kommúnisibafflofcksins er þess
lcrafizt að þeir sem haldið hafi
verndarhendi yfir h inum brott-
hilaupna Sejna hershöfðingja
verði látoir beu'a ábyrgð á af-
brotuni hans. Novotný forseti
var ekki nedindur á nafn í bréf-
iniu, en enginm efast um að
við hann haffl verið átt þegar
svo var komizt að orði: „Við
teljum að ef þessa emþættis-
menn skortir kjark og vilja til
að viðurkenm ábyrgð sína, þá
verði að gefa þeim kost á að
segja af sér. Það myndi gieirt í
ölilum þjóðféiögum þar sem um
mál er f jaíllað með eðlilegum
hætti".
Blaðið „Zemedelske Noviny“
segir að ritstjóm þess hafi bor-;
izt fjöldi bréfa þar sem spurt
sé hvetmig á þvi standd að mað-
ur sá sem viðriðinn sé Sejna-
málið sé aJdrei nefndur með
nafnii í blöðuinum, þegar það sé
á allra vitorðd að ’hann sé No-
votný forseti.
Sunnudagur 10. marz
Þær kröfiur verða æ hávær-
ari í Tékkóslóvakíu að gerðar
verði uipp sakir við þá menn
sem borið hafa höfuðábyrgð á
miisitöfeum ag rangri stjámar-
stefnu á liðnum árum og þá
um leið að þeir fái fulla sak-
aruppgjöf og uppreisn æru sem
orðið hafa fyrir barðinu á vald-
höfunum. Að kröfiunum um
sakaruppgjöf hefiur verið gengið,.
a.m.k. að verulegu leyti, og
hefiur þannig verið ákveðið að
raininsaka til hlítar málaferlin
siem firam fóru 1952 yfir Rudolf
SXansky og féiögum. Þeiim sem
þá voru dæmdir, sumir til h'f-
Xáts hetfur að vísu verið vedtt
uppreisn æru, en hinum ekiki
refsað sem fyrir málaferlunum
stóðu. Það er þess sem nú er
krafizt.
Nafni Jan Masaryks, sem var
U'tanrfikdsráðherra TéltkósJóvakíu
fram í ftebrúar 1948 en lézt þá
með vofeifflegum hætti, er
hampað miikið þessa dagana, en
á hann hefur vart verið minnzt
árum saman. Stúden.tar efndú
í dag til fjöldagöngu að gröf
hains, alllaingt frá mdð'biki Prag.
Ekkja Olementis utanrikkráð-
herra, sem tefcimn var af lífí
1952, segir í viðtaXi við blaðdð
„Svobodne Slovo“, málgagns
Sósíalistafflokks Tékkós'lóvakíu,
að rnaður sinn hafi haft mikið
dálæti á Masaryk. Hann hafi
talað yfiir moldum hans, en það
var talið honum til saka við
réttarhöXdin.
Aðvaranir
Eirnn af fréttaskýrendum út-
varpsins í Prag varaði í dag
verkamenn landsins við No-
votný forsieta og fylgismönnum
hans. Hann sagðd þá hafa í
hyggju að egna verkalýðinn upp
á (móti menntaimönirwm sem
Duibcek styðjist við.
En samtímds berast fréttir af
því að á fundum sem haldnir
hatfa verið víðs vegar um land-
ið — á 66 stöðum — hafi bor-
ið á ótta við að ekki verði hægt
Framhald á 9. siðu.
g SÍÐA — ÞJÓÐVTLJINN — Miðvifcudagur 20. marz 1968.
og umbætur í
Annáll helztu atburða
■ Mikil táðindi hafa verið að gerast í
Austur-Evrópu undanfarinn hálfan mán-
uð — þartn tímia sem verkfallið hefur
staðið hér heima. Skömmu eftir að það
hófst lauk ráðstefnu kommúhista- og
verklýðsflokka í Búdapest og hafði þar
gengið á ýmsu. Fulltrúar Rúmena gesgu
af ráðstefnunni og höfðu að tilefni ræðu
sýrlenz-ba fulltrúans sem hafði veitzt harð-
lega að Rúmenum fyrir afstöðu þeirra í
deilu ísraels og arabaríkjanna. Ákvörðun
var tekin um það á ráðstefnunni að
seint á árinu yrði haldið í Moskvu heims-
þing flokkanna.
■ Strax eftir að ráðstefnunni í Búdapest
lauk, hófst í Sofia fundur æðstu manna
ríkja Varsjárbandalagsins. Það varð held-
ur ekki fullt samkomulag. Rúmenar héldu
fast við andstöðu sína gegn því sam-
komulagi sem Sovétríkin, Bandaríkin og
Bretland hafa gert með sér um bann við
dreifingu kjamavopna. Og á meðan æðstu
menn bandalagsins sátu á rökstólum í
Sofia barst sú frétt frá Tékkóslóvakíu að
•tékkóslóvaski hershöfðinginn Jan Sejna
væri strokinn úr landi til Bandaríkjanna,
en hann hafði haft aðgang að öllum hem-
aðarleyndarmálum bandalagsins.
■ Strok Sejna var enn ein vísbending
um þau umskipti sem hafin eru í Tékkó-
slóvakíu, þá endurskoðun og umbætur á
stjómarfarinu sem hin nýja forysta komm-
únistaflokksins — sú sem tók við í janúar
síðastliðnum — beitir sér fyrir. Nær því
á hverjum degi undanfarinn hálfan rrián-
uð hafa borizt fréttir frá Tékkóslóvakíu af
þessu umróti. Allt hefur þó farið fram
með kyrrð og spekt, enda er það sjálf
forysta kommúnistaflokksins sem vísar
veginn til aukins frjálsræðis og lýðræðis
og beitir sér fyrir bættum stjómarháttum
— og til þess nýtur hún greinilega stuðn-
ings alls þorra almennings.
■ Frá Póllandi hafa einnig borizt frétt-
ir af ókyrrð og umróti sém sjálfsagt er að
nokkru leyti endurspeglun atburðanna í
Tékkóslóvakíu. Þar hefur forysta fcomm-
únista hins vegar lagzt gegn kröfum stúd-
enta og menntamanna um aukið frjáls-
ræði — t.d. afnám hinnar óopinberu en
engu að sdður mjög áþreifanlegu ritskoð-
unar — og afleiðingin orðið harðar og jafn-
vel blóðu'gar viðureignir lögreglu og stúd-
enta. Ókyrrðin hefur rénað í Póllandi síð-
ustu daga, en ef að líkum lætur, má vænta
þaðan frekari tíðinda á næstunni. Hér
verður rakinn nokkuð gangur mála í þess-
um tveimur löndum síðustu tvær vikur.
I
I
i