Þjóðviljinn - 19.09.1968, Blaðsíða 1
f
Miðvikudagur 18. september 1968 — 33. árgangur — 198. tölublað.
• v- ■ • •• ■ ^ . . ..., . .:• •:■• ^ ^!"■' j ' : '[
26. þing BSRB hefsf 30. sepf. n.k.
Þingið munu sækja um 140
fulltrúar frá 28 félögum
V-Þjóðverjar hröktu Loftleiðir fró Hamborgarflugi:
Eina svar íslenzkra stjórnar-
valda að auka viðskipti við þá
■ í nýútkomnu fréttablaði
Loftleiða, sem gefið er út fyir-
ir starfsfólk fyrirtækisins, er
í tveim greinum fjallað um
það hvemig . Vestúr-Þjóð-
verjar boluðu Loftleiðum út
úr áaetlunarflugi til Hamborg-
ar með auglýsingabanni. en
Hamborgarflugið var lagt
niður árið 1963.
■ Á það er bent, að svar ís-
lenzkra stjómarvalda við
þessum yfirgangi Vestur-
Þjóðverja hafi verjð það eitt
að auka svo viðskipti við þá,
að á árunum 1964—1967 urðu
þau óhagstæð fyrir okkur um
1400 miljónir króna.
önnur greimin sem birt er a
ensku á forsíðu Loftlei ðabflaðsi n s
Tillaga AlþýðubandalagsinS:
Borgarstjórn kjósi
nefnd í atvinnumál
Borgarfulltrúar Alþýðubandalagsins flytja á fundi borg-
arstjómar 1 dag tillögu Um atvinnumál þar sem lagt er til
að kosin verði sjö manna nefnd til þess að gera tillögur um
atvinnumálin og til þess að fylgjast stöðugt með útliti í at-
vinnumálum borgarinnar.
Tillaga frá borgarfulltrúum
Alþýðubandalagsins er svohljóð-
andi:
„Borgairstjóm ákveður að kjósa
7 manna atvinnumálanefnd, er
hafi það verkefni að fylgjast stöð-
ugt með útliti í atvinnumálum
borgairinnar og gera tillögur, ef
þurfa þykir, um ráðstafanir til að
tryggja fulla atvinnu borgarbúa.
Nefndin sé þannig skipuð. að
hver stjómmálaflokkur, er full-
trúa á í borgarstjóm, tilnefni
mann í nefndina, einn fulltrúi sé
skipaður samkvæmt tilnefnin.gu
A.SÍ., einn samkvæmt tilnefn-
ingu Vinnuveitendasambantls ís-
lands, loks skipi borgarráð sjö-
unda fulltrúann í nefndina og
skal hann vera formaður nefndar-
innar.
ÆF
Munið að í kvöld, finyutudag
verður Hannes Sigfússon gest-
ur félagsheimilis ÆFR oK mun
hann lesa, upp úr verkum sín-
um. — Æ.F.R.
Borgarstjómin æskir þess, að
nefndin taki strax til athugunar
hverjar ráðstafanir sé n-auðsyn-
legt að gera til að fyrirbyggja
yfirvofandi atvinnuleysi, með því<
m.a. að koma í veg fyrir sam-
drátt í byggingariðnaðinum, eink-
anlega íbúðarbyggingum, tryggja
stöðuga vinnu i frystihúsunum og
örugga atvinnu í iðnaðinum og
alhíiða eflingu hans“.
og neifnist ,,Ich bestimme selbst
..hefst með þessum orðum í
íslenzkri þýðinigu:
„Forsvarsmenn hins sivonefnda
vestræna lýðfreilsis munu sam-
mála uim, að frjáls samkeppni sé
einn af hyrningarsteinum þess,
en ,hún byggist m.a. á því, að
unnt sé að kynina fraimlboð henn-
ar neytendum á hvem þann hátt,
sem ætla má að þeir geti feng-
ið sem auðveldastar og réttastar
upplýsingar uim það, sem íboði
er‘ á hverjum tíma“.
I>á er í greininni bent á, að
lífskjör séu mjög góð í Vestur-
-Þýzikalandi, en þar siem lífs-
kjörin séu bezt sé kynningar-
starfsemi á grundveiKli frjálsrar
samkeppni mest, svo og að al-
kunna sé, að Vestur-Þjóðverjar
heimti sjátfiuim sór til handafullt
athafnafrelsi. Síðar segir orðrétt:
„Hitt vita færri, að þaðvoru
þeir, sem bönnuðu Loftleiðum
að segja með auglýsiniguim þann
einíalda sannleika. að þeir gætu
boðið lægsitu far’gjöldin í áaetl-
unanferðum fllugfélaga yfir Norð-
ur-AtJanzhafið, 'og það varvegna
þessa auiglýsingabainns, sem
Loftleiðir ákváðu að hætta
Þýz>ka:landsfiugferöunyim X. nóv-
ember 1963. Eniguim Þjóðverja
kom til hiugar að halda þvífram,.
að auglýsingarniar um „DIE NI-
EDRIGSTE FLU GPREISE“ væru
rangar. Engum. En samt mátti
ekki birta þær. Þjóðverjar vildu
sem sagt sjálfir fá að ákveða
hvað væru þeim góðar auglýs-
ingar eða vondar, heppilegar eða
óiheppiieigar, pg þess vegna
böninuðu þeir Loftleiðum að
aiugllýsa hin lágu fargjöld sán.
Það er ekiki alveg áreiðanlegt,
,að þýzki stjómarvöld mundu taka'
þvi með þögn og þoiimmœði, ef
t.d. Lufthansa fengi ekki að seigja
sa.nnleikann í Bandaníkjunu/m
um flluigferðir sínar. Það er ekki
aiveg víst. Og það er ekki heldur
alveg víst, að það yrði Þjóð-
verjum þægilegt ef vitneskjan um
fraimkomu þýzkra stjómarvailda
Framhald á 9. síðu
Fyrir leik Vals og Benfica —
fleiri myndir og frásögn á bak-
síðu.
SAGT EFTIR LEIKINN:
Óli B. Jónsson þjálfiari Vals:
Leikkerfið sem við settum upp
heppn-aðist 190 prósent og ég er
himinlifandi.
Hermann Gunnarsson fyrirliði:
Það þarf heimsmeistara til að
sigra okkur á heimavelli. Þetta
var stórkostlegt.
Adolf Vieira frkvstj. Benfica:
Vöm Vals var sérlega góð og
hvilíkur markmaður. Benfica
sýndi að vísu meiri knatttækni
en Valsmenn börðust vel og
stundum nokkuð fast.
Eusebio: Þetta var frekar rólegur
leikur en við hefðum getað
unnið ef við hefðum lagt okkur
fram.
Coluna fyrirliði:
Við gerðum allt sem við gátum
til að skora og vinna en það
var bara ekki hægt. Valsvöm-
in var mjög góð og markmað-
urinn sérstakle-ga góður.
26. þing Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja verður
sett í Súlnasal Hótel Sögu,
mánudaginn 30. sept. n.k.
kl. 13,30.
Rétt til þingsetu muniu eiga 142
fulltrúar frá 28 bamdalagsfélögum
með 6784 félagsmenn. Auk þess
liggja fyrir þin-ginu inntöku-beiðn-
ir frá tveimur nýstofnuðum fé-
lögum til viðbótar. Kosnin-gu full-
trúaémun yfirleitt vera lokið,
enda eiga félö-gin að skila kjör-
bréfum viku fyrír þing.
Meginverkefni þin-gsins verður
að venju 1-auna- og kjaramál.
Ein-nig munu verða rædd efna-
hagsmál, samnimgsréttarmál, or-
lofsihedmilamál o.fl. Þá mun þin-g-
ið afgreiða tillögur um breyting-
ar á lögum bandalagsins, sem
gerðar eru af milliþinganefhd,
sem til þess var kjörinn. Einnig
mun Sverrir Júlíusson flytja er-
indi um starfsmiat. Áform-að er að
þim-ginu ljúki miðvikudaginm 2.
okt. n.k.
16 skip me$ sam
tals 725 lestir
Gobt veður var á sfldarmiðun-
um fýrra sóiarhring. Talsvert
fammst af sfld en illa gekik aö na
hennd.
Veiðisvæðið var á 71 gr. n.br.
og á milli 3 gr. og 3 ©r. 40 mín.
a.l. — Vart vaxð við vaðandi
síld í morgun á-* 68 gr. 52 min.
n.br. og á 5 gr. v. 1.
Kunnugt var um afla 16slkipa,
samtals 725 lestir.
Fífill GK 75. Náttfari ÞH 30.
Hafdís SU 45. Tálknfirðingur BA
50. Eldborg GK 25. Guðrún Guð-
leifsdóttir ÍS 50. Bjammi IX. EA
40. Hafrún ÍS 70. Jörundur III.
RE 40. Guðbjörg ÍS 70. ísleiflur
VE 20. Höfrumigur II. AK 10.
Slétfcanes IS 25. Harpa RE 100.
Gjafar VE 10. Örn RE 65.
Alþýðubandalagið í Norðurlandskjördæmi vestra:
Mótmælir einhuga öllum
tilraunum til klofnings
Alþýðubandalagsmenn á Norðurlandi vestra hafa svarað
þeim þrettán Vestfirðingum, sem Hannibal Valdimarsson
kallaði „rödd fólksins“, með eftirfarandi ályktun. sem sam-
þykkt var einróma á kjördæmisráðsfundi á Sauðárkróki s.l.
þriðjudag. Á fundinum kom fram, að ekki er vitað um einn
einasta Alþýðubandalagsmann í kjördæminu, sem orðið hafi
við áskorun Vestfirðin-ganna um að segja sig úr bandalag-
inu.
„Fundur kjöirdæmisráðs Al-
þýðubandalagsins í Norðurlamds-
kjördæmi vestra, háldinn á Sauð-
árkróki l7: september 1965, lýsir
Stjórn RR kvíðafuH vegna
atvinnuútiitsins í vetur
■ Á fundi stjóm-ar Ráðningarskrifsitofu
Reykjavíkurborgar sl. mánudag var atvinnu-
ástandið hér í borginni í vetur til umræðu
og samþykkti stjómin einróma eftirfarandi
tillö'gu í málinu:
■ „Með sórstöku tilliti til hins ískyggi-
lega aitvinnuútlits samþykkir stjóm
Ráðningarskrifstofu Reykj avíkurborgar
að beina því til borgaryfirvalda, að nú
þegar verði hafinn undirbúningur að
sérs-tökum vetrarverkefnum og að þær
framkvæmdir sem þegar em fyrirhug-
aðar veríi unnar af Reykjavíkurborg
sjálfri án útboðs“.
undrún og van-þóknun á brott-
hlaupi 13 kjördæmisráðsmanna
á Vestfjörðum úr bandalaginu,
og vítir áskorun þeirra til ann-
arra meðlima þess um að sundra
því. Jafnframt vítir fundurinn þá
afstöðu forma-nns Alþýðubamda-
lagsins. Hannibals Valdimarsson-
ar, til , áðu-mefndrar áskorun-ar,
sem fram kam í útvarpsviðtali við
haen 10. þessa mánaðar.
Fundurinn minnir á, að Al-
þýðuband-alagsmenn í Norður-
landskjördæmi vestra og málgagn
þeirra, Mjölnir, hafa jafnan leitt
hjá sér þær deilur, sem staðið
hafa í Alþýðubandalaginu í
Reykjavík og á Vestfjörðum, og
hafa sýnt formanni bandalagsins,
Hannibal Valdima-rstsyni, fylista
traust, m.a. einu sinni farið þess
á leit, að hann yrði í fxiamboði í
kjördæmimu. Fundurinn þakkar
Hannibal fyxir það, sem hann hef-
ur vel umnið í þágu bandala-gsins,
en lýsir jafnframt yfir sárum von-
brigðum vegna þess að hann hef-
ur n-ú brugðdzt því trausti og tél-
ur. að eftir framkomu hans að
un-danförnu geti ekki orðið um
freka-ra samstarf við hann að
ræða um málefni Alþýðubanda-
lagsins að stefnu hans óbreyttri.
Með hliðsjón af þeim algera
ólestri. sem málefni' þjóðarinnar
eru nú 'komin í. eftir áratugs
stjóm Alþýðuflokksins og Sjálf-
stæðisflokksins og' því kreppu-
ástandi, sem nú ríkir og mun á
næstu mánuðum bitna æ harðar
á alþýðu manna, ályktar fundur-
inn að ekki hafi um áratugaskeið
verið jafnmikil þörf og nú á
sterkum og samhentum verklýðs-
flokki. Þess vegna fagnar fundur-
inn því. að hafizt hefur verið
handa um, að gera Alþýðubanda-
lagið formlega að lýðraéðislegum.
sósíalökum stjómmálaflokki og
koma skipulagsmálum þess. sem
verið hafa ómót.uð allt frá stofn-
un þess og hindrað eðlilega starf-
semj þess á varanlegan grund-
völl. Skorar fundurinn á Alþýðu-
bandalagsfólk um allt land að
láta ekki hatursáróður, sem nú er
rekinn gegn Alþýðuband-ala-ginu
á sig fá en h-alda áfram að treysta
samheldni inn-an bandalagsins og
vinna ötullega að umbreytin-gu
þess í öflugan stjómmálaflokk‘ ‘.
I