Þjóðviljinn - 22.10.1969, Page 4
4 SlÐA — Þ'JÓÐ'VTLJINK — Miðvikudagiur 22- otkitólber 1969.
________________________________L__í______________________
Útgefandi:
Bitstjórar:
Fréttaritstjóri:
Ritstj.fulltrúi:
Auglýsingastj.:
Framkv.stjóri:
Útgáfufélag Þjóðviljans.
ívar H. Jónsson (áb.), Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Sigurður V. Friðþjófsson.
Svavar Gestsson.
Ólafur Jónsson.
Eiður Bergmann.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust.' 19. Simi 17500
(5 línur). — Áskriftarverð kr. 165.00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 10.00.
Fjármálahneyksli
gtaðreyndir þær sem raktar voru í útvarpsum-
ræðunum í fyrrakvöld uim viðskipti Búrfells-
virkjunar við alúmínbræðsluna í Straumsvík eru
staðfesting á því að samningurinn við Swiss Alu-
miniuim er einhver stórfelldustu fjármálaafglöp
sem gerð hafa verið hér á landi. Byggingarkostn-
aður Búrfellsvirkjunar hefur farið mjög stórlega
fram úr áætlun. Sérfræðingar höfðu reiknað með
því að hann yrði 25,8 miljónir dollara, en í júní-
lok í sumar var hann orðinn 32,6 miljónir dollara.
Hér er um að ræða fjórðungshækkun, og raskar
hún að sjálfsögðu öllum áætlunum um rekstrar-
kostnað. Við þennan byggingarkostnað bætist síð-
an annar kostnaður, vextir á byggingartímanum,
tollar og skattar sem virkjunin verður að greiða,
gengistap af innlendum kostnaði, greiðsla fyrir
vatnsréttindi og kostnaður við gasaflsstöð til ör-
yggis fyrir alúmínbræðsluna. Þannig verður heild-
arkostnaður um 3.770 miljónir íslenzkra króna.
Árlegur reksturskostnaður verður þá 377 miljón-
ir króna, og þar sem framleiðslan er nú 840 milj-
ónir kílóvattstunda er framleiðslukostnaður á kíló-
vattstund 45 aurar. Alúmínbræðslan greiðir hins
vegar ekki nema 22 aura fyrir hverja kílóvatt-
sfund. Hallinn af viðskiptunum fyrstu árin verð-
ur þannig 23 aurar á kílóvattstund, og bar sem
hejldarmagnið til bræðslunnar er um 530 miljón
kílóvattstundir á ári, verður hallinn á þessum
viðskiptum um 120 miljónir króna á ári í upp-
hafi; siú upphæð verður tekin sem skattur af
landsmönnum og afhent auðfélaginu.
J^eksturskosfnaður Búrfellsvirkjunar lækkar til
muna þegar búið verður að fullgera stöðina,
koma fyrir fullum vélakosti og ljúka miðlunar-
'framkvæmdum. Þá verður heildarkositnaðuirinn
kominn upp í 4.370 miljónir króna, en orkumagnið
tvöfaldast upp í 1680 miljónir kílóvattstunda á ári.
Fraimleiðslukostnaður á kílóvattstund lækkar þá
í 26 aura. Hann verður engu að síður fjórum aur-
um hærri á kílóvattstund en alúmínbræðslan
greiðir. Þegar alúmínbræðslan verður komin í
fulla stærð kaupir hún 1120 miljónir kílóvatt-
stunda á ári, en tap Búrfellsvirkjunar af því að
selja það magn undir kostnaðarverði verður um 45
miljónir króna á ári. Þannig halda íslendingar á-
fram að tapa á þessum viðskiptum ár hvert, einn-
ig eftir að þau verða orðin eins hagkvæm og þau
geta orðið. Þau met verða að sjálfsögðu jöfnuð með
því að selja íslendingum raforkuna á þeiim mun
hærra verði.
yafalaust hafa íslenzk stjórnarvöld ekki séð þessi
málalok fyrir, þótt á þessar hættur væri bent
mjög rækilega. En þótt fyrirhyggjuleysi verði tí-
undað þeim til afsökunar, verður sektardómurinn
ekki umfíúinn. Hvarvetna í nálægum þingræðis-
löndum myndu ráðamenn, sem uppvísir yrðu að
slíkum afglöpum, segja af sér, og það er fyrir löngu
orðið tímabært að einnig hérlendir stjómmála-
menn beri á byrgð á athöfnum sínum. — m.
Bókarfregn
LÍFIÐ ER DÁSAMLEGT
Lífíð er dásamlegt er heiíi
bókar, sem er nýlega komin út
á veguim Helgaíelis. Höfund-ur
er hinn þjóðkunni læknir Jón-
as Sveinsson, sem andaðist fyrir
rúmum tveim árum. Jónas lækn-
ir varð þjóðkiumnur fyrir. ýms-
ar saikir og þair á meðal ferðir
víða um heim, fyrst og fremst
til að kynnast nýjungum i
starfsgrein sinni, en annars dá-
andi hvers konar nýrra fyrir-
bæra, sem lifið bar honum að
höndum, var hrifnaemur og
skarpskyggn, hvar feitt var á
stykki, var ánægja að skýra
frá því, er fyrir hann bar og
hrifið hafði athygli hans, og
tengja þaö ýrniss konar hug-
leiðingum, xneðai amnars haifði
hann flutt nokkur erindi í út-
varp. Hafði hamn af ýmdskonar
tilefni, þegar tám gafst til,
stungið niður penna tii að festa
á blaö hugleiöingar um lífiðog
tilveruna og þá gjamast í ljósi
einhvers þess, er fyrir hafði bor-
ið eða hann minmtist frá liö-
inni tíð. 1 formála bókarinnar,
sem ekkja hans, Ragnheiður
Hafstein, ritar, getur hún þess,
að kvöldið áður en Jónas lézt
hafi þau ráðgert að hjálpast
að við að vimna úr þessum rit-
smáðum og korna þeim í bók-
arfoim. En þar sem Jónas féil
svo skyndilega frá, fóll'' það
venk í hendiur konu hans. Seg-
ir hún suma þættina ekkihafa
verið fuilfrágengna, aöra í drög-
um, og sjást þess rnerki á stöku
stað, að höifundur sjálfur hefur
ek'ki laigt að síðustu hönd, en
hvergi svo, að spillt hafi ágætu
lestrarefni.
Ég efast um, að heiti bókar-
innar sé frá höfundi sjálfium
komið, helduir tekið úr sjálfu
lesmálinu. Lafið er dásamlegt
er sú einkunn, sem höfundurinn
gefur títt nefndum táradail þessa
lífs oftar en einu sinni og oftar
en tvisvar við ýmáss konar að-
stæður. Og þessi einkunnagjöf
feilur svo eðlilega inn í frá-
sögnina á hverjum stað, að
okJiur getur ekiki sézt yfir, hve
glæsileg hún er. Höfuðgildi og
'höifuðeinkenni bókarimmar er
fjörið í hverri frásö'gn, nautnin
að minnast, nautnin að skynja,
nautnin að segja frá- Hún kem-
ur frá hjartanu yfiriýsdngin umi,
hve lífið er dásamilegt.
Á titiiblaði eiru ritgerðir
bókarinnar skiltgreindar siem
minnisgi-einar og ævisöguþættir.
En ævisöguiþafcttir eru þær ókki
nema að óveruileigu leyti. Þau
atriði, sem náilgast það helzt
að vera ævisöguiþættir, eiga sér
í raum og veru allt annamvaka
en löngun til að rifja upp iiðna
tíð, svo sem greinilegt er með
obbamn af þeim möngu og löngu
sjálfsiævisögum, sem samtáðar-
rnenn okkar Jónasar demgjainn
á bókamarkaðimm í striðum
straumi fyrir hver jól c@ sum-
um þykja sérstalklLega skemmti-
legar, en öðrum heidur daufar
bóklmemntir. Sterk og svipmik-
il lýsing á fyrsta læknisverki
hölfundairins er í rauninni
ekikert annað en innigangur að
hugleiðingum um erfliðleika við
barnsfæðingar, sögu keisara-
skurðarins, þróun sóttíhreinsun-
ar o@ deyfingaraðferða við hol-
sikurði og aðrar meiri há/ttar
sikiurðaðgerðir. — I bðkinni eru
áhrifamiklar frásagnir um að-
stöðu læknisins til starfs síns
úti í sveitum lands-ins, þar sem
fara þurfti tugi kflómetra fram
og aftur í iliviðrum og ófærð
með hestinn og postulafætuma
að farartækjum og legigjasam-
an nætur og daga, og þurfa svo
að gera holslkurði i skyndimgu
upp á líf og daiuða, þar sem
ekki vottaði fyrir hinum sjálf-
sögðustu aðstæðum til að, fraim-
kiwæma slíka hluti. En þannig
er finá þessu sagt, að það verð-
ur ekiki fjrrst og fremst þáttur
í ævisögu höfundar, heidur
þjóðlífslýsing og þættir úr
hetjusögu lækmastéttarinnar á
Isllandi við þær aðstæöur, sem
lýst er.
Pisitllar þessir eru af allt öðr-
um rótum runnir en þrá gaim-
als manns til að halda á loft
lífsreynsiu sinni, enda varð
Jónas aldrei gamaill, og ég efast
um, að honum hefði tekizt að
afila sér gamalmennaeiginleika,
þótt æviskeið hams hefði lengzt
um drjúgan spöl. Jómas var
hrifnæmur og gæddur frjóu i-
myndunarafli. tjann var næmur
fyrir því, hvað í frásögur var
færamdi, og þegar hamn segir
frá einhverju merku, sem fyrir
hann hefur borið, þé verður
það honum tilefni hvers konur
heilabrota, það tengist , öðrum
atburðum og fyrinbærum efltir
Jónas Sveinsson
einum eða öðrurn leiðuim. Han-n
einangrar eJdki fyrirbærin í
frásögn sinni, brýtur ekki heil-
ann um það, hvað næst ætti að
koma, grípur til þess, er næst
kemur í huigann. Að lesa frá-
saignir hans er lííkast þvi að
sitja mieð vini sínum í góðu
tómi og njóta þess að heyra
hann segja frá því, sem á hug-
am-n leitar-
Áhuigaefni Jónasar voru aiila
tíð hin fjöitoreytilegustu, og ber
bók þessd því ótviírætt vitni. í
skóla var saga honum svo hug-
lei'kia að í hlópd skóiaféJaiga
gekk hann undir nafninu Heró-
dót. í þáttunum Töfrar sögunn-
ar kemst maður aftur í kynni
við þasisa eigind áliugaefna hans.
Stórbrotnir atburðdr og flókn-
ar örlagaJceðjur töfiruðu huga
hans. En það var ekki aðeiins
sa@am, sem átti þessa töfra 1
augum hans, það var aJlt lífið-
Um furður mannsJieiJans hedtir
einn þáttur bókarinmar. LæJcn-
isnámið og síðan læknissitárfið
og ný og ný þeíkking um líf-
fnæðiJeg efni vekja eftirtekt
hans á nýj-um og nýjum töfr-
um hins mannlega lífs. —
Framimi fýrir þessum töfrum
brýzt þrásinnis fram trúarleg
afstaða, sem grednileiga á rætur
sínar í bernskuslkeiöi hams, 1
saimbandi við haimingjusamJegt
læknissitarf ’ræð-ir hann um
„kynn-i við aifekipti almeefttis-
ins af störfum hérað.silæJcnis við
myrzta ha£“. „Égfkynjaði það svo
san-nairlega, að óg gat en@um
þaJdkað nema guði fýrir mig-
kunnsemi hans og handleiðslu,
að mér kom í huig þeitta ráð“,
segir hainn öðru sinni, er hann
bjargaði mannslífi við aðstæður,
sem honum höfðu sýnzt von-
iausar. í þættinum um fiuröur
miannsheilans ræðir Jónas um
efni, sem NóbeJsverðlaunahafi
hafði fundið og framleitt er í
vissuim heJJakjörnum „imanna
og dýra og virðist standa í sam-
bandi við hugsanastarfsemi og
h-U'gsana.spenn u “■ Rannsóknir
kváðu sýna, „að þróun gáfn-
anna fari nokkuð eftir því,
hve-rsu mi-kið maign heilakjarn-
ar einstaklin-ganna framleiða af
þessu efni. Sé fraimJeiðslan aft-
ur á mióti of mikil, veJdur efn-
ið sjúkdómum og ef til vill
dauða“. Það kom framálækna-
þinginu, þar sem Jóhas frædd-
ist um þetta, að ofmik-ið magn
af efninu hafði „fram til þessa
aðeins fundizt hjá börnum af
Gyðdngaættum“. Og þessu til
viðbótar kenniur það í ljás, íið
einhvers konar samiband virðist
vera milli þessa efnis og nið-
urfállssý'kinnar, „sem ailgemg
hefur verið frá alda öðli á
svæðinu fýrir botni Miðjarðar-
ha£s“, og geðtruflainir, sem of
mikið magn af efninu valda,
„gjarnan lýsa sér í ofekynjun-
um“. Það leynir sér ekki í
skemmtilegri frásögn af þessu
efni, að höfundi er það hreint
ekki svo lítils vdrði, þótt visjsu-
lega sé það nokkurt aiukaatriði í
málinu, að uppgötvun efhis
þesea hefiur skotið no-kkrum
stoðum und-ir bóksitaflegan sann-
söguleika ýmissa furðusagna
bíbliunnar, seim prestsifrúin,
móðdr höfundar, hafði varið af
hetjumióði í baðstofunni í Goð-
dölum í áheym sonar síns ú
bernskuskeiðd.
Svo náJcvæmilaga sem Jónas
segir frá ýmsum erfiðJeikum,
sem hann þurfti að takast á við,
þá er þáð sannast sagna, að
þær frásagnir gefa það lítt til
kynna, aö hamn mJJciist af því,
h-vernig bann leysdr vamdann
eða vilji láta menn skilja, hví-
líkt átak þetta hJjóti að hafa
verið- Frásagnir hans ijóma
fyrst og frernst aif nautn þess að
gjíma við vandamn, og gegn
honum var iiönum eiginlegt að
ganga fyrirf-ram sannfærður
uimi, að úr myndi rætast. „Fyrsta
viðbragð mitt við aðsteðjamdi
vandia hefu-r gjarnan verið til-
hlöklcun tjl sjálfeagörar lausn-
ar“, segir hann einu sinni.
„Erfiðleitoarhir eru til þess
að sigrast á þeim“, segir hann
í inngan-gi að frúsögn a£ hoil-
skurði á hesithússhurð í her-
bergiskom-pu uippi ú lotfti ued-
ir torfþekju, þar sem sJcoriðvar
upp vegn-a sprunginnar gall-
blöðru og skurðurinn afhjúpaði
þar á ofan sprunginn botnlanga
og vellamdi gröft í kiviðarhoJi.
Jónas talar hjýlega um þá,
sem ú vegi hans höfðu orðið á
lífsleiðinni, og má þó nærri geita,
að margur hetfiur átt viðsJcipti
við hann af ýmsu tagi. Hann
er ekki dómsjúkur um bresti
náungans. Það mietur hann
mi'kils við „roslkma Húrtvetn-
inga“, að „þar þótti enginn
merkilegur, nema hann hefði
mannkosti til að rísa undir
töluiverðuim brestum“. Hann
finnur greinilega skyldleikann
með tengdaföður sínum, seim
hann skrifar um af mikilli vin-
samd. og djúpri viröimigu fyrir
mannkostamanninum, sem vildi
stu-ndum lúta sér sjást yfir
hluti, sem ekiki var ætflazt t.il
að yfirvaildið léti fara framhjú
sér: „Honum fannst ávaJIit or-
sökin vera merkilegra ihugun-
airefni en verknaðurinn“, segir
hann. Ha-ns spennandi oggrein-
argóða frásögn af Þverárundr-
unium virðist fyrst og fremst
vera þörf til að bera blak a£
hinum dæmdu ungmennum eða
jafnvel sýkna þá a£ þeim ó-
dáðum, sem þeim voru kennd,
Hann sœttir sig „aJdrei viðnið-
urstöður réttarran-nsóknarinnar
í máJinu". Hann viðurkennir
hreinlega, að h-ann geti eJciki
skýrt þessi undur, og gerir enga
tilraun til þess, færir aðeins
rök fyrir þvi, að drengimir
gátu eJcIci ednir staðið að veirkn-
aðinum. Jafnfraimt dreigur Jón-
as fram hinar broslegu hliðar
þessara óhugnaniegu atburða,
svo að ekki hefur verið listi-
legar gert öðnu sinni.
En svo hlýiega sem Jónas
xnæiir í garð samferðamann,-
anna, þá er eJaki alveg laust
við, að hann hafi tilhnedgin-gu
til að gefa sjálfum sér piilur
við og við- Það fer eiclci milli
mála, að Jónasi tóJciust hlutir,
sem aðrir létu óigerða og til
tíðinda máttu teljast, og nægir
þar að benda á hans frasgu
ynigingairtilraunir. En eJciki ér
hann sitoltari aif gerðum sínum
en svo, að hann nefnir það
strá-kaJukku, þegar vel tekst,o-g
hefur hann það eftir Guðmundi
prótfessor Hannessyni, að und-
irrót hennar væri uggleysi. En
öðru sinni telcur hann þaö þó
fram, að hann hafi aJdrei ver-
ið kjarkimaður, og færir fram
sitt af hverju þwí tál sö-nnunar.
Hins vegar hefur hanin, þaö til
að játa á sig fffidirfsku og vill
hreint eJdki, að menn rugli
þessu tven-nu saman, kjarki og
fífllidirfsku.
Með sanni má segja, að bók
þesisi sé tfOrviitniJeg, svo aðnot-
að sé nútámaiégit orðtak bók-
rmenntagagmrýnenda. Það er
forvitnilegt að lesa frásögn
læknisins af hinum heimsfrægu
ynigingum á Hvammstanga og
sJcýrsHu sjóna-rvotts a£ Þverár-
undrunum. Þá fer það eJclki
miilli miáJa, að bó-kin’ ‘ ’ flytúr
eina hina ágætustil drauigasögiu
islenzkra bókmennta og eina
þeirra, sem hánn efafyllsti gec-
ur vart efazt 'um að haifi við
einliver "rök að sityðjast. Þá er
spennan í sögunni um lækna-
deiluna í Þýzkalandi alwegeán-
stök í sinni röð, þar sem rík-
isarfi Þýzkaiands er bóksitaf-
lega steindrepinn á síðari hluta
stfðasitliðinnar aldar með stór-
weJdameitingi miŒli þýzJcra læJcmai
og brezJcrar eiginikonu ríkisarf-
ans. Kaflinn um kwiJcsetningu
er heldur ekJcert bJávatn,, þwí að
þar edns og annars staöarheld-
ur Jónas þannig á penna, að
hið ægilegasta þjóðsagnaefni
getur orðið yifirmáta sannfær-
andi. — En fyrst og fremst er
bókin sérlega sJcemmtileg til af-
lesitrar. Frásögn öll er hispurs-
laus og létlaus og sfeýr. Einstak-
ir kaflar kwiikna hver af öðr-
um, þrungnir af frásaignargleði,
frjóu ímyndunaraffli og næm-
lei'ka fyrir því, hvað vert er
frásagnar væntanlegum lesanda.
Gunnar Benediktsson.
<$>-
SÓLÓ-eldavélar
Framleiði SÓLÓ-eldavélar af mörgum stœrðum og
gerðum. — Einkum hagkvæmar fyrir sveitabœi.
sumarbústaði og báta.
Varahlutaþjónus.ta.
Viljum sérstáklega benda á nýja gerð einhólfa
eldavéln fi/rlr smnzrrx báta og litla sumarbústaði
ELDAVÉLAVERKSTÆÐl
JÓHANNS FR.
KRISTJÁNSSONAR h.í.
Kleppsvejji 62 — Sími 33069