Þjóðviljinn - 20.01.1970, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 20.01.1970, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 20. janúar 1970 — 35. árgangur — 15. tölublað. Hryggilegt slys á Stokkseyri: Þrír menn drukknuðu í hðfninni si. sunnudag ® Laust fyrir hádegi á sunnudag voru fjórir for- menn af Stokkseyrarbátum að vinna að endurbót- um siglingaljósa við innsiglinguha í Stokkseyrar- höfn. Þeir voru að eiga við dufl í fremur stilltu veðri en slæmum sjógangi hjá Skælu, er bát þeirra fyllti. Drukknuðu þrír þeirra þarna í höfninni. Fjórða tókst að ná taki á ár og synti með aðstoð hennar að skeri er maraði í kafi. Þar var honum bjargað skömmu síðar svo til örmagna og aðfram- komnum. ★ Froskmenn fundu lík eins mannsins í gærdag í sjónum skammt frá slysstaðnum í höfn- inni. I dag verður haldið áfram að Ieita að líkum hinna í höfn- inni. Þetta er eitt mesta áfall, sem þorpið hefur orðið fyrir í ára- tugi og eru þorpsbúar harmi slegnir, sagði Ásgrímur Pálsson, ■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■!•■■■■■■■■■■■■■■■ í stjórn Dagsbrúnar O Enginn Iisti kom fram gegn lista uppstillingar- nefndar og trúnaðarráðs í Verkamannafélaginu Dags- brún. Framboðsfrestur var útrunninn á föstudagskvölld kl. 6 og varð stjómin því sjálfkjörin. O Stjórn Dagsbrúnar er nú þannig skipuð: Eðvarð 'Sig- .urðsson, formaður, Guð- mundur J. Guðmundsson, varaformaður', Halldór Bjömsson, ritari, Pétur Lár- ussun, gjaldkeri, Andrés Guðbrandsson, fjármála- ritari og Baldur Bjarnason og Finnbogi Þorsteinsson, meðstjórnendur. I varastj. eiga sæti Guðmundur Ás- geirsson, Sigurður Ólafsson og Guðmundur Gestsson. O Tveir menn hverfa nú úr aðalstjórn Dagsbnínar að eigin ósk og hafa þeir báðir átt sæti í Dagsbrúnar- stjórninni um árabii, þeir Tryggvi Emilsson og Tórnas Sigþórsson. Forsetinn heim- sækir Danmörku 1 gær barst Þjóðviljanum éft- irfarandi fréttatilkynning frá skrifetiDfu forseta Islands: „Forseti íslands, dr. Kristján Eldjárn, mun ásamt konu sinni fara í opinbera heimsókn til Dan- merkur í boði dönsku konungs- hjónanna dagana 2.—4. september næstkomandi". framkvæmdastjóri frystihússins í viðtali við Þjóðviljann í gær. Mennimir láta eftir sig þrjár ekkjur og níu föðurlaus börn. Þá er þetta mikið áfall fyrir at- vinnulífið að missa svona þrjá formenn í blóma lífsins af bátun- um, frábæra aflamenn og menn kunnuga erfiðri siglingaleið hér um slóðir. Ætlunin *var að gera út fimm báta á vertíðinni í vetur: Þeir sem drakknuðu hétu: Arelíus Óskarsson, 27 ára, kvæntur og átti 3 börn. Hann var formaður á Pétrl Jónssyni. Geir Jónassoxí, 29 ára, kvæntur og átti 2 stjúpböm. Hann var for- maður á Bjama Péturssyni. Jósep Geir Zóphaníasson, 33 kvæntur og átti 4 böm. Hann var formaður á Fróða. (Sá bátur er nýsmíðaður í Stykkishólmd). Sá sem komst af heitir Tómas Karlsson, formaður á Hólmsteini á sumrum, en vélstjóri á bátnum á vetnim. — 0 — Við náðum tali af Árna Tómas- syni, hreppstjóra í Bræðratungu. Árni hafði heimsótt Tómas á heimili hans i gærdag og var Tó- mas þá farinm að hressast. Hann hafði sofið um nóttina og var hitalau^ um morguninn, sagði Árni. Tómas sagði Árna, að altía hefði fyllt bátinn, þegar þeir voru að hyggja að dufli hjá Skælu. Tómasi hefði tekizt að ná tald á ár og synt með aðstoð henmar nokkurn spöl að skeri, sem maraði í kafi. Þarna var hann nær örmagna, þegar skekkta með fjómm mönnum kom á vett- vang og náði honum um borð. Ámi kvað oft afleitan sjógang hjá Skælu og lænan inn í höfn- ina væri þröng og aðeins á færi þaulkunnuigra manna að sigla stórum bátum inn í höfndna. Foreldrar Geirs heitins búa i húsi niðri á kambinum og fylgd- ist móðir Geirs með mönnunum út um glugga. Hún var að elda hádegisverð og gekk frá glugg- anum öðm hvom til eldhúss. I eitt Skiptið er hún fór að glugg- Framhald á 9. síðu. Loðnuverðið í bræðslu ákveðið 90 aurar á kílóið Á fundi yfirnefdnar Verð'lagsráðs sjávairútvegs- ins í gær varð samkomu- lag uim að lágmiaaiksverð á Joðnu í bræðslu frá byrj- un loðnuvertíðar til 15. miaí 1970 verði 90 au.rar hvert kg- Ennfremur greiðist 5 ’ aui-a flutningsgjaíld frá skipsihlið að verksmiðjuþró. Tvennt Hggur meSvitunéar- laust eftir umferðarslys Menntaskólapiltur í Reykjavík, fæddur 1950, varð fyrir bifreið aðfaranótt . sunnudagsins og lá hann meðvitundarlaus á Landa- kotsspítala í gær. Slysið vairð á Hringbraut, skamimit austan við Birkimel 1 kll. -2,30. Volkswaigénbifreið var á leið austuir Hringbraut og kveðst ökumiadurinn ekiki hafa séð piltinn fyrr en í þann mund að slysiið varð. Skiptd þiað eng- um togum að pilturiimn kastaðdst upp á bílinn og barst með hom- um þar til bíllinn stainzaði, þá kastaðist piltuirinn upp á gang- stéttina og lá meðvitundarlaus. Hann var fLuttur á Sílysavarð- stofuna og þaðain á Landalkots- spítala og var enn ekkd kominn til meðvitundar í gær eins og fyrr segir. Eins og áður hefur verið sagt frá, slasaðist taaptega áttræð kona, er hún varð fyrir bíl á gangbraut , á Snorrabraut s. I. föstudagskivöld. Hún var flutit á Landspítaiawn og var’meðvitund- arlaus í gær. ,Að S'ögn. rannsóknarlögregl- unnar hafa.. áður orðið slys á þessari gangbrauit, sem er sunn- ahlega á Snorraibraut, og væri full ástæða til að selja þarna upp götuíl'jós- Níu ungir sjómenn hafa drukknaö á röskri viku A röskri viku hafa níu ung- ir sjómenn drukknað hér við land. Aðfaranótt laugardags- ins 10. janúar fórst báturinn Sæfari frá Tálknafirði í róðri og með honum sex menn, flestir um tvítugt. Og sunnu- daginn 18. þ.m. fórust 3 for- * menn á bátum frá Stokks- eyri, allir um þrítugt, er smábátur sem þeir voru í Sökk undir þeim í höfninni á Stokkseyri, eins og sagt er frá í frétt á öðrum stað hér á síðunni. Hér á eftir birtum við myndir allra þessara ungu sjómanna. Þeir fórust með Sœfara, Tálknafirði HREIÐAR ARNASON ’>• skipstjóiri. BJÖRN MARON JÓNSSON, GUNNAR EINARSSON, stýrimaður.. .vébátjóri- ERLENDUR MAGNtJSSON, GUNNAR GUNNARSSON, GUÐM. H. HJÁLMTÝSSON, 2. vélstjlóiri. ihiatsveinn.. háseti. Drukknuðu í höfnmni á Stokkseyri ■i JÖSEP G. ZÓPHANlASSON, Skipstjóri, ARELIUS ÖSKARSSON, Skipstjóri. GEIR JÓNASSON, skipstjóri. -&U Skipstjórauppreisn gegn loðnuverði Á sunnudag stormuðu um 40 skipstjórar á fund að Báru- götu 11 hér í borg og mótmæltu sem einn maður væntan- legu loðnuverði. Voru þetta skipstjórnarmenn á loðnubát- um frá verstöðvunum hér við Faxaflóa. Frá verstöðvum eins og Sandgerði, Keflavík, Hafnarfirði og Reykjavík. Það hafði staðið til að halda stjórnar- og trúnaðarmanmaráð.s- fund í Sk i pstj óraí'él agi n u öld- unni. Snerist sá fundur upp í óformlegan fund skipstjórnar- mianna frá þessiuim verstöðvum og eru það alt stajrifiandi sjó- menn á loðnuibátum á væntan- legri vertíð. Á fundinum hélt Guðmundur Oddsson fonmaður félaigsiins, einn manna uppi vöm- um fyrir verðjöfnunarsjóð. Voi'u honuim ekki vandaðar kveðjumar á þessum ílundd. Á fundinum var- samiþykkt harðorð ályktun og jatfinframt kosin þriggja manna nefnd til að ræða við stjórnarvöld ■ um loðnuverðið- I þessari nefnd em Gunnar Hermannsson skipstjóri á Eldborginni, Eggert 'Gíslason, skipstjóri á GMa Áma, og Sæ- var Brynjólfsson, skipstjóri á Erniniuim. Það .hefiur vakið athygli, að fiormaður nefndarininar var aðal- forspraikiki u.ppreisnarinniair forð- um, þégar siílldarfllotinn stefndi all-ur í höfn til þesis að mótmœla sfldarverðin.u. Ekki þahf að pfa ailimienna samtöðu sjómannia á loðnubátum um allt land. Heyrzt hetfur, að loðnuverð verði 2 kr. I fyrir kg í Færeyjum á móti 90 aiuirum fyrir kg. hér á landi. Hér fer á eftir ályktun fiund- arins, sem send var tál sjávar- útvegsmiáfl'aráðuneytisdns: „Fundurinn miótmælir ein- dregið,1 að lög um verðjöfnunar- sjóð fiskiðnaðarins verði látin taika .gildi gaignvart loðnuverði á komandi vetrarvertíð. Með tilliti til lélegrar aflkomu sfcipa og skipsihaifna, sam stundað hafa veiðar þessar á undanföm- uim. ámm, ásiamt stórauknum veiðárfæra- og útgerðarkostnað', Framhald á 9- síðu- / i

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.