Þjóðviljinn - 20.01.1970, Qupperneq 4
4 BÍÐA — ÞJÓÐVELJXlSrN — Þriöjudaeur 20- jaraúar 1970.
— málgagn sósialisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis —
Útgefandi: Útgáfufélag Þjó5vil]ans.
Framkv.stjóri: Eiður Bergmann.
Ritstjórar: Ivar H. lónsson (áb.), Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Ritstj.fulltrúi: Svavar Gestsson.
Auglýsingastj.: Olafur lónsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: SkólavörðusL 19. Simi 17500
(5 línur). — Áskriftarverð kr. 165.00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 10.00.
Rökin þraut, atkvæðin dugðu
J^jaldan hefur ríkisstjómin og stjómarflokkamir
orðið jafnaðþrengdir á þingi og í umræðunum
um aðild íslands að Fríverzlunarbandalagi Evr-
ópu. Þó umræðurnar stæðu ekki lengi höfðu þing-
menn Alþýðubandalagsins sýnt fram á haldleysi
áróðursrökstuðnings stjórnarinnar svo að ekkert
var eftir. Ríkisstjómin varð að játa að allt væri í
óvissu um utflutningsiðnað á íslandi serh blómg-
ast ætti vegna markaðar í Eftalöndum, því engar
ráðstafanir eða undirbúningur hefur farið framj
til að koma á slíkum iðnaði í stórum stíl og hvergi ■
er trygging fyrir því að hann geti selt vörur sín-
ar á mörkuðuim í Englandi, Danmörku, Noregi,
Svíþjóð, Sviss, Austurríki, sem öll mega teljast
háþróuðustu iðnaðarlönd Evrópu. Fullyrðingar
stjórnarflokkanna, ráðherra þeirra og blaða um
hinn stórkostlega markað sem bíði íslenzks iðnað-
arvamings í þessum löndum gufuðu alveg upp í
reyk þegar ljós't varð af umræðunum að þetta
voru ekkert annað en frómar óskir og áróðurs-
þvæla, af hálfu íslenzkra stjómarvalda hafði bein-
línis ekkert verið að þviunnið að þessar óskir gætu
orðið eitthvað annað en áróður.
jþingmenn Alþýðubandalagsins bentu einnig á, að
áhugi ríkisstjórnarinnar hefði beinzt að öðru. I
samræmi við stefnu stjórnarinnar hefur áhuginn
beinzt að því að opna landið og atvinnulíf þess fyr-
ir erlendum auðfélögum. í því skyni fór iðnaðar- ■
málaráðherra Jóhann Hafs'tein í utanlandsför sl.1
sumar, en engar fregnir fengust af árangri þeirr-!
ar farar þótt eftir væri leitað í umræðum á þingi.
Og alræmt er orðið að Landsvirkjun setti í sumar ;
flennistórar auglýsingar í erlend blöð, þar sem
auðlindir íslands voru boðnar falar, líkt og hér
væri þjóð á nýlendustigi; þjóð sem ætlaði að sætta
sig við nýlendustigið í atvinnumálum sínum enn
um langan tíma. Engin skýring fékkst á þessu til-
tæki Landsvirkjunar. Og áður en umræðunni um
Efta lauk, varð viðskiptamálaráðh. Gylfi Þ. Gísla-
son að játa það umbúðalaust, vegna þess að Lúð-
vík Jósepsson hafði fært sönnur á málið, að með
aðild íslands að Efta er m.a. verið að gefa auð-
hringum Bretlands, Svíþjóðar, Danmerkur, Nor-
egs og annarra Efta-landa jafnrétti á við íslend-
inga til atvinnurekstrar á íslandi við niðursuðu-
og niðurlagningariðnað úr sjávarafla landsmanna.
Kunnugt er að m.a. í þessum löndum eru starfandi;
mjög fjárs'terkar samsteypur fyrir'tækja í þessumj
greinum, og kynni íslenzkum atvinnurekstri að
þykja þröngt fyrir dyrum ef þau ryddust inn í
íslenzkt atvinnulíf.
jþað bætir svo ekki úr mále'fnalegum ósigri stjórn-:
arflokkanna í Efta-málinu að hamra á þeim á-
róðri að Alþýðubandalagið sé andvígt íslenzkri iðn-
væðingu. Það er ekki íslenzk iðnvæðing að ofur-1
selja auðlindir landsins erlendum auðhrjngum og
getur orðið . örlagaríkt efnahagslegu sjálfstæði
þjóðarinnar. — s.
Leiðbeiningar II.
Skattamatið við framta
Rífcisskattanefnd hefruir sam-
þykkt, að stoattmat framt^ls-
árið 1970 (sfcattárið 1969),
stoudi vera sem hér segir:
L
Búfé til eignar í árslok 1969.
A. Sauðfé í Austurlandsfcjör-
dæmi, Suðurlandskjördæmi,
Vestmannaeyjum, Reykjajvík,
Reykjanesumdæmi og Snæfells-
nes- og Hnappadalssýslu:
Ær .................... kr. 1050
Hrútar ................. — 1400
Sauðir ................ — 1050
G-emlingar ............. — 800
B. Sauðfé annars staðar á
landinu:
Ær .................... kr. 1100
Hrútar ................. — 1400’
Sauðdr ................. — 1100
Gemlingar .............. — 850
C. Ahnað búfé alls staðax á
landinu:
Kýr ................... kr. 8200
Kvígur IV2 árs og eldri — 5800
Geldneyti og naut .. — 3100
Kálfiar yngri en V2 árs — 900
HestaT á 4. v. og eldri — 4700
Hryssur á 4. v. og eldri — 2300
Hross á 2. og 3. v. .. — 1700
Hross á 1. vetri .... — 1106
Hænur .................. — 120
Endur .................. — 150
Gæsir .................. — 180
Geitur ................. — 400
Kiðlingar .............. — 200
Gyltur ................. — 4800
Geltir ................. — 4800
Grísir yngri en 1 mán. —
Grísdr yngri en 1 mán. :— 0
H.
Teknamat
A. Skattmat tekna af landbún-
aði skal ákveðið þannig:
1. Allt sem selt er frá búi,
skal talið með því verði, sem
fyrir það fæst. Ef það er greitt
i vöirum, vinnu eða þjónustu,
ber að færa greiðslur til pen-
ingaverðs og telja til tekna
með sama verði og fæst fyrir
tilsvarandi vörur, vinnu eða
þjónustu, sem seldar eru á
hverjum stað og tíma.
Verðuppbætur á búsafurðir
teljast til tekna, þegar þær eru
greiddar eða færðar framleið-
anda til tekna í reikning bans.
2. Heimanotaðar búsafurðir
(búfjárafurðir,, garðávextir,
gróðurhúsaafurðir, hlunninda-
afrakstur)-, svo og heimilisiðn-
að, skal telja til tekna með
sama verði og fæst fyrir til-
svarandi afurðir, sem seldar
eru á hverjum stað og tíma.
Veirði efcki við'' markaðsverð
miðað, t.d. í þeim hreppum.
þar sem mjólkursala er lítil
eða engin, skal skattstjóri meta
verðmæti þeirra til tekna með
hliðsjón af notagildi.
Ef svo er ástatt, að söluverð
frá framleiðanda er hærira en
útsöluverð til neytenda, vegna
niðurgredðslu á afurðaverði, þá
skulu þó þær heimanötaðar af-
urðir, sem svo er ástatt um,
taldar til tekna miðað við út-
söluverð til neytenda.
Mjólk, sem notuð er til bú-
fjárfóðurs, skal þó telja til
tekna með hliðsjón af verði á
fóðurbæti miðað við fóðurein-
ingar.
Þar sem mjólkursfcýrslur eru
/ekki haldnar, skal áætla heima-
notað mjólkurmagn.
Með hliðsjón af ofangrednd-
um reglum og að fengnum til-
lö’gum skattstjóra, hefur mats-
verð verið ákveðið á eftirtöld-
um búsaifurðum til lieimanotk-
unar, þar sem ekki er hægt að
styðjast við markaðsverð:
a. Afurðir og uppskera:
Mjólk, þar sam engin mjólkur-
■ala fer fram, miðað við 500 1.
neyzlu á m. Kr. 10.40 pr. kg.
Mjólk til búfjárfóðurs, sama
verð og redknað er til gjalda
í verðlagsgrunv. kr. 3,20 pr. fcg.
Hænuegg (önnur egg
hlutfallslega) kr. 76,00 pr. kg.
Sauðfjársdátur kr. 83,00 pr. st.
Kairtöflur til manneldis
kr. 1000,00 pr. 100 tog.
Róflur til manneldis
kr. 825,00 pr. 100 kg.
Kartöflur og rófur til skepnu-
fóðurs kr. 200,Ofl pr. 100 kg.
b. Búfé til frálags:
Skal metið af sfcattstjórum,
eftir staðháttum á hverjum
stað, með hiiðsjón af markaðs-
verði.
c. Kindafóður:
Metast 50% af eignarmati
sauðfjár. \
B. Hlunnindamat:
1. Fæði:
Fæði, sem látið er launþega
og fjölskyldu hans) endur-
gj aldslaust í té í mötuneyti,
matstofu eða á heimili vdnnu-
veitanda, er metið sem hér
segir:
Fæði karlm. kr. 90,00 á dag
Fæði kvenm. kr. 72,00 á dag
Fæði barna, yngri
en 16 ára tor. 72,00 á dag
Séu fæðishlunnindi látin
endurgjaldslaust í té á annan
hátt: skulu þau teljast til
aekna á kostnaðarverði.
2. Húsnæði.
Endurgjaldslaus afnot laun-
þega (og fjölskyldu hans) af
húsnæði í eigu vinnuveitandia
eru metin sem hér segir:
I toaupstöðum og kauptún-
um, fyrir hvert herbeýgi kr.
165,00 á mánuði eða kr. 1980,00
á ári.
í sveitum, fyrir hvert her-
bergi kr. 132,00 á mánuði eða
kr. 1584,00 á ári.
Sama skal gilda um húsnæði,
sem vinnuveitandi lætur laun-
þega í té á annan hátt, án
endurgjalds, ef upplýsingar
ltggja ekki fyrir um verðmæti
hlunnindanna. Sé vitað um
kostnaðarverð hlunnindanna
stoulu þau teljast til tekna á
því verðd.
3. Fatnaður:
Einkennisföt karla kr. 3.500,00
Einkennisf. kvenna kr. 2.400,00
Einkennisfrakki karla
kr. 2.700,00
Einkennisfcápa kvenna
kr. 1.800,00
Hlunnindamat þetta miðast
við það, að starfsmaður noti
einkennisfatnaðinn við fullt
ársstarf, sam telzt nema a.m.k.
1800 vinnustundum á ári.
Ef árlegur meðaltalsvinnu-
timi starfsstéttar reynist siann-
anlega styttri en að framan
greinir og einkennisfatnaður-
inn eingönigu notaður við starf-
ið, má víkja frá framangreindu
hlunnindamati til lækkunar,
eftir nánari ákvörðun rikis-
skattanefndar hverju sinni
enda hafi komið fram rökstudd
beiðni þar að lútandi frá hlut-
aðeigandi aðila.
Með hliðsjón af næstu mgr.
hér á undan ákveðst hlunn-
indamat vegna einkennisfatn-
aðar flugábafna:
Einkennisföt karla kr. 1.750,00
Einkennisföt kvenna
kr. 1.200,00
Einkennisfrakki karla
kr. 1.350,00
Einkenniskápa kvenna
kr. 900,00
Fatnaður, sem ekki telst ein-
fcennisfatnaður, skal talinn til
'ekna á kostnaðarverði.
Sé greidd ákveðin fjárhæð i
stað fatnaðar, ber að telja
hana til tekna.
C. Eigin liúsaleiga:
Sé öll húseign eiganda til
eigin nota, þá sfcai eigin húsia-
leiga metast 11% af gildandi
fiasteignamati húss og lóðar,
eins þó um leigulóð sé að
ræða. Þ-ar sem lóðarverð er ó-
eðlilega mikill hluti af fiast-
eignamati, má víkja frá fullu
fasteignamati lóðar og í sveit-
um sfcal aðeins miða við fast-
eignamat íbúðarhúsnæðis.
I ófullgerðum og ómetnum
íbúðum, sem teknar hafa verið
í notkun, skal eigin leiga reikn-
uð 1% á ári af kostnaðarverði
í árslok eða hlutfallsiega lægri
eftir því, hvenær húsið var
tekið í notkun á árinu.
Ef húiseign er útleigð að
hluta, skal reikna eigin leiigu:
1 herbergi kr. 2064 á ári
= 172 á mánuði
1 herb og e. kr. 4128 á ári
= 344 á mánuði
2 herb. og e. kr. 6191 á ári
= 516 á mánuði
3 herb. og e. kr. 8256 á ári
= 688 á mánuði
4 herb. og e. kr. 10320 á ári
= 860 á mánuði
5 herb. og e. kr. 12384 á ári
= 1032 á mánuði
— og svo framvegis.
1 gömlum eða ófuUkomnum
íbúðum, eða þar sem herbergi
eru lítil, má víkja firá þessum
skala til lækkunar. Enn frem-
ur má víkja firá herbergjaskaia,
þar sem húsaleiga í viðkom-
andi byggðarlagi er sannanleiga
lægri ’en herbergjamatið.
ra.
A. Fæði:
Fæði karlmanns kr. 80,00 á d.
Fæði kvenmanns kr. 64,00 á d.
Fæði barna, yngri en
16 ára kr. 64,0fl á. d.
Fæði sjómanna. sem fæða sig
sjálfir:
a. á bátum undir 12
rúmlestir fcr. 80,00 á d.
b. bátum 12 rúmlestir
eða stærri kr. 64,00 á d.
B. Námskostnaður:
Frádrátt frá tekjum náms-
rnanna skal leyfa skv. eftirfar-
andi flokkun, fyrir heilt skóla-
ár, enda fylgi framtölum náms-
manna vottorð skóla um náms-
tima, sbr. þó síðar um nám
utan heimilissveitar, skóla-
gjöld, námsstyrki o.fl.:
1. kr. 34.000,00
Háskóli íslands
Húsmæ ðrakennar askóli
íslands.
Kennairasfcólinn
Menntasikólar
Píanó- og söngkennar'adeild
Tónlistarskólans í Rvk.
Tæknisfcóli ísiands
1. og 2. befckur Vélskóla
Islands.
5. og 6. bekkur Verzlunar-
skóla íslands.
2. kr. 28.000,00:
3. bekkur miðskóla.
3. bekkUr héraðsskóla
Gagnfræðasfcólar.
Fóstruskóli Sumargjafar.
Húsmæðraskólar.
íþróttasfcóli Islands.
Loftskeytaskólinn.
Samvinnuskólinn.
3. bekkur Vélskóla íslands.
3. bekkur Stýrimannaskólans
(fiairmannadeild)
2. bekkur Stýrimannaskólans
(fiskimannadeild).
1. - 4. bekkur Verzlunar-
sfcóla íslando.
Dagdeildír Myndlista og
Handíðasfcóla íslands.
3. kr. 21.000,00
1. og 2. bekkur miðskóla.
1. og 2. bekkur héraðsiskóla.
Ungli n giasfcólar.
1. og 2. bekkur Stýrimanna-
skóláns (farmannadeild).
1. bekkur Stýrimannaskólans
(fiskim ann adeild).
4. Samfelldir skólar —
kr. 21.000,00 fyrir heilt ár:
Bændasfcólar.
Garðyrkjuisk. á Reykjum.
kr. 12.000,00 fyrir heilt ár:
Hjúkrunarskóli Islands.
Ljósmæðraskóli Islands.
5. 4 mánaða skólar og styttri
Hámarksfrádr. kr. 12.000,00
fyrir 4 mánuði. — Að öðru
leyti eftir mánaðafjölda.
Til þessara skóla teljiast:
Iðnsfcólar, varðskipadeild
Stýrimannaskólans.
Matsveina- og veitingaþjóna-
skóli þar með fisfcisfcipa-
matsveinar.
6. a. Dagnámskeið, sem sitend-
ur yfir eigi sfcemur en '16
vikur enda sé ekki unnið
með náminu, frádráttur kr.
600,00 fyrir hverja viku, sem
námskeiðið stendur yfir.
6. b. Kvöldnámskeið og dag-
námskeið, þegar unnið er
með náminu, frádráttur nemn
greiddum námskeiðsgjöldum.
6. c. Sumamámskeið erlendis
leyfist eklki til frádráttar.
7. Háskólanám erlendis
Vestur-Evrópa kr. 80.000,00
Austur-Evrópa. Athugist sér-
stafclega hverju sinni, vegna
n ámsl aun af yrirkomul ags.
Norður-Ameríka kr. 135.00,00.
8. Annað nám erlendis:
Frádráttur eftir mati hverju
sinni með hliðsjón af sfcólum
hérlendis.
9. Atvinnuflugnám:
Frádráttur eftir mati hverju
sinni.
Búi námsmaður utan heim-
ilissveitar sinnar meðan á
nárni stendur, má hækfca frá-
drátt sfcv. liðum 1 til 6 um
20/%.
’. I skólum skv. liðurrt 1 trt’ 5,
þar sem um sfcólagjald er að
ræða, leyfist það einnig til
frádráttar.
Hafi nemandi fengið náms-
styrk ur ríkissjóði eða öðrum
innlendum ellegar erlendum
opinberum sjóðum, sfcal náms-
frádráttur skv. firamansögðu
lækkaður sem styrknum nem-
ur.
Námsfrádrátt þennan sfcal
leyfa til firádráttax tekjum það
ár, sem nám er hafið.
Þegar um er að ræða nám,
sem stundað er samfellt í 2
vetur eða lengur við þá skóla,
sem taldir eru undir töluliðum
1, 2, 3, 4 óg 7, er auk þess
heimilt að draga frá allt að
helmingi frádráttar fyrir við-
komiandl skóla það ár, sem
námi lauk, enda hafi námstími
á því ári verið lengri en 3
mánuðir. Ef námstúni var
skemmri, má draiga frá 1/8
af heilsársifrádrætti fyrir hvern
mánuð eða brot úr mánuði,
sem nám slóð yfir á því ári,
sem námi lauk.
Ef um er að ræða námskeið,
sem sitanda yfir 6 mánuði eða
lengur, er heimilt að skipta
frádrætti þeirra vegna til helm-
inga á þau ár, sem nám stóð
yfir, enda sé námstími síðara
árið a.m.k. 3 mánuðir.
ÞÚ LÆR!R
MÁLIÐ
*
I
MÍMI
Sími 10004 (kl, 1-7)
\