Þjóðviljinn - 20.01.1970, Blaðsíða 6
§ SÍÐA — ÞJÓÐVIUINN — Þriðjudagur 20- janúar 1970.
Sexfugur i dag
Eyjólfur Árnason
gullsmiður
Sextíu ára er í dag Eyjólfur
Randver Ámason, gullsmiður.
Hann er fæddur á ísafirði þann
20. janúar 1910, og þar átti hann
flest sín uppvaxtarár í Silfur-
götu 14 hjá fóstra sinum og
frænda Eyjóífi bókbindara.
Samt er það Reykihólasveit,
sem okkur ber að þakka fyrir
upphaf Eyjólfs Ámasonar, og
þangað barst hann líka á fyrsta
ári ævinnar og dvaldi þar nokk-
ur ár í frumbemsku. Sé farið
um Reykhólasveit em það eink-
um þrír bæir, sem minna á Eyj-
ólf: Gillastaðir, hvar I>orvaldur
Vatnsfirðingur var inni brennd-
ur, en þar bjó móðurafi Eyjólfs,
Hlíð í Þorskafirði, nú í eyði, en
þair bjó faðir Eyjólfs, ogMiðja-
nes, þar sem Eyjólfur dvaldist
ungur með móður sinni, er hann
missti 3ja ára garpall.
Fá munu þau héruð þessa
lands, sem af jöfnum mann-
fjölda hafa á síðustu öldum skil-
að þjóðinni slíkum hópi úr-
valsmanna sem byggðimar við
norðanverðan Breiðafjörð. Og
vel hefði Eyjólfur sómt sér í
Lestrarfélagi Gufdæla, hinu
fyrsta yalþýðlega lestrarfélagi
á landi hér, hefði hann verið
svo sem 100 árum eldri,
Um feril Eyjólfs á Isafirði,
Siglufirði, Akureyri og síðustu
10 árin í Reykjavík verður ekiki
fjölyrt hér í stuttri kveðju. Hins
má minnast, að engin stjóm-
málaihreyfing verður mikil af
góðum málefnum einum saman.
Þar kemur einnig til hvaða
mannvali hún hefur á að skipa.
Það var fríður flokkur, sem
fór fyrir hreyfingu íslenzkra
sósíalista á rismesta skeiði
hennar. 1 þeim félagsskap hafði
Eyjólfur Ámason gengið undir
árar á æskualdri, og hefur það
jafnan sáðan verið hið bezta
skipað
Mannaforráðum á oinbemm
vettvangi hefur Eyjólfur að vísu
löngum hafnað, þó að æma
burði hefði hann til slíkra hluta
og á stundum væri við hann
_fast leitað. Mun hér m.a. hafa
'ráðið eðlisgróin andúð hans á
öllu tilstandi með eigin persónu.
Hjá hinu gat ekki farið, að til
haM væri jafnan leitað, þegar
vanda þurfti til úrlausna í þeim
stjómmálaverkefnum, sem að
höndum bám á þeim stöðum,
þar sem hann var búsettur fram
um miðjan aldur. Þessu olli sér-
stök dómgreind hans og skarp-
skyggni á menn og málefni
Nærri má geta, að Eyjólfur
var á þeim ámm einnig sjálf-
kjörinn til að halda uppi
fræðslu í stjórnmálafræðum, og
er undirritaður í hópi þeirra
mörgu, sem hann kenndi staf-
róf marxískrar heimsskoðunar.
Víst var það til á þeim ámm, að
marxisminn yrði mönnum eins
konar trúarbrögð og hafa ýms-
ir slíkir að vonum misst fót-
anna í sviptibyljum liðinna ára.
Eyjólfur var aldrei í þeirri
hættu, enda þreyttist hann seint
á að brýna fyrir mönnum, að
kenningar marxismans beri
fyrst og fremst að líta á sem
vísindalega rannsóknaraðferð en
engan stórasannleik eða páfa-
bréf upp á lausn allra mann-
legra vandamála. Fer þvi og
víðsfjarri, að menntun Eyjólfs
talkmarkist við skræður Marx
Og Engels, þó að drukkið hafi
hann af þeim bmnni sér til
heílla
Skemmst er frá að segja, að
ég þekki vart nokkum mann,
sem hægt er að kalla fjölmennt-
aðri, og er maðurinn þó lítt
sfcólagenginn. Heimspeki, nétt-
úruvísindi hvers konar, mál-
fræði og tungumál margvísleg
em meðal þeirra mennta, sem
Eyjólfur hefur gengið á vit.
Hygg ég, að upplag hans allt og
hæfileikar hafi staðið til vís-
indaiðkana og maðurinn líkleg-
ur þar til afreka. En vist er
hann ekki sá eini með sínni
kynslóð, sem kröpp kjör bægðu
frá langsfcólanámi.
Meðan Eyjólfur bjó utan
Reykjavíkur var heimili hans
almennur gististaður þedrra
sósíalista, sem að garði bar úr
öðmm plássum, a.m.k. var það
svo á Akureyri, þar sem ég
þekkti til.
Kona Eviólfs er Guðrún Gufl
varðardóttir. of> er va’rf ó milL
að sjá, hvom þeirra hjóna ei
meiri sómi að hinu. Þau búa nú
í Eskihlíð 14 í Reykjavik, en
em að heiman í dag.
Ég vil að lokum taka mér um-
boð til að þakka Eyjólfi fyrir
hönd nýrra og gamalla útgef-
enda þessa blaðs fyrir það sem
hann hefur unnið stjórnmála-
hreyfingu okkar.
Persónulega á ég honum þá
skuld að gjalda, sem ekki hæfa
orð.
Kjartan Ólafsson.
Heyrt hef ég það af orðspori,
að Eyjólfur Ámason gullsmiður
sé sextugur um þessar mundir.
Þótt ég viti fáa ólíklegri til
að æskja lofgreina eða básúnu-
blásturs í sambandi við tíma-
mót i eigin ævi en Eyjólf, — og
þótt ég finni mig einnig engan
veginn vaxinn þeim vanda að
skrifa um hann afimælisgredn,
sem verðugt væri, þá get ég ekki
með öllu látið hjá líða að senda
honum kveðju mína í dag, á-
samt árnaðaróskum og þökkum
fyrir samstarf og kynninigu öll
þau árin, sem vegir okkar lágu
saman hér á Akureyri. Þótt ekki
muni nema tíu ámm á aldri
okkar, þá munaði enn meira á
þroska okkar og viti þegar við
kynntumst fyrst, árið 1943. Ég
hlaut því að lfta upp ffl hang,
jafnframt því sem ég riaut
þekkingar hans og aðstoðar á
margvíslegan hátt. Fyrir það
tel ég mig alltaf standa í ó-
bættri þakkarskuld við Eyjólf,
þótt ég viti líka vel, að hann
sjálfúr veit efckiafþeirri sinni
innstæðu. Enda verður hún á-
reiðanlega aldrei greidd
Þeir mörgu Akureyringar,
sem þekkja Eyjólf Árnason, vita
allir, að þar fer óvenjulegur
maður, — elfki ofviti eða sér-
vitringur, heldur óvenjulega
traustur maður, margfróður og
víðsýnn. Hann geldur þesis
(kannski) eða nýtur, að hann er
lítill auglýsingamaður, sækist
manna seinastur eftir vegtyllum
og virðingarstöðum og situr
aldrei á hlut annarra.
Af Eyjólfi Ámpsyni veit ég
að gera hefði mátt þrjá menn,
eins og Haraldur konungur sagði
forðum um Gissur bisikupsefni,
— oig þó fleiri, — en víkinga-
höfðingi, konúngur eða biskup
hefði enginn þeirra Eyjólfs kos-
ið að verða, heldur fræðarar og
félagslegir leiðtogar á braut
fólksins.
Eyjólfur Ámason mun ungur
hafa hrifizt af hugsjónum og
fræðikenningum sósíalismans.
Hann tók þess vegna mikinn
og góðan þátt í störfum Sósíal-
istaflokksins bæði á Siglufirði
og hér á Akureyri. í öfllum störf-
um var hann farsæll og fyrir-
hyggjusamur. Víðsýni hans og
dómgreind mun alltaf forða
honum frá kreddum og ein-
stefnu, jafnframt á pólitísku
sviði sem öðmm. Ég vildi því
vona að flokfci okkar aiuðnað-
ist að eiga sem flesta hans líka
í röðum sínum fyrr og seinna.
Að endingu bið ég svo af-
mælisbamið velvirðingar á þvf,
ef honum skyldi þykja gæta
nokfcurs lofs í þessum fáu orðum
mtfnum. Ég veit honum er ekki
um slífct gefið, — en aðrir munu
fremur telja vamsagt en ofsagt
hér að framan.
Ýmsir samherjar og vinir
Evfólfs nyrðra hafa beðið mig
pð koma á framfæri kveðjum
sínum og ámaðaróskum til Ihans
á þessum degi, og geri ég það
hér með.
Heiill þér sextugum, Eyjólfur.
Ég bið að heilsa í bæinn.
Róbert G. Snædal.
Til Eyjólfs
Vinur kær, gamall og nýr!
Ég er áð heyra, að þú sért
að verða sextugur. Ótrúlegt, hve
tíminn líður fljótt. Mér fánnst
svo undarlega sikammt síðan að
ég heyrði þín fyrst getið. Vestur
á Isafirði var mér sagt væri
ungur maður, Eyjólfur Ámason,
róttækur i skoðunum, lærður
vei í þjóðifélagsfræðum. og
kunnáttumaður í verkum, jafn-
vel svo fjölfróður, að hann
kynni góð ekil á indverskri duil-
speki, enda þótt hugur hans
hneigðist nú í aðra átt. Ári síðar
kynntumst við fyrst. Það var
víst sumarið 1930. Við réðumst
þá báðir til vinnu hjá Síldar-
einkasölu ríkisins á „Rauða-
torgið“ svonefnda á Siglufirði
og urðuim starfsbræður og
hertoergisfélagar —. Þetta var þá
Eyjölffur Ámason, dökfcur yfir-
litum, firíður sýnum, fremur lág-
vaxinn, snyrtimenni í klæða-
burði og framgöngu, kurteis og
hógvær í fasi. Síðar átti ég
eftir að kynnast því betur, að
þessi ungi maður fcunni margt
fyrir sér, var góður og ráðholl-
ur félagi og hjálpfús í bezta lagi.
Þetta var á því skeiði, er ný
alda róttækni reis um veröld
víða, heimskreppan herjaði á
auðvaldslönd, en Sovétrfkin
höfðu hafið fimmára-áætlun
sína hina fyrstu. Áhrifa þessa
gætti einnig hér á Lamdi, og ís-
lenzk verkalýðsstétt tók að
vakna til vamar og nýrrar
sióknar. Stjómmál voru efst á
baugi, og ungum sósíalistum og
áhugamönnum þótti sem verk-
efinin kölluðu hvarvetna á þá,
baráttan heimti þá til sín — og
lokamai-kið kannski ekki ýkja-
langt unöan. Daglega var rætt
um og fengizt við verkalýðsmál
og pólitík, smá-ráðstefna haldin
um þau efni uppi í Hvanneyrar-
skál. Sveit manna frá Siglufirði
hélt til Akureyrar til að styðja
verkfallsmenn í Krossanesi í
baráttu þeirra við hinn er-
lenda atvinnurekanda og verk-
smiðjueiganda. Við vomm víst
báðir með í þeirri ferð, og
farkosturinn var hraðbátur
Sfldareinkasölunnar, Dg er það
líklega í eina skiptið, sem
snekkjur ríkisvaldsins hafa ver-
ið nýttar í því skyni að rétta
hlut íslenzkra verkamanna. Um
haustið var svo þing Sambands
ungra jafnaðarmanna haldið á
Sigllufirði — og þar vorum við
einnig staddir. Þar urðu all-
harðar deilur milli hægra arms
og vinstra, sem varð í meiri-
hluta —, og ledddi þetta til þess,
að stofnað var Samtoand unigra
kammúnista — og svo síðar
Kommúnistaflokkur Islands. —
Um haustið hélztu svD í Austur-
veg og dvaldist þar víst um
meira en tveggja ára skeið.
Síðan hafði ég alltaf veður
af þér öðru hverju, á ísafirði,
á Siglufirði. Þá var atvinniuleysi
í landi, og menn lifðu tíðum
einskonar flökkulífi, leituðu á
þær slóðir, þar sem helzt var
atvintiu að fá í það og það skipt-
ið. Og jafnan léztu stjórnmálin
til þín taka, hvar sam þú varst
staddur, jafnt landsmál sem
bæjarmálefni. Þú varðst bæjar-
fulltrúi á Isafirði eitt kjörtíma-
bil, en dvaldir tíðum á Siglufirði
á sumrum, Þar tókstu svo að
læra gullsmíði hjá Aðalbirni
heitnum Péturssyni, sneiðst
tunnumerki handa saltsildar-
framleiðendum, dyttaðir að
ekartgripum kvenna og gjörðir
fengsælum síldarstúlfcum arm-
bönd og hringi. Einn daginn
varstu svo kominn með eigin-
konu þér við hlið, Guðrúnu
Guðvarðardóttur — að vestan,
dugandi konu, gátfaða og glað-
væra, sem tók virkan þátt í á-
huigamálum þínum. Þið bjugguð
svo á Siglufirði nofckur ár, flutt-
uzt síðam til Afcureyrar, bar seim
þú stofnaðir og rakst gullsmíða-
verkstæði ásamt Sigtryggi
Helgasyni. Og loks komstu svo
hingað suður um 1960 þar
sem þú hefur nú starfað sem
pnentmyndasmiður Þjóðviljans
um þriggja ára slkeið. Þú hefur
raunar gert harla víðreist um
ævina, sótt hewn allmargar er-
lendar þjóðir og farið um flestar
sveitir íslands og óbyggðir. En
hvað skal mér umræða um feril
manns, ferðalög og flutninga.
Þar skiptir mestu, hversu sá
kann að nýta sér, er í hlut á, þ e.
maðurinn sjálfur.
Ðkfci ertu langsfcólagenginn,
en sjálfsnámið hefur reynzt þér
haldgott, svo að ýmsir, sem eiga
rnörg skólaiár að baki mættuöf-
unda þig. Erlendar tungur, svo
sem norðurlandamál, ensku og
þýzku hefurðu á valdi þínu —
og ert vel stautfær í rússnesku.
Og sá, sem Lítur á bókahillurnar
þínar, mun sjá, að þú átt ágætt
safn íslenzkra toóka og tfjölmörg
merk rit á eriendum málum um
sundurleitustu efni. Og efcki eru
bækur þessar hafðar aðeins til
sýnis og sikraujts, það mimdu
þeir sanna, sem tæfcju að ræða
við þig og sæju, á hve mörgu
þú kannt skil, jafnt til hugar
og handa Víst hetfurðu verið
gullsmiður, bæjarfulltrúi, prent-
myndasmiður og sitthvað fleira.
En ég yrði ekkert sérlega hissa,
þótt þú værir orðinn bankafull-
trúi, bókavörður eða steinafræð-
ingur einhvem daginn.
Jæja gaimlto vinur, það eru
víst allt að fjörutíu ár, síðan við
hittumst fyrst — og heimurinn
afllur annar en þá. Sú hugsjón,
sem við festum traust á í æsku,
hefur lagt undir sig lönd og
þjóðir. Ogþóttallt hatfi þarekki
gengið jafn hnökra- og áfalla-
laust og við hugðum forðum,
ætla ég að ekkert sé þér fjær
skapi en að draga þig inn í skel-
ina og snúa baki við frelsisbar-
áttu fól'ks eða toíta þig fastan í
liðinn tíma og viðhorf. Hitt held
ég þér sé ríkara í hug að horfa
með trausti fram á veginn, með
fengna reynslu sbirða og vak-
andi í hverri taug — og ferska
sjón á það, sem vex upp og
grær í kringum þig. Svo ætti ég
víst að þakka fyrir allar sam-
verustundirnar Dg rabbkvöldin
og svo allar ljósmyndasýning-
arnar úr ferðum ykkar hjóna
um landið í sól og regni. Það
hefur líklega lítið ,að þýða að
vera að óska mönnum til ham-
ingju. „Hamingjan býr í hjarta
manns, höpp eru ytri gæði“,
kvað Breiðfjörð forðum. En þá
von el ég í brjósti, að land og
þjóð megi njóta hugar þíns og
handa sem lengst. Og svo er það
þetta: það er einhvem veginn
svo notalegt. og heilnæmt á upp-
gangstímum framagosa og „bara-
sérfræðinga" að hafa kynni af
mönnum, sem eiga sér hlýtt
hjarta og traust og „vel margt
vitu“. Og því held ég, að ég
verði samt sem áður að óska þér
til hamingju með daginn.
Lifðu svo heill, lengi Dg vel.
Ásgesr Bl. Magnússon.
„Ótt tllíður ævi tíð“, kemur
mér jatfnian í hug, þegar ein-
hver viinur minn niær þeim
virðullega aldri að eiga að baki
áratfjölda, sem stendur á heil-
um eða háiltfum tug, efftir að
fjórða áratugnum er lokið. I
dag er það vinur minn og fé-
lagi Eyjólfur Árnason, sem
náð helfiur þeim virðulega aldri
að vera sextugur.
Eyjóllífiur er fæddur í Hliíð í
Þoirskaíirði. Foreldrar hans
voru Árni ÓOaffsson bómdi þar
og Salóme Bjamiadóttir. Fimim
ára gamall fluttist hann hingað
til Isafjarðar og hér ólst hann
upp hjá móðurbróður stfnum,
Eyjólfi Bjarnasyni, bókbindara,
og konu hans Ranveigu Há-
konardóttur.
Það var þvi hór á IsaifSrði,
sem fundium okkar bar fyrst
samian og hófet sú vináibta, siem
síðan hefur staðið á fimmta
ératug. Að vísu hiöfum við
meginhluta þassa tímabils búið
hvor í sínuim landsihluta, og
samsikipti okkar þar aff leiðandi
ekki verið eins náin og á með-
an við vorum báðir isfirzkir
borgarar og notuðum hverja
stund til að vinna að samieig-
inlegum áhugamiánum. Það
voru hugsjónir sósíalismans,
sem báðir aðhyfllltust og unnu
fyrir efitir því sem geta og
hæfileikar dugðu til. Á því
sviði méitti mieð sanni segja, að
Eyjólfur væri hinn andlegi
leiðtogi, sakum víðtækrar þekk-
iinigar, sem hann hafði þegar
á unga aldri aflað sér á fræði-
kenningum sósíaflismans, og um
þau mihki og merku 'vísindi,
þreyttist hann aldrci að fræða
ofckur hina flélaiga sínia, sem
minna vissu. Ég held, að flest
eða öfll öktoar, sem nutu þessar-
ar fræðslu, búum að henni enn
í dag, þió aö mörgu höfium við
sjálfsaigt týnt niður-
En Eyjóllfiur gierði hér annað
og meira en að kenna og út-
sfcýra fræði þeirra Marx, Eng-
els, Lenins og flleiri mieistara
hins vtfsdndaleiga sóstfalismai.
Hann tólk virkan þiátt í stanf-
semi Kommúnistafloksins og
Féflagi ungra kcimimúnista, með-
an þau stjórnmiálasamtök störf-
uðu, og síðar í starfi Sósíallista-
félaigsins hér. Einnig tók hann
þótt í starfinu innam verkailýðs-
saimitaikanna og öllum almenn-
um mélum, var m. a. kosinn í
bæjarstjóm 1938, en fluttist ári
síðar héðan, edns og áður hefiur
verið minnzt á.
Frá þessum éruim er mangs
að minnast, sem gamian væri
að rifja upp. Oft var við
ramman reip að draiga, barátt-
an hörð og óvægin. Sjálfsagt
hefur stundum verið bairizt
medra atf kappi en forsjá, en
eldur hugsjónanna loigaði gfllatt
á þessom árum og það var
samstilllt og samhuga fólk, seim
baráttuna héði. Sigramir urðu
að vísu færri og iminni en von-
azt var eftir, en þrátt fyrir
það voru þetta dýrlegir dagar.
Og eins mikdflsiverð sigurs .vil
ég mdnnast frá þessum ámm,
þegar Kommúnistaflokkurinn
fékk Eggert Þórbjarnarson kos-
inn í bæjarstjóm 1934.
Meðam Eyjólfur átti hér
heima, vann hann aflla algenga
vinnu sér tifl framifæris. að
undanskifldiuim tvedmur árum
sem hann dvaldi erflendiis. Á
þessum árum voru oflt erfiðir
tímar, sérstalldega á kreppuér-
unum. Hann hatfði því ofit úr
Idtfliu að spiLa, eins og fledri. á
þeim árum. Þrátt fyrir það,
tókst honum að koma sér upp
vísi að ágætu bókasafnd, sem
hann síðar hefur aiulkið mtiög-
Nú á hann hið áigætasta bólkar
saifn, bæði að staarð og gæöum.
Og allir, sem Eyjóilf þekfcja,
vita hjve margfráður hann er.
Bftir að Eyjólfur flluttist frá
Isafirði, lærði hann gulflsmíði
og rak um árabil gullsmtfða-
verkstæði á Akuireyri í flélaigi
með öðrum. Þaðan fluttist
hann svo tdl Reyfcjavíkur og
gerðist stanfemiaður MlR, en nú
vinnur hainn við prentmynda-
gerð á Þjóðviifjanum.
Það var ökld ætlunin, að
þetta yrði löng aiflmælliisgredn,
og verður þvtf staðar nutmið. Ég
áma aiflmæilisbarninu og konu
hans, Guðrúnu Guðvarðardlótt-
ur, alflra heilla á þessuim ttflmia-
mótum og þafcfca þeim báðum
margra ára vináttu. Og ég held
rnér sé óihætt að fullyrða, að
undir þær ámaðaróslkir taki
allttir gömflu féflagaimir fré ísar
firði.
Halldór Ólafsson.
Menn deila um það, hvort við
litfúm enmlþá á sjöunda áratugi
aldarinnar eða séum komin á
þann áttunda. Stangast þar á
stærðfræðin og klerklegar tima-
talsLa-ellur. En um hitt verður
ekki deilt, að maður flæddur á
árinu 1910 lýíkur sínum sjötta
áratug á árinu 1970. Þvi er eng-
um blöðum um það að fletta,
að Eyjólfur Ámason er nú orð-
inn maður sextugur.
£g sé heldur enga ástæðu til
að efast um þetta, svo langt er
stfðan kynni olkikar hófust og svo
mifldð hefiur gerzt í veröldinni
á þessum tíma, að mig furðar
miklu fremiur á að hann skiulli
eikkd vera lengri. Eyjólfur hefur
sjálfsagt verið bráðþroska. Ég
þekkti hann ekki sem barn. En
þegar leiðir okkar lágu fyrsto
saman, hann þá rúmlega tví-
tugur, ég tæplega tvitugur — svo
ekkd sé nákvæmar tiltekið —,
þá fannst mér hann svo lanigt-
um fremri að viti og þrDska, að
mér varð ekkd að hugledða, hve
aldursmunurinn var í rauninni
lítill
Ef ég ætti að rekja kynni
ökkar Eyjólfs, þá myndi ekkent
minna duga en að ég skrifiaði
verulegan hluta ævisögu minn-
ar, því að þótt fjarlægð og ann-
að hafi á stundum valdið þvi,
að samifundir okkar yrðu nokikuð
sflitróttdr, þá er það svo, að þeir,
sem orðið hafa mamni nákomnir,
efldd sízt á unga aldri, gerast
slííkdr örla'gavaldar í lífi okkar,
að það gildir næstum einu hvort
þeir eru nær eða fjær, lífs eða
liðnir.
Reikningsjöfnuður manna við
meðbræður sína og umhverfi er
með ýmsu móti, sumir eru veit-
endur aðrir þlggjehdur, sumdr
eru með kreditjöfnuð aðrir með
debetjöfnuð. Ekki hvarflar að
mér, að Eyjólfur hafi fært neitt
slíkt bókhafld, en fróðflegt þætti
mér að sjá hjá einhverjum við-
skiptareikning við hann, þar
sem debethliðln léti eitthvað að
sér kveða. Hjá mér myndi hún
verða mjög, mjög fáskrúðug.
Þvtf að engan veit ég sem fúsari
er að veita aðstoð eða hjálp við
að leysa úr vanda. Honum er
það eðlislægt.
Annar er sá þáttur í eðlisfari
hans, sem ég get ekki stillt mig
um að minnast á, en það er á-
stríðufiull þetokdngarleit, sem er
svo smitandi, að maður bókstaf-
lega skammast sx'n, ef maður
gerir ekkert sjálfur, til að auka
við þetokingu sína. Og verður
mér þá að minnast þess, að við
unnum saman á verkstæði
meistara míns, Aðalbjöms hedt-
ins Péturssonar. Það var á við
nokkra skólagöngu, að vinna
með þaim Aðalbirni, Eyjólfi Dg
Sigtryggi Helgasyni, þeim fjöl-
gáfaða völundi. Og ekki spillti
þegar þar voru tíðir gestir menn
eins og Asgeir Blöndal, Þórodd-
ur Guðmunsison og fleiri. En sá
skóli gerði strangar kröfur til
hedmanáms.
Framhald á 9. síðu.