Þjóðviljinn - 20.05.1970, Page 3
Miðvifcudágur 20. wiaí 1070 — KflðBfiTllIÍIIíinN' — S'föA J
Af hverju þorir Framsókn bara
að kappræða við Heimdellinga
t ■ ’ . .1 . -
Ungir Framsóknarmenn reynaað hindra almennan fund með
frambjócSendumallra Hsfa—vUJa einmœli Wð ihaldsmenn
□ Af hverju vilja FraVnsóknarmenn bara tal-a við íhald-
ið fyrir kosningarnar? Af hverju vilja þeir ekki tala við
fulltrúa annarra flokka á kappræðufundi? Slíkar spurning-
ar hljóta að vakna þegar það liggur fyrir að ungir Fram-
sóknarmenn leggja ofurkapp á kappræðufund með ungum
íhaldsmönnum — en neita síðan að verða við beiðni Æsku-
lýðssambands íslands um almennan fund þar sem kæmu
ungir frambjóðendur allra framboðslistanna í Reykjavík.
Þjóðviljanum bai’st í gær fi’étta-
tjlkynning fró Æskulýðssambandi
íslánds þar sem segir að stjórn
ÆSÍ hafi sámþykkt á fundi sín-
um 14. mai að efna til kappræðu-
furidar með ungum frambjóðend-
urrt af öllum listum sem í frám-
boði eru í Reykjavík. ætlaði stjórn
ÆSl að halda þennan fund 25.
maí, eða á mánudaginn. Fundar-
fórrn átti að vera þannig að hver
listi hefði þrjár ræður, 15, 10 og
5 minútur og átti hverjum lista
að. vera í sjálfsvald sett hverja
hann léti tala, þó þannig að eng-
inn mótti vera eldri en 35 ára af
rædumönnum. Var framkvæmda-
stjóra Æskulýðsambandisins falið
að fá hús fyrir fundinn og kynna
hugmyndina að öðru leyti. Siðan
segir í fréttatilkynningu Æsku-
lýðssambandsins: „Föstudaginn
15. maí mótti hin.s vegar lesa í
frétt i Tímanum um áskorun
ungra Framsóknarmanna á unga
Sjálfstæðismenn um kappræðu-
fund sama dag og stjórn ÆSÍ
hafði samíþykkt
Stúdentar í Jóhannesarborg
mótmæla ógnarstjórninni
fund. Framkvæmdastjórn ÆSl
kynnti hugmynd stjórnarinnar
fyrir fulltrúum listanna og hlaut
hún mjög góðar undirtektir. Allt
útlit er þó fyrir að ekki geti orð-
ið af þessum fúmdi, þar sem á-
skorunaraðili hins fundarins telur
sig ekkii gcta breytt fyrri ákvörð-
un. (leturbreyt. blaðsins, en hér
er auðvitað átt við Framsóknar-
menn.) Samt er það von Æsku-
lýðssambands íslands, að unnt
reynist að halda þennan
fund, því að þad væri þá í fyrsta
skipti, þar sem efnt væri til
kappræðufundar ungra i'rambjóð-
enda a£ ölium listum við kosn-
ingar hér í Reykjavik.“
Spurningin er því: tekst Fram-
sóknarmönnum að hindra að
sM'kuir fundur verði haldinn og
af hverju vill Framsókn ekki
leyfa öðrum að hafa rétt til þess
að leggja eitthvað til málaima
meðan Framsóknai’menn sitja á
tali við ihaldið? Hvað á að brugga
á þeirri samkomu?
Wilson rýfur brezka þingið
— nýjar kosningar 18. júní
LONDON 19/5
Wilson íor-
JÖHANNESARBORG 19/5 — í
gær voru um 36f* stúden-tar af
evrópskum ættum handteknir í
Jóhannesarborg í Suður-Afríku,
en þeir höfðu tekið þátf í mót-
því að 2<2 Afríkumenn sem sakað-
jr haf^.yjerið um hrot á lö'gunum
sem banna hermdarverk eru enn
í fangelsi þvert ofan í ákvæði
þessara sömu lag'a.
Stúdentar mótmæltu því að
s(.jórn.arvöldin græfu undan rétt-
arörygginu með framferðí sínu og
fóru þeir í göngu sin.a enda þótt
st .100101-7010 hefðu lagt bann við
henni. Þeir voru frá Witvaters-
rand-háskóla þar sem kennslan
fer firam á enska tun.gu.
Flestir þeirra sem upphaflega
höfðu ætlað í göuguna guggnuðu
liegar fréttist af banni stjómair-
innar, en nokkur hundruð þeirra
héldu ótrauðir í áttina til aðal-
lögreglustöðvar borgairinniar, þar
sem þeir voru handleknir.
Afríkumennirnir 22 voru leidd-
ir fynir rétt fyrir mörgum mán-
Bátur strandar,
mannbjörg varð
Um níuleytið í gærmorgun
strandaði véibáturinn Sfcakkur
VE 37 'í Skógafjöru. Veður var
gott 'er þet.ta gerðist og útfall,
stóð b'átúrinn fjörunni og skip-
verjrir vöru ekki í hættu. Björig-
unarsveitir frá Vík, Hvoisveili
og undan Eyjafjölium komu á
vettvang.
Á síðdegisflóðinu i gær reyndi
lóðsbáturinn í Vestm.annaeyjum
að ná Stakki á flot, en það hafði
ekki tekizt er Þjóðviljinn vissi
siðasl. Vélbáturinn Sbakkuir er
f>6 tonn að stærð.
Fundurí Kven-
félagi sósíalista
Krvenfélag sósialista helduir
fund fimimtudaiginn 21. maí kl.
8.30 í Tryggvagötu 10.
Ásimundur Sigurjónssan flytur
eit'indi.
Félajgsmáll. Kaifit'i.
Félagskopur fjölmenniö og taik-
ið með ykíkur gestí.
uðum og sýknaðir, en er samt
haldið áfram í fangelsi. 1 Suður-
Afríku er heimilt að balda mönn-
um 90 diaga í fangelsi án þess
að á þá séu bomiar sakir eða
þeir leid'dir fyrir dómara.
í dag fréttist að' stúdéritaf við
fjóra háskóla enskumælandi
manna í Suður-Afríku hefðu á-
kveðið að faira í mótmæliagongu
í Jóbannesarborg á morgun,
miðvikudag, gegn bandtökum fé-
laga þeirra í gaer. Vaxandi and-
staða í hópi menntamanna eink-
anlega gegn kynþáttakúguninni
hefur leitfc tii ]iess að stofnað
hefiur verið nýtt stúdentasa-m-
band og er tekið íram að það sé
opið öllum stúdent.um hver sem
litarháttur þeirra er eða stjórn-
máiaskoðanir.
að halda smn ssetásiráðherra Breta tók loks a-f
skarið nú um helgin-a, tilkynnti
þingrof og nýjar kosningar sem
fram fara 18. júní.
Ákvörðun ha ns kom ekkd a
óvart, það hafði fastLega verið
gert ráð fyriir þingkosningum í
Bretilandi í ár, þótt enn sé efitir
eitt ■ ár af kjörtímiabilinu, og á-
stæðan til þess að Wilson kaus
að leggj-a strax út í kosningar
í stað þess að bíða til bausts-
ins er vafalausí sú að í nýaf-
stöðnum sveitar- og bæ-jiar-
stjóirn.akosningum í Englandi
vanri Verkamannaflokikurinn á
og voru það íyrstu sigrar
bans síðan í þingkosningunum
Í96B. Áúik þess sýn® skoðana-
kannanir að mjög hefur dregið
úr fylgistiapi stjómarfiokksins að
undanföirnu og vinsældir Heaths,
leiðtoga íhaldsmianna, baf.a frem-
ur rýrnað en vaxið og voru þó
ekki miklar fyri-r. Verkamanna-
flokkurinn hefur tapað fylgi í
öllum' aukakosningum ti'l þings-
ins á kjörtímabilinu og mörgum
þingsætum, oft með mikium
mun.
Samkvæmt skoðanakönnunum
og útreikningum sem á þeim eru
byggðir eru talinl mikii áhöld
um það hvor hinna ríkjamdii
brezku stj órnm álaf lokka muni
haf-a sigur í þingkosningunum.
Úrslitin kunn.a að velta á tiltölu-
lega fá.um atkvæðum i hinum
svonefndum vafakjördæmum.
Skarst á hol á
flöskubrotum
i' fyrrakvöld slasaðist 15 ára
piltur í Hafnarfiirði lífshættu-
lega. Hafði pilturinn áfengis-
flösku innari á sér og féll í göt-
una eftir að hafa hoppað yfir
vegg. Skarst pilturinn á hol á
flöskubrotunum svo að iðrin láigu
úti að sögn þeirra sem komu þar
að. í gær var pilturinn enn tal-
inn vera í lífsihættu.
Að sögn lögreglunniar var
áfemgið í flöskunni brugg sem
pilturinn og félaigí hans, sem
með bonum var er slysið varð.
höfðu lagað sjálfir.
Heimilið — „Veröld innan veggja"
Fyrsta sýning á varningi til
heimilishalds hef st á morgun
□ Mikið er mi um að vera í Laugardals’höllinni, en þar
er verið að ljúka við undirbúning að mikilli sýningu á
varningi sem varðar bústofnun og rekstur heimila —
nefnist hún „Heimilið — veröld innan veggja“. Sýnendur
eru 143 í % sýningardeildum. Sýningin verður opnuð á
morgun.
Sýningin er haldin á vegum
Kaupsteínuinnar-Reykjavík, sem
hefiur áður haldið stórar sýningar
hérlendivs og annast atþjóðlegt
vörusýningasamstarf. Tilgangur
hennar er að skapa grundvöll
fyrir seljendur og kaupendur
þeirra hluta sem íil heimilis þarf,
og verdur á henni hægt að skoða
flestalla þá vöruflokka sem þar
koma við sögu.
Sem fyrr segir eru sýnendur
143 í 96 sýningardeildum og sér-
sýningum, en margir sýnenda
hafa sameinazt um deildir í því
skyni, að sýna þar einstakar
íbúðai-einingar — heilar stofur,
eldriús osfiv. Sýnendur haía
lagt mikla vinnu í deildir sánar og
reyndar hefiur áhugi hlutaðeig-
andi fyririækja verið þad mi'kill
að gólf Laugardalshallar munu
ekki áður hai'a verið betur nýtt.
Erindaflutningur verður á sýn-
| ingunni á eftirmiddögum, yfir-
leitt kl. hálf fjögur — alils 13
erindi um ýmsa þætti heimilis-
halds — litaval, listiðnað, hús-
gögn, mataræði og margt fleira.
Um 20 skemmtidagsskrár munu
sýndar á skemmtanapalli sýning-
! arinnar á ýmsum tímum dags og
fyrir ýmsa aldursflokka, og svo
„alla íjölskylduna“. Svavar Gests
sér um þennan þátt móia. Veit-
ingasalur verður opinn, og er
haan myndskreyttur rækiilega.
Sýningaratorá flytur mikið efni
um ti'lgang sýningarinnar og þétt-
taikendur hennar; þar er og að
finna stuttar greinar um ýmsa
þætti í heimilisihaldinu og lista
yf'ir þau fyrirtæki sern bjóða fram
vörur til heimilisihalds.
Sem fyrr segir verður sýning-
in opnuð á morgun — kl. 20
fyrir almenning, en viðskipta-
málaráðherra, dr. Gylfi Þ. Gísla-
son, sem er verndari sýningar-
innar mun lýsa hana opna kl. 8.
samdægurs. Þessi fyrsta sýning
sinnar tegundar hérlendis verður
opin til 7. júní kl. 14-22 dag-
lega.
Aðgangseyrir er 75 kr. fyrir
fullordna en 25 kr. fyrir born
6-13 ára.
Sýnin-garstjórn skipa: Haukur
Bjömsson framkvæmdastjóri,
Gísli B. Björnsson teiknari Dg
Ragnar Kjartansson, sem jaifn-
framt er framtovæmdasitjóri sýn-
ingaiinnar.
Aðal-
fundur
Aðalfundur H.f. Eimskipafélags íslands,
verður haldinn í fundarsalnum 1 húsi fé-
lagsins í Reykjavík föstudaginn 22. maí
1970 kl. 13.30.
DAGSKRÁ:
1) Aðalfundarstörf skv. 13. gr. samþykkta
félagsins.
2) Tillögur til breytinga á lögum félagsins
skv. 15. gr. samþykktanna (ef tilögur
koma fram).
3) Önnur mál, löglega borin upp.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir
hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á
skrifstofu félagsins Reykjavík 19.-20. maí.
Reykjavík, 13. marz.
STJÓRNIN.
FJÖLBREYTTUR SÖNGUR
AÐVENTKIRKJAN
í sambandf við aðalfund
S. D. Aöventista verða sam-
komur á hverju kvöldi kl.
8.30 frá miðvikudeginum
20. maí til Iaugardagsins
23. maí.
RÆÐUMENN:
W. Duncan Eva
Bruce Wickwire.
— ALLIR VELKOMNIR.
Tónleikar
Tónleikar í Háskólabíói, fimmtudaginn
21. maí, kl. 7 e.h.
RUSELÖKKA 80 mann hljómsveit
frá Ósló.
H1 jómsveitarst jóri:
Óperusöngkona:
Píanóleikari:
Leikari:
Arne Hermansen.
Astri Herseth.
Káre Siem.
Arne Bang Hansen.
LUÐRAS.VEIT REYKJAYÍKUR.
Duglegur maður
óskast 'til skrifstofu- og afgreiðslustarfa. —
Umsóknir, sem greini aldur, menntun og
starfsreynslu sendist auglýsingastofu
blaðsins merkt: “Júni 1970“.
Vestfirðingamót ó Þingvöllum
á laugardaginn kemur, 23. maí. — Vestfirðingar, fjölmennið ásamt
gestum. Nauðsynlegt að tilkynna þátttöku strax. Áskriftarlistar
hjá Eymundsson og í Söebechsverzlun. — Matur í Valhöll.
Skemmtiatriði og dans. — Skemmtinefndin.