Þjóðviljinn - 20.05.1970, Síða 4
4 SÍÐA — KTÖÐVI1.TTNN — MiMnfeudagur 20. maS 10T0.
— Málgagn sósíalisma, verkalýSshreyfingar og þjóðfrelsis —
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Framkv.stjóri: Eiður Bergmann.
Ritstjórar: fvar H. Jónsson (áb.), Magnús Kjartansson
Sigurður Guðmundsson
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson
Ritstj.fullfrúi: Svavar Gestsson.
Auglýsingastj.: Ólafur 'Jónsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavórðust. 19. Simi 17500
(5 línur). — Áskriftarverð kr. 165.00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 10.00.
Flokkurmn eða fólkið
J stjómmálaumræðum þeim sem orðið haía íyrir
borgars'tjómarkosningarnar í Reykjavík hefur
fátt vakið meiri athygli og andúð alimennings en
sú yfirlýsing Geirs Hallgrímssonar, að hann hafi
engan áhuga á málefnum Reykjavíkur nema Sjálf-
stæðisflokkurinn haldi meirihluta sínum. Á laug-
ardag reyndi Geir að færa þessi ummæli til
betri vegar í viðtali á forsíðu Morgunblaðsins með
því að segja að hann hafi ekki verið að hugsa
um flokkinn sinn heldur traust borgarbúa; hann
vilji aðeins vera borgarstjóri með „beinum stuðn-
ingi Reykvíkinga“ eins og hann orðar það — þ.e.
ef meirihluti borgarbúa greiðir Sjálfstæðisflokkn-
uim atkvæði. Þessi ummæli Geirs Hallgrímssonar
eru ekki sannleikanum samkvæm. I borgarstjóm-
arkosningunum 1966 fékk Sjálfstæðisflokkurinn
18.929 atkvæði en aðrir flokkar samtals 20.061 at-
kvæði. Það vantaði þannig mikið á að um „bein-
án stuðning Reykví'kinga“ væri að ræða. Hins
vegar féllu á annað þúsund atkvæði ónýt vegna
sundrungar, og íhaldið hélt meirihluta í borgar-
stjórn þótt það væri í minnihluta meðal kjós-
enda. Og þá var Geir Hallgrímssyni algerlega
sama um hinn „beina stuðning Reykvíkinga“;
valdakerfi flokksins hélzt óhaggað — það var
eina áhugamál hans.
Kerfí Bjarna og Gylfa
þaS hefur einnig vakið athygli að undanfömu
hvemig Bjami Benediktsson og Gylfi Þ. Gísla-
son hafa skipzt á gagnkvæmuim ástarjátningum.
Bjami hefur varið Gylfa fyrir árásum Morgun-
blaðsins á stjóm menntamála, og Gylfi hefur lýst
yfir því að ekki sé um að ræða raunverulegan
ágreining milli Alþýðuflokksins og Sjálfstæðis-
flokksins á nokkru sviði. Enginn sem þekkir sam-
búð þeirra félaga efast um að þeir eru fyrir löngu
búnir að semja um það að flokkar þeirra taki
sameiginlega að sér stjórn Reykjavíkurborgar,
þegar Sjálfstæðisflokkurinn onissir meirihluta
sinn. Allt tal Morgunblaðsins uim óvissu að kosn-
ingum loknum er því sýndarleikur.
^ðeins eift getur raskað valdaker'fi þeirra Bjarna
og Gylfa, að stjómarflokkarnir báðir fái mjög
alvarlega áminningu í sveitarstjórnarkosningun-
um í vor. Slík úrslit myndu ekki aðeins stokka
upp spilin 1 Reykjavík og öðmm bæjarstjórnum,
heldur hefðu þau áhrif á örlög ríkisstjómarinnar
sem er nú valtari en svo að hún þoli að verða fyr-
ir meiriháttar hnjaski. Kjósendur eiga þess kost
að brjóta sundur valdakerfi Bjama Benediktsson-
ar og Gylfa Þ. Gíslasonar; það er hið mikla tæki-
færi sem býðst um næstu mánaðaimót. — m.
Hann Eyjólfur sundkappi. — Persilstelpan
á Lækjartorgi — „... grátbroslegt
ginningarfífl“.
Fyrst er hér bréf frá Snúllu:
Kaeri Bæjarpóstur.
Ég horfðd nýlega á bá kol-
legana Magnús Kjartanssoji
og Eyjólf Konráð Jónsson
leiða sannan hestai sína í sjón-
varpi. Ég hafði mjög mákið
gagn af bessum þætti, og von-
andd Eyjólfur Konráð Ifka. Ég
á ek'ki ednungis við "þá lexíu,
sem Maignús gaf honum, heJd-
ur einnig að þessi þáttur kann
að hafa varpað nokikru ljósi á
manninn út á við. Þessd sfce-
leggi maður hafur nefnilega,
merkillegit nokfc, verið harla ó-
þefcfcbur meðal landsdns barna.
Nýiega fór fram í einum
menntasfcóla landsins nokk-
urs konar könnun á almiennri
kunnáttu nemendanna og var
m.a. spurt œn, hver viæri Eyj-
ólfur Konráð Jónsson. Og
hverju heldurðu nú, Bæjar-
póstur minn, að þorri bless-
aðra bamanna hafi svarað?
Jú, þau svöruðu, að hann
væri sundkappi.
Snúlla.
Þá hefur Steini þetta að
segja:
Einhvem tíma var á það
mdnnzt í 'Þj'óöviljanum að rétt-
ast mryndi að setja persil’stelp-
una sem prýtt hafðí í áratugi
Lækjartorg fjöHfarnasta stað
Reykjaivíkur, á minjasafn til
miinningar um menningari-
huga meirihluta Sjáifstæðds-
floktosins í bæjarstjóm og
bcrgarstjóm Reyfcjavfkur. Var
á það bent að einhverjum
hedldsaila í ihaldsnáðdnni hefði
verið leyft að hafa þessa ó-
fétisaiuglýsingu á miðju Lækj-
artorgi sem umbun fýnr
framlag hans í flokfcskassann.
Nú er persdltelpan horfin ef
Lækjartorgi og væntaniiega
hefur verið tekið tillit til þess-
arar áibendingar um geymslu
hennar, því átakanlegra daemi
um menningaráihuiga fhaldsiins
og heildsalanna í Reykja.vík
er vandfundið. En þá tók ekki
betra við, því nú hafa verið
endumýjaðar með ferlegum
hætti persálaugllýsingamar á
miðju Lækjartorgi, og ber nú
enn meira en éður á hinum
sérkennilega menningaráihuga
borgaryfirvaldanna og hedld-
salialþjónustu þeirra en nokk'.-u
sinni, meðan stelpan í blakt-
andi kjólnum réði ailvödd yfir
Lækjartorgi.
I tilefni af þessum persil-
auglýsingium í hjairta miðbæj-
arins í Reykjaivi'k þætti efa-
laust ýmsum borgarbúum
gaman að vita þvort hlutað-
eigandi heildsaila og niðjum
hans hafi verið leigt Lækjar-
torg til! 99 ára sem herstöðvar
gegn almenningi og til að aug-
Auglýsing
um aðalskoðun bifreiða í Hafnarfirði og
Gullbringu- og Kjósarsýslu 1970.
Skoðun fer fram sem hér segir:
Gerðahreppur:
Mánudagur 25. maí:
Þriðjudagur 26. maí.
Skoðun fer fram við bamaskólann.
Miðneshreppur:
Miðvikudagur 27. maí.
Fi’mmtudagur 28. maí.'
Skoðun fer fram við Miðnes h.f.
Vatnsleysustrandarhreppur:
Föstudagur 29. maí.
Skoðun fer fra'm við frystihúsið í Vogum.
Njarðvíkur- og Hafnahreppur:
Mánudagur 1. jiini.
Þriðjudagur 2. júní.
Skoðun fer fram við samkomuhúsið Stapa.
Grindavíkurhreppur:
; Miðvikudagur 3. júní.
Fimmtudagur 4. júní.
Skoðun fer fram við bamasikólann.
Mosfells-, Kjalames- og Kjósarhreppur:
Föstudagur 5. júní.
Mánudagur 8. júní.
Þriðjudagur 9. júní.
Miðvikudagur 10. júní.
Skoðun fer fram við Hlégarð, Mosfellssveit.
Seltjarnameshreppur
Fimmtudagur 11. júní.
Föstudagur 12. júní.
Skoðun fer fram við íþróttahúsið.
Hafnarfjörður, Garða- og Bessastaðahreppur:
Mánudagur 22. júní G- 1 ■ - 200
Þriðjudagur 23. júní G- 201 ■ - 400
Miðvikudagur 24. júní G- 401 ■ - 600
Fimmtudagur 25. júní G- 601 ■ - 800
Föstudagur 26. júní G- 801 ■ - 1000
Mánudagur 29. júní G-1001 - ■ 1200
Þriðjudagur 30. 'júní G-1201 ■ - 1400
Miðvikudagur 1. júlí G-1401 ■ - 1600
Fimmtudagur 2. júlí G-1601 ■ ■ 1800
Föstudagur 3. júlí G-1801 - ■ 2000
Mánudagur 6. júlí G-2001 ■ - 2200
lýsa þvottaefnið sitt. Hver
hefur gert þamn samning £yr-
ir borgarinnar hönd og hvað
hefur verið greitt fyrir þetta
einstæða og hneykslanlega
auglýsingastæði í áratugi?
Myndi eklki vera hægt að
losna við þann leiðindasaimn-
ing Sjálfstæðdsfllokksins við
einhvem gasðdng sinn með því
að geifa hlutaðeigandi heild-
sala einkarótt á þivi að laibba
uim Lækjairtong svo sem tvo
tilma á dag með auglýsinga-
spjöld í bak og fyrir, en hlífa
borgairbúuim við að þurfa að
blygðast sín fyrir smekkleysi
persdlstráksins á miðju torg-
inu? Hvemig væri að ein lítil
nefnd yröi skipuð til þess að
gera tillögur um frágang
Lækj artorgs, þainnig að það
minnti síður á smábæ í Afr-
íku, þar sem svona persilaug-
lýsdngar þykja tilvalin borgar-
prýði?
Þessurn tillögum er hér með
komið á framfæri við borgar-
yfirvöldin og vonandi athugar
hún sérstaklega hvort ekki er
hægt að blíðka heildsalann lil
að láta Lækjairtorg laust und-
an persil ef harur fengi að
ganga þar með auiglýsinga-
spjöldin sín í bak og fyrir.
Sú auiglýsing yrði miklu é-
hrifameiri, vegna hreyfingar-
innar, því hinar eru alltaf
kyrrar og hedmamenn hætta
kánnski að sjá þær, þótt þessi
sérkennilega borgarskreyting
sé mdkið augnayndi aðfcomu-
fólki og þyki talandi vottur
um menningarstig borgarbúa,
eða að minnsta kosti um and-
legt ástand borgaryfirvaldanna
og heildsalastéttarinnar í R-
vík.
Steini.
Og að Jofcum þetta bréf. ■ '
Ég hlustaði á útvarp frá
alþingi nýlega, undir raéðu
Gylfa Þ. Gíslasonar kom mér
í huig vísa, sem varð til fyrir
nokfcrum ámm. Hún ersvona:
Þar var eátt grátbnosiegt
ginningarfífl,
Gylfi kvað heita það
menningar vífl, -
er stóð upp í öskunni
kolbrunnið kurl
kunnastur fyrir sitt orðræðu..,
nuri.
Vifl var tréhnallur sem not-
aður var til þess að berja að-
alUega sokkaplögg. öðruin
. nöfnum nefnt Klappa eða
KIöpp.
En með ræðu sinni á al-,
þingi núna hefur hann brenpt
af sér síðustti leifar ,þe$s
trausts, sem íslenzka þjóðin
bar til hans.
30
Þriðjudagur 7. júlí G-2201 ■ - 2400
Miðvikudagur 8. júlí G-2401 ■ - 2600
Fimmt-udagur 9. júlí G-2601 • - 2800
Föstudagur 10. júlí G-2801 ■ - 3000
Mánudagur 13. júlí G-3001 - ■ 3200
Þriðjudagur 14. júlí G-3201 ■ - 3400
Miðvikudagur 15. júlí G-3401 ■ - 3600
Fimmtudagur 16. ’júlí G-3601 • - 3MI'
Föstudagur 17. júlí G-3801 ■ - 4000
Mánudagur 20. júlí G-4001 • - 4200
■Þriðjudagur 21. júlí G-4201 ■ - 4400
Miðvikudagur 22. júlí G-4401 ■ - 4600
Fim’.ntudagur 23. júlí G-4601 ■ - 4800
Föstudagur 24. júlí G-4800
og þar yfir.
Skoðun, fer fram við bifreiðaeftiríitið
Suðurgötu 8.
Skoðaö er frá kl. 9-12 og 13-17 á öllufn áðumefnd-
um skoðunarstöðum.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiða leggja fram
fullgild ökusfcírteini. — Sýna ber skilrífci fyrir bví,
að Ijósatæki hafa verið stillt. að bifreiðaskattur og
vátryggingariðgjald ökumanna fyrir árið 1970 séu
greidd og lögboðin vátrygging fyrir hverja bifreið
sé í gildi. 'Hafi gjöld þessi ekki verið greidd eða
ljósatæki stillt, verður skoðun ekki framkvæmd og
bifreiðin stöðvuð, þar til gjöldin eru greidd. Gjöld
af viðtækjum í bifreiðum skulu greidd við skoðun.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðun-
ar á réttum degi, verður hann látinn sæta sektum
samkvæmt umferðarlögum og lögum um bifreiða-
skatt og bifreiðin tekin úr umferð. hvar sem til
hennar næst. — Geti bifreiðareigandi eða umráða-
maður bifreiðar ekki fært hana til skoðunar á áður
auglýstum tíma, ber honum að tilkynna það
bréflega. •
Athygli skal vakin á því, að umdæmismerki bif-
reiða skulu vera læsileg og ber því þeim, er
þurfa að endúrnýja númeraspjöld bifreiða sinna
að gera það nú þegar.
Eigendur reiðhjóla með hjálparvél eru sér-
staklega áminntir um að faera reiðhjól sín
til skoðunar.
Þetta tilkynnist hér með öllum, sem hlut eiga að
máli.
.Bæjarfógétinn í Hafnarfirði. sýslumaðurinn
í Gullbrinsu- og Kjósarsýslu,
15. maí 1970.
EINAR INGIMUNDARSON.