Þjóðviljinn - 20.05.1970, Blaðsíða 5
*
MíðvTteudagua- 20. imtó 1970 — ÞJÓÐVTLJlífN — SÍÐA §
Meistarakeppni KSf: ÍBK — IBA 2:0 Áhorfendur 2000.
Knattspyrnan varð að lúta í
lægra haldi fyrír hörkunni
Keflvíkingar unnu tvo síðustu leikina og þar með Meistarakeppnina
□ ÍBK varð sigurvegari í Meistarakeppni KSÍ, eftir
að lið þess sigraði Akureyrin'ga 2:0 í síðasta leik keppn-
irmar, sem fram fór í Keflavik sl. mánudag. ÍBK vann
einriig leikinn, sem fnarm fór á Akureyri sl. laugardag 2:1
og h'laut því 5 stig úr keppninni en ÍBA 3
í leiknum í Keflaivík varð
knattspyman að lúta í lægra
haldi fyrir hörbunni. Það litla
sem sást af knattspyrnu í leikn-
um kom frá Akureyringum, en
harka og á stundum ruddaskap-
ur Keflvíkinga mátti sín meira
og þeir sigruðu 2:0. Keflvíking-
amir komust upp með þessa
hörku og ruddaskap í skjóli
alltof vægs dómara, sem gerði
engar athugasemdir, jafnvel þ"tt
leikmenn ÍBK reyndu á stund-
um áð sparka í fætur andstæð-
inganna eftir að boltinn var far-
inn frá þeim. Einstakir leik-
menn í ÍBK liðinu hafa í of
lengan tíma komizt .upp imeð
þetta, og það er sannarlega kom-
inn timi til að dómarar fari að
taka í taumana, áður en slys
hlýzt af, enda á framferði þeirra
ekkert skylt við knattspymu.
Menn eins og G-rétar Magnús-
son, Steinar Jóhannsson og Sig-
urður Albertisson, sem að vísu
var efcki með í þessum leik,
verða að læra það, að framferði
þeirra á veliirbum á oft á tíðum
ekkert skylt við knattspyrnu og
það er dómarans að kenna þeim
það, fyrst þjálfarinn gerir það
ekki.
Akureyrinigar voru mun nær
þvi að skora allan fyrri hálfleik,
þvi sóknir þeirra vt>ru mun
hættulegri en Keflvíkinganna,
en einhvern veginn vantaði allt-
af herzlumuninn á hverja sókn-
arlotu. Hvorugt liðið átti nein
dauðafæri í hálfleiknum, og
maður var farinn að halda að
ekkert yrði skorað fyrir leikhlé,
þegar Grétar Magnúsison fékk
allt í einu boltann á vítateigs-
línu, óvaldaður, og skot hans var
algerlega éverjandi fyrir Samúel
Gústafsson markvörð ÍBA. Það
liðu svo ekki nema 3 mínútur
þar til Birgir Einarsson, áður
leikmaður Vals, hljóp IBA-
vömina alf sér og skaut af
nókkuð löngu færi og skoraði.
Af áhorfendapöllunum séð,
fannst manni Samúel eiga að
geta varið þetta skot, en hann
UTBOÐ
Tilboð óskast í að byggja bama- og ang-
lingaskólans á Blönduósi.
Verkið er boðið út í þrennu lagi:
a) Almenn byggingarvinna, þ.e. að
steypa upp húsið og ganga frá því
„til'búnu undir tréverk“.
b) Hita- loftræstikerfi og hreinlætis-
laignir.
c) Baflagnir.
Útboðsgagna má vitja á skrifstofu sveitar-
stjórans á Blönduósi eða hjá Arkitektastof-
unni s/f Álftamýri 9 Reykjavík gegn 2000
kr. skila'tryggingu.
Bygginganefnd skólans.
gerði enga tilraun til vamar.
Þar með höfðu ÍBK leikmenn-
imir náð 2ja marka forustu á
3 rmmútum og sannarlega var
það gott vegamesti í leikhléið.
Það var eins og Akureyring-
arnir misstu eitthvað af móði
símuim við mörkin og sókn þeirra
varð aldrei jafn þung í siðari
hálfleik og þeim fyrri. Þar að
auki gierðu þeir edna mjög mikla
skyssu. I stað þess að nota út-
herjana vel, þar sem ÍBK hefur
heldur slaka bakverði, sóttu
Akureyringarnir sífellt inn miðj-
una, þar sem til vamar voru
landsliðsmiðherjarnir báðir Ein-
ar Gunnarsson og Guðni Kjart-
ansson og auðveldaði bessi mein-
loka IBA þeim mjög vömina,
enda áttu Akureyringar ekki
teljandi marktækifæri í síðari
hálfleik. Keflvíkingamir lögðu
alla á'herzlu á að verjast og
halda fengnu fonskoti svo sóknir
þeirra voru aldrei þungar, og
lauk leiknum þvi með 2:0 sigri
IBK, sigri sem að mínum dómi
var ekki sanngjam, eða í það
minnsta of stór.
Bæði þessi lið verða greini-
lega í' toppbaráttunni í sumar.
Þau em að vísu gerólík. en góð
hvort á sinn máta. Keflviking-
amir leika mjög fast og á stund-
um ruddalega. Gegn liði, sem
lætur boltann ganga, dugir þessi
harjja þeirra ejcki,. því þá fá
þeir ekki tækifæri til að fara
í andstæðingana eins og þeir
gerðu í þessum leik. Akureyr-
ingamir aftur á móti reyna að
leika saman, en það vill oft mis-
farast sérstaklega fyrir það, hve®>.
leikmennirnár em seinir að gefa
boltann frá sér og var hann of
oft tekinn af tónum á þeim. En
greinilegt er samt, að liðið getur
leikið áférðanfallega knatt-
spyrnu og er til aills lfklegt í
sumar.
Démairi í leiknum var Einar
Hjartarson og það,var ekki hon-
um að þakka að leikurinn leyst-
Nýkomið
Óryggisgler í bíla (belgískt), þrjár teg-
undir, hamrað gler. — Einnig litað gler 2ja
— 3ja, — 4ra og 5 mm, tékkneskt og belg-
ískt, fyrirliggjandi.
GLERSALAN OG SPEGLAGERWN
Ármúla 20, sími 30760.
Völkswageneigendur
Höfum fyrirliggiandi Bretti - Hurðir — Vélarlok —
Geymslulok á Volkswagen í allflestum litum. Skiptum á
etnum degi með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð —
REYNIÐ VTÐSKIPTIN
Bílasprautun Garðars Sigmundssonar,
Skipholti 25. — Sími 19099 og 20988.
Samtök sundþjálfara
Þorsteinn Ólafsson markvörður
IBK stóð sig mjög vel.
ist ekki upp í slagsmál, heldur
kjarkleysi Akureyringa við að
taka á móti mddaskap einstakra
leikmanna IBK. Þar á ofanj
bættist, að Einari varð á ein
mjög slæm skyssa þegar hann
sleppti vitaspymu á IBK, þegar
Einar Gúnnarsson sló' boltann
frá sér með höndunum innan
vítateigs í síðar hálfleik. Svona
skyssa hefði ég haldið að henti
ekki jafn reyndan dómara og
Einar Hjartarson. — S.dór.
Fundur á vegum
FRf í kvöld
Stjóm B'rjálsíþróttasambands
Isilands gengst fyrir fundi með
þvá fþróttafólki, sem valið var
tíl sérstakra æfinigia á vegum
samibandisins s. 1. vetur.
Fundurinn verðuir haldinn í
kvöld, miðvifcudaig, kl. 20.30 í
Tjamarbúð uppi. Rætt verður
um sumarstarfið yfir góðum
veátingum. — Stjóm FRl.
Svona getur
það verið
bað hefur stundum verið
sagt, að allt getl gerzt í
knattspymu og vist er það
satt og rétt. Eöngum hefur
verið talað ium álög á Fram-
liðinu í knattspymu við að
geta ekki skorað mörk. I
Reykjavíkurmótinu scm nú
stendur yfir hefur Pram
leikið 3 leiki, hlotið 4 stig,
en ekki skorað nemai 1
mark. Þetta eina mark
skoraði Fram »ir vitaspymu,
sem dæmd var á einhent-
an Ieikmann í Víkingslið-
inu og á þá höndina sem
ekki er til. Segi menn svo
að allt geti ekki gerzt f
knattspymu. >— S.dór.
BreiðaMik vann
Einn leikuir fór fram i Eitlu
bikarkeppninni um siðustu helgi,
mættust þá Breiðablik og ÍA i
Kópavogi. Svo fóru leikar að
Breiðalbilik vann 2:1. Meðan á
leiknum stóð var ctfspymurok
allt að 10 vindstig og stóð á
annað marlkið. Að sjálfsögðu
sótti það liðið látlaust sem und-
an rokinu lék en það var
Breiðablik í fyrri hálfleik og
skoruðu þeir þá sín mörk.
Skagamenn sóttu án afláts í síð-
ari hólfleik en gekk illa að:
hemja boltann og hafnaði aðeins
eitt skot þeirra í markinu, hin
fóru filest öll yfir. Nú er aðeins
einn leikur eftir í Litlu Bikar-
keppninni og mæta þá Skaga-
menn IBK, og nsegir þeim fyrr
nefndu jafntófli til sigurs i
keppninni.
Víkingur vann
Þrótt 7:t
Reykjavikurmótinu i
knattspymu var haldið
áfram sl. má nudagskvöld
og léku þá Vikingur og
Þróttur. Svo fóru lei'kar að
Víkdnigur vann með yfir-
burðum eða 7:1 í hálflleik
var staðan 4:0, og virðist
ætla að rætast sú spá
manna að Víkingamir veröi
til alls vísir í komandi Is-
landsmóti. Þeir hafá nú
hlotið 7 stig útúr Reykja-
víkurmótinu og lokið leikj-
um sinurn. Aðeins Fram
getur hlotið fleiri stig með
því að vinna þá tvo lei’ki
sem það á eftir, en Fram
hefur nú 4 stig.
1 september 1968 komu nokkr-
ir sundþjálfarar saman til fund-
ar, til þess að ræða um stofn-
un félagsskapar fyrir sundþjálf-
ara og áhugamenn um sund.
1 september 1969 var svo’ þessi
félagsskapur formlega stofnaður
og hlaut nafnið Samtök sund-
þjálfara (SSÞ). Stofnendur voru
37 þjálfarar og áhugamenn um
sund Nú eru félagsmenn 40 frá
öllum landshlutum.
1 lögum samtakanna segir að
tilgangur þeirra sé að efila
menntun, þekkingu og fá tæki-
færi til þess að fylgjast með
nýjungum í sundþjálfun, og að
efila kynningu og samstarf sund-
þjálfara í landinu. Markmiði
þessu hyggjast samtökin ná m
a. með fundahöldum, útgáffu-
starfsemi o. fll.
Til þessa hafa komið út á veg-
um samtakanna 4 fréttabréf, en
í ráði er að 6 komi út á þessu
ári og er fyrsta fréttabréf bessa
árgangs nýkomið út. Stærð
fréttabréfanna er frá 3—8 fjöl-
ritaðar síður og meðal efnis hef-
ur verið: Myndaseríur með
skýringum um skriðsund og
bringusund, skrá y£ir fáanlegar
bæku-r, tímarit og kvikmyndir
um sund, grein um bréfakeppni
í sundi, grein um skipulagningu
ársþjálfunar fyrir sundfólk,
frétt-ir af stofnfundinum og fé-
laigsmannatal.
Samtök þessi eru ekki ein-
ungis ætluð starfandi sundþjálf-
urum, heldur og öllum sem
áihuga hafa á sundþjálfun og
sundíþróttinni og vilja gjaman
fylgjast með nýjungum á þvi
sviði t- d. sundkennarar Oig fór-
ustumenn félaga.
Þeir sem áhuga hafa á þvi að
gerast félagsmenn i samtökun-
um geta haft samband við ein-
hvern stjómarmanna samtak-
anna og fá þá send öll fréttabréf
þess árs, sem þeir gerast með-
limir á. Fréttabréf fyrri ára eru
seld á kr. 25.00 stk. Ársgjald
samtakanna er kr. 200.00.
Stjóm samtakanna skipa:
Guðmundur Þ. Harðarson,
Hörðalandi 20, Reykjavik, form.
Hörður Óskarsson, c/o Sund-
laug Selfoss, Selfossi.
Erlingur Þ. Jóhannsson, c/o
Sundlaug Vesturbæjar, Hoísv.g.,
Reykjavik.
(Frá Samtökum sundþjalfara).
BÍLLINN
BÍLASKOÐUN & STILLING
Skúlagöfu 32
MOTORSTILLINGAR
HJÚLASTILLINOAR LJÚSASTILLINGAR Sjrni
Látið stilla i tíma.
Fljóf og örugg þjónusta.
13-10 0
Hemlaviðgerðir
■ Rennum bremsuskálar.
■ Slípum bremsudælur.
■ Límum á bremsuborða.
Hemlastilling hf.
Súðarvogi 14. — Simi 301 35.
(gniinental
ONNUMST ALLAR
VIÐGERÐIR Á
DRÁTTARVÉLA
HJÓLBÖRÐUM
Sjóðum einnig í
stóra hjólbarða af
jarðvinnslutækjum
SENDUM UM ALLT LAND
GÚMMÍVINNUSTOFAN HF.
SKIPHOLTI 35 REYKJAVÍK
SÍMI 31055
Auglýsingasíminn er 17 500
ÞJÓÐVILJINN
I
i
i