Þjóðviljinn - 02.06.1970, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 02.06.1970, Blaðsíða 4
4 síða — Kró&VHJIHTN — í>riðju<aia.gur 2. júni 1970. —- Málgagn sósialisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis — Qtgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Framkv.stjóri; Eiður Bergmann. Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb.), Magnús Kjartansson Sigurður Guðmundsson Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson Ritstj.fulltrúi: Svavar Gestsson. Auglýsingastj.: Ölafur iónsson. Ritstjórn, afgreiðsia, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19. Simi 17500 (5 línur). — Áskriftarverð kr. 165.00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 10.00. Úrslitin í Reykjavík j^ínn mikilvægasti þáttur borgarstjórnarkosning- anna í Reykjavík var að þar var tekizt á um framtíð vinstri hreyfingar á íslandi. Tveimur klofningslistum var stefnt gegn Alþýðubandalag- inu, og þau framboð voru ekki sízt hættuleg vegna þess að þau stuðluðu að trúleysi og óhug meðal vinstrimanna. Því voru þessar kosningar mjög ör- lagarík eldskírn fyrir Alþýðubandalagið; á þao reyndi í verki hvort þessi nýju samtök væru verk- efnum sínum vaxin. Úrslit kosninganna hafa nú skorið úr um þetta álitamál á eftirminnilegan hátt. Alþýðubandalagið í Reykjkavík hefur bætt við ^ig 1744 atkvæðum frá þingkosningunum 1967, og enginn dregur lengur í efa að það er forustuflokk- ur vinstrimanna og launafólks. Sú sundrung vinstrimanna, sem spáð hafði verið, birtist í stað- inn sem mikill glundroði innan Alþýðuflokksins- sá flokkur hefur á þremur árum tapað yfir 2.500 atkvæðum. Þessi árangur Alþýðubandalagsins er ein mikilvægasta staðreyndin sem kosningarnar hafa leitt í ljós; eftir óvissu sem valdið hefur sam- tökunum tjóni blasa nú við mjög ótvíræð sóknar- færi. Þjóðviljinn samfagnar Alþýðubandalags- mönnum með þennan mikilvæga árangur. ý^f kosningaúrslitunum í höfuðborginni má einn- ig draga margar aðrar ályktanir. Nú eins og áður færðu vinstrimenn Sjálfstæðisflokknum sig- urinn á silfurbakka með sundrung sinni. Því valda ekki aðeins nær 2.000 atkvæði sem falla dauð og ógild, heldur fyrst og fremst sú óvissa og van- trú sem sundrungin veldur. Slíkan óvinafagnað mega vinstrimenn ekki leyfa sér framar, vilji þeir ná árangri verða þeir að temja sér þá stefnufestu að vinna saman þrátt fyrir minniháttar ágreinings- efni. Það ætti einnig að vera mönnum ærið íhug- unarefni að enda þótt K-listinn fengi makleg málagjöld í kosningunum, nægðu þau fáu atkvæði sem hann fékk til þess að fella Guðmund J. Guð- mundsson, varaformann Dagsbrúnar. Af slíkri reynslu ber mönnum að læra, og það ætti að vera þeim mun auðveldara sem nú verður ekki lengur um það deilt hvar forustuafl vinstrimanna er að finna. J]n þrátt fyrir sundrung urðu kosningarnar í Reykjavík mjög mikið áfall fyrir stjórnarstefnuna. Stjórnarflokkarnir báðir töpuðu fylgi hlutfallslega, og hjá Alþýðuflokknum var um hrun að ræða. Það er vafalaust rétt mat hjá eina borgarfulltrúa Al- þýðuflokksins í Reykjavík, að í þeim úrslitum birt- ist reiði vegna stjórnarsámstarfsins. Því eru allar horfur á því að í kosningunum hafi sá árangur náðst að stjórnarsamvinnan liðist í sundur á næstunni. Ef svo fer geta alþingiskosningar orðið þegar á þessu hausti. Alþýðubandalagsfólk um land allt þarf án tafar að búa sig undir þau átök; úrslit sveitarstjórn- arkosninganna í Reykjavík og víða um land hafa orðið mönnum gott veganesti til myndarlegrar sókn- ar. — m. Sjötugur í dag Arnór Krístjánsson Sæll og blessa&ur frændi vor! Kveð.iunm varð ég að stela frá þér. Eldci get ég annað en skrif- að þér á svona stórafmæli, svo góð sem samskipti okkar hafa verið og þdn við flesta menn. Kannski hefur fólki varla dottið í hug 'að þessi skinn- lausi hnoðri sem fæddist í Holti fyrir 70 árum, yrði langlífur. Ekki sízt þar sem þið. voruð tveir bræður sem skiptuð á milli ykkar „lífsneistanum". Allar slíkar hugimyndir hafa verið eðlilegar á þeirri tíð, þeg- er ekki var annað tiltækt, en velta skinnveikum hnoðrum upp úr kartöflumjöli. En.þrátt fyr- ir þessa byrjun hefur húðin á Nóra dugað eins vel og ann- arra húð og vel það. Og önd- in sem veik blakti í vitum þér 1 byrjun hefur á 70 ára bar- áttuferli framkallað margan hressilegan gust við ýmis tæki- færi. Og sjálfsagt veit ég ekki nema lítið um það. Ég held að fyrsta ljósa minning mín um þig sé síðan þú keyptir skíðin handa mér. Pau' kostuðu 15 krónur eða var ekki svo? Pabbi VIPPU - BliSKÚRSHURÐIN Lagerstærðir miðað við múrop: Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm - 210 - x - 270sm Aðrar stærðir ..spníðaðar eftir beiðni. gluggasmiðjan Síðumúja 12 - SifT.i 38220 ætlaði að biðja þig að kaupa þau þegar þú færir suður, ef ég yrði góður þegar botnlanginn væri tekinn úr mér. Allt geikk samkvæmt áætlun. Þú gerðir þitt og ég mitt. Kannski varstu að fara á Alþýðusambandsþing og kannski var það þá sem þú ræddir við Sæmund á fjórum fótum, þannig, að enn lifir í manna minnum. Þú hefur semsé verið meira gefinn fyrir að ganiga upprétt- ur. Svo man ég að þegar þu áttir heima í Steinholti kom ég stundum, og þar sá ég mikils- háttar „Fróðárundur" sem var skúta uppi á vegg. Síðan fara minningar að skýrast. Manstu þegar þú passaðir okkur Möllu, þegar mamma og pabbi fóru á samkomur? Þá lágum við kannski á eldhúsgólfinu og prt- um og sungurn jafmharðan. Þá var Ifka hlegið gríðarlega. Má- ski hefur þetta ekki verið veru- ske hefur þetta ekki verið veru- lega dýrt kveðið, enda efnis- meðferð og form í frjálslegra lagi. Ég man sumt af þessu ennþá. Við skulurn rifja þetta upp þegar þú verður áttræður. Svo rérum við á Grími með Þormóði. Þá sungum við alltaf: „Sjá, hin ungboma tíð‘“, meðan við vorum að draga fyrsta fyr- ið á morgnana. Síðan kom lín- an. Stundum var fallegur þorsk- ur en stundum var „hlýrinn" allsráðandi. Þá fékkstu mér gogginn og hlóst svo að slagnum þegar ég, þessi erkiklaufi, barð- ist hatrammri baráttu við þenn- an fjöruga fisfc. Þetta endaði venjulega með því að ég festi gogginn í síðuinni og allt varð stopp. Annars var þetta dálítið undarlegt; þó þú stæðir með bitlausan gogg og virtist ekki hafa neitt að gera. gat fiskurinn hrúgazt innfyrir. En þégar þú hafðir mest að gera léztú: mig vita, að ekki væri sama hver héldi á ,,prikinu“. Gaman væri að geta opnað fyrir sér fortíðina og séð ým- B.S.f. bendir á: Að marggefnu tilefni, er því beint til farþega méð öll- um áætlunarbifreiðum, að mæta hér á stöðinni eigi síðar en 15 mínútum fyrir auglýstan brottfarartíma, og afhenda þá þegar farangur sinn, sem verður að vera greinilega merktur, því annars verða tafir við af- hendingu hans á ákvörðunarstað. Ath.: Mætið 15 mínútum fyrir brottför. Merkið farangur greinilega. BIFREIÐASTÖÐ ÍSLANDS, sími 22300. Tiikynning frá samræmingarnefnd gagnfræðaprófs Sjúkrapróf samræmds gagnfræðaprófs vorið 1ð70 fara fram sem hér segir: Fimmtudagur 4. júní (slenzka II Föstudagur' 5. júní Danska Laugardagur 6. júní Islenzka 1 Mánudagur 8. júní Stærðfræði Þriðjudagur 9, -júní Enska Prófin hefjast alla daga kl. 9.00 f.h. Prófað í Reykjavík í Gagnfræðaskóla Austurþæjar og á Akureyri í Gagnfræðaskóla Akureyrar. Samræmingarnefnd gagnfræðaprófs. islegt sem á daga þína hefur drifið. Þar mætti kannski líta mann sem stendur uppi í ræðu- stól á flokksiþingi og tal- ar Hann talar þannig að þingheimur er í góðu skapi og hláturinn glymur um sal- inn. Störfin verða léttari. Svo mætti kannski gægjast inn á Alþýðusambandsþing og sjá eitthvað svipað. Þar hefur íhald- ið kannski haft dágóðan byr t»g sósíalistar átt í vök að verj- ast. Þá er eins víst, að Nóri lesi þeim pistilinn þar til tafl- ið hefur snúizt við. Þe.ssu næst vildi ég eiga þess kost að sjá þá tíð þegar þú varst formað- ur Verkamannafélags Húsavik- ur. Kannski man það félag ekki „sinn fífil fegri“. 1 þessu sambandi . vildi ég þakika þér fyrir ræðuha sem bú fluttir þar á félagsfundi eftir marz-verkfallið ’68. Hún var um það, að menn skyldu bera virð- ingu fyrir verkalýðshreyfing- unni og yrðu að skilja henn- ar samtakamátt. Þennan mátt finna menn vonandi á þessu vori, þeir sem ekki hafa fundið hann áður. Það verður þessi máttur sem hrist- ir klafann af öllu laumafólki og færir því þann sess sem því ber. Fyrr verður ekki hægt að lifa menningariífi á íslandi. Ég er að meina menningariíf sém ekki kafnar undir nalfni. Þú manst að við sungurn forðum „Sjá, hin ungbocma tið“. Þeg- ar ég kem norður í sumar skul- um við taka lagið hraustlega. Hvað við syngjum þá er eng- inn vafi. Sigurður Pálsson. Umferðarfræðsla 5 og 6 ára barna í Reykjavik Lögreglan og Umferðarnefnd Reykjavíkur í sam- vinnu við Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur efna til um- ferðarfræðslu fyrir 5 og 6 ára börn í Reykjavík. Hvert barn á þess kost að mæta tvisvar, klukkustund í hvort skipti. Sýnt verður brúðuleikhús og kvikmynd, auk þess sem börnin munu fá verkefnaspjöld-og.— eru þau beðin að koma með liti. Fr.æðslan fer fram sem hér segir: 3.^-4. júní 6 ára börn. 5 ára börn. Melaskóli 11.00 Vesturbæjarskóli 14.00 16.00 5. og 8. júní. - Austurbæjarskóli 09.30 11.00 Hlíðaskóli 14.00 16.00 9.—10. júní. Álftamýrarskóli 09.30 11.00 Hvassaleitisskóli 16.00 11.—12. júní. Breiðagerðisskóli .... 09.30 11.00 Breiðholtsskóli 14.00 16.00 15.—16. júní. Árbæjarskóli 09.30 11.00 Vogaskóli 14.00 16.00 18.—19. júní. Langholtsskóli 09.30 11.00 Laugarnesskóli 14.00 16.00 Foreldrar eru vinsamlega beðnir að sjá um að börn- unum verði fylgt í skólann. Lögreglan. Umferðarnefnd Reykjavíkur. Sjákrapróf Sjúkrapróf landsprófs miðékóla fara fram dagana 3.—9. júní. Próftafla hefur verið send til skólana. LANDSPRÓFSNEFND. Lokað eftir hádegi í dag vegna jarðarfarar. Iðnaðarmálastofnun islands.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.