Þjóðviljinn - 02.06.1970, Blaðsíða 6
g SlÐÁ — ÍÞOT^vmJINTT — Þtiðjusdagur 2. jöní 1970.
'V-
s mM S!HÉ
|p* w Í
M|||| JjT
lána, sem flyzt úr aðalbanka,
og Austurbæjarútibú, sem um
langt skeið hefur starfað í húsi
Tryggingarstofmmar rikisins
að Laugavegi 114, en þessar
deildir báðar verða í hinum
rúmgóða afgreiðslusal á fyrstu
hæð, en þar er ennfremur gert
ráð fyrir afgreiðslu gjaldeyris-
deildar bankans, sem væntan-
lega tekur til starfa á naastunni,
og verður það nýmæli í starf-
semi Búnaðarbankans. Af-
greiðslusalurinn er um 300 ferm.
að flatarmáli auk rúmgóðrar
forstotfu. 1 austurenda er hvelf-
ing með um 1100 geymslubólf-
um, sem leigð verða viðskipta-
mönnum bankans.
Svavar Guðnason listmálari
hefur gert stórt málverk, sem
hangir á suðurvegg í aifgreiðslu-
sal.
1 kjallara undir afgreiðslusal
er aðalskj a lageymsl a Búnaðar-
banbans en skjöl bankans, sem
orðin eru mikil að vöxtum,
hafa verið geymd á ýmsum
stöðum i borginni sökum rúm-
leysis til mikils baga.
Á annarri hæð verða skrif-
stofur endurslkoðunardeildar,
gjaldeyrisdeildar og viðtaisher-
bergi. Þriðja hæð hefur verið
leigð fynst um sinn, en á fjórðu
hæð er Teiknistofa landbúnað-
arins og skrifstofur Landnáms
rfkisins, sem áður voru til húsa
í Búnaðarbankanum við Aust-
urstræti bg Hafnarstræti. Loks
hefur útbygging við Rauðarár-
stíg verið leigð Póst-. og sírna-
málastjóminni fyric Pósthús
Austurbæjar, sem þegar hefur
opnað þar rúmgóða afgreiðslu.
Greiðfært er í húsið fyrir við-
skiptamenn af bílastasðum við
Hlemm (aðaldyr), frá Rauðarár-
stíg og bakdyr af bílastæðum við
Þverholt Næturfiólf viðskipta-
manna er í austurenda út að
Hlemmi.
Stærsfa
útibúið
Með þessu nýja húsnæði er
fyrst og fremst séð fyrir þörfum
Austurbaejarútibús bankans, en
um leið rýmkað um aðrar deild-
ir aðalbankans í miðbænum,
sem er fyrir löngu þéttsetinn.
Austurbæjarútibú er langstærsta
útibú bankans, en velta þess
var á s. 1. ári rúmir 23 miljarð-
ar króna og spariisjóðs- og
hlaupareikningar um 14 þúsund
að tölu, enda var svo komið, að
þröngur húsakostur torveldaði
orðið eðliiega starfsemi og
greiða þjónustu. Austurbæjar-
útibú tók til starfa á árinu 1948.
Með bankahúsinu við Hlemm
eru leyst húsnæðisvandræði
Búnaðarbankans og jafntframt
gert hæfilegt ráð fyrir aukinni
húsnæðisþörf á næstu árum á
sama hátt og gert var méð
smiði aðalbankans við Austur-
stræti fyrir 22 árum.
(Frá Búnaðarbankanum).
Búnaðarbankahúsið nýja við lllcmmtorg.
Húsmæðraskólinn á Hallormsstað:
Nýja Búnaðarbankahúsið vlð
Hlemm í Reykjavík var forrn-
lega tekið í notkun föstudaginn
29. maí. Húsið er fjórar hæðir
og geymslukjallari, 360 ferm. að
grunnfleti, auk viðbyggingar við
Rauðár'árstig, sem er 180 ferm.,
ein hæð og kjallari. Á
þaki er lítill fundarsalur. Húsið
er allt 8262 teningsmetrar og
stendur á reit, sem afmarkast af
Rauðarárstíg, Hlemmi, Þverholti
og Stakkholti, eða upphaflega
7 lóðum, samtals 3000 ferm.
Bílastæði eru 70—80 á allar
hliðar hússins.
Teikningar að húsinu gerðu
Gunnar Hansson og Magnús
Guðmundsson arkitektar, verk-
fræðiteikningar annaðist skrif-
stofa Sigurðar Thioroddsens,
hitalögn teiknaði Gunnar Geirs-
son tæknifræðingur og raf-
magnslögn Jóhann Indriðason
verkfræðingur,
Byggingarmeistari hússins
var Kristinn Sigurjónsson, múr-
arameistari Haukur Pétursson,
rafvirkjameistari Steinn Guð-
mundsson, málarameistarar
Reynir Guðmundsson og Anton
Bjamason, pípulagningameistari
Guðmundur Finnbogason og
dúklagningameistari Ólalfur Ól-
afsson. Umsjón með fram-
kvæmdum fyrir hönd bankans
höfðu þeir Hannes Pálsson úti-
bússtjóri og Svavar Jóhannsson
skipulagsstjóri, sem einnig
teiknaði innréttdngar í af-
greiðslusal.
Tilhögun
húsakynna
Innréttingar í afgreiðslusal
smíðuðu J. P. Innréttingar og
Jónas Sólmundsson, skriflborð
Helgi Einarsson húsgagnasmið-
ur, þiljur og innihurðir smíðaði
Gamla Kompaníið hf. 1 húsinu
era þýzkir plastgluggar innflutt-
ir af Plast og stálgluggum hf„
enskt gler innflutt af Polaris hf.
og peningaskápar og geymslu-
hólf frá hinu heimsþekkta
Chubb Ltd. í London.
í>ær deildir Búnaðarbankans,
sem fluttar era, eða nú flytja í
húscð, era Innlheimtudeild stofn-
1100 geymsluhólf leigð viðskiptavinum bankans
Þama eru geymsluhólf viðskiptamanna.
Breytt starfstil-
högun næsta haust
I haust verða f jörutíu ár liðin
síðan Húsmaeðraskólinn að Hall-
ormsstað var settur í fyrsta
sinni. Hjónin Sigrún og Bened-
ikt Blöndal voru brautryðjend-
ur málsins á Héraði og frú Sig-
rún fyrsti stjómandi skólans.
Bæði störfuðu við skólann til
dauðadags.
Hallormsstaðaskóli hefur
starfað í tveimur ánsdeilduim, 7
mánuði hvort ár. Nú í haust
verður breyting á þessu. Eftir-
leiðis verður skólinn rekinn s«m
eins áns skóli, starfstími frá 15.
septerhber til mafloka, 8V2 mán-
uð. Starfar þó í vetur eldri deild
fyrir þær stúlkur, sem voru í
yngri deild s. 1. vetur.
Að sjálfsögðu verða kennd við
skólann þau fög, sem kennd
era við aðra húsmæðraiskóla svo
sem matreiðsla og næringar-
efnafræði, hannyrðir, saumar og
sniðteikningar, matreiðsla og
matarefnafræði, þvottur og
ræsting og þar með meðferð
þeirra véla og efna ýmiss konar,
sem nú eru almennt notuð í
heimilishaldi. Eins og áður
verður kenndur vefnaður og þau
fög, - sem honum tilheyra. Enn
má nefna ágrip af uppeldisfræði
og heilsufræði og meðferð ung-
bama, heimilishagfræði, vöra-
þekkingu og hýbýlafræði. Is-
lenzka verður að sjálfsögðu
kennd við skólann, en ekki önn-
ur tungumál, nema hvað stúlk-
unum verður kennt að notfæra
sér erlendar uppskriftir og leið-
beiningar í heimilishaldi. Leit-
azt verður við að gera kennsl-
una sem hagrænasta, þannig að
hún nýtist nsmendum sem bezt
í daglegu starfi.
★
Nám við 8—9 mánaða hús-
mæðrasikóla er erfitt, enda er
það inntökuskilyrði að nemend-
ur verði 17 ára fyrir næstu ára-
mót. Þeir skulu og hafa lokið
unglingaprófi eða hafa góð með- '
maeli. Nánar verður greint frá
inntökuskilyrðum í bréfi skóla-
stjóra til umsækjenda, en urn-
sóknir þurfa að berast fyrir lok
júlímánaðar.
20 íslendingum boðin dvöl
á norrænum lýðháskólum
Eins og undanfarin ár hefur
Norræna félagið mi'lligöngu um
dvöl íslenzkra nemenda á nor-
rænum lýðlhóskólum. Þannig
hefur félagið möguleika á að
útvega 20 nemendum náms-
styrki í hverju landi þ. e. Dan-
mörku, Noregi og Svíþjóð. Þeir
nemendur, sem hug hefðu á að
sækja um vist á lýðháskólum
og styrk, þurfa að leggja inn
umsókn um skólavist fyrir 15.
júm'. Námsstyrkir næsta vetur
verða: I Danmörku dJkr. 1250,
í Noregi n.kr. 2000 og í Svíþjóð
s.kr. 35 á viku meðan á námi
stendur.
Það nýmæli verður nú tefcið
upp í sambandi við darnska
styrki að þeir verða einnig veitt-
ir nemendum við danska land-
oúnaðarskóla. Nánari upplýs-
ingar og eyðublöð fyrir umsókn-
ir fást á skrifstofu Norræna fé-
lagsins í Norræna húsinu kL
17—19, sími 10165.
(Frá Norræna félaginu).
i