Þjóðviljinn - 02.06.1970, Síða 5
í>riðju«Jaigur 2. júní 1970 — 5»J<f®VTLJrorN — SlÐA g
Jafntefli Sovét-
manna og Mexí-
kana í 1. leðknum
Heímsmeistarakeppnin í knatt-
spyrnu 1970 höfst í Mexíköborg
á sunnudaginn var mcd ieik
milli gestgjafanna, Mexíkana,
og sovétmanna í 1. riðli. Lauk
leiknum með jafntefli, ekkert
mark var skorað.
1 fréttaskeytum segir að þetta
haifi verið lélegur og leiðinleg-
ur kappleikur. Leikvarngurinn
var fullsetinn áhorfendum, 108
þúsund, og hófu þeir mikinn
„pipkonisert“ í hvert skipti sem
sovézku leikmennimir voru
með knöttinn. Bæði liðin virt-
usit taugaóstyrk, en Mexikanar
voru naer sigri ef eitthvað var.
sey sagði eftir .með
Framihald á 9. síðu.
íslandsmótið 1. deild: KR — Víkingur 1-0
//
Er ekkert réttlæti til ?
Várð einum vallargesti að orði, eftir að hafa
horft á Víking sækja stanzlaust í 90 mínútur
Eiginlega var ekkert að undra
þótt manninum yrði þetta á
orði, þvj vart getur um órétt-
iátari úrslit í knattspymu, en
þennan sigur KR yfir Viking.
Naer stanzlaust í 90 miínútur
söttu Víkingar að KR markinu
og það var fyrst og fremst
gamia „KR-heppnin“ ásamt
EHert Schram, er kom í veg
fyrir sigur Vikings. Þáttur Ell-
erts í þessum leik var stór-
kostiegur og langt er orðSð síð-
an hann hefur ieikið betnr. Þótt
aldrei sé hægt að segja til um
hvemig farið hefði, er ekki ólík-
legt að ef Ellerts hefði ekki
notið við, þá hefðu Vikingar
sigrað með 4—5 marka mun.
Mahk KR kom strax á 4. mín-
útu leiksins og.það var gullfal-
legt. Gunmar Felixson komst inn-
að endamörkuim, gaf boltarm
þadan út fyrir markið, þar sem
Baldvin Baldvinsson kom aðvíf-
andi og skaut viðstöðulaust og
skoraði. Þetta skot Baldvins var
alls óy'erjandi fyrir Sigfús í
Vfkingsmarkimu. Einis og áður
segir gerðist þatta á 4. mínútu
og var þetta ein af örtfáum
sóknarlotum KR, sem einhver
ógp var í. Aftur á móti má
segja að hver einasta sóknarlota
Vikings hafi prsakað mark-
hættu, en annað hvort höfnuðu
skot Vikinganna rétt fyrir utan
mrkraimnnainn eða að Maign-
ús Sigurðsson, hinn ágæt.i mark-
vörður KR, náði að verja. Hins
vegar strönduðu flestar sóknir
Víkings á Ellert Schram, rétt
áður en sóknarmennimir náðu
að skjóta. Svo þung var eókm^.
Víkings orðin undir lokin, að
hinn einlaegi KR-aðdándi Egill
raikari sat orðið hljóður með
öndina í hálsinum og er þá
mikið sagt.
En svona er knattspyma,
betra liðið sigrar ekki alltaf og
ef til vill er það þessi óvissa
um úmslit. sem á staersta þátt-
inn í þvi hve vinsæi hún er
meðal áhorfenda. Þessi leikur
KR og Vfkings var skemmtiHeg-
ur á að horfa, því að hann var
bæði mjög hratt og oftast vel
leikinn. Samleikur beggja lið-
anna var betri en maður á að
vpnjast . meðal íslenzkra liða.
sérstaklega samleikur Vfking-
anna. 1 liði þeirra em fjölmargir
góðir leikmenn, en í þéssum
leik fannst mér þeir Gunnar
Gunnansstm, Guðgeir Leifeson,
Jón Karlsson og Eiríkur Þor-
steinsson bera af og voru þétta
beztu léikmenn vallarins ásamt
Ellert Schram hjá KR sem þó
var þeirra beetur. Hjá KR var
varla hægt að tala um nokkum
annan leikmann, nema ef vera
skyldi Jón Sigurðsson, hann er
alltaf tráustur leikmaður. Bald-
vin Baldvinsson skoraði þetta
dýrmæta mark KR og er það
ekki i fyrsta sinn, sem þessi
markheppni leikrpaður bjargar
stiéi fyrir KR, þðtt hann ^rfti
lítið sem ekkert annað allan
leikinn
*
Dómari var Magnús Pétursson
og átti nú einn af sinum slæmu
léik jum, en þegar sá gállinn ér á
honum vita allir knattspymu-
unnendur hvemig hann hefun
vérið og óþarfi að lýsa því nán-
ar. . — S.dóir.
Úrslit í Reykjavikurmótinu í
kvöld: Fram og Valur leika
I kvifld fer fram úrslitaleikur
Reykjavíkurmótsins I meistara-
flikki. Leika þá Fram og Valur
og hefst ieikurinn kl. 20.00 á
Melavelli.
Fiam
K.R.
Ármann
Þróttur
Valur
4 2 2 0 5:0 6
5 2 2 1 9:6 6
5 2 0 3 5:12 4
5 113 5:15 3
4 1 0 3 6:7 2
Staðan í
VJkingur
mótinu er nú:
5320 16:6
-^S>
íslandsmótið 1. deild: ÍA - Valur 1-1
Skagamenn skoruðu tvö mörk
En annað hafnaði í eigin marki og Valur fékk annað stigið
□ Valsmenn geta þa.kkaö' Benedikt Valtýssyni, bak-
' veröi ÍA, fyrir stigið sem þeir hlutu úr þessum leik,
því að á 14. mínútu fyrri hálfleiks skoraði Benedikt
sjálfsmark, er hann hugðist skalla frá marki, en í stað
þess hafnaði boltinn efst í markhorninu. Þetta er þeim
mun sorglegra fyrir Skagamenn, að þeir voru allan
síðari hálfleikinn í sókn og áttu sannarlega sigurinn
skilið.
Fyrri hálfleifcurinn var frem-
ur jafn, þá léku Valsmenn und-
an nokkúð sterkum vindi og
notuðu langsendingar, sem hvað
eftir annað orsökuðu hættu við
lA markið. En bezta mark-
tækifæri leiksins átti Eyleifur
Haifsteinsson á 9. mínútu, er
hann var kominn innfyrir Vals-
vörnina og átti aðeins mark-
vörðinn eftir, en skaut framhjá
af um það bil 2ja metra færi.
Vart er hægt að hugsa sér betra
marktækifæri en Eyleifur fékk
þama. Svo var það á 14. mín-
útu að Skagamennimir skoruðu
sjálfemarkið, sem fyrr er lýst og
við það dofnaði nokkuö yfir
liðinu um tíma. Hættulegasta
marktækifæri Vals átti Ingvar
Edísson á 30. mínútum, er hann
skaut yfir markið af mjög stuttu
færi
>að voru ekki liðnar nema 5
mínútur aif síðari hálfleiknum,
þegar Matthías Hallgrimssön
jafnaði fyrir Skagamenn með
stórglæsilegu marki. Eyleifur
sendi boltann út til Matthiasar,
sem var yið vítateigshomið og
hann skaut strax og boltinn
hafnaði neðst i markhominu
fjær, án þess að Sigurður Dags-
son ætti nokkra möguleika á
að verja, en annars varði Sig-
urður nokkrum sinnum meist-
aralega í leíknum og tvívegis
skot, sem fáir, ef nokkrir ís-
lenzkir markverðir hefðu varið
nema hann
Við þetta mark lifnaði mikið
yfir lA-liðinu og má segja að
þeir hafi tekið leikinn alger-
lega í sánar hendur og sótt
stanzlaust. Hvað eftir annað
múnaði ekki nema hársbreidd
að þeim tseki.st að skora, en
Valsmenn komust ekki upp að
vítateigi lA fyrr en rétt á loka-
minútunum, að þeir áttu tvær
nokkuð hættulegar sóknarlotur.
Á 35. mínútu komst Eyleifur í
ágæt marktækifæri og skaut af
vítateigslínu og boltinn virtist
ætla að haifna í marfchominu,
en á einhvern óskiljanlegan hátt
flaug Sigurður Dagsson út i
homið og varði og er þetta án
efa glæsilegasta markvarzla sem
sézt hefur það sem af er þessu
keppnistímabili. Greinilegt var
að Valur gerði sig ánægðan með
jafnteflið, enda sennilega betri
útkoma en búizt var við fyrir-
fram, því að í sambandi við
útspörk, innköst og annað þvi
um líkt, fóru leikmennirnir sér
mjög hægt og virtist manni
þeim mest í mun, að fá tímann
til að líða.
Þótt Skagamennirnir na#ðu
ekki að sigra var léikur þeirra
að þessu sinni allur annar og
betri en á móti Víkingi um
síðustu helgi Mun meiri hraði
og drift var í leik þeirra nú
en þá. Þó er einn galli áberandi
hjá liðinu, en það er hve lítið
leikmennimir, sem ekki eru
með bóltann, eru með í leikn-
um. Fyrir bragðið eru þeir eft
of soinir af stað, ef boltanum
er spymt í átt til beirra, enda
eðlílegt, þar sem viðbragð
manna verður aldrei jafn snöggt
ef staðið er kyrr eins og ef
menn eru á hreyfingu. Bins
vantar meiri baráttuanda í lið-
ið. Það er engu líkara en að
flestum leikmanna sé nokkum
veginn sama hvesnig leikurinn
fer og slíkt kann ekki góðri
lufcku að stýra. Nokkrar stöðu-
og mannabreytingar voru gerð-
ar á liðinu frá siðasta leik og
eru sumar þeirra mjög vafasam-
ar. Til að mynda orkar það
ekki tvímælis, að liðið hefur
ek'ki efni á að taka Jón Al-
freðsson úr miðvarðarstöðunni,
jafn góður miðvörður og hann
er og vömin ekki sterkari en
raun ber vitni. Aftur á móti
var afturkema Benedikts Val-
týssonar í liðið mjög til bóta.
En bertu menn liðsins vr>ru án
efa Matthías, Eyleifur og Þröst-
ur Stefánsson. Ungur nýliði í
markinu, Pétur Hallgrímsson,
lofar góðu, en á að sjálfsögðu
margt ólært ennþá. Haraldur
Sturlaugsson og Guðjón Guð-
mundsson voru ekki jatfn góðir
í þessum leik og þeir eru van-
ir að vera.
Hjá Val eru málin stórum að
lagast, þó enm vanti á, að liðið
sé orðið jafn gott og það var í
fyrra. 1 þessum leik reyndi mest
á vömina og þar bánu af Þor-
steinn Friðþjófssom, HaiMdór
Einarssón og Sigurður Dagsson
í noarkinu, en án hans hefði
verr farið. 1 friaimlinunni , átti
lngibjöm Albertsson beztan leik
og er hann í mikilli framför
og á örugglega eftir að verða
einn af okkar beztu knatt-
spy r numönnum.
Dómari var Karl Jólhannsson,
kunnari sem handknattleikis-
dómari og virðist sarna hvora
gmeinina hann daemir; það er
oftast óaðfinnanlegt. — S.dór.
Víkingur hefur ekki unnið
Reykjavíkurmótið siðan 1940 og
héfur nú möguleika á sigri,
ef Valur sigrar í kvöld Vesði
jafntefli, verða Fram og Vík-
ingur jöfn að stigum og verða
að leika aukaleik. Sigrd Fram
í kvöld, verftur Fram Reykja-
vfkurmeistari.
Að leik loknum imm fosm.
I.B.R., Ulfar Þérðarson, afhenda
sigurvegunum veaðlaimÍA, ef
úrslit í métinu fast i leiknum í
kvöld.
flrsþing ÍBR
verður í kvöld
Ársþing Í.B.R. verður haM-
ið miðvikudaginn 10. júní í húsi
Slysavamafélagsins á Granda-
garði en ekki mdðvi'kudaginn 3.
júni eins og boðað hefur vegið.
Eyleifur Hafsteinsson átti mjög
góðan leik á móti Val og í síðari
hálfleik var hann hvað eftir
annað rfð það að skora sigur-
mark lA en Sigurður Dagsson
varði af snilld.
TUTTUGU OG FIMM —
FJÖGUR HUNDRUD
— er nýja símanúmerið okkar
Johan Rönning hf.
25-400 25-400
i
<
i
i