Þjóðviljinn - 30.07.1970, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVIOQiJTON — Fiimimtudaigur 30. jtilí 1970.
•.....■■■■■■■■■■■■■■
Strangar reglur
Engu líkara en refsireglur KSl
séu samdar fyrir atvinnumenn
Mönnum hefur orðið tíð-
rætt um refsireglur þær, er
aganefnd Knattspyrnusam-
bands Islands sendi frá sér
í vor og nú er farið eiftir,
ef leikmenn gerast brotlegir
á leikvelli. Að sjálfsögðu
sýnist sitt hverjum um þess-
ar reglur, en þó munu þeir
vera mun fleirj er finnast
þessar reglur alltof strangar,
þar sem þær eiga að gilda
um áhugamenn, sem eni að
leika knattspyrnu sér og öðr-
um til ánægju.
Þar sem atvinnumennskan í
knattspyrnu er, gildir allt
annað lögmál og þar ættu
þessar reglur mjög vel við,
enda að öllum líkindum
samdar með hliðsjón af þeim
refsireglum er gilda hjá at-
vinnumönnum. Þar sem þess-
ar refsireglur er svo strang-
ar, sem raun ber vitni, þyk-
ir ýmsum að hinum mis-
jöfnu dómurum icnkkar sé
gefið allt of mikið vald og
er það vissulega rétt.
Við aétlum því að birta
hér þessar refsireglur og
dæmi svo hver fyrir sig,
hvort reglumar séu sann-
gjamar fyrir áhugamenn.
R.EFSIREGLUR AGANEFND-
4R KSÍ.
I. grein.
Brot Ieikmanna:
1) E£ leikmaður er í annað
sikipti á sama leikári á-
minntur af dómara án þess
að vera vísað af leikvelli
fyrir:
a. grófan leik
b. að gagnrýna ákvarðanir
dómara
c. að láta sér um munn
fara meiðandi ummæli
um leikmenn, áhorfendur
eða dómara
d. að yfirgefa leikvöllinn
um stund án þess að til-
kynna dómara það
e. aðra minniháttar óprúð-
mannlega hegðun,
-.kal refsa honum með áminn-
ingu. Ef um fleiri brot er að
ræða, skal hann sviptur rétti
að leika einn leik.
2) Ef leikmanni er vísað af
leikvelli fyrir:
a. grófan leik
b. endurtekin mótmæli eða
kvartanir við úrskurðum
dómara,
c. að yfirgefa leikvöllinn
í mótmælaskyni án þess að
tilkynna dómaranum það
d. endurtekna óprúðmann-
lega hegðun, þrátt fyrir á-
minningar dómara
e. óprúðmannlega hegðun,
þó að hann hafi ekki verið
áminntur
f. að móðga áhorfendur
eða leikmenn.
Fyrir þessi brot skal refsa
með leikbanni í einn leik,
og ef um endurtekin brot er
að ræða skal leikbannið vera
minnst tveir leikir.
Ef leikmaður neitar að
gefa dómara upp nafn sitt,
sfca! honum alltaf refsað
með leikbanni í einn leik,
og tvo leiki ef um ítrekun
er að ræða.
3) Ef dómari hefur vikið
leikmanni af leikvelli fyr-
ir að móðga dómarann eða
línuverði, skal honum refs-
að með leikbanni í tvo
leiki, og ef um ítrekuð
brot er að ræða, skal
refsingin vera minnst 4
leikja bann.
4) Ef dómari hefur vikið
leikmanni af leikvelli fyr-
ir ofbeldi gagnvart leik-
manni eða áhorfanda, skal
honum refsað með leik-
banni í minnst 3 leiki. Ef
um ítrekun er að ræða,
skal refsingin vera minnst
6 leikja bann.
5) Ef dómari hefur vikið
leikmanni af leikvelii fyr-
ir að beita dó-mara eða
línuverði ofbeldi eða að
beita leikmenn eða áhorf-
endur ofbeldi sem telst al-
varlegs eðlis, skal refsa hin-
um seka leikmanni með
leikbanni í ótiltekinn tíma,
og ef um ítrekun er að
ræða gæti refsingin orðið,
ef um mjög alvarleg til-
felli er að ræða, lífstíðar-
leikbann.
Brot félagsliða:
6) Heilt lið brýtur af sér,
ef það yfirgefur leibvöll í
mótmælaskyni, eða neitar
að halda leik áfram. Refs-
ing við því getur orðið
brottrekstur úr keppni,
stigatap, leikbann á öllum
leikmönnum liðsins og
sekfir.
7) Ef áhorfendur gerast sekir
um vítaverða eða hættu-
lega framkomu gagnvart
leikmönnum, dómara, eða
línuvörðum er heimilt að
svipta það lið, sem leikur-
inn var leikinn hjá, næsta
eða næstu heimaleiki,
þar til öryggi leikmanna
og starfsmanna leiksins
telst tryggt. — S.dór.
Islenzka Iandsliðsins í handknattleik bíða mörg stór verkefni á keppnistímabilinu, sem hefst í haust. M.a. er gert ráð fyrir, að
heimsmeistararnir frá Rúmeníu leggj leið sína til íslands í byrj un næsta árs. — Myndin er frá landsleik íslendinga og Rúmena í
LaugardalshöIIinni fyrir hálfu fjórða ári.
Æfíngamiðstöð HSl verður
opnuð eftir mánaðamótin
Mörg verkefni bíða handknattleiksmanna
Að sögn Axels Einarssonar,
fcrmanns Handknattleikssam-
bands Islands, verður æfinga-
miðstöð sú er sambandið hefur
rekið tvö undanfarin sumur í
Réttarholtsskólanum, opnuð í
byrjun næsta mánaðar. Sagði
Axel að HSI hefði þegar tryggt
sér húsið og þessa dagana væri
verið ,að ganga endanlega frá
því hvenær það yrði opnað.
Handknattleiksmenn munu
vera á einu máli um ágæti
þessarar æfingamiðstöðvar og að
hún hafi fullkomlega sannað
gildi sitt. Hið eina sem skyggt
þingi samið um nofckra lands-
lei-ki, jáfnvel fyrir þetta keppn- ’
istímaþil, ef hægt væri að ná
hagstæðum samningum, en þó
•aðallega fyrir þar næstá keþpn-
istímabil. En eins og allir vita
eru samningar um landsleiki
gerðir með nokkuð löngum
fyrirvara.
Enn mun ekkert ákveðið
hvenærReykjavíkurmótið hefst,
en trúlega verður það í lok
september, eins og vant er, en
Islandsmótið mun hefjast í
byrjun nóvember eins og það
hefur ge-rt undanfarin ár. Því
miður var feUt á síðasta HSl-
þin-gi að koma af stað bikar-
keppni í handknattleik og verð-
Ur því einhver bið á því, að
þessi sjálfsagða keppni komist
á. Er HSl nú hið eina af stóru
-íþróttasamböndunum,*'Sem’ ékki
heldur bikarkeppni, en vonandi
verður þess ekki langt að bíða
að augu manna opnist fyrir því
að fleiri leikir geta aldrei orð-
ið félögunum nema til góðs.
— S.dór.
• Pólverjar unnu Svía í
landskeppni í frjálsíþróttum
um síðustu helgi með 111 stig-
um gegn 98. Eftir fyrri dag
keppninnair h-öfðu Pólverjar 58
stig gegn 46. Ágætur árangur
náðist í nokkruim greinum. Til
að mynda kastaði sænski
spjótkastarinn Raimo Pihl
81.10 m og sigraði hann í
spjótkastinu, en annar varð
Pólverjinn Janusz Sidlo kastaði
80.42 m. í hástökki sigraði
Svíinn Lundmark, stökk 2.11
m. Jan Wemer hljóp 200 m.
á 21.5 sek og Pólverjinn
Stanislaw Lubiejewski siigraði
í sleggjukasti, kastaði 66,38 m.
Svíar höfðu forustu í 4x100 m
boðhlaupi, en mdsstu keifllið og
töpuðu fyri-r braigðið.
Tveir þýðingarmiklir leikir
fara fram í kvöld í l deild
Valur og (BV í Reykjavík — ÍBA og ÍBK í Keflavík
Þessi mynd var tekin í æfingastöð HSÍ í fyrra þegar landsliðið æfði þar fyrir HM.
Tveir mjög svo þýðingarmikl-
ir leikir verða leiknir í 1.
deiidarkeppninni í kvöld. Þar
sem mótið er nú um það bil
hálfnað, er hvert stig mjög dýr-
mætt, bæði um toppinn og ekki
síður um fallið, og í kvöld
mætast tvö af botnliðunum,
Valur og IBV.
Valur, sem nú skipar neðsta
sætið í 1. deildinni er þegar
komið í alvarlega fallhættu og
ef liðið tapar fyrdr Eyjamönn-
um í kvöld, er útlitið orðið
dökkt. Vestmannáeyingar hafa
hlotið 4 stig eftir 5 leiki og
gæti útlitið sannarlega verið
betra hjá þeim. I fyrri leik
þessara liða, er var fyrsti leik-
ur mótsins, sigraði Valuir 3:2
og kom sá sigur mönnum nokk-
i'ð á óvart, þvi að búizt var
"yjamönnum mun sterkari
;u mó-ti en þeir hafa verið
..i s-em komið er. Þrátt fyrir
það, að Vals-liðinu hafi gengið
illa í síðustu leikjum sínum,
hefur því farið mikið fram
frá því í vor og vissulega gæti ,
Fram-hald á 7. síðu
halfi á rekstur hennar hafl ver- &
ið of lítil aðsókn, miðað við
þann fjölda er æfir handknatt-
leik.
MÖRG VERKEFNI.
Mjög mikið verður um að
vera hjá handknattleiksmönn-
um á næsta keppnistímabiU.
Þegar eru ákveðnir landsleikir
við heimsmeistarana frá Rúm-
eníu og Dani hér heima í
byrj-un næsta árs. Þá er fyrir-
huguð férð landsliðsins til
Sovétríkj-anna í desember n.k.
og hefur HSÍ hug á því að
koma þá við í fleiri löndum
og leika landslei-ki, en ekkert
er ákveðið um það enn. Þá
munu Islandsmeistarar Fram,
bæði í karla- og kvennaflokki,
taka þátt í Evrópukeppninni
sem hefst í haust.
Þing alþjóðahandknattleiks
sambandsins verður haldið í
september og sagði Axel Einars-
son, að án efa yrðd á því i
Breðablik sigraði
Sigurganga Breiðabliks úr Kópavogi hélt áfram í fyrrakvöld,
er liðið sigraði Hauka úr Hafnarfirði með 3 mörkum gegn engu.
Hefur Breiðablik nú tekið svo örugga forustu í 2. deild að
trauðla verður hún tekin af þeim héðan af. Hefur liðið nú hlot-
ið 13 stig eftir 7 leiki og skorað 21 mark gegn 2. Næst í röðinni
er lið Selfoss með 9 stig eftir jafn marga leiki.
Leikurinn milii Hauka og Breiðabliks fór fram f Hafnarfirði
og var ekki eins ójafn og markatalan gefur til kynna. í' leik-
hléi var jafnt, 0:0, og höfðu Haukar þá átt öllu meira i leikn-
um. I síðari hálfleik náðu Breiðabliksmenn smám saman betri
tökum á leiknum og þegar um það bil 20 minútur voru af síð-
->rí hálfleik skoruðu þeir fyrsta markið. Var hinn frábæri sókn-
’maður þeirra Guðmundur Þórðarson þar að verki. Þetta mark
;rkaðj eins og vitamínsprauta á liðið, því að hin mörkin tvö
-omu svo strax á eftir, þannig að öll mörkin þrjú voru skoruð
'■ innan við 5 mínútum. Þar með var endanlega gert út um leik-
inn og tvö dýrmæt stig féllu Breiðabliki í skaut. — S.dór.