Þjóðviljinn - 03.11.1970, Page 1
Þriðjudagur 3. nóvember 1970 — 35. árgangur — 250. tölublað.
Féll niður um lyftuop og lézt
Aldraðuir vistmaður á Hraín-
istu i Reykjavík lézt áf slys-
förum laust fyrir bádegi í gær.
Lyftan í Hrafnistu var bilu® og
stóð viðgerð yfir, Maðurinn var
uppj á fjórðu hæð og opnaði
dyrnar að lyftunni. Varaði hann
sig ekki - á því að lyftan var
neðar í húsinu, féll hann niður
um lyftuopið og beið bana. Ör-
yggiseftirlitið var strax kaliað
á staðinn til að kanna aðstæður,
og sömuleiðis rannsóknarlög-
reglan.
Maðurinn hét Guðbjartur
Jónsson og var fæddur 1886.
Hann var frá Króki á Kjalar-
nesi, startaði lengi sem hafnar-
verkamaður í Reykjavík.
I3>-
í
Framkvæmda-
stjórn Alþýðu-
bandalagsins
Nýkjörin miðstjóm Al-
þýðubandalaigsiins kom siamr-
ain tii fyrsta fundar í gær-
kvöld. Á daigskrá var kosn-
ing framkvaemdastjórnar
sem fer með málefni flokks-
ins miiii miðstjómarfunda.
1 framkvæmdastjóminni
eiga saeti formaður flokks-
ins, varaiformaður og ritari,
en auk þess voru kosin í
framikvæimdastjó'rn í aðaíl-
og varastjóm: Benedikt
Davíðsison, trésm, Eðvarð
Sigurðsson form. Dags-
brúnar, Gils Guðmundsson,
ailþingismiaður, Guðmundur
Hjartarson, frkvstj., Guð-
mundur Vigfússon, fyrrv.
borgarráðsmaður, Lúðvík
Jósepsson, aifþ'm., Magnús
Kjartanssion, ritstjóri, Ó3af-
ur Jensson, Jseknir og
Svandís Skúladóttir, fóstra.
Natóáróður /
landkynning-
arkvikmynd
í fréttaauka útvarpsins á laug-
ardagskvöldið talaði Svavar Sig-
mundsson lektor frá Finnlandi
og sagði hann m.a. frá amerískri
landikynningarmynd um Island
sem sýnd var í háskóJanum í
Helsinki og fleiri skólum þar í
borg.
Mynd þessi var komin frá ís-
lenzka sendiráðinu í London.
Var í myndinni sagt frá aðild
íslands að Atlanzhafsbandalag-
inu og rekinn bamalegur áróður
fyrir hemaðarbandalaginu. Þótti
forráðamönnum háskólans þvi
rétt að fjarlægja hluta af texta
við kvikmyndina og varð það úr.
Sagði Svavar að myndin hefði
hvorki sagt frá aðild Islandis að
norrænu samstarfi né aðild ís-
lands að Sameinuðu þjóðunum.
Þeir sem að styttingu á texta
myndarinnar stóðu eru andvígir
hverskonar áróðri fyrir hemað-
arbandalögum hvort sem um er
að ræða Atlanzhafsbandalagið
eða Varsjárbandalagið.
„BjargráS" rikísstjórnarmnar oð fœÓast:
ÆTLA AÐ FALSA VÍSI-
TOLUNA UM 6-7 STIG!
□ Þessa dagana eru stjórnarflokkarnir að ganga
frá tillögum sínum um ný „bjargráð“ í efna-
hagsmálum. Tilgangur þeirra ráðstafana er sá
að koma í veg fyrir að launamenn fái lsfa des-
ember n.k. bætur fyrir þær ofboðslegu verð-
hækkanir sem dunið hafa yfir að undanfömu,
og meginaðferðin á að verða sú gamalkunna
ráðstöfun að falsa vísitöluna.
□ Samkvæmt kjarasamningunum í vor eiga launamenn
að fá vísitölubætur á laun á þriggja mánaða fresti í
samræmi við hækkanir á verðlagi. Næsta verðlagsupp-
bót á laun á að koma lsta desember og miðast við vísi-
töluna lsta nóve'mber. Sú visitala hefur ekki enn verið
reiknuð út en sérfræðingar hafa áætlað að hún muni
hækka um 6-7 stig, enda hafa á síðustu mánuðum
dunið yfir mjög stórfelldar verðhækkanir á flestum
nauðsynjum almennings frá landbúnaðarafurðum til
strætisvagnafargj alda.
□ Ríkisstjórnin mun œtla sér að ,.eyða“ þeim 6-7 vísi-
tölustigum sem áttu að koma til útborgunar lsta des-
ember. Ein meginaðferðin mun verða sú að auka nið-
urgreiðslur úr nkissjóði um ein fjögur vísitölustig, en
kostnaður af því nemur mörgum hundruðum miljóna
króna á ári. Þær upphœðir á að taka með auknum álög-
um á almenning. Ef allt vœri með felldu mundi slík
tilfærsla á fjármunum — verðhœkkanir í því skyni að
framkvæma verðlækkanir! — ekki hafa nein áhrif á
vísitöluna. Kringum það vandamál œtlar ríkisstjórnin
að fara með því að ákveða að auknar álögur í þvi
skyni að greiða niður verðlaa skuli ekki hafa nein áhrif
á vísitöluna! Það á semsé að falsa vísitölugrundvölllinn.
□ Sú ráðstöfun ríkisstjómarinnar að hækka verð á áfengi
og tóbaki til þess að greiða niður verð á mjólk og rjóma
er bugsuð á hliðstæðum forsendum. Ef vísitalan væri
reiknuð eins og gert hefur verið tpiundi þessi ráðstöf-
un ekki hafa nein áhrif á meðalvísitöluna- hækkun-
in á áfengi og tóbaki mundi vega upp lækkun á mjólk
og rjóma. Því áformar ríkisstjórnin að breyta grund-
velli vísitölunnar þannig að áfengi og tóþak sé ekki
reiknað með. Þannig mun niðurgreiðslan á landbúnað-
arvörunum stuðla að því að „eyða“ þeirri verðlagsupp-
bót sem launatnenn áttu rétt á sambvæmt samning-
um sínum.
| | Ýmsar aðrar ráðstafanir eru til umræðu, breytingar á
fjölskyldubótum og sitthvað annað, en meginhugsunin
er sú að breyta grundvelli vísitölunnar og fram-
kvœma þannig gervilœkkanir á kaupgjaldsvisitölunni.
Er hér að sjálfsögðu um að' ræða algert brot á kjara-
samningunum frá því í vor. Vísitöluákvæðin voru meg-
inatriði í þeim samningum, og forsenda þeirra ákvœða
var sú að vísitölugrundvöllurinn héldist óskertur á
samningstímabilinu. Verði á þennan hátt „eytt“ sex
til sjö vísitölustigum. jafngildir það hliðstœðri með-
allœkkun á raunverulegu kaupi.
Gosdrykkir
hækka allt
að 7%
Núna á dögtmum hækk-
uðu 30 tegundir aí gos-
drykkjum og kóladrykfejuim
seldum í smásölu hérlendis.
Hækkaði hver flasika um 50
aura að viðbættum áfólln-
um flutningskostnaði. Enn-
fremur hækkar bæði hvítöl
og maltöl um 50 aura
flaskan. Mest nemur hækk-
unin um 7% á gosdrykkj-
um.. Kó'ka kóla, minni
flaskan, kostaði kr. 7.00, en
hækkar nú í kr. 7.50 svó
dæmi sé nefnt. Pilsner og
Thule öl hækka ekki að
sinni.
Leigubílaakstur
hækkar um 4%
Rétt fyrir helgi hækkuðu
taxtar leigubílstjóra um
' 4%: Mun verðlagsnefnd
hafa veitt þetta leyfi á
föstudag til leiguibílastöðva
í landinu.
Sumarbústaður
brann
Sumiarbústaður í Vairðgjár-
landi í Eyjiafiirði brann til
gruima á lauigardaginn. Tveir
synir eigandans, sem er Akur-
eyringur, höfðu nýlega kveikt
upp í oliuofni í bústaðnum og
sáðan skiroppið frá. Þegar þejr
komu tii baka hafði eldur bloss-
að upp í húisinn. Slökkvilið Ak-
uireyrar fór á staðinn en þegar
slökfcviliðsimenn komu þangað
vár sumar'bústaðurinn svo til
brunndnn til kaldra kola.
Alþýðubankastofnun fær góð-
ar
í félögunum
— hlutafjáröflun lokið næstu daga
Alþýðubankastofnun hefur
fengið góðar undirtektir í verk-
lýðsfélögunum og eru allar horf-
ur á að stofnfundur bankans
vcrði haldinn kringum áramótin;
að því er forst.jórj Sparisjóðs
alþýðu, Jón Hallsson, sagði Þjóð-
viljanum í gær.
Sem kiunnugt er var á alþingi
í vor samþyfckt með lögum
heimild til bankastofnunarinnar
ef fullnægt yrði skilyrðum uim
hlutafé, sem félögin innan Al-
þýðusambands Islands safna.
Hafa verklýðsfélögin áfcveðinn
kvóta til hlutafjársöfnunarinnar
og er miðað við 1000 krónur á
hvem félagsmann í félögunum,
en hlutafjárupphæðin þarf að ná
10 miljónum króna.
Allar hortur virðast á að þetta
muni takast, sa.gði Jón Hallsson
í gær, og eru félöigin að taka
afstöðu til fjárskuldbindinga
þessa dagana. Mörg félaganna
héldu fundi um mál'.ð um heJg-
ina en önnur munu afgreiða það
nú í vifcunni og hafa undir-
tektir verið mjög góðar. Það
mun síkýrast á næstu dögum,
hver endanleg þótttaika verður,
að
en við erum bjartsýnir á
banfcasiwfnunin muni takast.
Sparisjóður alþýðu hefur tekið
á leigu húsnæði, sem nú er unn-
ið að innréttingu á, 2. hæð og
helmingi 1. hæðar á Laugavegi
31 og mun verða þar til húsa
eftir breytinguna í banka.
Látinn laus
QUITO 1/11 — Því var lýst
yfir opinberlega í Quito í dag,
að yfirmaður flugflota Equadors
hefði verið látinn laus. Var hann
heill á húfi. Honum var rænt
svo se-m kunnugt er sl. þriðjudag.
!
Hvaða verðhækkanir verða ekki hættar?
Þjóðviljinn telur upp nokkrar vöru- og þjónustuhækkanir að undan-
förnu, sem ríkisstjórnin ætlar að neita að verðbæta á launin
□ Síðustu dagana hafa dunið yfir stórfelldar verð-
hækkanir — hér á eftir er birt yfirlit yfir þær hækk-
anir einar sem Þjóðviljinn hefur greint frá síðustu
tvær vikur sem vitanlega eru aðeins þrotabrot af öll-
um þeim hækkunuvn sem orðið hafa. Þær hækkanir
og aðrar sem hafa dunið yfir að undanförnu ætlar rík-
isstjórnin ekki að bæta eins og kemur fram annars
staðar í blaðinu. Með þessu móti er ríkisst'jómin að
ganga á gerða samninga frá í vor og er vandséð hvem:
ig launafólk, — verkalýðssamtökin, — getur sætt sig
við þá ósvinnu að ríkisstjómin gangi enn einu sinni
á bak gerðum kjarasamningum.
VERÐHÆKKANIR tæp 20%, en benzínið um
17. október: Olía og benzin tæpt 1%.
hæfcka. Olían hæfcfcar um 20. október: 40% hækkún við-
talsgjalda hjá læknium.
21. október: Þjóðviljinn sýnir
fram á að kjöt og mjólk
hafa hækkað um 25,2 til
27,6% frá í aept. 1969 tii
jafnlenigdar í ár. Súpukjöt
kostaði í september í fyira
120 kr kílóið, en kostaði í
sept. sl. 150,20 kir. kílóið.
Mjólkin hækkiaðj hins veg-
ar um 27,6% ó sama tímia
— úr 14,10 í kr. 18.00.
Kíló af smjöri kostaði 185
kr. en kostaði í septembeir
199,00 k,r. — hækfcun á
smjÖri 7,3%.
28. október: 6% hækkun á
brauðum.
20. október: Þjóðviljinn sýnir
fram á að fæði fyrir ein-
stáikling, sem borðar á mat-
sölustöðum kositar vægt
reiknað um 9 þús. kirónur
á mánuði.
30. október: Áfengi og tóbak
hækka um 15%, en jafn-
framt var tilkynnt ni'ður-
greiðsia til lækkunar ó
mjólk og rjóma. Mjólkur-
Mtrinn verður 15,30, en
rjómi í pelahyrnum kostair
30 kr.
31. október: ÖU lyf til manna
og dýna hækka um 7,3 af
hundraði. Hér er ekki ein-
ungis am að ræða „venju-
lega verðhækkun“ heldur
giróft hneyksli: f sumum til-
íellum eru lyf seld með
500% álagi og vjtað er að
lyfsalar moka inn pening-
um í sitórum stíl á kostnað
þeinra sem sízt skyldi, sjúk-
linga hvers konar, einkum
eldra fólksins.
— 15% hækkun fargjalda
með Strætisvögnnm Reykja-
víkur tilkynnt.
— Flutningsgjöld til Jands-
ins hæfcka um 10% og
hafia farmgjöld þá hækkað
um 28 - 48% á árinu.
1. nóvember: Öll fargjöld á
sérleyfisleiðum hækika um
15%.
— FlUigfairgjöld innan lands'
hækika um 10%.
— Póst- og símagjöld hækka
um 15%.
— Dagblö'ð hækka um ca.
18%.
VERÐSTÓÐVUN!
Og þennan sama 'dag 1.
nóvember er tilkynnt verð-
stöðvun og jafnframt hefur
ríkisstjómin á prjónunum á-
æflanir um að engar þessara
verðhækkana komi til Jauna-
fólks aftur geignum vísitöl-
una. Allar þessar verð'hæikk-
anir sem hér háfa verið
nefndar eiga að vera óbættar
— kiaupmáttinn á að skerða
sem þessu svarar Hór hefur
aðeins verið nefnt brota-
brotabrot af þeim vöruhæfck-
unum sem orðið hafa síðustu
daga.
*
Eins og áður hiefur verið
minnt á _ hér í blaðinu lét
forsætisráðherra vini sima
kaupmennina vita am að
verðsitöðvun væri á naesta
leiti Orr þeir ha£a notað tæki-
færið og hæfckeð allar vörur
. sem mest þeir máttu síðustu
dagana.
Æm
I