Þjóðviljinn - 09.12.1970, Blaðsíða 4
4 SlÐA —- ÞJÖÐVTLJINN — Miðviteu<iá3tif 9. desemiber 1970.
— Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis —
Otgefandl: Otgáfufélag ÞjóSviljans.
Framkv.stjóri: EiSur Bergmann.
Ritstjórar: Ivar H. lónsson (áb.), Magnús Kjartansson,
SigurSur GuSmundsson.
Ritstj.fulltrúi: Svavar Gestsson.
Fréttastjóri: SlgurSur V. FriSþjófsson.
Auglýsingastjórf: Heimir Ingimarsson.
Ritstjórn, afgreiSsla, auglýsingar, prentsmiSja: SkólavörSust. 19. Siml 17500
(5 línur). — AskriftarverS kr. 195.00 á mánuSl. — LausasöluverS kr. 12.00.
Alvarleg staðreynd
m er unnið að því að ganga frá fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar eins og annarra bæjarfélaga
í latndinu. Þegar frumvarp var lagt fram að fjár-
hagsáætlun ársins 1971 á fundi borgarstjómar í
síðustu viku kom fram, að fyrirsjáanlegur er veru-
legur samdráttur í framkvæimdum borgarinnar á
næsta ári, sem hefur í för með sér minni atvinnu
og síðan afturför á þeim þáttum borgarmála, sem
harkalegast verða fyrir barðinu á niðurskurðar-
stefnunni. Það kemur ennfremur til ftádráttar á
fnamkvæmdapeningum borgarinnar, að borgar-
sjóður verður á næsta ári að greiða verulegar fúlg-
ur í afborganir og vexti af lánum, sem borgar-
stjóri hefur tekið til þess að vega upp á imóti aukn-
ingu rekstrarútgjalda á þessu ári, þ.e. umfram
'fjárhagsáætlun yfirstandandi árs. Er nú talið að
lántökur borgarsjóðs á þessu ári nemi nær 200
miljónum króna, að meðtöldum þeim peningum
sem borgarsjóður greiðir til kaupa á togurum
handa einkaaðilum í Ögurvík h.f.
jgn öll eru þessi vandamál borgarinnar til. kom-
in vegna stjórnarstefnunnar, og það er alvarlegt
mál, þegar meirihluti borgarstjómar undir for-
ustu borgarstjórans sættir sig við þá stjómarstefnu
sem þannig leikur hag borgarbúa. Meirihlu'ti
borgarstjómar hefur í öllum stærri málum sætt
sig við afarkosti stjórnarstefnunnar og nú hefur
sjálfur borgarstjóri tekið það að sér að verða einn
af aðaltalsmönnum stjómarstefnunnar í kosning-
unum, en hann mun að líkindum skipa efsta sæt-
ið á lista Sjálfsfæðisflokksins í alþingiskosning-
unum. Þannig verða flokkshagsmunir Sjálfstæðis-
flokksins enn um sinn settir ofar hagsmunum
allra borgarbúa — svo hefur raunar lengi verið
gert, en það er mál til komið að borgarbúar veiti
þeirri alvarlegu staðreynd atihygli.
Því ekki að reyna?
j£onur fjölmenntu á áheyrendapalla borgarstjórn-
ar í síðustu viku, þegar rætt var um tillögu Öddu
Báru Sigfúsdóttur um dagvistunarstofnanir. Á-
stæðan til þessa mikla áhuga kvenna á tillögunni
var skiljanleg vegna þess að hefði hún verið sam-
þykkt hefði það þýtt stefnubreytingu í dagvistun-
armálum í Reykjavík, þannig að giftir foreldrar
með eðlilegar heimilisaðstæður hefðu getað feng-
ið böm sín vistuð á dagvis’tarheimilum. Jafnframt
gerði tillaga Öddu Báru ráð fyrir því að greitt yrði
fyrir dagvistun í sambandi við vinnustaði og for-
eldrar sem útveguðu húsnæði til dagvistunar
sjálfir nytu einnig fyrirgreiðslu af hálfu borgar-
innar. Það er til marks um þröngsýni íhaldsmeiri-
hlutans í borgarstjórn, að þessari tillögu var hafn-
að, en áhugi kvennanna sem fjölmenntu á áheyr-
endapallana bendir til þess, að imálið eigi hljóm-
grunn og það hefur komið í ljós áður, að unnt ér
að þoka málum áleiðis með því að beita mætti
samtaka þrátt fyrir íhaldssama stjórnendur. Því
ekki að reyna? — sv.
Minning
Jón Gunnar Þórðarson
símaverkstjóri frá Siglufirði
Fæddur 16. des. 1935 — Dáinn 26. nóv. 1970
Þeir deyja ungir, sem guðim-
ir elska. Sé það rétt, sem þetta
máltæki segir, hefur Jón Gunn-
ar Þórðarson verið einn í hópi
þeirra, sem elsteu og náðar hafa
notið í rikum mseiti hjá giuði sán-
um. I blóma lífsins, hraustur
og hamingjusamur, er hann svo
sikyndilega og öMum á óvart hrif-
inn af lífsis braut. Það er svo
ein af hinum torráðnu gátum
tilverunnar og ofar mínum
skilningi, hvern tilgang algæzk-
an sér í þessu, sem svo þung-
an harm kveður að ungri eigin-
konu, þrem börnum og öðrum
nákomnum skyldmennum.
Jón Gunnar Þórðarson var
fæddur 16. des. 1935, sonur
hjónanna Sigríðar Aðalbjörns-
dóttur og Þórðar Jónssonar,
símamanns. Ef segja má með
sanni um nókkum mann, aðhann
hafi vaxið upp í lífsstarf sitt,
þá var það Gunnar Þórðarson.
Hann mun hafa strax í bemsku
fylgt föður sínum eftir og
kynnzt sförfum hans, byrjaði
sem unglingur að vinna í síma-
vinnu og síðan að tatea æ virk-
ari og ábyrgðarmeiri þátt í
störfum. Hann stundaði vinnu og
nám í Reykjavfk um nokteurt
skeið og lærði símvirkjastörf,
jarðsímalagnir o.fl., og sótti
síðan námskeið sér til aukinnar
fræðslu.
Sem áður segir nam Gunnar
verklega kunnáttu mest af föð-
ur sa'num, og þegar hann féll
frá tók hann við störfum hans,
og var skipaður símaverkstjóri
frá 1. otet. 1964.
Gunnar naut álits sem góður
verkstjóri og var verksvið hans
oft ærið víðfemt, því að á
sumrin var hann með vinnu-
floktea sína inni um Skagafjörð,
í Ólafsfirði og jafnvel víðar.
Hann var mjög samstarfsgóður
maður, hjálpsamur og viljugur
að leysa vanda samborgaranna,
eftir því sem aðstaða hans
leyfði.
Að eðlisfari var Gunnar jafn-
lyndur maður, kíminn og góð-
samur svo sem faðir hans var.
Hann var listelskur, hafði yndi
af tónlist og söng, var áhuga-
samur og starfandi félagi í
Karlakórnum Vísi. Skíðamaður
var hann góður og starfáði
lengi og \el í Skíðafélagi Sigiu-
fjarðar. Hann var einnig virkur
félagi í Lionsklúbb Siglufjarðar
og í Bridgefélagi Siglufjarðar.
Þegar Gunnar skrapp út á
Sauðanes fimmtudaginn 26. nóv.
s.l. til að kveðja vin sinn og
samstarfsmanns og að ganga frá
loftskeytastöðvarhúsinu þar að
lokinni viðgerð á tætejabúnaði,
hvarflaði ekki að neinum að sú
ferð yrði í nokkru frábrugðin
öllum fyrri ferðum hans, svo
margar sem þær voru orðnar á
þann stað. Því teom fregnin um
hið hörmulega slys eins og reið-
arslag yfir vini og samstarfs-
fólk. Við trúðum þvi tæpast að
fregnin væri sönn„ að vindhviða
hefði feykt símabílnum af veg-
inum og þar með lífi vinar og
félaga af braut. En svona er
mjótt bilið milli lífs og dauða,
svo skjót geta umskiptin orðið.
Jón Gunnar Þórðarson var
kvæntur æskuvinu sinni, élsku-
legri og ástríkri konu, Guðnýju
Hiílmarsdóttur, og áttu þau þrjú
börn, tvo drengi og eina stúlku,
öll myndarleg og vel gefin og
falleg- böm. Þau höfðu búið séF
yndislegt heimili og voru hvort
sem annað umhyggjusöm um
heimilið og samhent í uppeldi
bama sinna. Enginn veit né
skiiur hvílíkur missir það er,
sem þau fjögur hafa nú orðið
fyrir. Hugljúf minning um
elsteulegan bernskuvin og eigin-
mann, og ljúfan föður er þó
harmabót, ylur, sem lengi mun
verma.
Minningin um Gunnar Þórð-
arson mun verða mér og öðrum
starfssystkinum hans hér góð
og fögur.
Ég votta eiginkonu hins látna,
bömum hans, móður og stjúp-
föður, systkinum og öðrum
vandamönnum mína hjartanleg-
ustu samúð.
Orðstír deyr aldregi hveim
sér góðan getr.
E. M. A.
JÓN ÓSK71R
H6RN7ÍMS7ÍR7ISOLD
MINNI57ITRIÐI UM
LÍF SK7ÍLD7I OG LIST71M7INN71
í R6YKJ71VÍK
í þessari bók rekur Jón Óskar minningar
sinar um rithöfunda og bókmenntalíf höf-
uðstaðarins f beinu framhaldi af bókinni
FUNDNIR SNILLINGAR, sem út kom á síð-
asta ári. Fá lesendur hér „meira að heyra“
um nafnkunna höfunda og ýmsar hræringar
í bókmenntalífi, sem höfundur kann frá aö
greina. — Fyrri bók Jóns var vel tekið, eins
og eftirfarandi tilvitnanir sýna:
„Allar... Iýsingar eru yljaðar hófsamri
kímni, og fordómaleysið virðist vera aðal
Jóns Óskars ... ég hef ekki iesið bók mér
til meiri ánægju ... á þesari vertið ...
ísmeygilega og stórvel skrifuð ... borin
uppi af hinum beztu höfundarkostum ...
Hún mun veita mörgum óblandna ánægju.“
Andrés Kristjánsson
„Fundnir sniilingar er þægileg bók,
skemmtileg aflestrar ... bök, sem vekur
forvitni. Hún er með athyglisverðustu bók-
um þessa árs. Jóni Óskari ber að þakka
fyrir hreinskilnina."
Jóhann Hjáimarsson
„Einiægni Jóns, ást hans á fjöiskyidunni,
skilningur á smatímanum, án dóms, frá-
sagnargleðin og heiðarleikinn, gerir hann
svo notalegan gest.... Éggat ómögulega
hætt við bókina fyrr en hún var öll. Því var
hún ekki svolítið lengri?“
Kristján frá Djúpalæk
„Fundnir snillingar er vissuiega vinaleg
og viðfelldin bók. Og það stafar fyrst og
fremst af fráságnarþokka Jóns Óskars,
ofureinföldum en launkímnum ... Hinn
persónuiegi tónn ... er Iöngu orðinn að
alveg persónulegum rithætti, frásagnarstíl,
S9m Jón Óskar virðist ná á æ meira vaidi."
Ólafur Jónsson
IÐUNN
Skeggjagötu 1 símar 12923,19156
Pantið húsgögnin í
eldhúsið tímanlega
fyrir jól.
Betra fyrir yður,
betra fyrir okkur.
KRÓMHÚSGÖGN
Hverfisgötu 82
Sími 21175.