Þjóðviljinn - 18.04.1971, Qupperneq 16
■ . ■
V/fo/í-viý/'fö::.
vý'ý'ý'
Harður árekstur í
gær i Ölfusinu
Um kl. 10 í gærmorgun varð
mjög harður bifreiðaárekstur
nálægt bænuim Núpum í ölfusi.
Rákust þar á tveir fólksbílar
á hæð á veginum og sikemmd-
ust þeir báðir svo miikið að það
varð að flytja þá báða burt
með kranabifreiðum. Ekki urðu
alvarleg meiðsl á mönnum, en
ökumennirnir voru einir í bif-
reiðunum og skrámuöust þeir
báðir lítiisháttar.
Fyrirlestur um
erfðir mannsins
Dr. Guömundur Eggertsson
prófessor mun á vegum Islenzka
mannfræðafélagsins halda fyrir-
lestui' sem hann nefnir: Erfðár
mannsins. , Hefist hann í I.
kennslustofu Hiáskóila Islands kl.
20.30 mánudaginn 19. apríl. —
öllum er heimill aðgangur og
frjálsar umræöur verða á eftir.
Fjögur malverkanna a syningunni í Neskaupstao.
Thieu forseti í ræðu:
Úrslit stríðsins eru
ráðin á vígvöllum
SAIGON 17/4 — Nguyen Thieu
forseti Suður-Vietnams sagði í
ræðu við hersýningu í Hue, að
úrslitin í Vietnamstríðinu yrðu
ráöin á vígvöllunum, cn ekki
á samningafundunum £ París.
Sagði hann, að friður kæmist
því aðeins á í landinu, að Suð-
ur-Vietnamar bæru sigurorð af
Norður-Vietnö.mum og Þjóð-
frelsishemum.
Tihieiu sagði, að Suður-Viet-
narnar myndu halda baráttunni
áfram, unz si-gur væri unninn,
og ennfremur, að innrásin í
Laos hefði verið gerð til að
koma í veg fyrir, að Norður-
Vietniamiar hertækju tvö nyrztu
héruðin í Suður-Vietnam, þeg-
ar Bandaríkjamenn væru á
brott úr landinu, en um það
hefðu þeir gert áætlun og einn-
ig um að þvinga stjórn Suöur-
Vietnams til samstarfs við þjóð-
frelsisiherinn.
Framh. á 2. síðu.
BLAÐDREIFING
Þjóðviljann vantar blaðbera í eftirtalin
hverfi:
ÁRMÚLA — SUÐURLANDSBRAUT
STÓRHOLT — NORÐURMÝRI.
HVERFISGÖTU — LINDARGÖTU
LAUGARNESVEGUR.
Sími 17500
0ECD hókasölusýning
Rit OECD, Efnahags- og framfarastofnun-
ar Evrópu, sem út hafa komið á síðustu ár-
um verða til sýnis og sölu í bókaverzlun
okkar í Hafnarstræti 4, uppi, næstu daga.
Ritin greinast í eftirtalda flokka:
1. Economics — 2. Internationdl Trade and Pay-
ments — 3. Statistics — 4. Development — 5.
Agriculture - Food - Fisheries — 6. Energy — 7.
Inéustry - Transport - Totmsm — 8. Manpower
and Social Affairs 1— 9. Edwcatíxm and Science.
BOOKSH'OP
Hainarstræti 4
Myndlistarsýn ing
í Neskaupstað um
páskahelgina
Um páskana efndi Myndlistar-
fédiag Neskaupstaðar til sýning-
ar á verkum 10 féliagsmanna í
Bgilsbúð í Neskiauipstað. Voru
á sýningiunni aUs um 60 mál-
verk og örfáiar tréskurðarmynd-
ir. Flest málverkanna vonu eft-
ir Öldiu Sveinsdóttur( Einar Sól-
heim, Jónas Elíasson, Lilju
Jóihiannsdóttur og Svein Vil-
hjálmsson, en þau bafa ölil sýnt
áður á samsýningum félagsins.
Þá voru nobbur verk eftir 5
unga og efnilega félagsmenn,
sem fæstir munu hafa sýnt verk
sín áður.
Sýninguna SQttu um 350
manns, og 9 verbanna seldust.
Síðuistu tvo mánuði heéur
staðið yfir kvöldnámskeið á veg-
um féliagsins og réð féi'aigið til
sín sem lei’ðbeimanda Imgiberg
Magnússon myndlistarkennara
úr Reykjaviik, sem jiafnframt
hefur kennt teikningu í skólium
í kaupstaðnum. Voru á sýning-
unni tvær teikningar eftir Imgi-
berg.
*
Myndlistarfélagið hefur notið
nokkurs styrks frá bæ og ríki
á undanfömum árum, og hefur
það haldið námskeið og baft
sýningar nær árlega frá því það
var stofnað. Fommaður þess frá
uppbafi befur verið Sveimn Vil-
bjáimsson.
Mikil hríð og
hálka á Akureyri
Er Þjóðviljinn hafði samiband
við lögreigluna á Akureyri um
eitt leytið í gær var þar hálf-
ger stóríiríð og komið dálítið
'föl á götuimar og milkil hálka.
Varð af umferttarömgþveiti sök-
uim þess, að menn voru yfir-
leitt búnir að taka undan bíl-
unum snjódekk. Ekkert alvar-
legt umferðarslys hafði þó orð-
ið en víða stóð allt fast á göt-
unum að sögn lögreglunnar.
Sunnudagur 18. april 1971 — 36. árgangur
87. tödubiaö.
Ársfundur fulltrúaráðs SÍSF
haldinn á morgun og þriðjudag
Árlegur fundur fulltrúaráðs
Sambands íslenzkra sveitarfé-
laga verður haldinn næstkom-
andi mánudag og þriðjudag, 19.
og 20. apríl. Fundurinn verður
haldinn f hinu ný.ia félagsheim-
ili Seltjarnarneshrepps og hefst
kl. 9.30 árdegis á mánudag.
Páffl Líndai bongarlögmaður,
formaður sambandsins setur
fundinn en síðan flytja ávörp
Emil Jónsson félagsmálaráðberra
og Karl. B. Guðmundsson odd-
viti Seltjamameshrepps
Á íundinum verða fiutt tvö
framsöguerindi: Páil Sigurðsson
ráðuneytisstjóri í heiltorigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu ræðir
um skipan heilbrigðismála og
Sigurður Líndal bæstaréttarrit-
ari um eiignarrétt að aimenn-
ingum.
Meðad anmars fumdiarefnis er
s^ýrsLa um starfsemi samibands-
ins, útgáfa Sveitartjórnanmála
og skýrsia um starfsemi Láma-
sjóðs sveitarféiaga árið 1970.
Á fundinum verður lýst úr-
slitum í verðlaunasamkeppni
sambandsins um beztu ritgerð-
ina um réttindi og skyldur sveit-
arstjómarmanna, sem efnt var
til í tilefni af 25 ára afmæli
sambandsins á s.l. ári.
f fuiltrúaráði sambandsins erga
sæti 30 fulltrúar, 3 - 4 úr hverja
kjördæmi landsins.
Þing Sambands
ísl. bankamanna
hefst á morgun
Þing Sambands íslenzkra
bankamanna verður baldið dag-
ama 19. til 21. apríi í húsa-
kynnum sambandsins að Lauga-
vegi 103. Þingið verður sett
mánuidiaginn 19. aipríl kl. 16 af
fonmianni sambandisins Hannesi
Pálssyni. Síðian munu hefjast
almenn þingistörf.
Meðai diagskráratriða þingsins
á þriðjmdaginn er, að dr. Gylfi
Þ. Gísiason róðherra og Ásgeir
Miagnússon forstjóri flytjia er-
imdi.
Þimgmci lýkur á miðvikudag.
Alþýðubandalagið
í Kópavogi
■ Fulltrúaráðsfundur verður
haldinn í Alþýðubandalaginu í
Kópavogi fimmtudaginn 22. apr-
il n.k. og hefst hann kl. 3 síð-
degis í Þinghól.
Helgi Bjarnason, NK-6 á sinni fyrstu siglingu.
Nýr bátur hjá dráttarbraut-
inni í Neskaupstað fullgerður
Á ákírdag war sjósettur nýr I um var gafið nafnið Helgi
16 tonma eikarbátur hjá Drátt-1 Bjarmason NK 6, og eru eigend-
arbrautinni í Neskaupstaö. Er | ur hans 3 sjómenn í Neskaup-
það fyrsfi báturinn, sem lokið I stað, þeir Jón Hliflar Aðal-
er við eftir að nýsmiði hófst i steinsson og bræðumir Guð-
þar, en 10. báturinn, sem frá I mundur og Helgi Jóhannssynir.
Dráttarbrautinni kemur_ Bátn-1 Bátur þessi er smíðaður eftir
teikiHagu Egils ÞorfinnBsomar i
Kefítaví'k, búinn 163 hestafla
Scaniavél, með ratsjá og dýpt-
arimæli, vökwastýrisvél og tog-
og límuspili með 6 rafxnagns-
færavimdium. Yfirsmiður var
Samúel Andrésson.
- \ • ¥
Hjá Dráttarbrautinni eru nú í
! smíðum 28 tonna eikarbátur og
64 tonma stálbátur, og eiga báð.
ir að afhendast á þessiu ári.
Forstjóri Dráttarbrautarinnar er
Öm Soheving.
Enskir karlmannaskór
nýjar sendingar koma í fyrramálið.
Skóbúð Austurbœjar
Laugavegi 1 00.