Þjóðviljinn - 19.09.1971, Blaðsíða 16
BÆNDUM HEFUR FÆKKAÐ
UM 1200 Á RÚML. ÁRATUG
— viðtal við Gunnar Guðbjartsson, formann Stéttasambands bænda
★ I málefnasamningi ríkis-
stjórnarinnar er tckið fram að
bændur eigi að fá samsvarandi
kjarabætur og verkamenn og sjó-
menn. Lítið hefur hcyrzt ennþá
í hvaða formi Jiessar kjarabætur
eigi að vcra. Gæti það stafað af
því, að bændur fái kjarabætur
sínar eftir á miðað við aðrar
launastéttir.
★ I þessum málefnasamningi
er Iögð áherzla á þrennskonar
k.iarabætur til launþega, sagði
Gunnar. 1 fyrsta ■ Iagi aukinn
kaupmátt launa um 20% á
tveimur árum, í öðru Iagi stytt-
ingu vinnuvikunnar og í þriðja
lagi Iengingu orlofs.
★ Samkvæmt lögum um verð-
Iagningu á búvörum, þá er gert
ráð fyrir að bændur fái samliæri-
legar tekjur við aðrar launastétt-
ir. Sambærilcg fríðindi ætti að
preiða með öðrum hætti, ef þaii
eru ekki metin í búvöruverði ti’,
bóndans; f reynd hafa þó flest
fríðindi verið metin inn í launa-
lið bóndans, svo sem orlof cg
sjúkrasjóðsgjald, sem launþegar
hafa fengið á undanförnum ár-
um. Aldrei hefur samt afurða-
verðið skilað sambærilegum
la.unum til bænda eins og raun-
in hcfur orðið hjá viðmiðunar-
fetéttum, sagði Gunnar.
Rangir útreikningar
Þetta stafar af því, að árferði
hefur verið erfitt undanfarin ár.
Þau halfa verið útgjaildasöm fyrir
bóndarm. Bændur hafa burft að
kauipa meira af áfourði og kjarn-
fóðri til þess að viðihalda eðli-
legum bústofni. Síðustu þrjú ár-
in hefur þó einkum gengið á
sauðfjárstofSmnn og hann skiloði
minni afurðumi í >hinu erfiða ár-
ferði.
Við höfum gert okikur grein
fyrir, að áætlun sú er verðlags-
gfU'nd'yölliur byggist á hefur
reynzt röng á tvennan hátt, sagði
Gunnar.
Afurðaverðið varð minna en
tslið var, og ti'lkostnaður bú-
reksturs hetfur orðið meiri. Nettó-
tekjur bóndans hafa þannig orð-
ið minni en gert var róð fyrir. í g
held því frarn, að sum árin haifi
nettótekjur bænda orðið 30%
minni en rauntekjur hjá viðmið-
unerstéttum og er þá miðað við
meðaltall kvæntra þænda á aldr-
inum 25 til 67 úra. I reynd eru á
Ljóðabók eftir
Þorgeir Þorgeirss.
Út er komin ljóðatoók éftir
Þorgeir Þorgeirsson. sem nefn_
ist — að því er þezt ver'ður séð,
9563-3005-1, Ijóð og ljóðaþýðing-
arar. Frumsamin ljóð þessarar
bóikar skiptast í tvo bálka; Iheitir
só fyrri „varúð, erúð, munúð“,
en sá síðari „a poem should be
mean“. Erlendir höfundar, sem
Þorgeir glimir við eru Bertolt
Brecht, Tékkinn Miroslav Holuo,
Daninn Ivan Malinovski, Willi-
am Heinesen og Esikimóaskóld.
Bókin er fjölrituð í 169 eintök-
um (13:13) og fæst hjá böf-
undi.
Þetta er fyrsta Ijóðabók Þor-
geirs Þorgeirssonar, sem hefur
látið að sér kveða í kvikmynda-
gerð, leikritun og óvæginni
Kienningarrýni.
skýrslum Hagstofunnar fleiri
bændur en hægt er að kailla bví
nafni. Margir a.ldraðir menn
komnir á ellilaun og hættir bú-
skap kallast þar baendúr og sýna
ekki raiunsanna mynd af meðal-
talí stéttarinnar.
Þá hefur fjármagnskostnaður
við búrekstur akiki verið rétt
metinin síðustu árin. Lengi var
miðað við vaxtaikjör, sem voru
í gildi fyrir 1960. Þegar vextir
hækkuðu og lánstímij styttist, bá
hafði það áhrif á afkomu bcnd-
ans og hefur þessi afstaða ekki
fengizt leiðrétt að fullu.
Fjármagnskostnaðuir hjá með-
albónda hefur alltaf verið meiri
en miðað er við í útreikningl á
verðlagsgrundvelli bænda, sagði
Gunnar. Við höifuim hvað etft.ir
annað farið fram á vaxtalækk-
un og lánstíminn yrði lengdur.
Mér er kiamnski óhætt að skýra
frá því, að fyrstu viðræður hafa
þegar farið fram við landbúnað-
arráðherra um huigöanilega vaxta-
lækkun og lengingu lánstfmians.
Hefur þá verið rastt uim einslaka
lánarflokikai.
Lán hrökkva skammt
Dýrustu lán eru lán til jarð-
arkaupa og teljum við óeðlilegt
að bændurn sé gert svo erfitt,
fyrir við stofnun búskapar. Þetta
er vanmat á landbúnaðinum sem
atvinnugrein. Það er óeðlilegt að
frumbýlingum sé gert að greiða
ti Ví> % vexti af jarðarkaiupalónum.
Vextir af þessum lánum ættu að
lækka um mdnnst 2% og yrðu þá
teknir 6 Vi % vextir af þessum
lánum.
Þá ber eiinnig að aulka lánin.
Bónda er aðeins veitt 200 þúsund
króina lán til þess að standa und-
ir kaupum á, jörð og endurnýjun
á húsalkositi. Hrékikur þessi lán-
veiting skaimmt og mætti að ó-
sekju hækka í 500 þúsund króna
lén.
Þá hafa afurðalán Seðlabank-
ans verið minni til landbúnaðar
en til sjávarútvegs. Hafa þau oít
aðeins numið helmingi andvirðis
birgða hjá kaupendum landbún-
aðarvara, en fýrirtæki hafa
stundum legið með birgðir allt
að eitt ár áður en þær hafa ver-
ið seldar.
Þetta hefur valdið því, að
bændur fá bæði seint og illa
greitt fyrir atúrðir sínar. Á tím-
um verðbólgu hafa hækkanir á
búvöruverði komið seint og um
síðir til bóndams af því að af-
urðalán Seðlaban'kans eru svo
naum.
Það kom fram hjá landbún-
aðarráð'herra á fundi Stéttasam-
bands bænda fyrir nokfcru, að
hann hyggðist beita sér fyrir því
að auka útlán afurðalána. A
þetta atriði leggjum við bændur
mikla áherzlu, sagði Gunnar.
Bændur fá dýrari mjólk
Um síðustu mánaðamót var
nýr verðlagsgrundvöllur reiknað-
ur út og hæklkaði hann um
7,35%. Þessi útrciknin.gur telrur
mið af hæfckun rekstursvam og
þá koma inn vísdtöluihætkkamir a
launum bóndans er nema 2,86%.
Þá er miðað við vísdtöluhækJkan-
ir á kaupgjaldi till la.unþega I.
ágúst og svo aftur 1. september.
Utreikndngur verðlagsignund-
vallar fer fram á veigum Hag-
stofiunnar efitir áfcveðnum »reg!l-
um, sem 6 manna nefnddn set-
ur og sýnir núna aðeins verð-
breytingar á rekstuirsvörum, en
ekki magntoreytingar. Eru magn-
breytingar aðeins reiknaðar út á
2ja ára fresti og var gert f
fyrrahaust. Haekfcun. verðlags-
giundvallar hjá bændum núnai
skapar aðeins jaftwægi við fcjör
launþega. Það er rætt um 20%
kjarabót til launþega á 2 árum
og auðvitað gera bændur ráð fyr-
ir samsvarandi fcjaraibot.
— Er hægt að hæklka búvöru-
verð urn þetta hlutfal‘1 á næstu
2 árum?
— Ýmis tormerki eru á því,
sagði Gunnar. Við erum hræddir
vio að hækka búvöruverðiö um
þetta hlutfiall. Slík h.ækkun á bú-
vöruverði getur leitt til minnk-
aðrar sölu á landbúnaðarvörum
á innlendum markaði. Það þýddi
aukna sölu á útlendan markað
fyrir lægra verð. Bændur myndu
ekki fá mikla kjarabó-t út úr
slíkri þróun mála.
Þegar rætt ei-u um 20% kaup-
máttaraukningu til launþega, þá
hefur verið rætt um að greiða
niður mjólk og kartöfilur í aukn-
Gunnar Guðbjartsson.
um mæli til þess að ná því
marki. Nú er mjólkin seld í
lausu máli á kr. 11,40 lítrinn, en
bóndinn á að íá samkvæmt
vei-ðlagsgrundvelli kr. 16,31.
Þannig er mjólkin dýrairi fyrir
bændur en neytendur í kaup-
staðnum ai£ því að mjólkurlítr-
inn kostar kr. 16,31 íyrir þá.
Þannig er erfitt að bæta bændum
auknar kjarabætur laun’pega með
niðurgreiðslum eða hæktoun bú-
vöruverðs, sagði Gurtnar.
Hversltonar
kjarabætur?
— Hvernig fá þá- bændur hugs-
anlegar kjarabætur?
— Rætt hefur veriö u,m að
greiða til bænda ákveðið pen-
ingaframlag. Yrði það greitt til
bænda án tillits til framíleiðslu-
rragns en jafngildi 20% kau.p-
máttamukningu á 2 árum til
launþéga. Sæi Framleiðsluráð
landbúnaðairins um þessar pen-
ingagreiðslur til bænda um allt
land,-Vitasikuld þarf ek'ki að taka
það fram, að þessu hefur verið
slegið fram sem hugmynd og eru
þessar athuganir á algjöru byrj-
unarstigi af hálfu stjórnar^vailda.
Sunnudagur 19. september 1971 — 36. árgangur — 212. tölublað.
Ekki er ennþá ljóst, hvermg
stjórnarvö'ld haía hugsað sér að
auka kaupmátt launþega um 20%
á næstu 2 árum. Verða bændur
að bíða með tillögugerð á með-
an.
Við höfum þó komið fram
með ákveðnar tillögur um orlof
og tökum þá mið af nýrri or-
lofslöggjöf, sem tók gildi í Nor-
egi um síðustu áramót. Þar er
norstoum bændum og húsfreyj-
um heimilt að taka sér orlof allt
að hálfum mánuði á ári og kost
ar ríkið afleysingafólk á búin.
En bændur fá ekki slíkt af-
leysingafólk nema þeir noti leyf-
ið til hvíldar og hressingar. Við
höfum gert tillögu um það að
sami háttur verði hafður á hér
á landi, sagði Gunmar.
Við teljum þetta miklu býð-
ingarmeira en setja inn í verð-
lagsgrundvöllinn hærri krónu-
tölu, sem hækki verðið. Það er
vituiriegra að gera bændum skylt
að fara í sumarleyfi á þessum
forsendum heldur en þeir borgi
sjálfir afleysingamenn fyrir
krónur í hærra verðlagi.
Bændum fækkar um
100 á ári
— Hvað er efst á baugi hjá
bæmdurn?
— Án efa er það væntanleg
breyting á löggjöfinni um Fram-
leiðsluráð landbúnaðarins. Er þá
gert ráð fyrir að leggja sex
manna nefndina niður og bænd-
ur semji beint við ríkisvaldið?
— Við gerðum ályktun um
þetta fyrir þrem árum á Stéttar-
samibandsfundi. Núna er ætlun-
in að setja á stofn sjö manna
nefnd til þess að umdirbúa þessa
lagabreytingu. Ekki er ólíklegt,
að þessi nefnd vinni einnig að
tillögum til þess að bæta kjör
bænda í samræmi við yfirlýs-
ingar stjórnarsáttmálans.
Lífeyrissjóður bænda tók til
starfa um síðustu áramót og er
lítil reynsla komin ennþá á
hann. öflugur lífeyrissjóður ætti
þó að liðka fyrir lánamólum
bænda í framtiðinni. Ennfremur
ætti hann að auðvelda bændum
að hætta búskap, aldnir að ár-
um, ef þeir þux’fa að hætta af
einhverjum ástæðum, sagði Gunn_
ar.
Undanfaxúnn viðreisnai’áiratug
hefur bændum fækikað um 100
íx ári og ber að stöðva þá þró-
un. Fram til ársins 1960 voru
6 þúsund bændur á laodinu.
Hefúr þeim fækkað í 4500 bænd-
ur á tólf árum.
Bætt árferði og betra stjórn-
arfar getur snúið þessari öfug-
þróun við og skapa þarf bjart-
sýni og viðunandi kjör hjá
bændum. Landbúnaður á verð-
ugan sess í atvinnulífi þjóðar-
innar. Alltof margir bændur yf-
irgefa sveit sína nauðugir og
yfirgefa þá eignir sinar og stétt-
arsystkin. Þessu þarf að breyta.
g.m.
Hringbraut færð
um breidd sína
Eins og komið hefur fram í
fréttum er ráðgert að færa
Hringbrautina á svæðinu frá
Miklatorgi að Njarðargötu vegna
fyrirhugaðra bílastæða fyrir
Landspítalann, á því svæði sem
Hringbrautin liggur nú.
Það kom fram í viðtali við
gatnamálastjóra, að undirbún-
ingur að þessum framkvæmdum
væri hafinn og hafa nú þegar
verið rifin hús sem standa á
-+-
ERLENDAR
FRÉTTIR
SKIPZT Á SKOTUM Á
SÚEZ-SVÆÐINU
í morgun skiptust Egyptar
og ísraelsmenn á skotum á
Súez-svæðinu. Er þetta í
fyrsta sinn í marga mánuði
sem slíkt kemur fyrir. ísra-
elsmenn fullyrða að Egyptar
hafi byrjað skotárás og hafi
þarð verið vandlega undirbúin
• ögrun af þeirra hálfu.
HÆKKUN JENSINS?
TOKIO — Fjármálaráðherra
Japana viðurkenndi í gær á
blaðam-annafundi að hækkun
jensins myndi ekki skaða
efinahag Japana að max-ki, ef
hækkunin kæmi til fram-
kvæmda, sem liður í marg_
vislegum aðgerðum í pen-
ixgamálum auðvaldsheimsins.
Þetta er í fyi-sta sinn sem
japanskur valdamaður nefn-
r hækkun jensins sem mögu-
leika tii lausnar á ríkjandi
peningakreppu.
svæði því sem gatam kemur til
með að liggja um. „Hringbraut-
in mun færast um meira en
breidd sána“, sagði gatnamála-
stjóri. Framkvæmdir þessar
munu verða tímafrekar, þar sem
mikið er af strengjum sem íæra
þarf, svo og vatnsleiðslum. Sjálf
gatnager’ðin mun hefjast snemma
á næsta ári, en óvíst er hvenær
;enni verður lokið.
Sigríður Jóhannesdóttir.
Nýr formaður AB
á Suðurnesjum
Alþýðubandalagið á Suður-
nesjum hélt aðalfund sinn á
fimmtudag. Rædd voru atvinnu-
mál svæðisins og hlutverk AB á
komandi vetri.
Félagið fca.U's sér nýja stjórn
og var Sigríður Jóhannesdóttir
kjörin formaður. Aðrir í stjórn
voru kjömir: Gunnar Valdemars-
son ritari og Sigvaldi Arnodds-
son gjaldkeri. Vax-astjóm skipa
Jóhann Geirdal og Úlfar Þor^
móðsson.
Seljum á morgun og næstu daga
KARLMANNASKÓ
Ennfremur vinnuskó karlmanna, úr leðri, á 595 kr. parið. Allar stærðir.
SKÓRÚÐ AUSTURBÆJAR
Laugavegi 100.
í