Þjóðviljinn - 07.10.1971, Side 11
Firnmtudaigur 7. október 1971 — ÞJÓÐVH-JINN — SlÐA ^ |
E7
Gömul saga
af Krúsjof
Um Níkítu Krúsjof. sem
áður var forsætisráðherra í
Sovétrikjunum og nýlega er
látinn voru sagðar margar
sögur. Hér fer á eftir ein
slík saga, svo sem í heiðurs-
skyni við gamla manninn.
Krúsjof var að aka um
sveitir landsins á glæsibíl og
sér hann bónda einn standa
við veginn og veifa. Krúsjof
lét bílstjóra sinn nema stað-
ar og tók bónda upp í til
sta’ðfestingar á sínu alþýð-
lega háttemi
Tófcu þeir tal saman.
— Hvert ert þú að fara,
laxi? spurði Krúsjof.
— Ég, ja ég er að fara í
bæinn að gera innkaup.
— Og hvað vantar þig
helzt?
— Sjáðu nú til, sagði
bóndi. Ekki svo að skilja að
það sé ekki hægt að fá flest
sem mann vantar í búðinni
heima. en ég þarf að gera
, meiriháttar innkaup. Vi'ð
fengum okkur sjónvarp i
fyrra, ég og kerlingin mín,
i -Jg líkar það ágætlega. E.n það
er eins og þú veizt með þess-
ar kerlingar, þær eru aldrei
tu. friðs. Og nú er ég send-
Jt í bæinn til að kiaupa kæli-
skáp. Við ættum vel að hafa
ráð á þvi núna þegar upp-
skeran er svo góð ...
Krúsjof tekur vel undir
þetta taL
Én þegar líður á samtalið
tekur bóndinn að horfia fast-
ar á viðmælanda sinn — og
loks er eins og það renni upp
fyrir honum ljós.
— Er það sem mér sýnist,
segir hann, að þetta sért þú,
Níkíta? Ég ætlaði bara ekki
að þekkja þig eins fínn og þú
ert orðinn í tauinu. Ég hélt
þetta væri einhver af þess-
um útlendingum.
Nei, en satt að segja, sendi
ketlingin mig í bæinn til að
kaupa lúsaduft. Það hefur
lengi verið veggjalúshjáokfc-
ur, en nú ætlar hún okkur
alveg lifandi að drepa.
KRAFTEDJÓT EÐA
KRAFTAEDJÓT
Verjandi sagði. að stefn-
anda og aðstoðaryfirlögreglu-
• þjóninum kæmi ekki saman
um þau ummæli sem Sigurð-
ur viðhafði við aðstoðaryfir-
lögregluþjóninn. Ber sá síð-
amefndi að ritstjórinn hafi
kallað sig kraftedjót, en
stéfnandi segist haf'a kallað
hann kraftaedjót. Stæði hér
fullyrðing á móti fullyrðingu,
en að sínu viti væri miklu
meira meiðandi að vena kall-
aður kraftedjót en kraftaed-
jót og skildi þar mikið á
milli. Gat verjandi þess, að
stefnandi hefði ekki verið á-
kærður fyrir þessi ummæli,
en þau gátu me<ö meiru gef-
ið lögreglunni rétt til að
bandtaka hann.
Tíminn.
EFTIR MARIA
— Og ég sem ætlaði að hafa
allt svo sérlega gott og freist-
andi fyrst Hákon á laugardags-
fri aldrei þessu vant.
Berit er samstundis reiðubúin
til að koma með henni og leggja
henni lið. Það er hætt að snjóa,
og gangan yfir í Blikksmiðsgötu
er reglulega hressandi. Þegar
þær koma að húsinu eru þær
rjóðar í kinmum og með. ljóm-
andi augu'.
En á borðinu milli svaladyr-
anina liggur pappírsmiði sem
rifinn hefur vérið úr vasabók.
Eva Mari les það sem á hann
er hripað og verður þungbúin
á svip.
— Fjandinn sjálfur. Fjandinn
sjálfur! Af hverju í ósköpun-
um þarf ég alltaf að lenda á
karlmönnum í kolómögulegri at-
vinnu. Annar sat við píanó eða
seguiband frá morgni til kvölds
og Hákon ...
— Kemur hann ekki hcim?
Berit virðist álífca vonsvifcin
og vinkonan.
— Nei, mikil ósköp. Nú er
einn af þessum bannsettum
bílstjóraræflum kominn með
flensu. Og Hákon er vist farinn
eitthvað norður í Finnmerkur-
skóga. — Kem ekki heim fyrr
en í íyrramáliði Hvað segirðu
um þetta. ha?
— Árans ólán. Og þú sem ert
búin að kaiupa allan þennan
mat.
— Ojæja. Við verðurn að úða
honum í pkkur sjálfar. Það er
svei mér heppilegt að þú skulir
vera hér. Annars hefði ég sezt
niður og farið að skæla.
— Nei, segir Berit dálítið
þurrlega. — Þú ert efcki sú
manngerð.
Og meðan þaer tina í sam-
einingu upp vínflöskur og mat-
vörur kemur eitthvað henni til
að segja:
— Veiztu að Gillis Nilsson er
í bænum?
— Ha? Hver sagðirðu? Jæja
Gil¥is. Röddfin er dæmaflaust
kæiuleysisleg. Þá ætlar hann
sjálfsagt að finna Óla.
— En ... þú þelékir hann líka,
er það ékfci?
— Efcki svo náið að hann af-
sali sér höfuðstaðarglaumnum
til að heilsa upp á mig. Þessar
nautaliundir líta stórkostlega út.
Heyrðu, við sfculum hafa turn-
bauta með hvítlaufcssmjöri, fynst
Hákon er dkfci heima; hann
refur ofnæmi fyrir hvítlauk.
— Ég slefa bókstaflega við
tilhugsunina. Og ég fresta mcgr-
uninni fram i næstu viku.
En Berit fær aidrei tumbaut-
anin sinn með hvítlauknum. Hjá
bréfakörfunni í eldhúshorniinu
hefur Eva Mari komið auga á
samianvöðlaO pappirssnifsi. í
stað þess að fleygja því í körf-
una fer hún af einihverjum á-
stæðum að slétta úr því.
Hafi hún orðið svipþung áðan
þegar hún las boðin frá Hákoni,
er það efcfcert á mióti viðbrögð-
um heninar, þegar hún er búin
að stauta sig fram úr krypluð-
um bókstöfunum á þcssu blaði.
Það er erfitt að ráða i hvort
hún er reið hrædd eða skelfi-
lega undrandi. Eitt er víst.
Brúnu augun verða lcolsvört á
svipstundu, hún starir fjarræn-
um augum á girnilega samröðun
eldhúsborðsins af tómötum,
snittubrauði, rauðu nautakjöti,
grænmeti gúrfcu, dimmrauðu
bourgognevíni og gulum sítrón-
um og á sama fjarræna háttinn
starir hún á Berit sém stendur
ráðvillt.
— Mér þykir það leitt, tautar
hún eins og við sjálfa sig. Ég
verð að biðja þig að fara. Svo-
leiðis er... að ég er vant við
látin í kvöld.
— Auðvitað. Ég skal fara
undir eins.
12
— Það er fallegt af þér.
Reglulega fallegt.
— Alls efcki. Það er bara...
ég á við... það er eitt sem
mig langar að spyrja þig um
fyrst.
Bva Mari talar og • kemur
fram eins og hún hefði breyzt
í eins konar véltorúðu.
— Já. segir Berit Edman
festulega. — Ég hef ætlað að
gera það síðan í gær, en ég
veit að bæði skrifstofustjórinn
og Lilly Rahlón yrðu vitlaus ef
þau fréttu að ég gengi milli
húsa og taiaði um bréfin sem
kæmu í ráðihúsið.
— Ráðhúsið? Hvað ... hvað
í ósköpunum ertu að tala um?
— Jú, nú skaitu heyra. Eva
Mari, hvers vegna hefurðu sent
umkvörtunarbréf þar sem þú
lýsir andúð þinni á þeirri sam-
þykkt bæjarráðs að endumýja
húsnæðið fyrir nýja diskótekið
sem þú hefur svo oft óskað eftir
niðri við járnbrautarsporið?
Loiks er eims og hún vakni
af dvalanum.
— Hvað þá? Á ég að hafa
skrifað kvörtunarbréf? Um að
ég vilji ekki fá þetta úrvals-
diskótek?
— Þú hefur að minnsta kosti
skrifað nafnið þitt undir þess
konar bréf.
— Naflnáð mitt? Ég held að þú
sért alveg búin að tapa glór-
unni. Við verðum að ræða þetta
— einhvem tíma seinna. Elsku
bezta...
— Já, ég þýt á augabrágði.
Heim í pylsumár og sjónvarp-
ið og Homið hans Hylands. Ef
ég flýti mér get ég meira að
segja séð alla fílana í barna-
timanum. Bless ...
Hún er ekki sú eina í bænum
sem hverfur á vit laugar-
dagsskemmtuinar sjónvarpsins.
—• Er það satt? spyr Christer
Wijk sem til þessa hefur komizt
hjá þvi að hrífast með í þessu
Hylandsæði. — Hafið þið setið
og gónt á hvert einasta hom,
föstudag jafnt sem laugardag,
siðan níunda jianúar? Við
skulum sjá, það verða tíu kvöld
með kvöldinu í kvöld. Og samt
eru átta eftir. Hvemig getið
þið afborið þetta? Og hvernig
hafið þið tíma til þess?
— Svona nú, segir Alrni
Graan, — lögreglufuiltrúinn
ætti ekki að vera með nein
merkilegheit við mig og hana
móður sína, Þótt þú hafir fleiri
og merkilegri tækifæri til að
skemmta þér í höfuðstaðnum
þarftu ekki að láta eins og
þú sért búinn að gleyma því,
hve vetrarmánuðirnir eru lang-
ir og níðurdrepandi hjá okiour
hér á þessum útkjálka.
— Og auk þess, segir Helene
Wijk gremjulega, ef þú ert
einn af þessum nöldurskjóðum
sem kumna efcki að meta þenn-
an indæla og hugkvæma Lenn-
art Hyland, þá skaitu bara hafa
hljótt um þær skoðanir í stað
þess að eyðilegga fyrir okkur
Almi það sem er hápunktur
vikunnar.
— Ussu, sussu, nú þykir mér
týra.
Hann situr í makindum í
leðursófanum, mettur eftir frá-
bæra máltíð, með svart kaffi
og svarta pípu á reykjarborð-
inu og hamn er alitof ánægður
með tilveruna til að nenna að
stríða þeim. Brúna húsið niðri
við vatnið er bernskuheimilið
hans, snjóug ávaxtatrén í
garðinum eru ögn hærri og
fcræfclóttari en þau voru þá,
útvarpið
Fimmtudagur 7. október.
7,00 Morguinútvarp: Vedurfr.
kl. 7,00, 8,30 og 10,10. Fréttir
kl. 7,30, 8,30, 9,00 og 10,00.
Morgumíbæn kl. 7,45. Morg-
unstund bamanna kl. 8,45:
Sigríður Schiöth les fram-
hald sögumnar „Sumar í sveit”
eftir Jennu og Hreiðar Stef-
ámsson (7). Útdráttur úr for-
ustuigreinum da^blaðanna kl
, 9,05. Tilkynningar kl. 9,30. —
Síöam leikim létt iög og einn-
ig áður milli dagskrárliða.
Við sjóinn kl. 10,25: Imgólfur
Stefánsson ræðir við Auðun
Auðunsson skipstjóra. Sjó-
manmalög. Fréttir kl. 11,00.
Frömsk tónlist: Italski kvart-
ettinm leikur Strengjakvartett
í g-moll op. 10 eftir Debussy.
Fabienne Jacquimot og West-
minster-hljómsveitin leika Pí-
anókonsert nr. 5 í F-dúr op.
103 eftir Saimt-Saéns; Ana-
tole Fistoulari stjómar.
12,00 Dagskráin. Tómleikar. Til-
kynningar.
12,25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13,00 Á frívaktinmi. Eydis Ey-
þórsdóttir kymmir óskalögsjó-
mamma.
14,30 Síðdegissagan: „Hróii hött-
ur í London laust fyrir seinna
stríð“. Séra Bjöm O. Bjöms-
son les fyrri hluta þýðingar
simmar á sögu eftir Michai'.e
Arlen.
15,00 Fréttir og tilfcymningar.
15.15 Bandarísk tónlist. Útvarps-
hljómsveitin í Berlín ledkur
tómverkið „Vor í Appalakíu-
fjöllum“ eftir Aaron Cop-
land; Arthur Rother stj.
Leontyme Price symgur negra-
sálma með kór og hljómsveit.
Juilliard-kvartettinm leikur
Stremgjakvartett nr. 1 eftir
Charles Ives.
16.15 Veðurfregnir. — Létt lög.
17,00 Fréttir Tónleikar.
18,00 Fréttir á ensfcu
18,10 Tónleikar. Tilkynnimgar.
18,45 Veðurfregmir Dagskrá
kvöldsins.
19,00 Fréttir. Tilfcymmingar. —
19,30 Leikrit: „Læfcnir í vanda“
eftir Georges Bemard Shaw:
síðan hlutf. , Þýðamdi: Ánni
Guðnason magister. Leikstjóri
er Gísli Halldórsson. Persóm-
ur og leikendur: Sir Ralph
Bloomfield Boningtóm: Þor-
steinn 0. Stephensen, SirCol-
enso Ridgeom: Rúrik Har-
aldsson, Sir Patrick CuMen:
Valur Gíslason, Frú Dubedat:
Edda Þórarinsdóttir, Louis
Dubedat: Þórhallur Sigurðs-
som, Cutler Walpole: Róbert
Amfinmsson, Dr. Blenkinsop:
Baldvim Halldórsson, Séhutz-
macher: Steiindór Hjörleifs-
son, Emma: Ipga Þórðardótt-
ir, Rédpemny: Guðm. M agnús-
son, Minna Tinwell: Ásdís
Skúladóttir.
21,00 Fyrstu tómleikar Sinfón-
íuhljómsveitar Islamds á nýju
starfeári. Fyrri hiuta tómleifc-
anma útvaæpað beint frá Há-
skólabíói. Hljómsveitarstjóri:
George Cleve frá Bandaríkj-
unum. Einleikari á píanó:
Jörg Demus fná Austumríki.
a) „Rúslam og Lúðimila", for-
leikur eftir Michael Glimka.
b) Píanóikomsert mr. 21 í. C-
dúr K-467 eftir W. A. Mozart.
21.40 FUndin ljóð. — Amdrés
Bjömsson útvan-psstjóri les úr
nýútkominmi bók Páls Ólafs-
somar sfcálds.
22,00 Fréttir.
22,15 Veðurfregnir. — Frá Cey-
lom. Magnús Á. Árnason list-
rnálari segir frá (11).
22.40 Létt músik á 'síðtovöldi:
Edmundo Ross, Jo Privat >g
Tony Morena leika með
hljómsvedtum sínum.
23,25 Fréttir í stuttif fdáiir* —
Dagskrárlok. —
glettan
— Vér stúdentar teljum, að þér látið ískra í krítinni af ásettu
ráði.
Indversk undravéröld
Ávallt mikið úrval af sérkennilegum aust-
urlenzkum skraut og listmunum til tæki-
færisgjafa. — Nýjar vörur komnar. m.a.
Bali-styttur, útskorin borð, vegghillur.
vörur úr messing og margt fleira. Eiiin-
ig margar tegundir af reykelsi ‘og reyk-
elsiskerjum. Gjöfina sem veitir varanlega
ánægju fáið þér í JASMIN Snorrabr. 22.
Volkswageneigendur
Höfum fyrirliggjandi BRETTI — HURÐIR — VÉLALOK
og GEYMSLULOK á Volkswagen í allflestum litum.
Skiptum á einum degi með dagsfyrirvara fyrir áfcveðið
verð. — REYNIÐ VTÐSKIFTIN.
Bflasprautun Garðars Sigmundssonar,
Skipholti 25. — Simi 19099 og 20988.