Þjóðviljinn - 05.02.1972, Page 4

Þjóðviljinn - 05.02.1972, Page 4
4 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN — Laiugardaigur 5. íebrúar 1972. — Málgagn sóðialisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis — Útgefandi: Útgáfufélag ÞjóSviljMs. Framkv.stjóri: Eiour Bergmann. Ritstjórar: Sigurður Guðnwids»n, Svavar Gestsson (áb.). .»~g-:ýsingastjóri: Heimir Ingimaros-vn. sristjórn, afgraiðela, auglýsingar, prwsmiðja: SkóltnráaaMig 19. Síwi 17500 (5 fcan). — ÁskHft»rvewB kr. 195,00 á mánuði. — Laosasóluvurð kr. 12,00. Kjaradeila BSRB , l^jaradeila starfsmanna ríkis og bæja hefur nú staðið í nokkrar vikur og verður ekki sagt að, BSRB hafi mistekizt að fá almenning til þess aðj taika eftir sér. Er það vel, að samtök launafólks skuli þannig tryggja sér eftirtekt almennings í kjarabaráttunni. En ekki verður því neitað, að af hálfu BSRB hefur kjaradeilan verið rekin af ó- venjumikilli hörku. Strax þegar ríkisstjómin lýsti þvi yfir, að hún teldi ekki ástæðu til þess að standa að almennri hækkun allra launa opinberra starfs- manna í samræmi við kjarasamninga Alþýðusam- bandsins, gaf form. BSRB þá yfirlýsingu að hér væri um að ræða lögbrot af hálfu ríkisstjórnarinn- ar og að ríkisstjómin neitaði að ræða við opinbera starfsmenn. Hér er auðvitað ekki rétt með farið. Ríkisstjórnin hefur aldrei neitað að ræða við opin- bera starfsmenn og ekkert lögbrot hefur verið framið. Þjóðviljinn hefur látið koma fram þá skoð- un á kjarakröfum Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, að eðlilegt sé að hækka laun í lægri launa- r flokkunum til samræmis við launakjör ASI, en að óeðlilegt sé að launahækkanir til félagsmanna í verkalýðsfélögunum komi sjálfkrafa til allra ann- arra, lika þeirra, sem hærri hafa launin. J£jaradeila opinberra starfsmanna er nú komin á sáttastig og hefur verið um nokkurt skeið án þess að nokkuð afgerandi hafi gerzt. Er nauðsyn- legt að ríkisstjómin og fomstumenn opinberra starfsmanna geri gangskör að því að ná sáttum í deilunni; deiluna verður að leysa. Vilja þeir semja? í kjaradeilu opinberra starfsmanna hefur furðu- lega lítið verið rætt um afstöðu sveitarfélaganna til kjarakrafna bæjarstarfsmanna. Hefur ekki komið fram að Reykjavíkurborg sé reiðubúnari en aðrir til þess að verða við kjarakröfum BSRB. Þó hefur ekki skort frýjunarorðin í málgagni Geirs Hallgrímssonar borgarstjóra um afstöðu ríkis- stjórnarinnar til kjaraimála opinberra starfs- manna. Aðbúnaður á vinnustöðum | sérkröfum verkalýðsfélaganna sem nú eru 1 samningum er verið að fjalla meðal annars v aðbúnað á vinnustöðuim. Málmiðnaðarmenn hafa til dæmis lokið samningum um sérkröfur sínar o' þar eru inni í samningum þýðingarmikil ákvæði um bættan aðbúnað og hollustuhætti á vinnustöð- um. Munu niðurstöður þessara samninga hafa mikii áhrif á vinnuaðstöðu málmiðnaðarmanna. En enn er margt ógert og verður hér ekki látið staðar numið, eins og Guðjón Jónsson komst að orði í viðtali við Þjóðviljann. En fyrsti áfanginn er þýðingarmikill. Nöfn genginna skálda og lög nr. 10-1960 um söluskatt Hr. for9eti. Haustið 1969 var haldið hér í Reykjavík fjölmennt rithöfunda- þing. Auk rithöfunda sátu þingið félagar í Félagi ísl. bókmennta- þýðenda og félagar í Félagi ísl. fr*ða. Meginhlutverk þingsins var að fjalla um hagsmunamál höfunda og rétthafa ritaðs máls. F.in þeirra samþykkta sem þetta rithöfundaþing gerði, fjallaði um söluskatt af bókum, og lýsti þing- íð óhæft, að slík fjárhæð, sem þannig skapaðist af vinnu rit- höfunda, rynni í ríkissjóð meðan rithöfundarnir sjálfir vissu ekki, hverntg þeir mættu gefa sig að ritun bóka. Þetta er rifjað upp hér, vegna þeirrar þingsályktunar- tillögu, sem hér liggur fyrir á þskj. 166 og fjallar um endur- greiðslu söluskatts til rithöfunda. Við flutningsmenn þessarar til- Iögu leggjum til, að háttvirt Al- þingi skori á ríkisstjórnina að gera ráðstafanir til þess, að and- virði söluskatts af bókum renni til rithöfunda og höfunda fræði- rita sem viðbótarritlaun. Tillag- an er þannig beint framhald af ályktun rithöfundaþingsins og þeirra umræðna í ræðu og riti sem síðan hafa spunnizt um þetta hagsmunamál rithöfunda. Þegar bókmenntaarf okkar ís- lendinga ber' á góma, hættir mönnum til að grípa til alhæf- inga og faguryrða um snilldar- verk fortx'ðarinnar og gildi þeirra fyrir þjóðina, Það er auðvitað óhjákvæmileg skuld, sem við verðum að greiða þeim skáldum og rithöfundum fortíðariimar, sem hafa kannski öðrum fremur gert okkur íslendinga að menn- ingarlega sjálfstæðri þjóð, að virða minningu þeirra, en sú skuld er illa greidd, ef við ein- angrum þá í sögunni til þess einvörðungu að dýrka á hátíða- stundum. Þann menningararf, sem þessir menn skiluðu okkur í hendur, verður að ávaxta í lif- andi starfi hverrar kynslóðar, því að sú þjóð sem gerir það ekki, sú þjóð sem hætt er að vera menn- ingarþjóð, er ekki lengur fær um að meta það starf, sem þessir menn inntu af hendi á sínum tíma. Rökin að finna í söluskatts- lögunum Ég ætla ekki að verja ræðutíma mx'num hér í hátíðlegar yfirlýs- ingar um gildi menningar eða þátt bókmenntanna í íslenzkum menningararfi. Ég vil minna á, að úttekt á menningarstigi hvers tímabils, er jafnframt úttekt á viðhorfi samtímans til list- sköpunar og menningarstarfa, og þá kannski fyrst og fremst á því, hvaða skilningi slíkt starf á að mæta hjá ráða- mönnum þjóðarinnar. Um listir og menningu verður því ekki fjallað í heild nema í samhengi annarra samfélagsþátta og því verður ekki hjá því komizt hér að biðja menn að leiða hugann að tvennu í senn: nöfnum geng- inna skálda og Iögum nr. 10/1960 um söluskatt, einfaldlega vegna jxess, að rithöfundum samtíðar- innar er ógerlegt að ávaxta bók- menntaarf þjóðarinnar nema þeir fái greitt fyrir ritstörf sín og fái þannig helgað sig þeim óskiptir. Kröfur rithöfxmda eru ekki frábrugðnar kröfum annarra vinnandi stétta: að þeir fái sann- gjörn laun fyrir vinnu sína. Þeir fara ekki fram á nein sérréttindi eða forréttindi. Þeir krefjast við- urkenningar á því, að ritstörf séu vinna, sem krefst starfsorku þeirra óskiptrar, en eins og nú er háttað kjömm rlthöfunda, hljóta þeir að eyða starfsorku sinni og tíma í að stunda önnur störf jafnframt ritstörfum sér til lífs- bjargar. Rök fyrir því, að söluskattur af bókum xenni til höfunda þeirra í formi viðbótarritlauna, er fyrst og fremst að finna í söluskatts- Iögunum sjálfum. f 7. gr. laganna er kveðið á um að sala listamanna á eigin verkum skuli undanþegin söluskatti. I því felst viðurkerm- ing ríkisvaldsins á því, að ótil- hlýðilegt sé, að það hagnist bein- línis á starfi listamanns með þessum hætti. En í stað þess að rithöfundar njóti góðs af þessu ákvæði í söluskattslögunum, er þeim gert að standa undir miljóna króna hagnaði ríkisins af verkum þeirra, einvörðungu vegna þess, að svo er háttað sambandi nöfunda við les- endur sína, að því er ekki unnt að halda uppi milliliðalaust. Hér er tvímælalaust um að ræða mis- rétti, milli rithöfunda og þeirra listamanna, sem aðstöðu hafa til að selja verk sín sjálfir. Auðvelt og sanngjarnt væri að draga úr þessu misrétti, á þann veg, að ríkissjóður endurgreiddi höfund- um andvirði söluskatts af bókum. Söluskatturinn rynni síðan til bókahöfundar sem viðbótarrit- laun. Á það hefur margsinnis ver- ið bent, að rithöfundarnir bera langminnst úr býtum allra þeirra sem við verk hans eru riðnir, enda þótt því verði ekki á móti mælt, að starf rithöfundarins er undirstaða og forsenda allra bóka- gerðastarfsgreina og raunar margra annarra starfsgreina þjóð- félagsins. Þetta hefur varla verið betur eða greinilegar orðað en í grein- argerð frá Rithöfundasambandi íslands, sem kom út í sambandi við Rithöfundaþingið haustið 1969, en þar segir með leyfi for- seta: Rithöfundar bera minnst úr býtum „Ekki verður því á móti mælt, að fjöldi starfshópa í þjóðfélag- inu byggir afkomu sína á störf- um rithöfunda. Svo er um prent- ara, bókbindara, prentmynda- gerðarmenn, bóksala, bókaverði, bókmenntagagnrýnendur og. kennara í bókmenntum. Rétt þessara starfshópa til launa ve- fengir enginn maður. Samfélagið viðurkennir einnig rétt Iista- manna til starfslauna, þegar þeir flytja annarra verk, svo sem leik- ara. Öðru máli gegnir um skapend- ur listar. Skáld og rithöfundar, sem allir fyrrgreindir hópar eiga störf sín að þakka að meira eða minna leyti og þá um leið af- komu sína, njóta ekki viðurkenn- ingar á rétti til sómasamlegrar greiðslu fyrir sköpunarstarf sitt. Langmestur hluti af tekjam þeim, sem fást af verkum þeirra, renn- ur tií greiðslu á launum starfs- hópa, sem ými$t vinna við út- gáfu eða kynningu á verkum þeirra. Frumkvöðullinn sjálfur ber minnst xir býmm allra, sem við verk hans eru riðnir . . . íslenzkir rithöfundar eru ekki þiggjendur, heldur hlutfallslega stórtækusm veitendur þjóðfélags- ins, þvx auk þess sem afkoma stórra starfshópa í þjóðfélaginu byggist á sköpunarstarfi þeirra, þá er beinn fjárhagsarður hins opinbera af verkum þeirra árlega mörgum sinnum hærri en árstekj- ur allrar rithöfundastéttarinnar af ritstörfum". Einn liður í fjárhagsarði hins opinbera af störfum rithöfunda er söluskatturinn. Fíann nam ár- ið 1970 13,8 milj. króna, en áætl- aður söluskattur ársins 1971 af innlendum bókum, er skv. út- reikningum Efnahagsstofnunar- innar rúml. 19 milj. krónur. Þyki einhverjum þetta háar upphæðir, vil ég minna á til samanburðar, að framiag ríkisins til Þjóðleikhúss eru tæpar 35 milj. kr. og Sinfóníuhljómsveitar íslands tæp- ar 16 miljónir. Hlutfall ritlauna og söluskatts af bókum En hvernig er þá háttað hlut- falli milli ritlauna höfundar og söluskattsupphæðar ríkissins af bók hans. Að því er vert að hyggja. Greiðslur ritlauna til rithöf- unda eru aðallega með tvennum hætti. Annars vegar ákveðin upp- hæð, sem greiðist fyrir leyfðan og prentaðan eintakafjölda,- og hins vegar prósentugreiðsla, ákveðið hlutfall af seldum ein- tökum bókarinnar. í báðum til- fellunum leggur útgefandi mat á sölumöguleika bókarinnar, og geta því ritlaun verið nokkuð misjöfn eftir því hver höfundur- inn er. í blaðaviðtali í nóv. s. 1. segir kunnur bókaútgefandi eftirfar- andi um höfundarlaun, með leyfi forseta: „Höfundarlaun geta því verið allt frá núlli og til veru- legra hárra upphæða, ef um er að ræða prósentukerfið og svo kall- aðar metsölubækur. Hið algeng- asta er sennilega einhvers staðar þar á milli, t. d. á bilinu frá 60— 120 þúsund kr. Ef bók, sem kost- ar án söluskatts kr. 600, selst í 2000 eintökum og höfundurinn fær t. d. samkvæmt samningi 10% í höfundarlaun, þá verða höfundarlaun hans kr. 120 þús- tmd. Ríkið fær hins vegar af þessari sömu bók kr. 132 þúsund í söluskatt . . ." í þessu dæmi, fær ríkið me»x í sinn hlut í formi söluskatts en höfundurinn sjálfur, og eru þó ekki reiknaðir með skattar til rík- is og sveitarfélags sem höfundin- um er gert að greiða fyrir það sem í hans hlut kemur. Afleiðingarnar af þessari þsróun hljóta að vera augljósar: bóka- útgáfan hlýtur óhjákvæmilega að stefna í þá átt, að hún einskorft- ast við léttmeti svo og metsöla- höftmda, sem skrifa svonefndar „öruggar sölubækur" Eðlileg endurnýjun í listsköpun mun eiga æ örðugra uppdráttar, æ færri nýir höfundar fá verk sín útgefin, allir sem af einhverjum ástteð- um eiga ekki heima í sölukerfinu troðast undir. Og þá eigum »ið ekki lengur frjálsa list, því að list, sem sveigð er undir markaðs- kerfi, sú list, sem hlíta verður lög- málum framboðs og eftirspurnar líðandi dægurs, sú Iist er ekki Iengur frjáls. Höfundar fræði- rita njóti sömu kjara Við höfum gert ráð ‘fyrir því i tillögunni, að auk skálda og rit- höfunda, ættu höfundar' þeirra fræðirita, sem til menningarauka horfa fyrir þjóðina, einnig að njóta viðbótarritlauna með þess- um hætti, enda mimu rxtlaun fyr- ir slíkar bækur sízt hærn en fyrir skáldverk. Þá mun og réttlætis- mál, að þeir höfundar, er vinna menningarstarf með þýðingum erlendra bóka, njóti einnig sömu kjara. En um fyrirkomulag þessara greiðslna, höfum við lagt til, að menntamálaráðuneytið setji reglu- gerð, og teljmn við það eðlileg vinnubrögð, þar eð framkvæmd þessa máls hlýtur að þurfa ná- kvæmrar athugunar við, ef hún á að ná tilgangi sínum. Sá til- gangur er tvíþættur: annars veg- ar sá að efla bókmennta- og menningarstarf í landinu og hins vegar sá að tryggja starfandi rit- höfundum sanngjörn latrn fyrir vinnu sína og gera þeim ldeift að gefa sig óskipta að ritstörfum, skapa þeim sem þessi störf stunda, þroskavænleg vipnuskil- yrði. Það er sannfæring flutnings- manna.'að sá arður, sem ríkið fær af vinnu listamanna í formi sölu- skatts, komi þjóðinni þá bezt að gagni, ef hann verður notaður ril þess að styrkja sjálfa undirstöðu- grein bókmennta- og menningar- lífs í landinu. SKATTRAMTÖL — AÐSTOÐ Opið i dag. — Hafíð með yður launamiða og önnur gögn, sem máli skirita VIÐSKIPTI, Vesturgötu 3. Ræða Svöfu Jakobsdóttur fyrir tillögu um endurgreiðslu söluskatts til rithöfunda v

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.