Þjóðviljinn - 26.07.1972, Page 1
7. einvigisskákin
„ÞETTAER BRJALÆÐI”
— sögðu menn er Fischer hirti peðið á e4
Sjöunda skákin sém fram fór i
gærkvöld er án efa ein æsilegasta
skák sem tefld hefur verið i
heimsmeistaraeinvigi, að
minnsta kosti á siðustu áratug-
um. Allt frá þvi i byrjun og fram
að biðstöðu var sem borðið logaði
af möguleikum. Biðstaðan sem
tefld verður áfram i dag er einnig
mjög tvisýn og verður mjög
spennandi að fylgjast með úrslit-
um hennar.
Spasski hafði hvitt og lék i
fyrsta leik e4. Hefur hann án efa
verið búinn að fá sig fullsaddan af
drottningarpeðsbyrjunum i bili.
Honum tókst að visu að vinna
BIÐSTAÐAN
abcdefgh
•4
c*
03
K
~h up | m -
■ m h*h •
■ m m ■ * •
mm *
m.
fyrstu skákina en i þeirri þriðju
og þeirri fimmtu mátti hann þola
hinar verstu hrakfarir. Fischer
svaraði eins og vænta mátti með
Sikileyjarvörn og upp kom eitt af
þeim afbrigðum sem Fischer er
manna mestur sérfræðingur i,
þ.e. peðsráninu á b2. Er hann lék
svo i 11. leik sinum h6 var ljóst að
hann hugðist einnig ætla aö næla
sér i peðið á e4. Þetta erbrjálaáii,
sögðu menn, er hann svo i 12. leik
lék Rxe4. Hann hlýtur að skittapa
þessu, Spasski fær svo ofboðslega
sókn. Spasski hélt áfram i
þessum sóknarstil, lét biskup i
dauðann á b5, hvern svartur var
eiginlega neyddur til að þiggja.
Spasski tók sér góðan umhugsun-
artima er hann lék 18. leik sinum
og mönnum til nokkurrar undrun-
ar hörfaöi hann meö riddarann til
d6, en ýmsir höfðu mælt með að
leika drottningunni til d7. 19. leik-
ur Spasskiks bauð svo upp á
drottningarkaup. Fischer var
ekki ginkeyptur fyrir þeim i bili.
Smátt og smátt virtist sókn
Spasskis vera að renna út i sand-
inn, drottningarkaup fóru fram
og enn hélt Fischer peði yfir.
Menn Fischers virtust einnig
vera virkari og menn voru farnir
að tala um enn einn Fischers sig-
ur. Spasski sýndi hins vegar frá-
bæra taflmennsku undir lokin og
við það bættist að Fischer hefur
liklega oftar en einu sinni misst af
beztu leiðinni.
Riddarar Spasskis héldu öllu
föstu hjá svörtum og er Fischer
gerði tilraun til að hrekja þá af
höndum sér einfaldaðist taflið og
möguleikar Spasskis jukust. Bið-
staöan er eins og áður segir mjög
tvisýn en ég held að flestir hafi
verið á þeirri skoöun að Spasski
ætti að geta haldið jafntefli sök-
um þess hve menn hans eru virk-
ari þrátt fyrir að hann eigi peði
minna. Stórmeistarinn Najdorf
lét svo um mælt eftir að fyrstu
setunni lauk i gærkvöldi að Fisch-
er hefði misst af vinningi að
minnsta kosti einu sinni en á hinn
bóginn sagði hann að Spasski
hefði tefltmjög vel. Það er rétt að
geta þess að lokum að mönnum
þótti mjög gaman að sjá hve
Spasski tefldi af miklum sigur-
vilja og eru menn þvi að vona að
ófarir hans siðustu daga hafi eng-
in áhrif haft á hann.
Biðskákin verður eins og áður
segir tefld áfram i dag en áttunda
einvigisskákin verður tefld á
morgun.
HViTT: Boris Spassky —
Svart: Robert Fischer.
1. e2 - e4
2. Rql - f3
C7-C5
d7 - d6
3. d2 - d4
4. Rf3Xd4
5. Rbl - c3
6. Bcl - g5
7. f2 - f4
8. Ddl - d2
9. Rd4-b3
10. Bfl - d3
c5Xd4
Rg8 - f6
a7 - a6
e7 - e6
Dd8- b6
Db6Xb2
Db2- a3
Bf8 - e7
Framhald á bls. 11.
Hamranesmálið
* *
i
gæzlu-
varð-
haldi
A/lálaferliniyrn orsak-
ir slyssjns erlHamranes
fórst standa enn yfir og í
gær voru þrír menn úr-
skurðaðir í gæzluvarð-
hald vegna málsins.
Skipstjórinn og annar
eigandi togarans voru
úrskurðaðir í 40 daga
gæzluvarðhald, en þriðji
maðurinn sem eitthvað
er viðriðinnútgerð togar-
ans var úrskurðaður í 14
daga varðhald. Sak-
sóknari hefur nú á ný
vísað málinu til bæjar-
fógetaembættisins i
Hafnarfirði ti! írekari
rannsóknar og yfir-
heyrslur munu fara
fram á næstunni.
Hvaða undanþágur geta aldraðir fengið frá sköttum?
I
I
Endurskoða þarf álagningu
á hfeyrisþega
sjálfsagt að kæra álagningu til skattstjóra
I
I
Um fátt er meira rætt þessa
dagana en skattaálagninguna,
hefur þar sérstaklega þótt orka
tvimælis hækkun skatta er fram
kemur á elli- og örorkulifcyris-
þegum. Stjórnarandstaðan hef-
ur gripið þennan eina annmarka
sem hún finnur á skattalögun-
um fegins hendi og telur sig sér-
stakan málsvara hinna öldruðu.
Að þessu er vikið i forystugrein
Þjóðvitjans i dag.
Þjóðviljinn kannaði i gær,
hvaða möguleika aldrað fólk
ætti til að fá leiðréttingu sinna
mála. samkvæmt gildandi
skattalögum. Hér á eftir birtum
við þau ákvæði er gefa hcimild
til að fella niður eða lækka
tekjuskatt eða útsvar á gjald-
endum.
1 52.gr. laga um”tekju- og
eignaskatt segir:
„Heimilt er skattstjóra að
taka til greina umsókn skatt-
þegna um lækkun tekjuskatts,
þegar svo stendur á sem hér
segir:
1. Ef veikindi, slys, mannslát
eða skuldatöp hafa skert
gjaldþol skattþegns verulega.
2. Ef skattþegn hefur veruleg
útgjöld haft vegna mennt-
urnar barna sinna, eldri en 16
ára.
3. Ef á framfæri skattþegns eru
börn, sem haldin eru lang-
vinnum sjúkdómum eða eru
fötluð eða vangefin og valda
framfærendum útgjöldum
umfram venjulegan fram-
færslukostnað. Nú fellst
skattstjóri á umsókn fram-
færanda, og skal hann þá eiga
rétt á tvöföldum barnafrá-
drætti vegna barna þessara,
sbr. 16. gr.
4. Ef skattþegn hefur foreldra
eða aðra vandamenn sannan-
lega á framfæri sinu, má
veita sama frádrátt og fyrir
börn.
Nánari ákvæði um skilyrði
fyrir framangreindum ivilnun-
um skulu sett i reglugerð. Skatt-
stjóri getur af eigin hvötum
veitt lækkun samkvæmt þessari
grein. Rikisskattstjóri skal
fylgjast sérstaklega meö lækk-
unum samkvæmt þessari grein
og sjá til þess, að samræmis sé
gætt.”
Þá segir i 25 gr. sömu laga, og
er það breyting sem gerð var i
vetur, en þar segir: „Tekjuskatt
gjaldenda, sem náð hafa 67 ára
aldri á skattárinu, að fjárhæð
5.000 kr. eða lægra, skal fella
niður. Tekjuskatt sömu gjald-
enda að fjárhæð 5-10.000 kr. skal
lækka þannig, að lækkun réni i
beinuhlutfalli við hækkun tekju-
skatts.”
t reglugerð um útsvör, sem
gefin er út af félagsmálaráðu-
neytinu segir:
15.gr.
Heimilt er sveitarstjórn að
lækka útsvar gjaldanda:
a. sem nýtur bóta samkvæmt II
kafla laga nr. 67/1971, sbr. 3.-5.
gr. laga nr. 16/1972 um breyting
á þeim lögum. Bætur þær, sem
hér um ræðir, eru þessar: elli-
og örorkulifeyrir, örorkustyrk-
ur, makabætur, barnalifeyrir,
mæðralaun, ekkju- og ekklabæt-
ur og ekkjulifeyrir.
Hliðsjón skal þó höfð af þvi, að
barnalifeyrir skv. 14. gr.
greindra laga, greiddur með
börnum, ef annað hvort foreldra
er látið, er ekki talinn til út-
svarsskyldra tekna, sbr. 5. tl. 2.
mgr. 10. gr. þessarar reglugerö-
ar, en hefur hins vegar leitt til
skeröingar á lækkun útsvars
skv. 14. gr. hennar. Barnalifeyr-
ir, greiddur skv. c-lið 35. gr.
greindra laga, telst ekki til bóta
i þessu sambandi.
Fæðingarstyrkur telst ekki til
bóta i þessu sambandi, enda
ekki talinn til útsvarsskyldra
tekna.
Um fasteignaskattinn segir i
lögum um tekjustofna sveitar-
félaga5.gr: „Heimilt er sveitar-
stjórn að lækka eöa fella niður
fasteignaskatt, sem efnalitlum
elli- og örorkuþegum er gert að
greiða. Sama gildir um slika lif-
eyrisþega, sem ekki hafa veru-
legar tekjur umfram elli- og
örorkulifeyri”.
Þessar tilvitnanir sýna, að
sjálfsagt er fyrir elli- og örorku-
lifeyrisþega að kæra skatta-
álagninguna, ef þeir telja að
þessum heimildarákvæðum hafi
Framhald á bls. 11.
I
1
I
£38