Þjóðviljinn - 26.07.1972, Blaðsíða 12
DIOOVIUINN
Miðvikudagur. 26. júli 1972
Kvöldvarzla lyfjabúða vikuna
22.-28. júli er i Laugavegs Apó-
teki og Holts Apóteki. Nætur-
varzlan er i Stórholti 1.
Almennar upplýsingar um
læknaþjónustu borgarinnar
eru gefnar i simsvara
Læknafélags Reykjavíkur,
simi 18888.
Slysavarðstofa
Borgarspitalans er opin all-
an sólarhringinn. Simi 81212.
Kvöld-, nætur- og helgidaga-
vakt á heilsuvernarstöðinni.
Simi 21230.
Mikil kröfuganga
hafnarverkamanna
í London
Samúðarverkföll breiðast enn út
LONDON 25/7 Mörg þús-
und hafnarverkamenn í
verkfalli fóru í dag í kröfu-
göngu til Pentonville-fang-
elsins í London til að kref j-
ast þess að fimm félagar
þeirra verði látnir lausir.
Ihaldsstjórn Heaths hafn-
aði í gær tilmælum um að
láta mennina lausa og er
talið liklegt að atburðir
þessir leiði til allsherjar-
verkfalls.
Milli fimm og tiu þúsundir
hafnarverkamanna tóku þátt i
göngunni. Báru þeir félagsfána
og vigorð, sem lutu m.a. að þvi að
réttmætara væri að Heath for-
sætisráðherra sæti inni en félagar
þeirra. Til allharðra slagsmála
kom milli verkamanna og lög-
reglumanna sem voru á verði við
fangelsið.
Hafnarverkamennirnir fimm
voru handteknir á laugardag fyr-
ir að hafa sýnt vinnumáladómstól
fyrirlitningu — er þeir höfðu beitt
sér fyrir andstööu gegn hinni nýju
vinnumálalöggjöf ihaldsstjórnar-
innar. Handtökur þessar leiddu til
almenns verkfalls hafnarverka-
manna og margar þúsundir
manna i öörum iðngreinum hafa
byrjað samúðarverkfall. T.d. hef-
ur starfsfólk Heathrow-flugvallar
i London boðað samúðarverkfall.
Mörg verklýðssambönd vilja að
efnt sé til allsherjarverkfalls þar
til fimmmenningarnir hafa verið
látnir lausir, en stjórn brezka al-
þýðusambandsins, T.U.C., hefur
enn ekki orðið við þeirri kröfu.
Skarpar deilur urðu á þingi i
dag um þetta mál milli Wilsons,
formanns stjórnarandstöðunnar,
og Heaths forsætisráðherra. Wil-
son sagöi að vinnumálalöggjöf
ihaldsins væri dýr striðsrekstur
gegn alþýðu og hefði nú leitt til
pólitisks og siðferðilegs skipbrots
stjórnarinnar.
öldungadeildin gegn Nixon:
Vill stöðva fjár-
veitingar til
stríðsrekstursins
WASHINGTON 25/7. And-
stæðingar stefnu Nixons forseta
i Vietnam fengu nýjan byr i
seglin og hafa öölazt nýja von
um að scttur veröi’ ákveðinn
frestur fyrir þvi að Bandaríkja-
menn hætti hernaðaraðgerðum
þar eystra. öldungadeildin sam-
þykkti i gær meö 49 atkvæöum
gcgn 46 að allt bandariskt herlið
verði á brott innan fjögurra
mánaða ef striðsfangar i Norð-
ur-Vietnam verða látnir lausir.
Til að þvinga forsetann til að
verða við þessari samþykkt vill
deildin að allar fjárveitingar til
styrjaldarrekstursins verði
stöðvaðar að þessum fresti liön-
um.
Tillasan var sambykkt sem
viðbót við frumvarp um hernr
aðaraðstoð við önnur riki —
en að stuttri stund liðinni var
hún felld úr gildi með þvi að
frumvarpið i heild var fellt.
Ýmsir stuðningsmenn Nixons
höfðu séð sitt óvænna og felldu
stjórnarfrumvarpið i heild held-
ur en að það fæli i sér ákvæði
sem svo mjög ganga gegn
stefnu forsetans.
Samt sem áður er þetta mál
talið sigur fyrir þá þingmenn
sem lengi hafa reynt að fá öld-
ungadeildina til að setja tima-
mörk hernaðarlegum umsvifum
Bandarikjanna i Indókina. Það
hefur aldrei gerzt áður að deild-
in samþykkti að frysta fjárveit-
ingar til striðsins i Indókina —
allar fyrri samþykktir i þá átt
voru ekki bindandi fyrir forset-
ann.
Loftárásir á áveituskurði
Waldheim má
ekki segja
sannleikann
Jane Fonda komín frá Vietnam
Eg
1
sa sprengjugiga
stiflugörðum. . • .
PARiS 25/7 Bandarískir
stríðsfangar í Norður-Viet-
nam óttast að þeir verði í
haldi ævilangt ef Nixon
forseti verður endurkjörinn
i haust/ sagði bandaríska
kvikmyndaleikkonan Jane
Fonda á blaðamannafundi
i Paris i dag, en hún var ný-
komin úr ferð frá Norður-
Vietnam.
Hún kvaðst hafa rætt viö sjö
striðsfanga sem allir hefðu beðið
að skila þvi til aðstandenda sinna
að þeir berðust fyrir kjöri
McGoverns til forseta. Jane
Fonda kom með kvikmynd, sem
hún hefur gert til að færa sönnur á
þá staðhæfingu sina, að Banda-
rikjamenn kasti sprengjum á
áveitukerfi Norður-Vietnama.
Hún muna halda annan blaða-
mannafund i New York innan
skamms, en þar mun hún m.a.
svara ásökunum um landráð sem
til hennar hefur verið beint af
opinberri hálfu i Bandarikjunum.
Jane Fonda tiltók svæði sem
hún hafði heimsótt, þar sem
áveitukerfin hefðu orðið fyrir
sprengingum.
Tupamaros
hefna sin
MONTEVIDEO 25/7 Tupa-
marosskæruliðar i Uruguay skutu
i dag til bana yfirmann öryggis-
sveita landsins, Artigas Alvarez
ofursta. Er hann bróðir æðsta
manns hersins i Uruguay.
Tupamarosskæruliðar eiga
harma að hefna þvi að lögregla
landsins hefur með aðstoð pynt-
ingarsérfræðinga frá Brasiliu að
undanförnu haft upp úr föngum á-
bendingar um nokkra felustaði
skæruliða. Hafa nokkrir tugir
þeirra verið handteknir.
17 fasistar
felldir
BELGRAD 25/7. Innanrikis-
ráðuneyti Júgóslaviu tilkynnti i
Pólitískir dómar
í Tékkóslóvakíu
PRAG 25/7 Tékkneskur prestur
og þrjár manneskjur aðrarvoru i
dag dæmdar i Prag fyrir ,,undir-
róðursstarfsemi”. Er þetta fjórði
dómurinn á átta dögum yfir and-
stæðingum núverandi valdhafa.
Presturinn var dæmdur i 15
mánaða fangelsi og hin i sex til
niu mánaða fangelsi — tvö þó
skilorðisbundið. Var þeim gefiö
að sök að hafa dreift ólöglegu
flugriti fyrir kosningarnar i
fyrra. Hin ákærðu játuðu að hafa
dreift flugriti en neituðu að það
hefði verið fjandsamlegt rikinu.
Hefðu þar verið útskýrð réttindi
kjósenda, m.a. að þvi er varðar
útstrikanir á kjörseðlum.
I gær hófust önnur réttarhöld i
Brno og búizt er við nýjum réttar-
höldum i Prag á mánudag. Fyrir
rétti verður einn af fyrrverandi
meðlimum miðstjórnar
Kommúnistaflokksins og sagn-
fræðingurinn Karel Bartosek.
Finnar semja
við
COMECON
HELSINKI 25/7 Tilkynnt var i
Helsinki i gær að viðræðum Finna
við COMECON, efnahagsbanda-
lag Austur-Evrópurikja, um við-
skiptasamning muni ljúka i
ágúst. Tekið var fram að ekki
yrði um að ræða aðild Finna að
COMECON, en um allviðtækt
samstarf yrði samið.
Venusarflaug sovézkra:
Er alltaf myrkur
á ástarstjömunni?
gærkvöld að öryggissveitir
fellt 17 af 19 hefndarverkamönn-
um sem gert hafa tilraun til aö
reka skæruhernað i Króatiu.
Menn þessir eru meðlimir i
Ustasja, fasistasamtökum sem
studdu Hitler i styrjöldinni, en
þauhafa nú bækistöðvar i Vestur-
Evrópu. Tveir hinna felldu eru
sagðir úr hópi helztu leiðtoga
þessara samtaka. Þeir tveir sem
eftir lifa eru nú eltir um allt land-
ið.
BANASLYS
t gær varð banaslys á veg-
arkaflanum frá Borgarnesi
að Hvitárbakka. Guðmundur
Jóhannesson frá Hvitárbakka
haföi stöövaö bifreið sina á
veginum, að likindum til að
athuga vélina,og mun bifreiðin
hafa runnið yfir hann. Guö-
mundur heitinn var 76 ára
gamall.
MOSKVU 25/4 1 gær lenti geim-
farið Venus-8 mjúkri lendingu á
Venusi og sendi upplýsingar frá
henni um 50 min. eftir lendingu.
Geimfarið hefur verið á lofti sið-
an 27. marz og farið 186 miljónir
km.
Hylki með fallhlifarútbúnaði
var losað frá burðareldflauginni
og var um 109 min. á leið niður til
yfirborðsins.
Yfirmaður þessa geimleiðang-
urs, dr. Marof, hefur lagt á það
áherzlu i viðtali við APN að með
Venusi-8 séu i fyrsta sinn send
tæki niður á þá rönd reikistjörn-
unnar sem upplýst er þegar Ven-
us er i jarðnánd, en fyrri tæki
hafa lent á næturhlið Venusar.
Gefist nú tækifæri til að kanna
birtu á yfirborði Venusar, en vel
getur verið að skýjahjúpurinn um
hana sé svo þéttur að sólarljós fái
ekki brotizt i gegn. Þá átti að
safna upplýsingum um efnasam-
setningu lofthjúpsins og yfir-
borðslaganna á Venusi og bera
niðurstöður saman við áður
fengnar upplýsingar.
WASHINGTON 25/7
Bandaríkjastjórn hefur
reiðzt mjög ummælum
Walheims, aðalritara S.Þ.,
um að bandariskar
sprengjur hafi hæft áveitu-
kerfi í Norður-Vietnam.
Ziegler blaða fulltrúi
stjórnarinnar sagði í dag,
að slikar staðhæfingar
væru liður i þaulhugsaðri
áróðursherferð stjórnar
Norður-Vietnam.
Walheim sagði á blaðamanna
fundi i gær að hann hefði fengið
upplýsingar um það að sprengjur
hefðu hæft áveituskurði i Norður-
i
Vietnam. Hann lagði áherzlu á að
hann gæti ekki fengiö fregnir
þessar staðfestar og þá vissi hann
heldur ekki, hvort gerðar hefðu
veriö loftárásir á áveituskurðina
eða þeir heföu af tilviljun orðið
fyrir sprengjukasti.
Waldheim hvatti Bandarikin til
að forðast slikar hernaöaraðgerð-
ir, vegna þess að þær hlytu að
hafa i för með sér gifurlegt mann-
tjón.
Rogers endurtók fyrri staöhæf-
ingar Bandarikjamanna um að
þeir forðuðust að kasta sprengj-
um á áveitukerfi i Vietnam.
Standa þær gegn ummælum
Waldheims og staðhæfingum
sendiherra Svia i Hanoi um það
gagnstæða.
Þannig litur liylki það út scm látið er lenda mjúkri lendingu á Venusi.
Harmonlkan efst til vinstri er fallhlifarútbúnaðurinn, en orkugjafar
eru neðst á myndinni.