Þjóðviljinn - 13.08.1972, Qupperneq 15
Sminudagur 13. ágúst 1972 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15.
„Það er mikil gæfa
Framhald af bls. 9.
á þessu og muni tilkynna forseta
uppgjöf sina i fyrramáliö. Nú
heimti þeir alþýöutryggingar eins
og menn hafi hugsað sér þær
beztar i heiminum. Hvernig i
andskotanum á ég að vita hvernig
menn hafa hugsað sér alþyðu-
tryggingar beztar! Það varð aö
samkomulagi milli okkar Ólafs
að hugleiða málið um kvöldið og
nóttina. Um morguninn hitti ég
Ólaf, og hann segir við mig:
„Einar, nú skal Alþýðuflokkurinn
drepa sjálfan sig, ef hann ætlar aö
drepa þessa rikisstjórn. Ég
„asseptera" það allt."
Og nú er komið til kasta
Alþýðuflokksins. Þeir sem höföu
sett hörðust „skilyrði" fengu að
sýna hver heilindi höfðu búið að
baki. Máliö er tekið fyrir i mið-
stjórn Alþýðuflokksins. Þar falla
atkvæði þannig.að 10 eru á móti,
þrátt fyrir það að gengið hafði
veriö að „skilyrðum" þeira, en 10
vóru með og fjórir sátu hjá, þar
á meðal vissir forustumenn
Alþýðuflokksins sem talið var að
hefðu lofað k'ramsókn að koma i
veg fyrir að stjórnin yrði mynduð.
Finnur Jónsson á Isafirði var
fjarverandi, er miðstjórnin hélt
fund sinn, en hann greiddi at-
kvæði i simskeyti með myndun
rikisstjórnarinnar, og þar með
varð Alþýðuflokkurinn aðili að
stjórninni.
Eftir allt þetta þóf var rikis-
stjórnin mynduð. Viö fengum þó
ekki til ráðstöfunar i stjórninni
þær 580 miljónir sem inneignirnar
námu — heldur 300 miljónir
króna. Það var eitt af „skyl-
yrðum" Alþýðullokksins.
Ilugsið ykkur...
árið 2044!
Svona stóð þetta tæpt með
myndun nýsköpunarstjórnarinn-
ar. Verkföll héldu áfram fyrstu
dagana; meðal annars var sem
betur fer prentaraverkfall þegar
stjórnarmyndunarþófið stóð yfir
— en verkföllin leystust áður
langt leið. 21. október er stjórnin
mynduð.
— Þið gerið fyrst og fremst
kröfur um atvinnumálin. En hvað
um sjálfstæðismálin?
— Við vissum — meðan
stjórnarmyndunin stóð yfir — að
Bandarikjahættan var yfirvof-
andi, og við vildum vera i rikis-
stjórn til þess að koma i veg fyrir
það að Bandarikjamenn héldu
herstöðvum sinum hér áfram. Og
eitt það allra þýðingar-
mesta, sem okkur tókst með
myndun nýsköpunarstjórnarinn-
ar var að koma i veg fyrir það, að
orðið yrði við kröfum Banda-
rikjamanna um þrjár lokaðar
herstöðvar á Islandi ti! 99 ára.
Hugsaðu þér aðstöðuna hér á
landi i hernámsmálunum: Her-
stöðvar til 99 ára i Keflavik, Hval-
firði og Skerjafirði. Þessar her-
stöðvar hefðu veriö viggirtar,
gjörsamlega lokaðar fyrir
tslendingum og islenzkri umferð.
Ekki einu sinni Isl. ráðherrar
hefðu getað fengið að fara um
þessi svæði. Og ef Islendingar
hefðu verið bláfátæk þjóð 1.
október 1945 i harðvitugri inn-
byrðis baráttu,og hefðu Banda-
rikjamenn boðið stórfé fyrir
þessar herstöðvar þá hefði svarið
þvi miður orðið annað. A þennan
hátt og fleiri höfðum við sjálf-
stæðismálin i huga og þau voru á
dagskrá nýsköpunarstjórnarinn-
ar. Meðal annars ræddum við
Bandarikjahættuna i þing-
flokknum.
Al' hverju varðst þú ekki
ráðherra?
Sósialistaflokkurinn átti tvo
ráðherra i nýsköpunarstjórninni.
Hvernig stóð á þvi að þú varðst
ekki annar ráðherrann?
— Það var strax ákveöið i
flokknum að Áki yrði ráðherra
þar sem hann hafði þá þegar
reynslu af hliðstæðum störfum
sem bæjarstjóri á Siglufirði. En
um það var allmikið rætt hvor
okkar Brynjólfs ætti að taka aö
sér ráðherraembættið. Á einum
fundinum var ákveðið að við
skyldum tveir fara af fundinum
og koma okkur saman um þetta.
Niðurstaðan varð sú, að
Brynjólfur tók þetta að sér fyrir
þrábeiðni mina, og það var vel
ráðið þvi hann reyndist frábær
menntamálaráðherra, og tillögur
Siglúsar og hans i mennta-
málunum voru samþykkta^ á
tima nýsköpunarstjórnarinnar.
Eitt af þvi sem mér fannst svo
ánægjulegt við nýsköpunar-
stjórnina var hversu gott sam-
starf tókst með þeim Brynjólfi og
Ölafi. Þeir stóðu fremst i and-
stæðum baráttusveitum, en löngu
eftir að slitnaði upp úr samstarf-
inu i nýsköpunarstjórninni héldu
þeir vissum, oft furðulegum,
félagsskap, að þvi er ýmsum
myndi þykja.
Til dæmis um það skal ég segja
þér eftirfarandi sögu:
Það var á kaldastriðstimanum
miðjum að hringt er til Brynjólfs
og honum sagt undarlegri röddu
að hann verði tekinn af lifi á
morgun klukkan tvö.
— Láttu ekki svona Ólafur,
segir Brynjólfur þá i simann.
— Hvernig i ósköpunum
vissirðu að þetta var ég, spurði þá
Ólafur.
— Hver heldurðu aö hefði verið
svo elskulegur að láta mig vita
þetta fyrirfram nema þú, svaraði
Billinn.
— Þegar þú verður ekki ráð-
herra situr þú i nýbyggingarráði
sem varaformaöur þess. Hvernig
starfaði nýbyggingarráð? Var
það kannski eins konar ráðu-
neyti?
— Nýbyggingarráð var sjálf-
stæö nefnd fjögurra manna, einn
úr hverjum flokki, og starfaði
ráðið eiginlega sem heili rikis-
stjórnarinnar i atvinnu-, efna-
hags- og áætlunarmálum. 1
ráðinu gerðum við áætlanir um að
gjörbreyta öllu atvinnulifi lands-
ins,og af nánu samstarfi þess og
rikisstjórnarinnar leiddi að ný-
sköpunarstjórnin vann mikil
afrek.
— I þessu sambandi má minna
á skrif Alþýðublaðsins um skýja-
ÚTBOÐ
Tilboð óskast i byggingu fyrsta áfanga
iþróttavallar Kópavogs við Kópavogslæk.
Gera skal knattspyrnuvöll, 40C m
hlaupabraut, atrennubrautir fyrir stökk,
kasthringi og neðsta pall áhorfendasvæðb
ásamt niðurföllum og holræsalögnum.
Verkslok skulu vera 30. april 1973
Útboðsgögn verða afhent á skriísiofu
bæjarverkfræðings Kópavogs Álfhólsvegi
5 kl. 11, mánudaginn 14. ágúst 1972.
Tilboðum skal sk ila 29. ágúst kl. 11 og
verða þau opnuð þá.
Bæjarverkfræðingur
Kópavogs.
Sfór sending á
kynningarver&i!
Kr. 1.590-
stærð 56?-13/4
Kr. i.775- Kr. 2.970-
stœrð 560-15/4
Höfum fengið sfóra sendingu
af BARUM hjólbörðum í
flestum stærðum
ó ótrúlega hagstæðu verði,
eins og þessi verðdæmi sanna.
BARUM KOSTAR MINNA
— EN KEMST LENGRA
stærð 650 - 16/6
ftKKNtSKA BIFRtlDAUMBODIO A ISLANDI H.F.
að...”
borgirnar, froðuna og paradisar-
draumana. Og það má lika minna
á það hvað nýsköpunarstjórninni
tókst að framkvæma i atvinnu-
málum:
t»að sem vannst
Fiskiskipaflotinn 1945 var 24
þúsund smálestir; þar af voru 2S
gamlir togarar, ryðkiáfar, alls
um 9000 lestir. Nýsköpunar-
stjórnin lét smiða 32 nýja togara,
og tugi báta innanlands og kaupa
140 báta erlendis frá. Með þessu
móti var fiskiskipaflotinn tvö-
l'aidaður að smáiestatölu, varð 4S
þúsund lestir, þó að mörg gömlu
skipin liættu.
Klutningaskipaflotinn var 0500
lonn 1945 Aætlun nýbyggingaráðs
var að kaupa 13 ný skip, 23 þús.
lonn og áætlunin var framkvæmd
(il fulls: Flutningaskipaflotinn
nær fimmfaldaðist.
Afköst sIIda rverksni iðjanna
vom aukin úr 44 þúsund niáluni á
sólarhring í TTþúsund. — Þannig
mælti enn lengi telja. Um leið og
þetta gerðist voru opuaðir nýir
markaðir — ekki si/.t við Sovét-
rikin. Ilvar ætlar Kinar að selja
allt þetta? var spurt.
Skammsýnin er ekki ný undir
sólinni.
Þannig tók F’élag islenzkra
botnvörpuskipaeigenda þá af-
stöðu til tillagna okkar um smiði
30 nýrra disiltogara, að vera á
móti þvi, Þessir „framsýnu" at-
vinnurekendur vildu biða i eitt og
hálft ár — og kaupa þá kola-
togara!
En við réðum ferðinni og
þurltum ekki að fara að tillögum
þessara herra. Háðin höfðu verið
tekin af afturhaldinu, sem aldrei
sá neina leið i neinu máli nema að
lækka kaup verkamanna.
t»aö er inikil gæfa
- Spyrjum enn: Tveir þættir
stjórnmálastarfs þins eru i
augum ungra manna á lslandi i
dag hvað stærstir: Starfið,ekki
sizt á Norðurlandi, að sköpun
sósialistiskrar verkalýðshreyf-
ingar og siðan nýsköpunin. Ilvor
þátturinn er mikilvægari i þinum
augum?
— Þetta er einn og sami þáttur-
inn, órjúfanlega samofinn. Þau
sjö ár sem ég vann með að
myndun og eflingu sósialistiskrar
verkalýðshreyfingar á Norður-
landi, eru mér ógleymanleg, —
tilfinningin að taka þátt i sigur-
brag „þess fólks sem vaknar" og
meðvitundin um að hafa stuðlað
að styrk þeirrar róttæku verka-
lýðshreyfingar, sem ætið hefur
haldizt nyrðra, er mér dýrmætt.
Siðan hófst starfið i Reykjavik,
1931. Timabilið frá 1930-1942 er
hetjuöld islenzkrar verkalýðs-
hreyfingar, þar sem kjarni
hennar þróast i baráttu
Kommúnistaflokksins á timum
kreppu og neyðar og sameinast
siðan, á timum baráttunnar gegn
fasismanum, hinum ágætu fé-
lögum úr Alþýðuflokknum, er
mynduðu með okkur Samein-
ingarflokk alþýðu — Sósialista-
flokkinn, fyrst og fremst þeim ó-
gleymanlega leiðtoga og sam-
starfsmanni Sigfúsi Sigurhjartar-
syni. I eldraun áranna 1938-1942
er svo að lokum stálið hert sem —
i skæruhernaðinum 1942 —
heggur sundur hlekki þess
gerðardóms, er viðhalda skyldi
kúguninni og neyðinni. Og sósia-
lisk verkalýðshreyfing tekur póli-
tiska forustu með þjóðinni og
skapar i krafti marxisks skilnings
á aðstæðunum og i krafti sósia-
liskrar hugsjónar og kjarks þá
nýsköpun atvinnuveganna sem
veldur þáttaskilum i sögu okkar
lands. Þetta er allt ein og sama
baráttan — fyrir byltingu i með-
vitund og lifskjörum islenzkrar
alþýðunnar og sósialismans.
Það er mikil gæfa aö hafa
fengið að vera með i ailri þessari
baráttu, en það stórfenglegasta
er að hafa mátt hjálpa til að vekja
það fólk, sem hlekkjað var i
fjötrum fátæktarinnar, veita þvi
trú á sjálft sig og framtiðartak-
mark sósialismans og upplifa
með þvi, þegar það hristir af sér
þessa fjötra, þótt það sé innan
auðvaldsskipulagsins.
Heillaóskir
— — —Hér hefur verið verið
stiklað á stóru um feril ný-
sköpunarstjórnarinnar. Sú saga
SOLUSTAÐIR:
GARÐAHREPPI SlMI 5060^'
(oður Hjólborðaverkstæði Gorðahrepps
Sunnan við laekinn, gengt benzínstöð BPI
er enn óskráð i heild sinni. Þó er
nýsköpunartimabilið aðeins kafli
i stjórnmálaferli Einars Olgeirs-
sonar. Enn er Einar virkur félagi
og jafnbrennandi áhugasamur og
fyrrum er hann stóð sjálfur
fremst i eldlinunni. Hugur Einars
er sifellt viö stjórnmálin. Hann
gefur útreglulega timaritiö Rétt,
en hann hefur verið ritstjóri þess i
nær 50 ár. Einar sækir reglulega
fundi Alþýðubandalagsins. Iðu-
lega er hann kvaddur til erinda-
flutnings i skóla eða i leshringi
þarsem yngsta kynslóðin hlýöir á
hann segja frá reynslu sinni af
sósialskri baráttu.
Um Einar Olgeirsson verður
ekki skrifað i eitt eintak litils dag-
blaðs svo vit sé i. Til þess þyrfti
bækur og það margar bækur. Hitt
er fullvist, og á að hafa komið
fram i þessari grein, að nýsköpun
atvinnuveganna i lok striðsins er
grundvöllur þeirrar sögu sem vtð
erum að skrá með athöfnum
okkar frá degi til dags.
Ég færi Einari Olgeirssyni per-
sónulega innilegar árnaðaróskir i
tilefni dagsins og óska honum og
konu hans allra heilla. Fyrir hönd
Þjóðviljans flyt ég Einari
Olgeirssyni einnig kveðjur.
SHDOn ®
BÚÐIN
AUÐBREKKU 44 -46,
KÖPAVOGI — SlMI 42606
Einar Olgeirsson var fyrsti rit-
stjóri Þjóöviljans og gegndi þvi
starfi i áratug. Æ siöan hefur
hann lagt Þjóðviljanum ómetan-
legt liö, og i dag á hann sæti i
stjórn Útgáfufélags Þjóðviljans.
Heill þér sjötugum, Einar. sv-
Sjónvarp
Framhald af 13. siðu.
Archangelo Corelli. Stjórn-
andi Ingvar Jónasson.
22.05 Stalin Mynd frá sænska
sjónvarpinu um þróun
Sovétrikjanna á valdatima
Jósefs Stalins. Brugöið er
upp myndum úr rússnesku
þjóðlifi, eins og það var fyr-
ir byltinguna og greint frá
hvernig iðnaður varð smám
saman grundvallaratvinnu-
vegur Sovétmanna á
Stalinstimanum. Einnig
getur hér að lita myndir,
sem þýzkir hermenn tóku á
sinum tima á vigstöðvunum
i Rússlandi, en komust siðar
i annarra hendur. (Nord-
vision — Sænska sjónvarp-
ið) Þýðandi og þulur Jó-
hanna Jóhannsdóttir.
22.50 Dagskrárlok
lönskolinn í Reykjavík
2 kennarastöður eru lausar til umsóknar:
1. Aðalkennslugrein: Efnafræði
2. Aðalkennslugrein: Bókfærsla
Æskilegar aukakennslugreinar:
Eeikningur og enska.
Umsóknir um stöðurnar sendist til
Menntamálaráðuneytisins eða Iðnskól-
ans i Reykjavik sem allra fyrst. — Um-
sóknareyðublöð fást á ofangreindum
stöðum.
Skólastjóri.