Þjóðviljinn - 19.08.1972, Page 1

Þjóðviljinn - 19.08.1972, Page 1
UOmiUINN Laugardagur 19. ágúst—37. árgangur —184. tölublað Alþýóubankinn hff ykkar hagur okkar metnaöur ÞAÐ BORGAR SIG AÐ VERZLA f KROM Sjávarútvegsmálaráðherra: Afskipti dómstólsins draga úr líkum á samkomulagi 50 milna landhelgin tekur gildi sem lögsaga íslendinga frá og með 1. september eins og ákveðið hefur verið í viðtali við Þjóðviljann i gær sagði Lúðvik Jósepsson, sjávarútvegsráðherra, að niðurstaða alþjóðadómstólsins myndi ekki auka likur á þvi að samkomulag næðist við Breta um fiskveiðar við ísland. Þjóöviljinn sneri sér i gær til sjávarútvegsráöherra vegna úr- skurðar alþjóðadómstólsins. Ráðherrann sagði: — Það mátti i rauninni alltaf búast við einhverju svipuðu frá alþjóðadómstólnum. Ég gerði mér ekki miklar vonir um að dómstóllinn gerði mikið til að styöja okkur. Aðaiatriðið er það að niöurstaöa dómstólsins getur ekki haft nokkur minnstu áhrif á stefnu okkar i landhelgismálina Við höfum tekið okkar ákvörðun með einróma samþykkt alþingis og tekið skýrt fram að við viður- kennum ekki rétt alþjóðadóm- stólsins i þessu máli. Þvi eru allir úrskurðir eða tilmæli eða hvaö það nú heitir i rauninni gjörsam- lega út i hött. — Verður niðurstaða dómstóls- ins til þess að Bretar verði enn forhertari i sinum kröfum? — Það er litill vafi á þvi að togaraeigendur i Bretlandi og Vestur-Þýzkalandi munu herða á kröfum sinum og telja nú að þeir hafi Iögin með sér; svo aö senni- lega veröa enn minni möguleikar á samkomulagi en áður eftir þessi afskipti dómstólsins. — Nú hafa ýmsir aðilar talið að við ættum stuöning einhverra dómara alþjóöadómstólsins og ýmsir töldu að þar væri hugsan- legur meirihluti og vildu þvl að við sendum fulltrúa fyrir dóminn. — Jú. Það er rétt. Það sem er þó aðmínum dómi enn furðulegra er það, aö þeir aðilar eru enn til sem halda þvi fram að við hefðum átt að mæta og láta nú liggja að þvi, aö e.t.v. hefðu úrslit málsins veriö önnur ef viðhefðum sent mann tjl dómsins. Það hefðu að minu viti verið hrapalleg mistök að senda full- trúa til þess að taka þátt I mála- stappinu. Ef við hefðum mætt fýrir dómstólnum hefðum við viöurkennt að verulegu leyti rétt hans til að fjalla um máliö, og þá hefðum við átterfiðara með að neita að beygja okkur undir úr- skurö dómstólsins á eftir. Aðal- atriðið er að viö getum ekki: viðurkennt aö erlendur dómstóll hafi vald til þess að ákveöa um stærð fiskveiðilandhelginnar við Island frekar en annars staðar. — En eru allir sammála um það núna að samningurinn frá 1961 sé raunverulega úr gildi fall- inn? —- Með samþykkt alþingis 15. febrúar s.l. var gerð skýlaus samþýkkt um að þessum samn- ingi skyldi sagt upp og aöhann væri ekki lengur gildur. Það er að vísu rétt aö formenn Alþýöu- flokksins og Sjálfstæöisflokksins töldu sig ekki standa beinlinis að þessari tillögu en talsmenn Sjálf- stæðisflokksins hafa lýst þvi yfir opinberlega á alþingi að samn- ingurinn frá 1961 sé uppsegjan- legur og ég trúi þvi ekki að þeir séu okkur nú ósammála um að það sé betra að vera laus við þessa samninga. I Ofsaveður | Hvalfirði Siðdegis I gærdag var aftaka- veður i Hvalfirðinum sunnan- verðum. Gekk á með skörpum og hörðum vindhviðum og var ómögulegt að vita úr hverri áttinni hann stóð þvl það er mis- vindasamt i Hvalfirðinum. Lög- reglumaður á Akranesi sagði okkur að hann hefði aldrei kynnzt öðrum eins veðurofsa — „og hef ég þó farið Hvalfjörðinn oft”, sagði hann okkur. Lögreglu- þjónninn sagði að sjórinn hefði gengið upp á veginn og svo mikið var rokið á köflum að grjótið úr veginum gekk upp á bilana. Ekki var kunnugt um óhöpp i umferðinni þrátt fyrir veðrið utan það að sunnan við brúna á Brynjudalsá valt hjólhýsi, sem skemmdist gjörsamlega. — Hvert verður nú áfram- haldið? Hefjast nýjar samninga- viöræður viö Breta? — Viö höfum sem kunnugt er gert Bretum nýtt tilboð. En um viðræður get ég ekkert sagt. — Ríkisstjórnin lýsir þvl yfir I yfirlýsingu sinni að fylgt veröi fast fram þeirri ákvörðun að landhelgin verði færö út I 50 milur. — 1. september gengur reglu- gerðin um 50 mílna landhelgi um- hverfis ísland i gildi og þá byrjum við strax aö verja hana meö sama hætti og hingaö til og við munum nota það afl og þá aðstöðu sem viö höfum til að halda uppi okkar lögum innan okkar landhelgi. Frá okkar ákvöröun veröur ekki vikið. 50 milna mörkin gilda sem lög frá 1. september að telja. Norskir bíða átekta ÞRANDHEIMI 17/8. Stjór'n norska fiskimannasambands- ins samþykkti á fundi sfnum I gær að biða átekta hvað snert- ir útfærslu islenzku fiskveiði- lögsögunnar. Fundurinn lýsti stuðningi við yfirlýsingu norsku rikísstjórnarinnar um málið, og stjórnin fór fram á að hið opinbera hæfi viðræður við stéttarfélög fiskimanna, um ráðstafanir til verndar norskum hagsmunum. Stjórn sambandsins hcfur enn ekki tekið til umræðu hugsanlega útfærslu norsku landhelginnar, en einstök félög fylkjanna hafa farið fram á aö hún verði færð út. Óbreytt afstaða Islendinga: Landhelgin færð út 1. sept, Rikisstjórnin sendi i gær Alþjóðadómstólnum i Haag eftir- farandi ályktun, er hún gerði á fundi sinum i gærmorgun: , „lslenzka rikisstjórnin mót mælir harðlega bráðabirgðaúr- skurði Alþjóðadómstólsins I mál- um þeim sem Bretar og Vestur- Þjóöverjar hafa höfðað á hendur Islendingum. Hún lýsir undrun sinni yfir þvi, að dómstóllinn skuli telja sér fært að kveöa upp slikan úrskurð á meðan hann hefur enn ekki tekið ákvörðun um lögsögu sina i málunum, en henni hefur SENNEPS- GASBRUNI? „Ég hef handfjatlað og unnið með sement I 00 ár og aldrei vitað af þvf, en svo ailt i einu núna þá fer ég svona útúr þvi”, sagði full- orðinn maður úr Hveragerði sem var að vinna I eina 3 tima með sementi, blönduðu til helminga ineö finpússningarsandi, og þeg- ar hann fór aö þvo sér á eftir var hann með sár á handarbökunum og fingurgómunum. Þessi atburður gerðist i Hvera- gerði s.l. miðvikudagskvöld. Maðurinn var að einangra hitarör sem vafið hafði verið fyrst með grisju, en siðan smurði hann sementsblöndunni á rörið. Hann var að þessu i eina 3 iima, en var eitt sár á handarbökunum og fingurgómunum er hann fór að þvo sér á eftir. Strax daginn eftir fór hann til læknis sem sótthreinsaði sárin og gaf honum græöandi smyrsl. Þessi læknismeðferð virðist ekkert hafa haft að segja, þvi I g.ær var liðan mannsins aö versna. Hvað hefur þarna gerzt? Getur verið að hér sé um sinnepsgas- bruna að ræða? Er hugsanlegt að einhverjar lei'far þess sinneps- Framhaid á 11. siðu. Eins og giöggt má sjá eru handarbök mannsins illa farin en þó voru fingurgómarnir verri. frá upphafi og hvaö eftir annað verið eindregið mótmælt af islenzku rikisstjórninni, er telur samkomulagið við Breta og Vestur-Þjóðverja ekki lengur i gildi, en á þvi samkomulagi er málshöfðunin byggð af hálfu nefndra þjóða. Þá lýsir islenzka rikisstjórnin furðu sinni yfir þvi, að Alþjóöadómstólinn skuli telja sig þess umkominn að bjóða eins konar kvótakerfi i fiskveiðum við tsland. Islenzka rikisstjórnin telur þessi afskipti af deilumáli, sem enn er á samningastigi ákaflega óheppileg og til þess fallin að tor- velda samninga. En islenzka rikisstjórnin hefur alltaf lýst vilja sinum til þess að leysa þetta deilumál með bráðabirgðasam- komulagi. Var dómstólnum um það kunnugt. Eins og áður mótmælir islenzka rikisstjórnin allri lögsögu Alþjóðadómstólsins i þessum málum og mun ekki telja þennan úrskurð hans á neinn hátt bindandi fyrir sig. Mun rikisstjórnin eftir sem áður fylgja fast fram þeirri ákvörðun að stækka fiskveiði- landhelgi i 50 sjómilur, frá og með 1. september n.k.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.