Þjóðviljinn - 19.08.1972, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 19.08.1972, Qupperneq 3
Laugardagur 19. ágúst 1972 ÞJóÐVILJINN — SIÐA 3. HM-einvígið: BIÐSKÁKIN ÞRÍR LEIKIR! Það fór sem menn höfðu spáð um fimmtándu skákina að hún varð jafntefli eftir stutta viður- eign. Það fór ekki á milli mála að keppendur höfðu komizt að sömu niðurstöðu i heimarannsóknum. Niðurstaðan var sem sagt sú að svartur hefði engan tima til að reyna að byggja upp mátsókn gegn stöðu hvits vegna hættu heima fyrir og einnig vegna þess að peð hvits gætu orðið honum hættuleg ef eitthvað brygði Ut af. Fischer tók þvi þann kostinn að þráskáka og hefur hann þvi að loknum fimmtán skákum 9 vinninga gegn 6 vinningum Spasskis. Sextánda skákin verður svo tefld á sunnudag og hefur Fischer hvitt. 41. Hb2 Biðleikur Spasskis Dalt 42. Ha2 Dclt 43. Hb2 Dalt Jafntefli. Ólafur Björnsson. Orest Vereiski: Ég hef stundum reynt að taka þátt i þeirri svartlist sem birkibörkur skrifar.... (Ljósm. G.St.) Yereiskí sýnir i Casa nova Fyrsta sýning rússnesks listamanns hér á landi I dag kl. 5 verður opnuð fyrir almenning fyrsta einkasýning rúss- nesks listamanns á islandi. Opnuð er í Casa nova Menntaskó lans sýning á verkum Orests Vereiskís, sem hefur tvisvar heimsótt Island áður, og er um þriðj- ungur myndanna til orð- inn í þeim ferðum Orest Vereiski sýnir i Casa nova 64 myndir, vatnslita- myndir, grafik, teikningar. A blaðamannafundi i gær sagði hann, að lif og umhverfi þjóða tveggja landa mættust á sýn- ingunni. Hann gerði ekki til- kall til að sýna sovézkt mann- lif i heild — mest ber á Ijóð- rænni skoðun á rUssneskri náttUru i þeim myndum sem eru frá heimalandi hans. Myndirnar frá Islandi — nánar tiltekið frá Reykjavik, Hafnarfirði, Grindavik, Stykkishólmi, Þingvöllum, eru byggðar á frumdrögum sem gerð eru á ferðalagi. Að þvi er liti varðar, sagði Vereiski, þá treysti ég meira á sjónminni og seinni tima Ur- vinnslu en skyndiáhrif. Vereiski á sæti i stjórn fél- agsins Sovétrikin-lsland, en hliðstætt islenzkt félag, MIR, skipuleggur sýningu hans hér. Sem fyrr segir er hér um að ræða fyrstu einkasýningu rUssnesks listamanns á tsiandi, en Vereiski kom hér fyrst árið 1958 með sýningu á sovézkri grafik. Hann hefur verið virkur i samtökum sovézkra listamanna og er aukameðlimur i Sovézku lista- akademiunni. Vereiski hefur mikið unniö að myndskreyt- ingum bókmenntaverka — hann hefur t.d. prýtt myndum Utgáfur á ,,Lygn streymir Don” Sjolokhofs, ljóðabálkum skáldsins Alexanders Tvardovskis, sem nýlega er látinn, og nU siðast hefur hann gert myndir við nýja Utgáfu á verkum tvans BUnins. Vereiski hefur gert myndir við Brekkukotsannál Halldórs Laxness og Söguna af Hjalta litla eftir Stefán Jónsson — og mun gera teikningar við „Mamma skilur allt”, sem senn verður gefin Ut á rUss- nesku. Auk þess vinnur Orest Vereiski að verkefnum sem tengd eru stórri samsýningu sem haldin verður i vetur i sambandi við fimmtugsaf- mæli Sovétrikjanna. — Þegar ég ók til Reykja- vikur i gær, sagði Vereiski, fannst mér ég koma á gamlar og hugþekkar slóðir, rétt eins og ég kæmi til Leningrad, þar sem ég ólst upp. Og ég vona að þessi afstaða min til tslands komi fram i verkum minum héðan. Sýning Vereiskis i Casa nova er opin kl. 2-10 til sunnu- dagsins 27. ágUst. Hermálanefnd Bandaríkjaþings: VILL VELTA HERKOSTNAÐI YFIR Á ÖNNUR NATÓRÍKI WASHINGTON 17/8 Her- málanefnd fulltrúadeildar bandariska þingsins leggur til i skýrslu, sem birt var í dag, að komið verði á fót sérstökum Natósjóði, til að létta á útgjöldum Banda- rikjamanna vegna her- stöðva þeirra i Evrópu. Nefndin leggur ekki fram itar- legar tillögur um sjóð þennan, en ætlast til þess, aö önnur Natóriki taki i auknum mæli þátt i kostnaði af dvöl bandariskra hersveita hjá sér, og er yfirlýstur tilgangur sá að minnka greiðsiuhalla Banda- rikjanna við Utlönd. Þá vill nefnd- in einnig að lönd, sem ekki hafa hjá sér bandariskar hersveitir, en „njóta i rikum mæli verndar frá Natóherjum i grennd” skuii einnig greiða til sjóðsins. Er mál þetta hið áhugaverðasta fyrir islenzka Natóvini sem Áskriftasími Þjóðviljans er 17500 . hingað til hafa haft sinn her ókeypis. Orðaskipan í dróttkvæðum hætti Prófessor dr. & dr. phil. h.c. Hans Kuhn frá Kiel mun flytja opinberan fyrirlestur i boði Háskóla tslands mánudaginn 21. ágUst 1972, kl. 5.00 siðdegis, Í I. kennslustofu. Fyrirlesturinn nefnir próf. Kuhn: Um skipun orða i dróttkvæöum hætti. Fyrirlesturinn verður fluttur á islenzku, og er öllum heimill að- gangur. Friðarboðinn Nixon

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.