Þjóðviljinn - 25.10.1972, Side 3
Miðvikudagur 25. október 1972 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Sjóhæfni togarans var
með ágætum á heimleið
— segir Hans Sigur jónsson, skipst jóri á Vigra RE 71
Ilinn nýi skuttogari Vigri RE 71 siglir inn á innri höfnina I gær. (Ljósm. Þjóðviljinn A.K.)
Nýr skuttogari lagðist viö Siðari togari útgerðarfélagsins
Ægisgarð í Reykjavíkur- verður afhentur um miðjan
höfn i gær og er eign út-
gerðarfélagsins ögurvíkur
h.f. Ber hann heitið Vigri
RE 71 og er annar tveggja
togara smíðaður í Póllandi
fyrir þetta útgerðarfélag.
Er kaupverð skipsins um
130 miljónir kr. með útbún-
aði.
Margir lögðu leið sína
niður á Ægisgarð í gær til
þess að fagna komu skips-
ins.
Fréttamaður frá Þjóðviljanum
náði tali af Hans Sigurjónssyni,
skipstjóra á togaranum. Kvað
hann heimsiglingu hafa gengið
vel. Þeir hefðu fengið sæmilegt
veður og verið 5 sólarhringa og 6
stundir frá pólskri hafnarborg.
Hefði togarinn gengið allt að 14 til
14,5 sjómilur á klst. Likaði skip-
stjóra vel sjóhæfni skipsins á
þessari heimsiglingu og hefðu öll
stjórntæki reynzt i góðu lagi.
Hinn nýi skuttogari er 801 tonn
að stærð eftir hinni nýju mælingu.
Er búið að ráða 24 manna áhöfn á
skipið. Skipstjóri verður Hans
Sigurjónsson og stýrimenn Eð-
vald Eyjólfsson og Gunnar Hall-
grimsson. Ekki var búið að ganga
frá kjarasamningum fyrir áhöfn-
ina við Sjómannafélag Reykja-
vikur. Eru engir samningar til
fyrir þennan stærðarflokk af
skuttogurum, sem eftir gömlu
mælingunni væri milli 1000 og
1100 tonna að stærð. Átti að byrja
samningsgerð kl. 16 i gær og
ástæðulaust að halda annað en
þeir gangi eðlilega fram milli SR
og útgerðarfélagsins.
Togarinn rúmar allt að 320
tonna afla og er hægt að gera að
allt að 45 tonna afla i móttökunni
að aftan á millidekki. Eru skip-
verjar þannig i skjóli fyrir ágjöf
við aðgerðina, ef eitthvað er að
veðri.
Hans var skipstjóri á togar-
anum Vikingi frá Akranesi og
hefur verið i landi um tveggja
mánaða skeið. Við afhendingu
togarans úti i Póllandi brann raf-
all yfir i vélabúnaði hans og tafði
afhendingu togarans um einn
mánuð.
Skipstjóri var spurður um
veiðiútbúnað og kvað hann tog-
arann verða með venjulegt troll i
fyrstu veiðiferð. Þá kvað hann
togarann útbúinn fullkomnustu
fiskleitartækjum.
Sjö hluthafar eiga útgerðarfé-
lagið ögurvik h.f. Þeir eru Hall-
dór Þorbergsson, Pétur Gunnars-
son, Hans Sigurjónsson, Björn
Þórhallsson, Sverrir Hermanns-
son, Þórður Hermannsson og
Gisli Jón Hermannsson.
nóvember að öllu forfallalausu.
Heitir hann ögri og verður skip-
stjóri á honum Brynjólfur Hall-
dórsson. g-m-
F alskar
ávísanir
f yrir 9
miljónir
Að kvöldi hins 19. þ.m. fór fram
skyndikönnun innstæðulausra
tékka á vegum ávlsanaskipta-
deildar Seðlabanka tslands.
Könnunin náði til innlánsstofnana
i Reykjavik, Kópavogi, Hafnar-
firði, Keflavik og Selfossi.
Fram komu alls 728 tékkar án
fullnægjandi innstæöu að fjárhæð
samtals kr. 9.677.000.00, sem
reyndist vera 1.13% af veltu dags-
ins i ávisanaskiptadeild Seðla-
bankans.
Niðurstöður könnunar þessarar
gefa til kynna, að enn er um all-
viðtækt tékkamisferli að ræða
bæði hjá einstaklingum og fyrir-
tækjum, þrátt fyrir aðgerðir
undanfarandi ára.
Tekið skal fram hér, að nöfn
þeirra aðila, sem gefa út tékka án
fullnægjandi innstæðu, eru jafn-
óðum tilkynnt á milli banka og
sparisjóða, og á það jafnt við
hvort sem um skyndikönnun eða
dagleg afskipti Seðlábankans af
innheimtu innstæðulausra tékka
er að ræða.
Að lokum skal tekið fram, að
ástæða virðist vera til þess að
hafa skyndikannanir innstæðu-
lausra tékka tiðar, en verið hefur
á undanförnum árum.
Frá fyrirspurnatíma
í sameinuðu þingi
Allmargar fyrirspurnir
voru á dagskrá sameinaðs
þings i gær. Þetta var fyrsti
fyrirspurnartíminn á þessu
þingi og kom í Ijós, að þing-
menn hafa varla áttað sig á
þvi hve hin nýju þingsköp
sniða umræðum um fyrir-
spurnir þröngan stakk;
fyrirspyrjandi má, samkv.
hinum nýju þingsköpum
tala tvisvar og ekki tala
lengur en i 5 mínútur er
hann mælir fyrir fyrir-
spurninni. Ráðherra má að
jafnaði tala tvisvar í 10
minútur i senn er hann
svarar fyrirspurn. Aðrir
þingmenn eða ráðherrar
mega tala i 2 mínútur í
senn.
Lánveitingar Húsnæðis-
málastofnunar
Hannibal Valdimarsson, fél-
agsmálaráðherra, svaraði fyrir-
spurn frá Jóni Árm. Héðinssyni
(A) um lánveitingar Húsnæðis-
málastofnunarinnar. Fyrirspurn-
in var i 7 liðum og snerti nánast
alla þætti i starfsemi stofnunar-
innar. Svar ráðherra var þvi yfir-
gripsmikið og verður hér aðeins
drepið á nokkur atriöi, sem fram
komu i svari hans.
Spurt var um heildarlánveit-
ingar á árinu ’71 og ’72, miðað við
15. okt. hvort ár og hvernig lánin
skiptust milli nýbygginga og eldri
ibúða.
Ráðherra sagði að á árinu ’71
hefðu heildarlán til 15. okt. numið
498 milj. kr. en það sem af er
þessu ári væru lánin 538 miljónir.
Til nýbygginga á þessum árum
hefðu verið lánaðar 902 miljónir,
en til kaupa á eldri ibúðum 134
miljónir. Á þessu ári hefðu borizt
1049 umsóknir til nýbygginga.
Þar af væru 118 ibúðir sem ættu
nú rétt til lána, en 931 ibúð biði af-
greiðslu þar sem þær hefðu ekki
veriðfokheldará tilskildum tima.
Ráðherra sagöi að á timabilinu
1968-71 hefði að meðaltali verið
veitt lán til 1160 ibúða og meðal-
lánsfjárhæð á þessum árum væri
562 milj. ári. Aætlað væri að veita
680 miljóna kr. lán til 1152 ibúða
á yfirstandandi ári.
Varðandi horfur næsta ár hefði
hagfræðideild Seðlabankans
áætlað að 1195 miljónir kr. yrðu til
ráðstöfunar hjá Byggingarsjóðn-
um á þvi ári.
Hafrannsóknir
Lúðvik Jósepsson, sjávarút-
vegsráðherra, svaraði fyrirspurn
frá Eysteini JÓnssyni (F) um
hvað liði gerð 3ja ára áætlunar
um haf- og fiskirannsóknir, fiski-
leit, veiðitilraunir og aðra þjón-
ustu við fiskiflotann, eins og gert
var ráð fyrir i þingsályktun 5.
apr. ’71. Einnig hvenær mætti
vænta þess, að áætlun þessi yrði
lögð fyrir Alþingi eins og tillagan
gerði ráð fyrir.
I svari ráðherra kom fram, að
forstöðumaður Hafrannsóknar-
stofnunarinnar hefði haft þetta
mál til meöferðar og i bréfi til
ráðuneytisinsheföi komið fram að
stofnunin treysti sér ekki til að
gera áætlun til svo langs tima,
sem tillagan gerði ráð fyrir,
stofnunin gerði áætlanir sinar
aðeins til eins árs i senn. Verið
væri að vinna að áætlun fyrir árið
’73 og yrði hún tilbúin i desember.
Lúðvik sagði, að málið yröi tekið
upp og kannaðir möguleikar á
áætlanagerð lengra fram i tim-
Fyrirspyrjandi sagði að hér
hefði ekki verið unnið eins og til
var ætlazt. Taldi hann það mark-
leysu að ekki væri unnt að gera
áætlun um rannsóknir þessar til
lengri tima. Hvatti hann til þess
að málið yrði tekið upp að nýju,
og ef þörf krefði yrði öðrum aðil-
um en Hafrannsóknarstofnuninni
falið þetta verkefni.
Rekstur hraðfrystihús-
anna.
Lúðvik Jósepsson sjávarút-
vegsráðherra svaraði fyrirspurn
frá Þórarni Þórarinssyni, þess
efnis hvort gerð hefði verið
athugun og samanburður á
rekstri hraðfrystihúsanna með
þaö fyrir augum, aö hagnýta
reynslu þeirra frystihúsa, sem
bezt og hagkvæmast væru rekin.
1 svari ráðherra kom fram, að
af hálfu opinberra aðila hefði ekki
farið fram athugun sérstaklega
með tilliti til hagkvæmari rekst-
urs. Hins vegar hefðu sölusam-
tökin tvö, Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna og sölusamtök SIS, gert
athuganir i þessu skyni og unnið
allmikið að þvi að koma á endur-
bótum i rekstri húsanna.
Ráðherrann taldi að mjög
gagnlegt væri ef hægt væri að
gera slikar athuganir á vegum
opinberra aðila en til þess þyrfti
bæði starfslið og fjármagn, eí
árangurs ætti að væntá.
Ágúst Petersen sýnir í Bogasal
A laugardaginn opnaði Agúst Petersen sýningu á málverkum I Bogasal Þjóðminjasafnsins, og stendur
hún til 29. okt. Sýndar eru 30 myndir, sem allar eru til sölu og kosta frá 2000 krónum upp 165 þúsund.