Þjóðviljinn - 22.12.1972, Blaðsíða 1
Reykjavík — Hanoi
Stjórnmálasamband á næstunni -
ríkisstjórnin mótmælir loftárásum
ríkjamanna
Á ríkisst|órnarfundi í
gærmorgun var Einari
Ágústssyni, utanríkisráö-
herra/falið að hefja i sam-
ráði við utanríkismála-
nefnd alþingis undirbúning
þess, að rikisstjórn islands
taki upp stjórnmálasam-
band við ríkisstjórn Norður-
Víetnam í Hanoi.
Utanrikisráðherra skýrði
frá þessu á alþingi í gær og
jafnframt að hann hafi
gert ráðstafanir til að
kveðja sendiherra Banda-
rikjanna á íslandi á sinn
fund til að tjá honum and-
stöðu íslenzku ríkisstjórn-
arinnar við loftárásir, sem
Bandarikjamenn hafa nú
hafið á ný á Norður-Viet-
nam.
Yfirlýsing Einars Ágústs-
sonar, utanríkisráðherra,
um þetta kom fram, er
hann svaraði fyrirspurn frá
Bjarna Guðnasyni, alþing-
ismanni, sem kvaddi sér
hljóðs utan dagskrár og
spurðist fyrir um ákvarð-
anir íslenzku rikisstjórnar-
innar í sambandi við nýjar
loftárásir Bandaríkja-
manna á Víetnam.
Utanríkisráðherra sagði,
að það ylli vissulega bæði
áhyggjum og vonbrigðum
um allan heim, að Banda-
ríkjamenn skuli nú á ný
hafa gripið til stórfelldra
loftárásá Norður-Víetnam.
Fyrir örfáum vikum eygðu
menn von um stjórnmála-
lega lausn styrjaldarinnar
þar austur frá, en nú hafa
skipazt veður i lofti á annan
veg.
Bjarni Guðnason sagðist
hæstánægður með svör
utanríkisráðherra, enda
væri það í anda þeirrar
nýju og djörfu stefnu í ut-
anrikismálum, sem núver-
andi rikisstjórn hafi mark-
að.
Sameiginleg tillaga allra vinstriflokkanna:
r
Utsvör og fasteignaskattar
ekki innheimt með álagi
- enda engin þörf til þess, þar semnýju tekjustofnalögin tryggja borginni
nægilegt framkvæmdafé. íhaldið vildi halda hámarks álögunum áfram
Sigurjón Pétursson
Þriðja umræða fjárlaga fór
frani á alþingi i gær og var
henni ckki lokið, þegar blaðið
fór i prentun.
Geir Gunnarsson, formaður
fjárveitinganefndar, gcrði grein
fyrir brcytingatillögum meiri-
hluta nefndarinnar og cinnig
þeim breytingatillögum, sem
nefndin scm heild stóð að.
Gcir rakti nokkuð þær for-
sendur, sem lokatillögur um af-
grciðslu fjárlaga eru byggðar á,
en þessar forsendur eru að
mestu byggðar á grcinargerð
hagra nnsóknadeildar Fram-
kvæmdastofnunarinnar.
Gert er ráð fyrir að almenn
innlend verðmætaráðstöfun
aukist að krónutölu um 14-15%,
en að magni um 2 og hálft til 3%.
Varðandi kaupgjald og verðlag
eru forsendurnar þessar: Gert
er ráð fyrir 6% kauphækkun hjá
verkalýðsfélögunum þann 1.
marz og 7% hjá BSRB. Vegna
verðhækkana i sambandi við
gengisfellingu og af öðrum
ástæðum er reiknað með að
.kaupgjaldsvisitalan verði á
árinu 1973 122 og hálft stig að
meðaltali en hún er nú 117 stig.
Hagrannsóknadeild gerir ráð
fyrir 12-13% meðalhækkun
verðlags á árinu 1973 frá meðal-
tali ársins 1972, en að sambæri-
leg hækkun ráöstöfunartekna
heimilanna verði lli%.
Reiknað er með 5% aukningu
vergra þjóðartekna á árinu 1973
og að einkaneyzla aukist um 4-
5%.
Samkvæmt þessu er lagt til að
útgjaldaliðir íjárlaga hækki um
628 miljónir kr. l'rá þvi sem
frumvarpið gerði ráð fyrir.
Samkvæmt tillögum meiri-
hluta fjárveitinganefndar nem-
ur gjaldaliður fjárlaganna alls
21.455 miljónum kr., en tekju-
Frh. á i)ls. 15
íslenzka
Banda-
Þess skal getið, að ríkis-
stjórnir allra hinna Norður-
landanna hafa nú þegar
tekið upp stjórnmálasam-
band við stjórnina í Hanoi.
Andstaða
gegn
efnahags-
aðgerðum
Alþýðubandalag N-Þing-
eyjarsýslu samþykkti á l'uiidi
sinuin nýlega að lýsa andslöðu
við ákvarðanir miðstjórnar og
þingflokks Alþýðubandalags-
ins vegna efnahagsráðstafana
rikisstjórnarinnar.
Blaðinu liefur ekki cnn bor-
i/.t saniþykkt félagsins, cn
muii birta hana þegar bún
berst.
Yiðræður
um stjórn-
mála-
samband
Einar Ágústsson utan-
rikisráðherra hefir með sim-
skeyti i dag tilkynnt Otto
Winzer utanrikisráöherra
þýzka alþýðulýðveldisins, að
islenzka rikisstjórnin sé
reiðubúin að taka upp við-
ræður um stjórnmálasam-
band milli tslands og þýzka
alþýðulýðveldisins.
Verðlag 1973 hækk-
ar um 12 eða 13%,
en tekjur um 18%
— samkvæmt spá hagrannsóknardeildar
I umræðum um
fjárhagsáætlun Reykja-
vikur fyrir árið 1973 sýndi
Sigurjón Pétursson borgar-
fulltrúi fram á að tekju-
stofnalögin sem sett voru á
síðasta þingi hafa reynzt
borginni hagstæð og að
meirihluti Sjálfstæðis-
flokksins i borgarstjórn
hefur misnotað valdaað-
stöðu sína til þess að leggja
sem mest á borgarbúa.
Þess vegna er það sem
framkvæmdafé borgar-
innar er nú að tillögu Sjálf-
stæðisf lokksins áætlað
þrisvar sinnum hærra en i
hitteðfyrra.
Sigurjón sýndi og fram á að
tekjustofnalögin nýju hafa stór-
aukið framkvæmdafé
borgarinnar og að engin raun-
veruleg fjárþörf liggur að baki
ákvörðunum um 10% álag á út-
svör og 50% áiag á fasteigna-
skatta ibúðarhúsnæðis. Þá leiddi
Sigurjón rök að þvi að verulega
mætti spara á rekstri
borgarinnar með þvi að auka
hagræðingu. Sigurjón gagnrýndi
að ekki skuli hafa verið unnið að
skipulagi gamla miðbæjarins.
Allir talsmenn vinstriflokkanna
Frh. á bls. 15
Þ1972
Dregiðá morgun
Dregið verður I Happdrætti Þjóðviljans á morgun. Afgreiðsla
blaðsins að Skólavöröustig 19 vcrður opin i kvöld og annaö kvöld
eins og verzlanir.
Menn eru minntir á að þvi fyrr sem gerð cru fullnaðarskil, þeim
mun fyrr er liægt að birta vinningsnúmerin.
I ------