Þjóðviljinn - 22.12.1972, Side 16
UOmUINN
Almennar upplýsingar um
læknaþjónustu borgarinnar
eru gefnar i simsvara
Læknafélags Reykjavikur,
simi 18888.
Föstudagur 22. desember 1972
Vesturbæjarapótek og
Háaleitisapótek annast
helgar, kvöld og nætur-
þjónustu lyfjabúða þessa
vikuna til 22. desember.
Slysavarðstofa
Borgarspitalans er opin all-
an sólarhringinn. „
Kvöld-, næ‘ur og helgidaga-
vakl a heilsuvernarstöðinni.
Simi 21230.
Hroðalegustu sprengjuárásir sögunnar
Daglega meira
sprengjumagn en á
Híróshíma
SAIGON 21/12. Stórir
flotar af bandariskum
flugvélum héldu i nótt og í
dag áfram áköfum árásum
á Hanoi, Haiphong og aörar
borgir og bæi i Noröur-
Vietnam. Mörg hundruö
manns hafa látiö lífið í
þessum árásum Banda-
ríkjanna og gífurlegt tjón
hefur orðið á mannvirkj-
um. í fregnum frá Hanoi
segir aö 12 risasprengju-
þotur af gerðinni B-52 hafi
veriö skotnar niöur síðan á
sunnudag.
Meðal mannvirkja i Hanoi, sem
eyðilögð hafa verið, er sendiráðs-
bygging Egyptalands og aðal-
járnbrautarstöðin og mörg
ibúðarhúsahverfi lita úr eins og
vigvöllur eftir árásirnar. Banda-
risk heryfirvöld i Saigon hal'a
neilað að segja nokkuð um til-
gang eða al'leiðingar þessara
1945
hroðalegustu loftárása siðustu
daga.
llroðalegasta árás sögunnar
Árásirnar á miðvikudag eru
mesta sprengjuárás sem um
getur i allri striðssögu mann-
kynsins. Sprengjumagnið, sem
bandariskar flugvélar vörpuðu á
Norður-Vietnam þann eina dag,
var miklu meira en sprengimagn
kjarnorkusprengjunnar sem
varpað var á Hirosima hinn 6.
ágúst 1945, og i dag voru
árásirnar engu minni.
Talsmaður Bandarikjahers i
Saigon hefur játað að 600 flug-
vélar taki nú þátt i árásunum á
Norður-Vietnam, þar af 100 B-52-
sprengjuþotur. 1 bænum Nguyen,
um 70 km frá Hanoi, var eitt
sjúkrahús og barnaheimili lagt i
rúst i loftárásunum i gær.
Brésnéff harðorður
Leonid Bréfsnéff, formaður
sovézka kommúnistaflokksins,
hélt i dag ræðu i tilefni 50 ára
afmælis stofnunar Sovétrikjanna
og gagnrýndi harðlega hinar
auknu loftárásir Bandarikja-
imanna á Norður-Vietnam.
Yantar sjálfboðaliða
Vietiiamuefndin liefur beðið Rjóðviljann um að koma þeirri
ábendingu á framfæri að sjálfboðaliða vantar til þess að dreifa
blaðinu „Samstaða með Vietnam” sem kom út i fyrradag.
Messiana .Tómasdóttir sá um gerð hlaðsins cn myndin hér að ofan
er af forsiðu þess. Jafnframt mun nefndin leggja áherzlu á það i
starfi sinu þessa dagana að koina i gang fjársöfnun til stuðnings
þjóðfrelsisbaráttu i S.-Vietnam.
Miðstöð Viethaninefndarinnar er i Félagsheimili stiidenla við
llringbraut. Pareropið frá kl. 13til kl. 22 i dag og á niorgun. Simi 2
53 15.
Borgarstjórn frestar
að ákveða staðsetn-
ingu geðdeildar
Landspítalans
— en fé verður veitt til hennar á
fjárlögum og heildarskipulag
Landspítalalóðarinnar
liggur þó fyrir
Miklar umræður urðu um geð-
deild Landspilalans i borgar-
itjórn i gær, en þar lagði Albert
(iuðmundsson til að afgrciðslu á
málinu yrði frestað i borgar-
stjórn. Astæðan til þess að málið
keniur til kasta borgarstjórnar cr
sii að borgarstjórn — og áður
bygginganefnd Rvikur — verða
að taka afstöðu til staðsetninar
allra mannvirkja i borginni.
Aöalástæðan sem færö var
l'ram fyrir frestun málsins var sú
aö heildarskipulag Landspitala-
lóðarinnar lægi ekki fyrir enn. 1
ræðu Oddu Báru Sigfúsdóttur
kom fram að nú þessa dagana er
verið að ganga frá heildarskipu-
lagi Landspitalalóðarinnar og þar
með var fallin forsendan fyrir
frestun tillögunnar.
Adda Bára spurði hver væri þá
ástæðan til frestunar. Væru ein-
hverjir þeir borgarfulltrúar, sem
orðið hefðu fórnarlömb undar-
legra blaðaskrifa um þetta mál?
Væri aðalástæða andstöðunnar sú
að eihverjir teldu að geðveikt fólk
ætti ekki samleið með öðru fólki?
Adda Bára sagði að hér væri i
rauninni um grundvallaratriði að
ræða og væri hún eindregið and-
vig þvi að fresta málinu, enda
myndi það ekki hafa nein áhrif á
fjárveitingu til geðdeildarinnar af
hálfu rikisins, sem er inni á fjár-
lögum. betta er grundvallaratriði
vegna þess að þeim kafla i heil-
brigðismálasögu landsins verður
að ljúka, þar sem litið er á geð-
veikt fólk sem óalandi og ó-
ferjandi og að það verði þess
vegna að vistast utan almennra
heilsugæzlumiðstöðva.
Er atkvæði voru greidd um
málið voru 8 með frestun en 5 á
móti. Einn þeirra sem greiddi at-
kvæi gegn frestun var Kristján J.
Gunnarsson (S) og taldi hann —á
grundvelli upplýsinga frá Oddu
Báru — óverjandi að fresta þessu
máli.
Umboösmenn
Þjóðvilja-
happdrættisins
úti á landi
eru minntir á,
að í dag eru
síðustu forvöð
fyrir þá að gera
skil á miðum,
áður en
dregið verður
Alþýðubandalagið í Reykjavík:
Við fordæmum glæp-
samlegar loftárásir
Á félagsfundi Alþýðubanda-
lagsins i Reykjavik, sem haldinn
var i Domus medica i fyrradag,
var eftirfarandi ályktun sam-
þykkt einróma:
„Félagsfundur Alþýðubanda-
lagsins i Reykjavik, haldinn 19.
desember 1972, vekur athygli á
þeim ógnvekjandi atburðum, sem
nú eiga sér stað í Suðaustur-Asiu,
þar sem bandariskir heimsvalda-
sinnar hafa enn magnað árásar-
styrjöld sina gegn þjóðum
Indókina.
Fundurinn fordæmir alveg sér-
staklega hinar glæpsamlegu loft-
árásir Bandarikjahers á borgir
og þéttbýl svæði i N-Vietnam og
árásir bandariskra flugvéla og
herskipa á flóðgarða og áveitu-
kerfi landsins.
Fundurinn beinir þvi til þing-
manna og ráðherra Alþýðu-
bandalagsins að vinna að þvi;að
rikisstjórn Islands viðurkenni
þegar i stað rétta fulltrúa fólksins
i Vietnam og taki svo fljótt sem
auðið er upp eðlileg stjórnmála-
samskipti við stjórn Alþýðulýð-
véldisins i N-Vietnam og Bráða-
birgðabyltingarstjórnina i S-
Vietnam, að rikisstjórn Islands
beri fram ýtrustu mótmæli við
st jórn Bandarikjanna vegna
striðsglæpa og þjóðarmorðs, að
rikisstjórn Islands veiti þjóðum
Indókina raunhæfan stuðning i
frelsisbaráttu þeirra með
pólitiskum aðgerðum og beinni
efnahagsaðstoð.”
Sáttmáli
þýzku
ríkjanna
BERLIN 21/12 — Fulltrúar
rikisst jórna Austur- og
Vestur-Þýzkalands undir-
rituðu i dag i Austur-Berlin
sáttmála rikjanna. bar með
hafa rikin veitt hvort öðru
formlega viðurkenningu, eðli-
leg samskipti geta hafizt milli
rikjanna og þau gcta bæði orð-
ið aðilar að Sameinuðu þjóð-
unum.
þjóðunum.
Það voru ráðuneytis-
stjórarnir Egon Bahr og
Michael Kohl sem undirrituðu
samninginn. Við undirritunina
sögðu þeir báðir að sáttmáli
þýzku rikjanna markaði tima-
mót i sögu Þýzkalands og
Evrópu. pramhajj af bls. 15
Heróíni
smyglað
í líkum
her
manna
WASHINGTON — Árum sam-
an liafa meðlimir giæpahrings
i Bandarikjunum, klæddir
hermannabúningum, smyglað
heróini til USA i likömum fall-
inna hermanna, sem fluttir
hafa vcrið frá Vietnam til
Bandarikjanna, og einnig i lik-
kistum þeirra.
Einn a ða lsm y g la rinn ,
Thomas E. Sutherland, var
handtckinn s.l. mánudag, er
herflugvél kom til Bandarikj-
anna frá Thailandi. 1 flugvél-
inni fundust 20 kilógrömin af
heróini, en söluverð þess i
Bandarikjunum er um 5
miljónir dollara. Með flugvél-
inn voru flutt lik tveggja
handariskra hermanna, og
liafði heróinið verið saumað
inn i líkama hinna dauðu her-
manna.
Sjálfur var Sutherland
klæddur einkennisbúningi
handariskra hermanna ásamt
tignarmerkjum og verðlauna-
merkjum, en við rannsókn
kom i Ijós að hann hafði aldrei
ihernum verið. Ilann játaði að
slik smygl hefðu vcrið stunduð
i átta ár.
Myrtu
5 manns
á skemmti
stað
LONDONDERRY 21/12 —
Tveir grimuklæddir menn
myrtu fimm manns og særðu
marga á skemmtistað einum i
Londonderry á Norður-irlandi
i gærkvöld.
Um 1000 brczkir hermenn
leituðu i dag að morðingjun-
um. Skemmtistaðurinn var I
eigu kaþólsks manns og fjórir
liinna myrtu eru kaþólskir. i
Londonderry óttast menn að
irski lýðveldisherinn muni
reyna aö endurgjalda þessa
morðárás i sömu mynt.
A miðvikudag voru þrir
menn myrtir á götum úti á
Norður-irlandi. Tveir þeirra
voru kaþólskir en einn úr hópi
mótmælenda.