Þjóðviljinn - 31.12.1972, Side 3
Sunnudagur 31. desember 1972 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 3
Kristinn E. Andrésson:
BRUNASÁRIN
1 VlETNAM
Það sviður i hjartað að hugsa til
Vietnam þessa helgidaga.
Fyrir forsetakosningarnar i
haut lét bandarikjastjórn i veðri
vaka að samningar um vopnahlé
væru á næsta leiti og hét að
undirrita þá 31. október. Það
loforð var svikið, og strax að
kosningum loknum setti hún fram
ný og ný skilyrði, sem hvorki
stjórnin i Hanoi né þjóðfrelsis-
hreyfingin gátu gengið að, allt
svikabrellur til að niðurlægja
þjóðina i Víetnam og fá ástæðu til
að halda striðinu áfram með nýju
offorsi. Frá þvi 18. des. hefur,
eins og Manchester Guardian
komst að orði, verulegt morðæði
gripið Nixon bandarikjaforseta.
Hundruð flugvéla af stærstu og
fullkomnustu gerð varpa
sprengjum nótt og dag yfir borgir
og byggðir, yfir óbreytta borgara
jafnt börn sem fullorðna, yfir
gróður jarðar sem mannvirki.
Alls staðar brennur og sviður
undan eldslogum og sprengi-
flisum er smiðaðar eru af
visindalegri hugkvæmni til að
valda sem sárustum kvölum.
Viðbrögð almennings i
heiminum við þessum feiknum
hafa aldrei oröið eins sár og hörð.
Þær vonir sem menn gerðu sér
um frið snerust i nýjar árásir,
ekki strið i venjulegri merkingu
heldur pyntingaraðgerðir eins og
Olav Palmé segir réttilega.
Heimsfriðarhreyfingin hefur
hvatt allar þjóðir til mótmæla
og skorað á forseta Sameinuðu
þjóðanna að gera allt sem f hans'
valdi stendur til að fá þessar
árásir stöðvaðar. Stjórnir
Norðurlanda hafa sýnt virðingar-
vert fordæmi. Svikin við Vietnam
eru svik við allar þjóðir. Þau
vekja sársauka, eru auðmýking
hverjum hugsandi manniá jörðu,
eins og hrækt sé i andlit honum.
Undan brunasárunum i Vietnam
sviður samvizku alls heimsins.
En hvað geta tslendingar gert?
Þeir geta i fyrsta lagi hætt að
afsaka hryðjuverkin og hætt að
vegsama og dýrka forseta
Bandarikjanna, hvað illt sem þeir
aðhafast. Nærtækt dæmi: Sömu
dagana og Nixon lætur rigna
sprengjunum yfir Vietnam háði
fyrirrennari hans Harry Truman
dauðastrið sitt. tslenzkir fjöl-
miðlar hafa sjáldan látið sér jafn
annt um liftóru nokkurs manns.
Þeir viku ekki frá sjúkrabeð
hans, fluttu fréttir af liðan hans æ
ofan i æ og krupu með helgisvip
við hlið Nixons við kistu hans
látins og lögðu áherzlu á hverrar
virðingar hann hefði áunnið sér i
forsetatið sinni. Hver var Harry
Truman og hver voru hin
virðingarverðu afrek hans? Hann
Kristinn E. Andrcsson
varpaði kjarnorkusprengjum á
Hirósima og Nagasaki, steikti i
eldslogum yfir tvö hundruð
þúsundir Japana og eitraði i
grennd hvert byggt ból. Hann blés
að glóðum kalda striðsins, eyði-
lagði árangurinn af starfi Roose-
velts og gekkst fyrir Kóreu-
striðinu, sem meðal annars var
haft að átyllu til að hernema
lsland. Menn geta skilið að Nixon,
eftirmaður Trumans i forsetastóli
og honum ennþá fremri sem
starfsbróðir i myrkraverkum
vilji heiðra minningu hans og
gefa um leið sjálfum sér synda-
kvittun fyrirfram. En hvað
gengur islenzkum fjölmiðlum til?
Morgunblaðið sagði i forystu-
grein á föstudaginn að það sé
„álitamál” hvort Truman hafi
gert rétt að myrða i einu 200.000
Japana. Er ekki ástæða til að
óska hinum kristnu ritstjórum
Morgunblaðsins til hamingju með
þennan nýja jólaboðskap? Nixon
hefur fyrirskipað „þjóðarsorg” i
mánuð eftir Truman. Er til of
mikils mælzt að biðja fjölmiðla á
tslandi, hljóðvarp og sjónvarp, að
hlifa þjóðinni við að heyra nafn
hans oftar?
Og tslendingar geta gert margt
fleira en hætt að tilbiðja forseta
Bandarikjanna. Þeir geta tekið
undir með Vietnamnefndinni og
mótmælt i heyranda hljóði
árásunum á Vietnam, og stutt þar
með hina hugdjörfu andspyrnu-
hreyfingu i Bandarikjunum
sjálfum. Bæði einstaklingar,
félög og landssamtök geta mót-
mælt. Menn ættu að geta stigið,
þó ekki væri nema einn dag, út úr
kölkuðum gröfum sinum, og sýnt
mannlega tilfinningu og alþjóð-
legan samhug. Hvernig geta
prestar landsins stigið i stólinn
þessa hátiöisdaga án þess að láta
striðið i Vietnam hræra hjörtu sin
og mótmæla i guðs nafni og anda
mannkærleikans þeim hryðju-
verkum sem þar eru framin?
Hvernig geta foringjar verka-
lýðsfélaga og Alþýðusambands
Islands látið sjá sig meðal félaga
sinna án þess að hafa fordæmt
þessar nýju árásir á ibúa Viet-
nam? Og hvað með bændasamtök
tslands? Vietnamar eru sjálfir
bændaþjóð.
tslendingar hafa átt skapheita
menn. Bólu-Hjálmar talaði i fullri
einurð við drottin er hann bað
hann að létta neyð ættjarðar-
innar:
en viljirðu ekki orð min
heyra,
eilif náðin guðdómlig,
skal mitt hróp af heitum
dreyra
himininn rjúfa kringum þig.
Jón Vidalin skar ekki heldur
utan af oröum sinum. Það er ekki
nóg að muldra einhverjum mót-
mælum i barm sér, heldur á ræða
þin að vera heit og skorinorð. Og
hver opinber einörð mótmæli af
hálfu tslands eru mikilvæg.
Islendingar hafa i tið núverandi
stjórnar rétt hlut sinn á alþjóða-
vettvangi, eru um þessar mundir
i háu áliti meðal Sameinuðu þjóð-
anna. Það er hlustað á rödd
tslands og hún er þvi þyngri á
metunum sem þjóðin sýnir meiri
dirfsku. Mikilvægt er lika að fara
að dæmi Finria og viðurkenna
þegar i stað stjórnina i Hanoi og
bráðabirgðastjórn Þjóðfrelsis-
hreyfingarinnar i Suður-Vietnam.
Málstaður Vietnams er mál-
staður allra þjóða, hvers ærlegs
manns er þessa jörð byggir.
Kristinn E. Andrésson
ORÐSENDING
FRÁ
RAFMAGNSVEITU
REYKJAVÍKUR
Ef straumlaust verður eru notendur beðnir að slökkva
ó eldavélum og öðrum tœkjum í eldhúsi, til þess að flýta
fyrir þvi að straumur komist ó að nýju.
RAFAAAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
Ævintýragetraun
Samvinnubankans
URSLIT
Ævintýrin, sem Bjössi Baukur birtist í,voru þessi:
1. Rauöhetta
2. Þyrnirós
3. Nýju fötin keisarans
4. Mjallhvít og dvergarnir sjö
5. Jói og baunagrasið
Alls bárust 3930 lausnir. Þegar dregið var úr réttum
lausnum urðu eftirtalin 100 börn hlutskörpust og fá Bjössa
Bauk sendan í verðlaun:
Adolf Friðriksson, Heiðarbraut 45, Akranesi
Agúst Guðmundsson, Njörvasundi 14, Reykjavík.
Anna María Jóhannsdóttir, Hraunteigi 21, 3.hæð, Rvík.
Arni Friðjón Arnason, Krossi, Barðaströnd
Arnór Jónatansson, Ulíðarvegi 3, Isafirði
Asgeir Emilsson, Hainargötu 55, Seyðisfirði
Asgerður Asgeirsdóttir, Eyjabakka 18, Reykjavík.
Asta Teresía Baldursdóttir, Laugarásvegi 39, Reykjavík.
Asta M. Guðlaugsdóttir, Dvergabakka 6, Reykjavík.
Asta H. Jóhannsdóttir, Ránargötu 9, Akúreyri.
Asta Oddleifsdóttir, Haukholtum, Hrunamannahreppi, Arn
Asta Birna Stefánsdóttir, Skipasundi 25, Reykjavík.
Atli Þór Tómasson, Holtagerði 4o, Kópavogi.
Baldur Örn Baldursson, Laugarnesvegi 39, Reykjavík.
Baldur Már Róbertsson, Mánavegi 6, Selfossi
Bergdís Ellertsdóttir, Kóngsbakka lo, Reykjavík.
Birgir Ölafsson, Fjólugötu 11, Vestmannaeyjum.
Björn Indriðason, Kjartansgötu 4, Borgarnesi.
Birna G. Ragnarsdóttir, Skúlagötu 14, Borgarnesi.
Bryndís Theódórsdóttir, Hraunbæ 57, Reykjavík.
Dóra Stefánsdóttir, Baldursgötu 33, Reykjavík.
Edda Georgsdóttir, Háaleitisbraut 33, Reykjavík.
Einar Lúðvíksson, Grenimel 2o, Reykjavík.
Egill Kr. Björnsson, Fjarðarstræti 57, Isalirði.
Elín Jóna Haraldsdóttir, Hörðuvöllum 2, Selfossi.
Elín Hildur Sveinsdóttir, Bjarkarhlíð 6, Egilsstöðum, S-Múl.
Elísabet Stefánsdóttir, Þórustíg 5, Ytri-Njarðvík
Erla Jóhannsdóttir, Kúrlandi 3, Reykjavík.
Eyþór Björgvinsson, Goðheimum 14, Reykjavík.
Fjóla Guðmundsdóttir, Laugarnesvegi 9o, Reykjavík.
Fjóla Sigurðardóttir, Blöndubakka 5, Reykjavík.
Friðrik Sölvi Þórarinsson, Birkivöllum 4, Selfossi.
Gerður P. Guðlaugsdóttir, Stóragerði 18, Reykjavík.
Gísli Þórir Albertsson, Skógum, A-Eyjafjöllum, Rang
Gísli Björgvi.n Konráðsson, Silfurgötu lo, S t ykk ishólmi.
Guðbjörg Steinsdóttir, Hátúni 7, Eskifirði
Guðbjörn Salmar Jóhannsson, Hafnarstræti 17, Isafirði
Guðlaug Halldórsdóttir, Haðalandi lo, Reyk.javík.
Guðný Aðalbjörg Jónsdóttir, Löngubrekku 9, Kópavogi.
Halldór Örn Egilsson, Alfheimum 72, Reykjavík.
Halldóra Ragnarsdóttir, Efstasundi 23, Reykjavík.
Hallgrímur S. Hallgrímsson, Smáraflöt 16, Garðahreppi.
Heiðdís Þorsteinsdóttir, Bugðulæk 12, Reykjavík.
Helena Líndal Baldvins, Strembugötu 16, Vestmannaeyjum.
Helga Halldórsdóttir, Hraunbraut 4, Kópavogi.
Helga Hal1grimsdóttir, Kristnesi, Hrafnagilshreppi, Eyjaf
Hildur Armannsdóttir, Eyjabakka 24, Reykjavík.
Hjördís Þorgeirsdóttir, Meistaravöllum 13, Reykjavík.
Hólmfríður S. Jónsdóttir, Þorfinnsstöðum, V-Húnavatnssýslu.
Hraí nhildur Sveinsdóttir, Fögrubrekku 36, Kópavogi.
Hulda María Mikaelsdóttir, Yrsuíelli 12, Reykjavík.
Höskuldur Sveinsson, Grænuhlíð 14, Reykjavík.
Ingibjörg Gunnarsdóttir, Engihlíð 7, Reykjavík.
Ingibjörg Hinriksdóttir, Hlíðarvegi 42, Siglufirði
Ingibjörg Ölafsdóttir, Efstalandi 16, Reykjavík.
ívar Gunnarsson, Asavegi 23, Vestmannaeyjum.
Jakob Hjaltason, Laugargerði, Biskupstungum, Arnessýslu
Jenný B.jörk Sigmundsdóttir, Ferjubakka 12, Reykjavík.
Jens Ölafsson, Kjartansgötu 2, Reykjavík.
Jóhanna Bergmann, Blönduhlíð 14, Reykjavík.
Jóhannes 11. Jónsson, Vogagerði 4, Vogum, Vatnsleysuströnd.
Jón Harðarson, Víðihvammi 5, Kópavögi.
Karólína S. Hróðmarsdót t ir, Laugalæk 9, Reyk.javík.
Katrín Asgrímsdóttir, Hafnarbraut 2, Höfn, Hornafirði.
Kristín Valdimarsdóttir, Hraunbæ 114, Reykjavík.
Lára Gunnvör Friðjónsdóttir, Geitlandi 11, Reykjavík.
Lára Kristín Pálsdóttir, Kleppsvegi 128, Reykjavík.
Laufey Helga Asmundsdót t i r , Fagrabæ lo, Reyk.javík.
Leifur Magnússon, Hoísvallagötu 61, Reyk.javík.
Magnús S. Kristinsson, Nönnustíg 1, Hafnarfirði
Margrét Ö. Magnúsdóttir, Birkimel 6, Reykjavík. •
María Jónsdóttir, Háaleitisbraut 39, Reykjavík.
María B. Magnúsdóttir, Asvallagötu 46, Reykjavík.
ölafur Ragnarsson, Skúlagötu 14, Borgarnesi.
Ragnar Haraldsson, Hörðuvöllum 2, Selfossi
Ragna Ragnars, Bólstaðarhl íð 15, Reyk.javík.
Ragna & Ingibjörg Sæmúndsdætur, Hraunbæ 17o, Reykjavík.
Rannvéig Guðrún Gísladóttir, Samtúni 8, Reykjavík.
Reynir Sigurðsson, Teigagerði 12, Reykjavík.
Sigrún Gunnarsdóttir, Laufvangi 9, Hafnarfirði
Sigurður Örn Eiríksson, Fögrubrekku 43, Kópavogi.
Sigurður Halldórsson, Tunghaga pr. Egilsstaðir.
Sigurjón Vilhjálmsson, Hlemmiskeiði, Skeiðum, Arnessýslu
Sigurlín Jóna Baldursdóttir, Alfhólsvegi 25, Kópavogi.
Sigursteinn Hjartarson, Neðri-Hundadal, lalasýslu.
Sjöfn Sigfúsdóttir, Hólavegi 34, Sauðárkróki.
Stefanía Sif Thorlacíus, Haðalandi 18, Reykjavík.
Steinunn Geirmundsdóttir, Lyngheiði 11, Selfossi.
Steinunn Steingrímsdóttir, Langholtsvegi 167, Reykjavík.
Svava Jóhannesdóttir, Skipholti 3o, Reykjavík.
Svava Björg Svavarsdóttir, Borgarfossi v/Arbæ, Reykjavík.
Unnur Runólfsdóttir, Hraunbæ 18, Reykjavík.
Unnur S. Sigurðardóttir, Skipholti 47, Reykjavík.
Vala Ölafsdóttir, Leifsgötu 19, Reykjavík.
Valdimar Sigurðsson, Melabraut 42, Seltjarnarnesi.
Vilhjálmur Jón Guðjónsson, Bræðraborgarstíg 19, Reykjavík.
Þóra Svavarsdóttir, Skálagerði 9, Reykjavík.
Þórarinn Ingi Ölafsson, Digranesvegi 115, Kópavogi.
Þórir Björn Jónsson, Asbraut 21, Kópavogi.
Örn Arason, Stóragerði 17. Hvolsvelli, Rang.
$
SAMVINNUBANKINN