Þjóðviljinn - 31.12.1972, Qupperneq 9
Sunnudagur 31. desember 1972 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9
Jóhann J.E.Kúld
sjötugur í dag
Jóhann J.E. Kúld er sjötugur i
dag að sagt er. Enginn sér á
Jóhanni merki aldraðs manns
a.m.k. ekki við starfsmenn Þjóð-
viljans sem hittum hann margoft,
er hann leggur fram skrif sin,
þættina Fiskimál, sem nú hafa
birzt hér i blaðinu um langt ára-
bil. Ekki verður þess vart að
aldraður maður stýri þar penna,
þvert á móti tekur Jóhann sifellt á
nýjum og nýjum viðfangsefnum
og er um leið óþreytandi að fylgja
eftir hugmyndum sinum um það
sem til heilla má horfa.
Fiskimálaþættir Jóhanns J.E.
Kúlds hafa verið blaðinu ákaflega
dýrmætt efni. Vegna þeirra hefur
mikill fjöldi manna fengið sér-
stakan áhuga á Þjóðviljanum og
þeim málstað er blaðið flytur
daglega. i annan stað er það ó-
metanlegt að hafa liðsmann við
dagblað sem skrifar af jafnmikilli
þekkingu og jafnmikilli einurð
um málaflokk, sem á Islandi
hefur svo geysimikla þýðingu,
sem er sjávarútvegurinn og allt
er að honum lýtur.
Jóhann hefur ekki innt Þjóð-
viljann eftir verklaunum fyrir
verðmætt framlag sitt gegnum
árin. Hann hefur á seinni árum
verið einn örfárra manna sem á
þennan hátt hafa lagt blaðinu lið
með efni án þess að fá nokkurn
tima annað en þakklæti okkar
sem að blaðinu stöndum frá degi
til dags. En Jóhann hefur unnið
starf sitt að fiskimálaþáttum
Þjóðviljans sem áhugamaður um
sjávarútvegsmál, sem sósialisti,
sem fórnfús, baráttuglaður liþs-
maður, og svo gerir hann enn bg
gerir vonandi sem lengst.
Jóhann Kúld! Þjóðviljinn flytur
þér enn þakkir fyrir framlag þitt.
Þakkirnar eru vissulega fátækleg
afmælisgjöf, en þær eru fluttar af
heilum hug samstarfsmanna og
lesenda þinna.
Þjóðviljinn óskar afmælis-
barninu alls góðs og væntir
árangursriks samstarfs i fram-
tiðinni sem hingað til.
Happdrætti
vangefinna.
Einn mesti eldhugi og áhuga-
maður islenzkrar verkalýðs-
hreyfingar, Jóhann J. E. Kúld,
rithöfundur og fiskimatsmaður,
er sjötugur i dag.
Jóhann er Mýramaður og
Breiðfirðingur að ætterni. Hann
er fæddur að Okrum i Hraun-
hreppi i Mýrasýslu 31. des. 1902,
sonur hjónanna Eiriks Kúld
Jónssonar bónda þar og Sigriðar
Jóhannsdóttur frá öxney. Hann
stundaði nám i Iðnskóla i Reykja-
vik 1920 en lagði siðan fyrir sig
sjómennsku næstu árin. Árin
1920-1926 var hann búsettur i
Noregi og stundaði mest veiði-
skap og siglingar. Arið 1926 settist
hann að á Akureyri og átti þar
heima til 1941. Stundaði hann þar
sjómennsku en átti um skeið við
vanheilsu að búa og dvaldi af
þeim sökum um tima á
Kristneshæli. Eftir að Jóhann
fluttist til Reykjavikur árið 1941
starfaði hann um tima hjá brezka
flotanum að björgunarstörfum en
gerðist siðan birgðastjóri hjá
flugmálastjórn rikisins. Þá
starfaði Jóhánn við fiskimat 1950-
1961 og var m.a. fiskvinnsluleið-
beinandi sjávarútvegsráðu-
neytisins 1958-1959. Siðar vann
hann alllengi við skrifstofustörf
og hefur nú fyrir nokkru hafið að
nýju störf við fiskmat rikisins og
gegnir þar mikilvægum fræðslu-
og forystustörfum.
Hér verða ekki tfunduð öll þau
félags- og forustustörf sem
Jóhann Kúld hefur sinnt af sinum
alkunna áhuga um dagana. Þess
skal þó getið að hann var aðalfor-
göngumaður að stofnun Sjó-
mannafélags Norðurlands (siðar
Sjó mannafél^Akureyrar) og var
kjörinn fyrsti formaður þess og
átti sæti i stjórn þess meðan hann
bjó á Akureyri. Þá vann hann
ötullega að stofnun Sambands
islenzkra berklasjúklinga meðan
hann dvaldist á Kristneshæli og
gaf þá út blaðið Berklavörn. Hann
átti sæti i stjórn Sambands
islenzkra berklasjúklinga 1938-
1939. Hann hefur jafnan látið sig
Styrktarfélags
samvinnumál miklu skipta og
verið formaður i deildarstjórnum
KRON frá 1946. Hann hefur verið
virkur þátttakandi i Rithöfunda-
félagi Islands og átti sæti i stjórn
þess 1958-1960. Hann átti sæti i
stjórnskipaðri nefnd sem vann að
endurbótum á fiskframleiðslu
1958-1959.
Jóhann hefur fengizt allmikið
við ritstörf og eru lesendum Þjóð-
viljans ekki sizt kunn skrif hans
árum saman um sjávarútvegs-
mál, sem eiga sér stóran og
sivaxandi lesendahóp. Hefur
Jóhann skilað þeim skrifum af
einstakri reglusemi og ódrepandi
áhuga þess manns sem veit sig
hafa margt jákvætt og fræðandi
fram að færa um undirstöðuat-
vinnuveg landsmanna. Mun ekki
um það deilt að skrif Jóhanns um
þessi mál séu byggð á óvenju vfð-
tækri þekkingu og fróðleiksöflun
sem óhjákvæmilega hefur tekið
mikinn tima og haldið er við af
þeirri atorku og dugnaði sem
Jóhannier gefinn flestum fremur.
Er enginn vafi á að upplýsinga-
starfsemi og skrif Jóhanns um
sjávarútvegsmál hafa skilað
ótrúlegum árangri fyrir sjómenn
og sjávarútveg hér á landi og
vakið marga til nýrrar vitundar
um mikilvægi og farmtiðarmögu-
leika fiskveiða og nýtingar
sjávarafla.
En ritstörf Jóhanns eru ekki öll
talin þótt minnzt sé á þennan um-
fangsmikla þátt þeirra. Hann
hefur auk þess skráð allmargar
bækur um sjómennsku og sjó-
mannalif. Fyrsta bók hans,
tshafsævintýri, kom út 1939 og
siðan hver af annarri: Svifðu
seglum þöndum (1940), Á hættu-
svæðinu (1942), Um heljarslóð
(1943), Á valdi hafsins (1946),
Þungur var sjór (1948) og Upp
skal faldinn draga, kvæði (1955).
Eru bækur Jóhanns lipurlega
skrifaðar og hinar fróðlegustu.
En auk þeirra liggja eftir hann
fjöldi blaðagreina eins og fyrr er
að vikið.
Jóhann Kúld hefur jafnan verið
mikill áhugamaður um félagsmál
og látið þau til sin taka á marg-
vislegum vettvangi. Ekki sizt
hefur verkalýðshreyfingin og
samtök islenzkra sósialista notið
áhuga hans og starfskrafta ára-
tugum saman. Hann var eins og
áður er að vikið brautryðjandi
hagsmunasamtaka sjómanna á
Akureyriog starfaði þar einnig af
áhuga og dugnaði i stjórnmála-
hreyfingu verkalýðsins. 1 sam-
tökum sósialista hér syðra hefur
hann aldrei látið á sér standa til
starfa og lagt mikið af mörkum.
Hefur aldrei á honum staðið er
þurft hefur á liðsinni að halda i
starfi og baráttu hreyfingarinnar.
Hann var m.a. i kjöri við þing-
kosningar bæði i Mýrasýslu og
Snæfellsnessýslu fyrir Sósialista-
flokkinn og gegndi fyrir hann
ýmsum öðrum trúnaðarstörfum.
1 Alþýðubandalaginu hefur
Jóhann einnig verið ötull og virk-
ur félagi og m.a. setið i miðstjórn
þess og látið þar mikið til sin
taka.
Jóhann Kúld er gæddur óvenju-
legum áhuga fyrir þeim málum
sem hann hefur tekið ástfóstri við
og veit til heilla horfa. Hann er
heilsteyptur atorkumaður og
hreinskiptinn drengskaparmaður
sem mikill ávinningur er að eiga
samfylgd með og vinna með að
sameiginlegum áhugaefnum. Þar
sem Jóhann er er aldrei logn eða
deyfð.heldur lif og starf,og fram-
lag hans er slikt að hann ætlast
einnig til að aðrir liggi ekki á liði
sinu. Með honum er gott að starfa
að sameiginlegum áhugamálum
og hann kann vel að taka bæði
sigrum og ósigrum.
Jóhann Kúld er tvikvæntur.
Fyrri konu sina, Halldóru Þor-
steinsdóttur, missti hann 1934
eftir fárra ára sambúð. Siðari
kona hans er Geirþrúður
Asgeirsdóttir hjúkrunarkona,
bónda á Arngerðareyri við tsa-
fjarðardjúp Gúðmundssonar.
Nú á sjötugsafmælinu nýtur
Jóhann Kúld þeirrar gæfu að búa
við gott heilsufar og óskerta
starfskrafta. Ahugi hans og
storka er með þeim hætti að
margur sem yngri er að árum
þættist fullsæmdur af. Ég veit að
þessi siungi eldhugi leggur nú upp
i áfanga áttunda áratugsins með
óbugaðan hug og af þeirri bjart-
sýni og trú á framtiðina sem lengi
hefur verið honum drjúgt vega-
nesti. Ég óska afmælisbarninu
allra heilla og þó fyrst og fremst
þess að honum megi lengi enn
endast sá lifskraftur og sú starfs-
orka sem gerir hann öllum
minnisstæðan sem með honum
hafa barizt og starfað að
sameiginlegum hugðarefnum.
Guðmundur Vigfússon.
Jóhann J.E. Kúld er sjötiu ára i
dag 31. desember 1972. Sjötugir
menn eru taldir nokkuð farnir að
eldast og eru það vissulega ef
miðað er við árafjölda. En aldur
talinn i árum segir ekki allt, jafn-
vel blekkir á stundum. Menn
ungir að árum geta verið
staðnaöir i skoðunum og áhuga-
litlir nema um sina eigin velliðan.
Sjötugir menn og eldri geta
verið ungir i reynd, ferskir og
skýrir i hugsun, opnir og mót-
tækilegir fyrir nýjum viðhorfum,
áhugasamir um samfélagsleg
málefni og verið virkir þátt-
takendur i starfi á fleiri en einum
vettvangi; svo er um Jóhann J.E.
Kúld. Þannig hefur hann raunar
alltaf veriö i huga undirritaðs frá
þvi persónuleg kynni okkar hófust
fyrirum það bil tveim áratugum.
Raunar hafði undirritaður heyrt
nafnið Jóhann Kúld löngu áður en
leiðir okkar lágu saman, einfald-
lega vegna þess að Jóhann J.E.
Kúld hefur verið þjóðkunnur
maður um áratuga skeið. Leiðir
Jóhanns og undirritaðs lágu
saman i sósialiskum stjórnmála-
samtökum, Sósialistaflokknum
og Alþýðubandalaginu, og höfum
við starfað þar saman i sömu
„deild” um tuttugu ár. Telég þaö
mikið happ að hafa notið félags-
skapar og samstarfs við Jóhann
Kúld og vil nú nota tækifærið að
þakka honum vináttu hans og
hvatningu, þegar ekki leit vel út
um okkar sameiginlegu áhuga-
mál.
Jóhann J.E. Kúld er þjóð-
kunnur maður eins og áður var
sagt, og hefur viða komið við og
lagt fjölmörgum félagslegum
málum liðsinni sitt. Virkur þátt-
takandi i verkalýðsmálum m.a.
stofnandi og fyrsti formaður Sjó-
mannafélags Akureyrar, frum-
kvöðull við myndun samtaka
berklasjúklinga, áhugasamur
stuðningsmaður samvinnu-
hreyfingarinnar, m.a. meö starfi
i KRON og stöðugt virkur þátt-
takandi i sósialisku flokksstarfi
islenzkrar alþýðu. Megin-áhuga-
efni Jóhanns J.E. Kúld hefur
verið starf og afkoma islenzkra
sjómanna. Hefur Jóhann með
greinum sinum og ritgerðum um
islenzka fiskiskipaútgerð, fisk-
veiðar og verkun fiskafla, unnið
frábært og ómetanlegt starf. I
hinum óteljandi greinum og rit-
gerðum Jóhanns um sjávarút-
veginn hefur mjög oft verið vakin
athygli á nýjum möguleikum i
sjávarútvegi, sem siðan hafa
reynzt arðsamir og mikilvægir i
atvinnulegu tilliti. En aðalmark-
mið með ritgerðum Jóhanns J.E.
Kúld er og hefur alltaf verið að
efla hag hins óbreytta islenzka
fiskimanns og verkafólksins sem
vinnur aflann i landi.
Jóhann J.E. Kúld hefur vissu-
lega verið einn þeirra braut-
ryðjenda sem fyrstir kveiktu
eldana, ekki til að orna sjálfum
sér, heldur fyrst og fremst vegna
heildarinnar, Margur nýtur nú
þeirra elda sem Jóhann kveikti
einn eða með öðrum.
Jóhann J.E. Kúld hefur lagt
gjörva hönd á margt^m.a. ritað
bækur um sjóferðir sinar og ævin-
týri. Hins vegar er Jóhann tregur
á að segja frá eða að telja upp hin
margvislegu mál sem hann hefur
að unnið. Gaman væri þvi.að hann
ritaði nú bók um reynslu sina og
framgang áhugaefna sinna fyrr
og siðar. Einn aðili á Jóhanni J.E.
Kúld mikið að þakka, mikið
meira en aðrir, það er dagblaðið
Þjóðviljinn. 1 Þjóðviljanum hafa
nú i áratugi birzt greinar Jóhanns
um sjávarútveginn og hafa
þessar greinar hans m.a. gert
Þjóðviljann eftirsóknarverðan.
Sem sósialisti og áhugamaður
um Þjóðviljann þakka ég Jóhann
J.E. Kúld fyrir- hið mikla fram-
lag hans til blaðsins.
Þótt Jóhann J.E. Kúld sé nú
sjötugurer engan bilbug á honum
að finna,og óska ég honum þess að
hann hafi heilsu i mörg ókomin
ár, til að vinna gömlum og nýjum
áhugamálum sinum gagn.
Ég óska Jóhanni J.E. Kúld og
hans ágætu konu, Geirþrúði,
heilla i telefni sjötiu ára
afmælisins.
Gleðilegt nýttár, þökk fyrir þau
liðnu.
Guðjón Jónsson, járnsmiður.
BÍLASKOÐUN & STILLING
Skúlagötu 32.
LJÓSASTILLINGAR
HJÚLASTILLINGAR MOTORSTILLINGAR
Látið stilla i tíma. H|
Fljót og örugg þjónusta. I
13-10 0
IÐNÞJÓNUSTAN S.E.
Sínti 24911
ALHLIÐA FAGMANNSVINNA
Svavar Gestsson
i
BORGAIISPÍTALINN
Heimsóknartími
Frá og með 2. janúar 1973 verða heim-
sóknartimar i Borgarspitalanum i Foss-
vogi sem hér segir:
Mánudaga til föstudaga kl. 18.30-19.30
Laugardaga og sunnudaga kl. 13.30-14.30
ogkl. 18.30-19.00
Heimsóknartimar geðdeildar i Hvita-
bandinu og hjúkrunar- og endurhæfingar-
deildar i Heilsuverndarstöðinni verða
óbreyttir.
Ileykjavík, 28. desember 1972.
Heilbrigðismálaráð Reykjavíkurborgar.
V inningsnúmerin:
R- 13959 Hornet SST
X- 686 Peugeot 304
R- 25869 Datsun 1200
Ó- 205 VW 1300