Þjóðviljinn - 31.12.1972, Síða 11
Sunnudagur 31. desember 1972 l’JÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Sýnishorn af islenzkum fatnaði — annarsvegar almennur tizkufatnaður
og hinsvcgar kápur sem hafa verið seldar með góðum árangri erlend-
is.
Bjart framundan í
ullar- og skinnasölu
Hvernig er svo hljóðið í
þeim sem fást við útflutn-
ing? Við slógum á þráðinn
til Úlfs Sigurmundssonar,
framkvæmdastjóra
Útflutningsmiðstöðvarinn-
ar.
— Það er jafn bjart framundan
i ullar- og skinnasölunni og áður,
þó ekki sé'borðliggjandi að salan
tvöfaldist eins og á árinu sem er
að liða.
—• Það var mikil kápusala á
Bandarikjamarkaði i ár, voru
ekki gerðir einhverjir viðbótar-
samningar?
— Það fer fram forsala nú i
desember og janúar i Bandarikj-
unum, og á þessari forsölu munu
svo frekari samningar byggjast.
Nú er um meira úrval að ræða i
fatnaði en áður, og svo bætist við
á sölulistanum keramik, gull- og
silfurmunir og húsgögn. Við höf-
um haft jákvæðar fréttir af
þessari forsölu. t Evrópu er þessi
söluaðferð ekki stunduð, þar er i
gangi umboðsmannakerfi. Mesti
viðburður á næsta ári verður
sennilega kynning á islenzkum
varningi á vegum Eatons i Winni-
peg i ágústmánuði, og verður
sennilega stærsta búðakynning
sem við höfum tekið þátt i. Við
gerum okkur vonir um að þar
verði seldar vörur fyrir háar upp-
hæðir á okkar mælikvarða.
Þá er verið að kanna hugsan-
legan útflutning á húsgögnum
fyrir Kaupfélag Árnesinga og tré-
smiðjurá Hvolsvelliog Vik i Mýr-
dal, en þessi fyrirtæki ætla að
vinna saman i sölumálum, og eru
að hugsa um sölu til Bretlands.
— sj.
áætlun um húsnæöisbyggingar
fyrirárin 1971 og 1972 var sagt að
þörf væri fyrir byggingu 1800
ibúða á ári, en ekki voru byggðar
nema um 1200 ibúðir hvort árið. A
þessu sést aö langt er frá þvi að
ibúðarþörfinni sé fullnægt.
íbúðalán hækka.
Gert er ráð fyrir að lán Hús-
næðismálastofnunarinnar til
ibúðabygginga hækki á árinu 1973
úr 600 þús. kr. á ibúð i 800 þús.
kr. Þetta gildir fyrir þá sem hefja
framkvæmdir við íbúðabyggingu
á árinu 1973, en fyrir þá sem hófu
byggingu á árunum 1971 og 1972
verður lánið hækkað i 700 þús. kr.
Á árinu 1972 tókst að veita öll-
um þeim úrlausn sem sóttu um
lán til Húsn.málastofnunarinn-
ar, og sagði Siguröur, að þótt nú
þegar væri ekki fengið fé til að
fullnægja jafnmörgum lánaum-
sóknum á árinu 1973, miðað við
800 þúsund kr. lán á ibúð, væri
ljóst að stofnunin yrði að fá það
fé, og fullur vilji væri hjá öllum
aðilum um að útvega það — og
það hlýtur að fást,sagði Sigurður.
—S.dór.
Breiðholtsbyggingar
Ungverskur sérfrœð-
ingur mun aðstoða
við gosefnarannsóknir
Gosefnaframleiðslan byggist fyrst og fremst á raforku
Á árinu sem er að liða var
mynduð samstarfsnefnd
um gosefnarannsóknir, þar
sem Iðnaðarráðuneytið,
Rannsóknarstofnun iðnað-
arins, Rannsóknarstofnun
byggingariðnaðarins og
Orkustofnun eiga hlut að.
Við spurðum Pétur Sigur-
jónsson, . forstöðumann
Rannsóknarstofnunar iðn-
aðarins, hvað væri helzt að
frétta af störfum sam-
starfsnefndarinnar.
Kynnisferð til Armeniu
og fleiri staöa.
Þrir menn fóru i sumar á veg-
um þessarar nefndar til Rúss-
lands, m.a. til Armeniu, þar sem
er mikil perlusteinsvinnsla. Þeir
komu einnig til Tékkóslóvakiu,
Ungverjalands og Austurrikis. 1
förinni voru Aðalsteinn Jónsson,
Haraldur Asgeirsson, og Stefán
Arnórsson. Þeir hafa gefið
skýrslu um förina og á grundvelli
hennar er undirbúningi haldið
áfram
— Hvernig standa málin i dag?
— Það er væntanlegur hingað
ungverskur sérfræðingur til að
vinna frekar að þessum málum.
Þá eigum við von á tækjum i sam-
bandi við þetta.
— Er perlusteinninn hugsaður
til útflutnings?
— Nei, fyrst og fremst sem inn-
lendur iðnaður, en ef um útflutn-
ing yrði að ræða, þá yrði það unn-
inn varningur.
— Er perlusteinninn fyrst og
fremst hugsaður sem byggingar-
efni?
— Hann er til margs nýtur, og
við höfum ekki einskorðað notkun
hans við neitt sérstakt svið. Hann
er af ýmsum gæðaflokkum i
Prestahnjúk, og innanum ágætt
efni, sem er sizt verra en annars
staðar. Nú stendur yfir forkönn-
un, og þá er eftir að gera frum-
sýnishorn og kanna markað,
þannig að a.m.k. næsta ár fer i
áframhaldandi undirbúnings-
störf.
Titarivinnsla ætti
að vera hagkvæm
— Hvað geturðu sagt mér um
frumefnið Titan sem minnzt hef-
ur verið á að vinna hér?
— Það er aðallega notað sem
fyllingarefni, i málningarvörur,
samanber titanhvita, og svo mik-
ið i sambandi við pappirsiðnað og
fleira. Það er mikill markaður
fyrir þetta efni. Hingað til hefur
efnið verið unnið úr rútíl, sem er
tiltölulega hrein málmtegund er
finnst aðallega i Astraliu og er af
það skornum skammti að hún
mun ganga til þurrðar innan tii-
tölulega skamms tima. Þess
vegna hefur áhuginn beinzt að
ilminiti, sem er járntitan-sam-
band og finnst i ýmsum bergteg-
undum. Með þvi að hreinsa þetta
efni úr t.d. sandi er hægt að fá
ágætis hráefni. Þetta hefur verið
gert á kemiskan máta með sýr-
um, en það er ákaflega dýr aðferð
og fylgir henni mikil mengun, svo
að unnið hefur verið að þvi að
vinna þetta með rafhitabræðslu.
Kanadamenn, Bandarikjamenn
og Rússar eru komnir i gang með
rafhitabræðsluna.
— Stendur þetta á algjöru byrj-
unarstigi hjá okkur?
— Undirbúningsrannsóknir
hafa verið gerðar; hingað kom
rússneskur sérfræðingur i vor og
hann vann að undirbúnings- og
hagkvæmisathugunum, og þetta
virðist lita vel út. Fyrir okkur er
þetta áhugavert, þar sem notað
yrði mjög mikið rafmagn við
Pétur Sigurgeirsson
vinnsluna og mengun litil. Það
ætti að vera auðveldara að selja
titanioxýðið en t.d. ál, sem er lok-
aður markaður, en samkeppnin
verður samt hörð og það þarf að
vinna vel að þessum málum.
Basalt og perlu-
steinn í bland
— Svo hafa verið nefnd rör og
leiðslur úr basalti.
— Já, það er hægt að gera
margt úr þessum gosefnum, nota
til dæmis saman basalt og perlu-
stein, og það eru ýmsar hug-
myndir i sambandi við þetta sem
verða athugaðar nánar þegar
Ungverjinn kemur, en hann er
væntanlegur i febrúarmánuði.
— Þessi mál fara sem sagt aö
skýrast seint á næsta ári?
— Já, og þetta er að minum
dómi áhugavert og mikið verk-
efni, en ég vil undirstrika að við
verðum á öllum þessum sviðum i
harðri samkeppni við erlend fyr-
irtæki, en raforkan er undirstaða
alls þessa iðnaðar og þar ættum
við að standa vel að vigi þegar
timar liða fram. Svo erum við
sammála um að leggja ekki i iðn-
að sem byggir á ódýru vinnuafli,
heldur að láta raforkuna vinna
fyrir okkur.
sj.