Þjóðviljinn - 04.01.1973, Síða 1
ingurinn
ófundinn
Siðan á þriðjudagsmorgun
hefur staðið yfir mikil leit að
Erlendi Jónssyni, Suðurgötu 60 á
Siglufirði, en hann sást siðast um
kl. 21 á nýársdagskvöld.
Þrátt fyrir viðtæka leit bæði á
þriðjudaginn og til kvölds i gær
hefur hún enn engan árangur
borið.
Erlendur er sextugur að aldri og
kvæntur.
Sókn gegn
hernum í
Kambodju
PHNOM PENH 3/1. All-
mikill straumur flóttafólks
fer nú eftir þjóðvegi 3 til
höfuðborgarinnar í Kam-
bodju eftir harðar árásir
skæruherja Þjóðfrelsis-
hreyfingar Kambodju á
stöðvar stjórnarhersins.
Skæruherirnir hafa skotið miki-
um fjölda eldflauga að borginni
Tram Khnar, sem er 40 km. fyrir
suðvestan höfuðborgina. Borg
þessi er á miðri sóknarleið skæru-
herjanna á þessu svæði, en þeir
Framhald á bls.15.
Hver var
niður-
staðan?
Hver var niðurstaðan og
hvenær var hún birt al-
menningi? Þannig spyr
Matthias Matthiasson raf-
virkjameistari i grein i
Morgunblaðinu i gær þar sem
hann gagnrýnir hönnun Búr-
fellslinu og telur að islenzkir
sérfræðingar hefðu átt að
fjalla um það mál. Hann spyr
siðan — með ofangreindri
spurningu — hver sé niður-
staðan af rannsókn á bilun
Búrfellslinu fyrir tveimur ár-
um. Spurninguna lögðum við
fyrir Eirik Briem og eru svör
hans birt á 3. siðu. t forustu-
grein er þetta mál og gert að
umtalsefni. — Sjá 6. siðu.
Línan þyrfti að vera
tvisvar sinnum öflugri
Segir Páll Bergþórsson veðurfrœðingur um Búrfellslínuna
Biaðið sneri sér i gær til
Páls Bergþórssonar veður-
fræðings vegna þess veðurs
sem gekk yfir suðvestur-
land fyrir jólin og varð þess
valdandi að Búrfellslína
skemmdist og þéttbýlis-
svæðið varð rafmagnslaust
við upphaf jólahátíðarinn-
ar. Páll Bergþórsson sagði
þá meðal annars:
Eftir þvi sem ég hef komizt
næst eru kröfur um Búrfellslinu
þær að hún þoli 55 1/2 metra á
sekúndu i vindhraða i mestu vind-
hviðum eða 100 hnúta. Þetta er
allt of litið ef linan á að vera
sæmilega stöðug.
1 fyrsta lagi má almennt gera
ráð fyrir 100 hnúta vindhraða i
mælingarhæö, sem er 10 metrar
frá bersvæði. Slikur vindhraði
mældist hér i Reykjavik fyrir um
30 árum svo dæmi sé nefnt. En.
auk þess þarf i öðru lagi að gera
ráð fyrir þvi að vindur er allmiklu
snarpari i meiri hæð og þegar
komið er upp i 60 metra hæð má
gera ráð fyrir 20-30% meiri vind-
hraða en i mælingarhæð. Þetta
þýðir að reikna verður með 120 til
130 hnútum.
En ekki eru öll kurl enn til graf-
ar komin, þvi að gera verður ráð
fyrir öryggisstuðli til þess að
mæta óvenjulegustu aðstæðum.
Algengt er að reikna þannig með
50% krafti i viðbót við það mesta
sem búizt er við.
Ég tel þvi að eðlilegt hefði verið
að hanna linuna með tilliti til 150
hnúta vindhraða, sem þýðir að
hún hefði átt að vera tvisvar sinn-
um traustari þvi veðurþunginn
eykst meira en hlutfallsleg aukn-
ing vindhraðans i hnútum.
Það má auðvitað segja, sagði
Páll Bergþórsson, að mestu vind-
hviðurnar komi ekki af þessum
krafti á alla iinuna i einu. En á
móti kemur að i miklum vindi
sveiflast linan til og þá koma
rykkir sem geta verið varasamir.
Og ofan á þetta allt saman þarf að
gera ráð fyrir isingu.
Páll sagði að lokum að töluvert
hefði vantað á það á dögunum að
veðurhæðin næöi þvi sem mest
gerist. Þannig mæizt 80 til 85
hnútar á suðvesturlandi — en
samt fór linan og rafmagnslaust
varð.
) * gg .
Iliill
■
i
Utfluttar iðnaðarvörur:
Gengishagnaði ráðstafað í
fyrsta sinn til hagræðingar
Ríkisst jórnin hefur
ákveðiö að verja gengis-
hagnaöi af útfluttum
iðnaðarvörum, sem fram-
leiddar voru fyrir l. jan
1973, til sérstakra ráðstaf-
ana i þágu iðnaðarins i
landinu. i auglýsingu, sem
birt hefur verið frá
iðnaðarráðuneytinu, segir
að við skil gjaldeyris til
banka fyrir útfluttar
iðnaðarvörur framleiddar
fyrir 1. jan 1973 skuli hann
greiddur útflytjanda á
gamla genginu, og færður á
sérstakan reikning á nafni
ríkissjóðs i Seðlabankan-
um.
Gengishagnaði þessum
skal ráðstafað af rikis-
stjórninni í þágu iðnaðarins
samkvæmt nánari ákvörð-
un.
Ákvörðun rikisstjórnarinnar
um þetta efni hefur verið tekin
samkvæmt heimild i lögum frá
20. des. s.l.
Þetta er i fyrsta skipti, sem
gengishagnaði af útfluttum
iðnaðarvörum er ráðstafað með
slikum hætti, en við fyrri gengis-
fellingar hefur gengishagnaði af
útfluttum sjávarafurðum hins
vegar oft verið varið til sérstakra
ráðstafana i þágu sjávarútvegs-
ins eða til að greiða niður gengis-
tap á lánum hans.
Rikisstjórnin hefur nú lögum
samkvæmt fullt vald til ráð-
stöfunar á þeim gengishagnaði,
sem myndast við gengisfelling-
una, af útfluttum iðnaðarvörum.
Ekki mun óalgengt að fyrirtæki
liggi með birgðir af framleiðslu-
vörum fyrir 1-2 mánuði og álverk-
smiðjan og kisilgúrverksmiðjan
fyrir lengri tima.
Þau fyrirtæki, sem keypt hafa
rekstrarvörur vegna þeirra
birgða, sem þau liggja með, á er-
lendum lánum, sem greiða verð-
ur samkvæmt nýja genginu, geta
sótt um undanþágu frá skilum á
gengishagnaði, en verða að gera
það fyrir 15. þ.m.
Ekki er á þessu stigi hægt að
gera sér fulla grein fyrir, hver sú
upphæð verður, sem með þessum
hætti myndast til opinberra ráð-
stafana i þágu iðnaðarins sem
heild, en ráðgert er að fénu verði
varið til að greiða fyrir nauðsyn-
legum skipulagsbreytingum i
rekstri iðnaðarins, hugsanlegum
samruna fyrirtækja og hvers kon-
ar hagræðingu.