Þjóðviljinn - 04.01.1973, Qupperneq 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 4. janúár 1973
DWÐVIUINN
MaLGAGN sósíalisma,
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann
Kitstjórar: Kjartan Ólafsson
Svavar Gestsson (ál>.)
Auglýsingastjóri: Heimir Ingimarsson
Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar:
Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 linur).
Askriftarverö kr. 225.00 á mánuði.
Lausasöluverð kr. 15.00.
Prentun: Blaöaprent h.f.
GLUNDROÐAKENNINGIN LIÐIN UNDIRLOK
Það fer merkilega litið fyrir borgar-
stjórn Reykjavikur i fréttum stærstu fjöl-
miðla landsins. Þó eru jafnan að gerast
þar fróðleg tiðindi, sem mætti vissulega
vekja athygli á. Til dæmis hefur það sjálf-
sagt farið fram hjá furðu mörgum að
næstliðin tvö til þrjú ár hafa verið að ger-
ast merkileg pólitisk tiðindi i samskiptum
vinstriflokkanna. Vinstriflokkarnir i
borgarstjórn eru fjórir. Að baki þeim
stendur meirihluti Reykvikinga, en samt
eru þeir minnihluti borgarfulltrúa — 7 á
móti 8 frá Sjálfstæðisflokknum. Löngum
hefur það verið svo að vinstriflokkarnir
VANTRt Á ÍSLENZKA SÉRFRÆÐINGA
- OFTRt Á ÚTLENDINGA
Á valdatima viðreisnarflokkanna var
rikjandi oftrú á allt það sem útlent er.
Jafnvel islenzk sérfræðiþekking var látin
fyrir róða og fremur fengnir útlendir menn
til þess að annast verk en að fela þau is-
lenzkum sérfróðum aðilum. Þetta er
raunar grundvallarástæðan fyrir raf-
magnsleysi á Landsvirkjunarsvæðinu um
jólin. Það kemur fram i grein i Morgun-
blaðinu i gær eftir Matthias Matthiasson,
sem sjálfur hafði yfirstjórn með byggingu
130.000 volta háspennulinunnar frá
Reykjavik að írafossi 1952, siðan við lagn-
ingu 130.000 volta turna háspennulinu frá
Irafossi að Steingrimsstöð. Sú lina hefur
staðizt öll veður hingað til, rok og isingu.
En þegar reisa átti turnana fyrir Búrfells-
linu þótti ekki ástæða til að leita til þeirra
manna sem á þennan hátt höfðu áður
gengið frá hliðstæðum mannvirkjum hér-
lendis. Um það segir Matthias Matthias-
son, rafvirkjameistari: ,,Landsvirkjun
hefði aldrei átt að vera með þennan upp-
skafningshátt við erlenda sérfræðinga
heldur átt að snúa sér að okkur islenzku
verkfræðingunum, sem þekkja landið
okkar og veðráttu þess hér norður á hjara
heims miklu betur en lognverkfræðing-
arnir i Chicago og Paris.” ,,Ég er hand-
viss um það” segir Matthias ennfremur
,,að bandariskir raforkuframleiðendur
mundu aldrei i Bandarikjunum byggja
eins veikbyggða háspennulínu og Búr-
fellslinu ...”
Það var bandariska verkfræðifyrirtækið
Harza, sem hafði eftirlit með þolprófun
stálturnanna á Búrfellslinu og siðar hafði
sama fyrirtæki eftirlit með lagningu lin-
unnar. Greinilegt er nú, að þetta fyrirtæki
var ekki vandanum vaxið; það þekkti ekki
islenzkar aðstæður á neinn hátt. „Logn-
verkfræðingar” þess réðu ekki við verk-
efnið. En islenzkir sérfræðingar um linu-
lagningar fengu hvergi nærri að koma og
þvi fór sem fór. Og enn geta rafmagnsnot-
endur átt eftir að finna fyrir þvi sjálfir að
oftrú á það sem útlent er getur orðið dýr —
en þeir mega um leið prisa sig sæla yfir að
dekurstefnu við útlendinga mun ekki leng-
ur fylgt.
FÉLL Á EIGIN PRÓFI
Morgunbl^ðið kallar sig blað allra
landsmanna. „Blað allra landsmanna”
hefur enn ekki flutt fréttir af stærsta fundi
sem hérlendis hefur verið haldinn vegna
erlendra atburða. Er hér átt við mót-
mælafundinn gegn loftárásum á Vietnam,
sem haldinn var á gamlársdag i Reykja-
vik. En stundum birtir þetta hofmóðuga
blað fregnir eða jafnvel ræður stjórn-
málaandstæðinga i heild: — það er til
dæmis gert i gær, þegar birtist ræða for-
hafa átt erfitt með að vinna saman og það
er ekki fyrr en nú á þessu kjörtimabili að
flokkarnir hafa staðið algerlega samein-
aðir að afgreiðslu fjárhagsáætlunar. Þeir
hafa saman flutt ályktunartillögur, borg-
arfulltrúar vinstriflokkanna hafa skipt þvi
með sér að mæla fyrir þessum ályktunar-
tillögum.
Nú vita vinstrimenn i Reykjavik gerla,
að meginstyrkur ihaldsins i borgarstjórn-
arkosningum i höfuðstaðnum hefur verið
svonefnd „glundroðakenning”; að ihaldið
gæti eitt stjórnað borginni — tapaði það
meirihlutanum hlytist af glundroði með
samsteypustjórn hinna flokkanna. Nú hef-
ur það — eins og áður segir — sannazt að
þessir flokkar allir geta mæta vel starfað
saman að málefnum Reykjavikurborgar.
Alþýðubandalagið, Alþýðuflokkurinn,
Framsóknarflokkurinn og Samtök frjáls-
lyndra þurfa nú að taka höndum saman og
stefna að þvi að ihaldið falli i Reykjavik i
borgarstjórnarkosningunum á næsta ári,
1974.
Einlægir vinstrimenn i höfuðstað lands-
ins vilja vafalaust að vinstriflokkarnir i
borgarstjórn standi þannig að málum sem
eftir er kjörtimabils borgarstjórnar að
sem beztar likur verði á sigri þeirra og
falli ihaldsins. Það væru mikil tiðindi og
góð, ekki aðeins i sögu borgar heldur og i
sögu þjóðarinnar allrar.
sætisráðherra, er hann flutti á gamlárs-
dag. Fyrirsögn ræðunnar i Morgunblaðinu
er þessi: „Enginn þjóð reynzt íslending-
um betur en Bandarikjamenn. Skulum
setjast niður með Bretum og reyna að
leysa landhelgismálið”. Þjóðin þekkir
ræðu forsætisráðherra frá gamlárskvöldi
og hún veit hversu nærri lagi tilvitnuð fyr-
irsögn er. „Blað allra landsmanna” hefur
fallið á eigin prófi ennþá einu sinni.
Nábýli hersins
og Hornfirðinga
Mörg eru undarleg tiltæki
bandarísku herstjórnarinn-
ar og kemur sumt fram hér
á íslandi i sambandi við
dvöl bandarískra her-
manna hér á landi.
Engum sælgætispökkum
mun hafa rignt yfir
Víetnam úr bandarískum
flugvélum um nýliðin jól,
en ekki eru reyndar ýkja
mörg ár síðan bandaríska
herstjórin heimskaði sig á
slíkum sendingum úr lofti
yfir Víetnam meðan
skammvinnt hlé varð á
sprengjuregninu.
Austur á Hornafirði sitja
hins vegar nokkrir
amerískir dátar, sem um
árabil hafa reynt að tæla til
sín íslenzk börn á jólum, ef
verða mætti til að kaupa
ameríska hernum vinsældir
her a íslandi.
Sjálfsagt hefur þörfin
fyrir öflun vinsælda aldrei
verið brýnni en nú, og
sælgætispakkarnir amer-
isku hér á íslandi vaxið í
réttu hlutfalli við aukið
sprengjumagn í Víetnam.
En unga fólkinu á Höfn
í Hornafirði var nú nóg
boðið.
Því tóku menn sig til og
útbjuggu þann dreifimiða,
sem við birtum hér á
síðunni og var hann borinn i
hvert hús í þorpinu.
Af jólagleði ameriskra
hermanna á Islandi árið
1972 hefur Þjóðviljinn hins
vegar engar fréttir.
Frá fréttaritara Þjóðviljans í Hornafirði:
Hreppsnefnd Hafnarhrepps varar
við áfengisböli
Hreppsnefnd Hafnar-
hrepps í Hornafirði hefir
nýverið gert samþykktir
varðandi áfengismál, enda
ekki ástæðulaust að fyrir-
menn ríkis- og bæjarfélaga
láti slík vandamál til sín
taka.
Fyrir nokkru var sam-
þykkt á fundi hrepps-
nefndar áskorun á alþingi
þess efnis, að það sam-
þykki þingsályktunartil-
lögu þá, sem þingmenn
allra flokka hafa lagt fyrir
alþingi um bann við vín-
veitingum í opinberum
veizlum.
Á fundi sínum þann 21.
desember síðast liðinn
gerði hreppsnefndin svo þá
samþykkt í áfengismálum í
þrem liðum, er hér fylgir:
„1. Með tilliti til þeirra vanda-
mála, sem skapast við áfengis-
neyzlu ungiinga og alls þess
iila, sem af henni kann að leiða,
skorar hreppsnefnd Hafnar-
hrepps á alla, sem áfengi hafa
um hönd, að láta það ekki tii
unglinga undir 18 ára aldri,
enda er það refsiverður glæpur,
sem löggæzla verður að láta til
sin taka.
2. Hreppsnefndin skorar á öll
félög, félagasambönd og
klúbba að sýna gott fordæmi
mcð þvi að veita ekki áfengi i
veizlum eða á fundum og sam-
komum á þeirra vegum.
3. Hreppsnefndin samþykkir að
ekki verði veitt vin I veizlum,
sem haldnar eru á vegum
Hafnarhrcpps”.
Hátíð
friðarins
A meðan við höldum jólin
hátiðleg, murkar vinaþjóð
vor, sem einnig gerir sér
dagamun um þessar mundir,
lifið úr saklausri smáþjóð á
fjarlægum slóðum.
Þessari vinaþjóð vorri sýn-
um við tráust og virðingu með
þvi að leigja hluta af landi
okkar i nafni „varna”.
Jólagjafir bandariska
hersins i Vietnam hafa verið
eyðilegging á landi og út-
rýming heilla fjölskyldna og
þorpa.
Hluti þessa sama hers
heldur jólin hátiðleg á tslandi.
Hvar er virðing og reisn
hinnar göfugu islenzku
þjóðar?
Er það sæmandi vopnlausri
smáþjóö, að hafa her i landi
sinu?
Við höfum fært landhelgi
okkar út i 50 sjómilur. Er það.
vegna dvalar hersins, að litið
er gert til að vernda land-
helgina?
Er það verjandi, að á meðan
miljónir barna svelta, þá er ef
til vill þitt barn að horða
molana af borðum „barna-
vinarins” Nixons i formi svo
kallaðs jólaboðs?
VÖKUM, rekum herinn
burt, losum okkur undan
skömminni og höldum raun-
veruleg jól, hátið friðarins, i
herlausu landi árið 1974.
Ilerstöðvaandstæðingar Höfn.