Þjóðviljinn - 04.01.1973, Page 7

Þjóðviljinn - 04.01.1973, Page 7
Fimmtudagur 4. janúar 1973 PJÓÐVILJINN — SIÐA 7 Mikið hefur verið ritað um skólamál á Kúbu, enda er hér um að ræða einn mikilvægasta þátt byltingarinnar og þróun landsins i átt til sósialisma og kommúnisma að mestu leyti undir þvi komin hvernig til tekst með uppeldi æskulýðsins. Fyrsta stóra átakið i menntamálum eftir sigur ,,hinna skeggjuðu” var útrýming ólæsis. Um það bil einn fjórði hluti landsmanna var ólæs og óskrifandi fyrir byltingu, en árið 1961 var ólæsi útrýmt á rót- tækan og nýstárlegan hátt, svo sem mörgum mun kunnugt vera. Siðan hafa verið gerðar margar tilraunir i skólamálum, sumar hafa heppnazt vel, aðrar miður. einsog gengur. Þessar tilraunir hafa allar verið liður i umfangs- mikilli leit að þvi formi sem bezt hentaði kúbönskum aðstæðum. Stærstu spurningarnar sem þessar aðstæður vekja eru: hvernig getur fátækt land séð öll- um ibúum sinum fyrir menntun, og hver á að kenna öllu þessu fólki? Nú þykjast Kúbumenn hafa fundið lausn á þessum vandamál- um. 1 nokkur ár hafa þeir gert til- raunir með framhaldsskóla af nýrri gerð, svokallaða sveita- skóla, þar sem nám og starf er samtvinnað á nýstárlegan hátt. Fyrir rúmu ári voru 5 eða 6 slikir skólar starfandi i landinu, en svo að stofnkostnaður hefði verið u.þ.b. 800.000 pesos, en að fram- leiðsluverðmæti á ári yrðu ekki undir einni miljón. Annað stórt vandamál er, einsog fyrr var getið, kennara- skorturinn. Kúbanskir unglingar eru orðnir vanir þvi, að beztu nemendurnir i hverjum bekk séu fengnir til að kenna hinum, undir eftirliti kennara, sem á þennan hátt getur séð um fleiri nemendur en ella. Að sjálfsögðu er þetta engin alls- herjarlausn á vandamálinu, og nú hefur ný tilraun hafizt. Hún er fólgin i þvi, að þeir sem getu og löngun hafa til, verða eftir i skólanum að loknu námi i tiunda bekk (siðasta bekk sveitaskól- anna). Þeir sameina siðan kennslu og kennaranám i þrjú og hálft ár, taka þá kennarapróf, sem veitir þeim rétt til kennslu og einnig til inngöngu i háskóla. Þúsundir unglinga taka nú þátt i þessari tilraun. Skólinn sem ég heimsótti er einn af elztu sveitaskólunum, hefur starfað i 3 ár. Hann er stað- settur skammt utan við Havana, i héraðinu Artemisa, og er kenndur við unglingana fjóra sem myrtir voru i stúdentaóeirðunum i Kent, USA árið 1968: „Martires de Kent” heitir hana Skólastjórinn er ungur maður að nafni Orestes Amador NÝJUNG í SKÓLA- MÁLUM ÁKÚBU s Námið er samræmt hagnýtum störfum i landbúnaöi. hófst fjöldaframleiðsla á þeim. 1 september s.l. voru vigðir 44 nýir sveitaskólar og þegar þetta er ritað er ómögulegt að vita hve margir hafa verið teknir i notkun siðan i september, svo mikill er hraðinn i byggingunni. Landbúnaður er og verður , a.m.k. i náinni framtið undir- staða kúbanska efnahagslifsins. Vélvæðing landbúnaðarins er við- fangsefni númer eitt. Við slikar aðstæður er nauðsynlegt að ungt fólk fáist til að yrkja jörðina og læri að meðhöndla vélar. Vélvæð- ing kallar á aukna tæknimenntun. Sveitaskólum erætlaðað sjá fyrir þessum þörfum. Hins vegar ætlast enginn til að hver einasti unglingur sem þar stundar nám (eftir nokkur ár verður mikill meirihluti kúbanskra unglinga við nám i slikum skólum) gerist bóndi eða sérfræðingur i landbúnaðarvélum. Skólarnir hafa viðtækara hlutverki að gegna: þeim er ætlað að ala upp fólk með nýtt hugarfar, fólk sem framleiðir verðmæti, en er ekki aðeins neytendur. Byltingin þarfnast menntamanna, sem lifa i tengslum við atvinnulifið og þekkja g ildi starfsins, menntaðrar alþýðu. Fullyrt er að skólarnir muni i framtiðinni verða fjárhagslega sjálfstæðir, framleiðsla ungling- anna á ökrunum muni standa undir byggingar- og rekstrar- kostnaði. Þetta útskýrir að nokkru leyti þá miklu áherzlu sem nú er lögð á byggingú skól- anna, og svarar spurningunni: hvernig er þetta hægt i vanþróuðu landi? 1 skóla þeim, sem ég heim- sótti fyrir skömmu, var mér sagt, Miranda, hressilegur i fram- göngu og hinn viðræðubezti. Hann sýnir mér skólann, og er auðsjá- anlega montinn af fyrirtækinu, enda hafa svona finir skólar aldrei þekkzt á Kúbu. Byggingarnar eru einfaldar og stilhreinar, skólastofurnar bjartar og rúmgóðar og búnar nýtizku kennslutækjum, einsog til dæmis sjónvarps- og segulbands- tækjum, smásjám, og allskyns apparötum, sem ég kann ekki að nefna og notuð eru við eðlis- og efnafræðikennslu. Plastlikön af dýrum eru þarna lika og má taka úr þeim innyflin og skoða. Hver kennslustofa er notuð til að kenna ákveðna námsgrein og skreytt i samræmi við það. Við litum inn i stærðfræðitima. Nemendurnir standa upp þegar skólastjórinn birtist, en hann bendir þeim að setjast. Kennarinn heldur áfram útskýringum sinum. Ég skil ekki bofs, þetta er ný tegund af stærð- fræði og ég var aldrei sleip i þeirri gömlu hvað þá þessari. Ég tek eftir að strákar og stelpur sitja saman við borð, og hef orð á þvi við Orestes þegar við komum út. Hann segir mér að þetta sé liður i uppeldinu, sem byggist á jafnrétti og frjálsum samgangi kynjanna. Þá kemur skandinavinn upp i mér og ég spyr um kynferðis- fræðslu. Nei , svarar Orestes, ekki sem sjálfstætt fag. En lif- fræði er kennd, og innan ramma hennar eru leyndarmál lifsins útskýrð eftir beztu getu. (Kúbu- menn eiga enn langt i land á þessu sviði, fordómar og kreddur vaða uppi, og valda miklum skaða. En samskólar eru skref i áttina og gott til þess að vita að Ingibjörg Haraldsdóttir skrifar frá Havana vandamálið er a.m.k. viður- kennt.) 1 skólanum eru 504 nemendur og 52 kennarar, þaraf 25 kennaranemar. Nemendurnir eru á aldrinum 11 til 17 ára og koma hingað að loknu barnaprófi. Flestir eru héðan úr nágrenninu, synir og dætur bænda og landbúnaðarverkamanna. Allir nemendur búa i heimavist skól- ans og fá að fara heim um helgar. Námið og heimavistin, fæði og föt, osfrv. er algjörlega ókeypis. ,,Meira að segja tannkremið er ókeypis” segir skólastjórinn og hlær. Krakkarnir hjálpa til við að halda skólanum hreinum og skiptast á um að aðstoða i mat- salnum. Vinnudagurinn hefst á þvi að allir nemendurnir koma saman á svæði þvi sem notað er fyrir úti- fundi. Þar er rætt um starfið sem fyrir hendi er og sagðar fréttir úr skólalifinu. Þvinæst fer helming- ur nemenda útá akrana að vinna, en hinn helmingurinn marserar inn i skólastofurnar. Eftir hádegi er skipt, þá taka þeir til við bækurnar sem um morguninn unnu úti, og öfugt. Hver nemandi vinnur á ökrunum þrjá tima á dag. Aðallega fást þeir við bananarækt, en einnig rækta þeir tómata og sitrónur. Skólinn hefur visst svæði til umönnunar og er það hluti af landi stórs rikisbús, þar sem margir foreldrar nem- enda vinna. Þrjú kvöld i viku sitja nemendur i kennslustofunum og lesa námsbækur undir eftirliti og með tilsögn kennara. Annað kvöld skipta þeir sér i svokallaða „áhugahópa”. Þessir áhuga- hópar eru mjög vinsælir i kúbönskum skólum. Hver hópur hefur sinn leiðbeinenda og eru það ýmist kennarar við skólann eða fólk sem fengið er annars- staðarfrá. Áhugamálin eru mörg og mismunandi: leiklist, land- búnaður, skák, trjárækt, kór- söngur, osfrv. Eitt kvöld i viku er svo skemmtikvöld. Þá horfa nemendur á kvikmyndir , dansa, leika á hljóðfæri, ofl. tþróttir eru mikilvægur þáttur i skólalifinu og stundaðar daglega, vinsælustu iþróttirnar eru „baseball”, körfu- bolti og tennis. 1 bókasafni skól- ans geta nemendur lesið bækur sinar og timarit sér til skemmt- unar og fróðleiks. Skólaárið hefst i september og lýkur i júli. Próf eru á tveggja mánaða fresti allan timann og samanlögð útkoma gildir sem lokaeinkunn. Þeir sem falla i tveimur eða fleiri greinum fá tækifæri til að taka haustpróf i ágúst. Hlutfallstala þeirra sem falla er miklu lægri i svona skóla en i venjulegum heimangöngu- skólum, enda hafa kennarar hér tækifæri til að fylgjast náið með nemendum og hjálpa þeim sem þess þurfa. Kennarar búa i heimavistinni ogdeila þvi kjörum við nemendur allan sólarhringinn. Ég spyr skólastjórann: hvað gerist ef kennari giftir sig og stofnar fjölskyldu? Hann svarar þvi til, að þetta sé eitt af þeim vanda- málum sem leitað er lausnar á. Nú eru uppi ráðagerðir um að byggja kennaraibúðir i grennd við skólana. Hinsvegar þykir kennurum ekki ráðlegt að þeir Framhald á 15. siðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.